Morgunblaðið - 06.01.1994, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÍMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994
V örurnar eru ódýrari
í Bónus en hjá heildsalanum
GÖMUL kona kemur á morgnana með pillustaukinn sinn og biður
Erlu eða hann Einar í Skjólakjöri að stilla hann á réttan dag fyrir
sig. Stundum bilar útvarp hjá öldruðum viðskiptavini og hann Einar
sér um að koma því í lag. Nágranni þarf aðstoð við að hringja og
Einar flettir upp í skránni fyrir hann. Svo gefa þau Iijónin sér tíma til
að spjalla við krakkana þegar engjnn er heima hjá þeim. Skjólakjör
er nokkurs konar félagsmiðstöð í Sörlaskjólinu.
■J* í 39 ár hefur hann staðið við afgreiðsluborðið og þjónað viðskipta-
9 vinum sinum vestast í vesturbænum, spurt um líðan þeirra sem
tSm eru veikir, börnin sem eru flutt að heiman og lánað föstum við-
2E skiptavinum þegar lítið var í buddunni.
Otí Einar Strand er búinn að moka sjö hverfaverslanir hér á litlu
snjóinn frá dyrunum og er í svæði. Samkeppnin var næg en þá
[ óðaönn að taka við vörum morg-
uninn sem ég heimsæki hann.
[ Erla, eiginkona hans, er veik og
næstum hver viðskiptavinur sem
[ rekur inn nefið spyr hvemig
1 heilsan sé hjá frúnni.
Það eru engin stórinnkaup
! gerð, brauð, mjólk, jógúrt og
I annað sem hverfur ofan í pok-
I ana. Einar var verslunarstjóri í
[19 ár í búðinni sem þá hét
[ Sunnubúðin áður en þau hjón
1 keyptu hana fyrir 20 árum.
i Verslanirnar voru 7 í
hverfinu
„Þegar ég var að byija voru
datt engum í hug að fara í annað
hverfí til að kaupa inn.“ í þá daga
var Einar með tvo stráka á hjóli sem
höfðu ekki við allan daginn að
sendast með vörur heim til fólks.
„Við vorum að vinna héma fimm
eða sex en nú erum við hjónin hér
að mestu leyti tvö og önnum því sem
þarf að gera.“
Um svipað leyti og Einar keypti
verslunina fór stórum matvöruversl-
unum að fjölga.
„Pólitísk stefna borgaryfirvalda
hefur verið stórmörkuðum í vil. Það
átti að sporna við Sambandsveldinu
og nú er verslun þeirra dauð. Við
litlu kaupmennimir urðum á milli.
Bókhaldsnám. 72 klst.
Markmiðið er að verða fær um að starfa
sjáifstætt og annast bókhaldið allt árið
Byrjendum og óvönum bókhaldi gefst
kostur á grunnnámskeiði
Námið felur m.a. í sér:
♦ Dagbókarfærslur og uppgjör í mánaðalok.
♦ Launabókhald, gerð launaseðla og þeir bæði hand- og
tölvuunnir. Gengið er frá skilagreinum m.a. um
staðgreiðslu og tryggingagjald.
♦ Útreikning skuldabréfa og tilheyrandi færslur.
♦ Lög og reglur um bókhald og virðisauka, gerð
virðisaukaskýrslna.
♦ Afstemmingar.
♦ Merking fylgiskjala, gerð bókhaldsbeiðna.
♦ Fjárhags- og viðskiptamannabókhald í tölvu.
Innifalin er m.a. skólaútgáfa fjárhags- og
viðskiptamannabókhalds og 30% afsláttur frá
verðskrá Kerfisþróunar að 45.000 kr.
Innritun er hafin.
Kennt er á glænýtt Windows Stólpa
fjárhagsbókhald frá Kerfisþróun hf.
Bókhaldsnám, 36 klst.
Námið felur m.a. í sér:
♦ Merkingu fylgiskjala, gerð bókunarbeiðna.
♦ Fjárhags- og viðskiptamannabókhald í tölvu.
Innritun er hafin.
Kennt er á glænýtt Windows Stólpa
fjárhagsbókhald frá Kerfisþróun hf.
TölvubókhaldsnámT 24 klst,
Námið felur m.a. í sér:
♦ Fjárhags- og viðskiptamannabókhald í tölvu.
Innritun er hafin.
Kennt er á glænýtt Windows Stólpa
fjárhagsbókhald frá Kerfisþróun hf.
TöfvuskóU
tv.-v.v.-.vi
Borgartúni 28, sírai 616fi99,
§.í.S »: *.* JÍ É
En hvað með öll þessi gjaldþrot sem
orðið hafa? Einhverjir þurfa að borga
brúsann og hver er það þegar upp
er staðið sem ber kostnaðinn? Þjóðfé-
lagið?“
Mismunandi verð á sama
hlutnum hjá heildsalanum
Einar er ómyrkur í máli þegar
hann talar um búðina sína síðustu
ár. „Við getum engan veginn keppt
við það magn sem stórmarkaðir eru
að kaupa. Heildsalar hafa mismun-
andi verð í gangi eftir því við hveija
verið er að versla. Verstir eru sumir
sem selja undir orðunum Veljum ís-
lenskt — já takk“, segir Einar.
Hann kemur með dæmi. „Ein dós
af Ora baunum kostar í heildsölu 62
krónur. Þá á eftir að leggja á virðis-
aukaskatt og álagninguna mína. Ef
ég fer hinsvegar í Bónus og kaupi
sömu dósir fyrir búðina mína þar þá
fæ ég þær á 54 krónur með álagn-
ingu Bónus og vsk. Það liggur í hlut-
arins eðli að þetta margborgar sig
að gera.
Þetta er aðeins eitt dæmi af ótal
mörgum.
Þessi þróun þýðir að verslun við
kaupmanninn á hominu verður úr
sögunni. Vill fólk það? Næsta skref
er hjá okkur hjónum að hafa opið á
kvöldin og um helgar til að hafa
ofan í okkur. Vinnutíminn í dag er
óhóflega langur eins og í stórborgum
Bandaríkjanna."
Stefnan að útrýma
hverfaverslunum?
Sárast segir Einar að sé skilnings-
leysi borgaryfirvalda á nauðsyn
kaupmannsins á hominu. „í sjö mán-
uði í fyrrasumar var ekki fært í versl-
unina hjá mér því það var verið að
leggja skolprör í götunni. Ég sæi
forsvarsmenn hjá stórmörkuðum
SKJOjHKJOn
Einar Strand, kaupmaðurinn á
horninu vestast í vesturbænum.
sætta sig við slíkt. Ég vildi helst
vera laus við pólitíkina í sambandi
við vinnuna mína. Erlendis er stutt
við bakið á kaupmanninum á horninu
og í Finnlandi og í Noregi er til
£Íæmis mikil áhersla lögð á að hafa
hann á horninu.
Pólitíkin hér virðist vera að útrýma
þeim,“ segir Einar. Hann bendir á
að ef hverfisbúð hætti deyi hverfið
að hluta. Hverfisbúðir eru félagsleg
nauðsyn. Stefnan er að aldraðir geti
Skólanesti
minnkar hjá
eldri krökkunum
Hvert barn borðar að jafnaði 167
g af sykri á dag og þar af eru 96
g hreinn strásykur. Svo mikil
sykurneysla hefur vart verið
skráð í nokkurri neyslukönnun
meðal nágrannaþjóða. Gos-
drykkir og aðrir sykraðir svala-
drykkir eiga drjúgan þátt í þess-
ari miklu neyslu og lætur nærri
að um helmingur sykursins sé
innbyrtur í gegnum þá. Nýleg
könnun Manneldisráðs á matar-
æði skólafólks sýndi auk þess að
þótt flestir nemendur í yngri
bekkjum grunnskóla komi með
ágætt nesti að heiman, fækkar
nestispökkum umtalsvert þegar
komið er í efri bekki.
Starfshópur um næringu barna,
sem stofnaður var sl. vetur, hefur
rætt raunhæfar lausnir á matarmál-
um nemenda á skólatíma og komið
með einfaldar ábendingar um mat
í skóla. Manneldisráð hefur nú gef-
ið út ábendingar á veggspjaldi, en
rétt er að taka fram að tilgangurinn
var ekki að setja skólum fyrirmæli
heldur draga fram mikilvæg atriði
um matarmál nemenda og hvetja
þannig til gagnlegrar umræðu með-
al kennara og foreldra og stuðla
að raunhæfum úrbótum þar sem
þeirra er þörf.
Ábendingar í sjö liðum
- Allir nemendur fái matarhlé um
það bil 2-3 klst. eftir að skólatími
hefst eða á eðlilegum matmálstíma
miðað við hefðir í þjóðfélaginu.
- Nemendur hafi nægan tíma til
að matast, í það minnsta 15 mín.
Leitast skal við að búa nemendum
eins þægilega aðstöðu og hægt er.
- Umsjón sé með nemendum
meðan þeir matast þannig að mat-
málstíminn geti verið notaleg stund
sem veitir tilbreytingu, frá öðru
skólastarfi.
- Nemendur hafí greiðan aðgang
að góðu drykkjarvatni.
- Allir skólar bjóði léttmjólk til
sölu. Ef aðrir drykkir eru seldir í
skólanum skal leitast við að beina
neyslunni til mjólkur, meðal annars
með því að bjóða hana á vægu verði.
- Skólar hafi á boðstólum ávexti
og smurðar samlokur sem eru út-
búnar á staðnum fyrir þá nemendur
sem ekki koma með nesti að heim-
an. Að sjálfsögðu gerist þessa ekki
þörf þar sem heitur matur er fram-
reiddur í mötuneyti.
- Ef kennsla hefst á tímabilinu
11 árdegis til 12.30 hafi nemendur
aðstöðu til að matast í skólanum
aður en skólastarf hefst. ■
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
verið heima sem lengst og séð um
sig sjálfír. í því sambandi gegna
hverfísverslanir mikilvægu hlutverki.
Síðustu tvö árin verst
— Minnkar ekki vöruúrvalið hjá
ykkur með minni veltu?
„Auðvitað en við reynum að halda
því eftir bestu getu sem gerist æ
erfiðara með hveiju ári.“
Einar segir að verslanir með meira
bolmagn en hans búð hafi brugðið á
það ráð að panta inn beint erlendis
frá en það þarf að panta inn gám
og hans verslun hefur ekki ráð á því.
— En bestu árin í Skjólakjöri?
„Öll árin hafa verið betri en undan-
farin tvö ár. Ætli það hafi ekki ver-
ið mest að gera uppúr 1970.“
Skemmtilegast fannst honum hins-
vegar þegar hann var að byija upp
úr 1955 og verslunin var rifín upp i
Sörlaskjólinu.
— Ætlið þið að halda rekstrinum
áfram?
„Já því þó að á móti blási í bili þá
er hópur fólks í hverfinu sem vill
hafa sína hverfisbúð áfram og við
munum reyna að þjóna eftir fremsta
megni.
Það væri hinsvegar gaman að
geta boðið þeim vöruna á lægra verði
en núna.“ ■
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
Útsölur
að byrja og
vörur lækka 30-70%
ÞESSA dagana eru útsölur að
byrja. í Kringlunni og Borgar-
kringlunni eru nokkrar verslanir
þegar byijaðar með útsölu og
um miðjan mánuð ættu flestar
verslanir að vera byrjaðar að
Iækka vörur sínar.
í dag hefst útsala í Cosmo, hjá
Hagkaup á morgun og hjá Engla-
börnum við Bankastræti á laug-
ardag, en þá er svokallaður lang-
ur Laugavegur. Ýmsir verslunar-
eigendur við Laugaveg ætla að
nota tækifærið og byija með út-
sölu þann dag.
Flestum forsvarsmönnum
verslana, sem haft var samband
við, bar saman um að lækkunin
yrði frá 30% og sumir töluðu um
allt að 70% afslátt. Yfirleitt var
erfitt að fá upplýsingar um
hversu lengi útsölurnar ættu að
standa en þó virtust margir ætla
að taka nýjar vörur inn í febrúar.
Útsala hjá Hagkaup
Hagkaup byijar með útsölu á
föstudaginn. Það sem fer á útsölu
þar eru vetrarvörurnar, dömu- og
herrafatnaður, barnafatnaður,
náttfatnaður, nærfatnaður, sokkar,
skór, hluti af búsáhöldum, nokkuð
af leikföngum, rúmfatnaður, sessur
og handklæði.
Útsalan verður með sama sniði
og síðastliðið sumar, mikil lækkun
strax í byijun og lækkunin er að
sögn forráðamanna að meðaltali
50%. Stefnt er að því að lækka
vörurnar aðeins einu sinni. „Harkan
50“ er yfirskrift útsölunnar eins og
síðastliðið sumar og einhveijar
. uppákpnur^rða í.yeijsiunppum