Morgunblaðið - 06.01.1994, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994
Morgunblaðið/Sverrir
Barnabörn Hans Jónssonar, Eva Mjöll og Guðrún Þórey Sigurbjörnsdætur, ásamt vinkonu sinni Sunnu
Þórsdóttur, taka við kerti úr hendi Unnar Tessnow hjá dagvist Sjálfsbjargar. Með þeim á myndinni
eru nokkur börn sem færðu forstöðukonunni Steinunni Finnbogadóttur konfektkassa að gjöf.
FAGNAÐUR
Jólagleði hjá dagvist Sjálfsbjargar
Aárlegri jólaskemmtun dagvistar
Sjálfsbjargar afhentu barna-
barna Hans Jónssonar stofnuninni
peningagjöf, sem þau höfðu safnað
með hlutaveltu. Hans lést í sumar,
en hafði verið vistmaður dagvistar
frá upphafi. Við sama tækifæri
flutti Svava Hansdóttir frumort
þakkarljóð til stofnunarinnar, sem
hún hafði samið í minningu föður
síns.
Meðal annarra dagskráratriða á
jólagleðinni má nefna söng Hjálm-
týs Hjálmtýssonar við undirleik
Brynju Guttormsdóttur, hugvekju
séra Guðnýjar Hallgrímsdóttur og
íjöldasöng við undirleik Sigrúnar
Bárðardóttur. Einig spilaði Wemer
Tessnow á harmonikku og Aríel
Pétursson spilaði á fiðlu við undir-
leik Helgu Ragnheiðar Óskarsdótt-
ur.
Aríel Pétursson, 6 ára, spilaði á fiðlu við
undirleik móður sinnar, Helgu Ragnheiðar
Óskarsdóttur.
Starfsstúlkur dagvistar fylgjast af ánægju með dagskránni.
Richard Nixon fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og dóttir hans,
Tricia Nixon Cox, voru viðstödd minningarathöfn um rithöfundinn
Norman Vincent Peale í New York 29. desember sl.
BANDARLKIN
Rithöfundurinn Norman
Vincent Peale látinn
Bandaríski rithöfundurinn Nor-
man Vincent Peale lést á að-
fangadag 95 ára gamall. Á ævi-
skeiði sínu gaf hann út 46 bækur
á móðurmálinu. Voru sjö bækur
hans gefnar út af Erni og Örlygi,
auk þess sem bókaútgáfan Reyk-
holt gaf út örfáar bækur hans. Ein
mest selda bókin bæði erlendis og
hérlendis, „The Power of Positive
Thinking", eða Vörðuð leið til lífs-
hamingju eins og hún nefnist í ís-
lenskri þýðingu Baldvins Þ. Krist-
jánssonar, hefur verið endurútgefin
nokkrum sinnum hjá bókaforlaginu
Erni og Örlygi. Önnur íslensk bók
eftir Peale náði einnig mikilli sölu
hér á landi en það er bókin Lifðu
lífinu lifandi.
Peale var lærður prestur og lét
sig mannleg málefni miklu skipta,
enda ijölluðu marga bóka hans um
hvernig fólk gæti þroskað og bætt
sjálft sig meðal annars með já-
kvæðu hugarfari. „Ég veit það per-
sónulega að bækur Peales hafa
hreinlega bjargað lífi margra, jafn-
vel komið sem frelsandi þrumu-
Norman Vincent Peale var kom-
inn hátt á tíræðisaldur þegar
hann lést.
fleygur inn í líf manna á örlaga-
stundu,“ sagði Örlygur Hálfdánar-
son bókaútgefandi.
Sophia Loren ásamt eiginmann-
inum Carlo Ponti.
STJÖRNUR
Carlo Ponti
þungt haldinn
Leikstjórinn Carlo Ponti er sagð-
ur vera veill til heilsunnar um
þessar mundir og eru eiginkonu
hans, leikkonunni Sophiu Loren,
ekki gefnar miklar vonir um að
hann nái sér. Ponti gekkst undir
smáaðgerð síðla hausts og átti ekk-
ert að standa í vegi fyrir að hann
næði heilsu. Hann varð hins vegar
miður sín þegar hann sá í sjónvarp-
inu hvernig eldurinn gleypti hvert
húsið á fætur öðru í Malibu í Kali-
forníu þar sem þau hjón eiga stórt
hús. Fékk hann alvarlegt hjartakast
og í kjölfarið dó náinn vinur hans
Federico Fellini. Hafði það ekki síð-
ur áhrif á gamla manninn, sem er
rétt tæplega áttræður. Eru horfur
hans því ekki taldar mjög góðar,