Morgunblaðið - 06.01.1994, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1994
47
Morgunblaðið/Rúnar B. Ólafsson.
Nýjavélin
BOEING 757-200 þotan sem bæst hefur í flugvélaflota Flugleiða.
Mikill áhugi á jólagetraun Heimilistækja
Yfir sjö þúsund
manns tóku þátt
DREGIÐ var í jólagetraun Heimilistækja 28. desember sl. en
hún var birt í 8 síðna auglýsingablaði sem fylgdi Morgunblaðinu
mánuði áður eða 28. nóvember. Þátttaka var mun meiri en
starfsmenn Heimilistækja áttu von á, en svör bárust frá rúm-
lega 7.000 lesendum.
Ný Boeing
757-200 tU
Flugleiða
NÝLEG Boeing 757-200 þota
bættist í flugvélaflota Flug-
leiða fimmtudaginn 30. desem-
ber. Flugleiðir hafa tekið að
sér rekstur þotunnar fyrir Jap-
anska kaupleigufyrirtækið
Sunrock Aircraft Corporation
sem á þotuna. •
Þessi þota er smíðuð í byijun
ársins 1990. Síðan hafa ýmis flug-
félög í Evrópu haft hana á leigu,
Air Europe, Air Holland, Air
Europa, Air UK Leisure og Inter
Europian Airways. Áður en Flug-
leiðir tóku við þotunni fór hún í
mikla skoðun í Bretlandi og þar
var hún einnig heilmáluð.
Þessi Boeing 757-200 þota hef-
ur nú verið skráð hérlendis og ber
hún nú íslensku einkennisstafína
TF-FIK. Verkefni þotunnar verða
aðallega leiguflug erlendis á veg-
um Flugleiða.
Að sögn Maríu Johnson, mark-
aðsstjóra Heimilistækja, saman-
stóð jólagetraunin af þremur létt-
um spurningum. Svör fóru strax
að streyma inn og voru þátttak-
endur að koma hlaupandi alveg
fram á síðustu stundu á hádegi á
aðfangadag. María segir að sér
hafi talist til að svörin hafi verið
7.116, sem var mun meira en búist
hafði verið við.
Vinningshafi var dreginn út í
beinni útsendingu á Bylgjunni 28.
desember sl. Oddný Thorsteinsson
datt í lukkupottinn og hlaut hún
28 tommu Philips-sjónvarpstæki í
verðlaun.
Undirbúningur hafinn fyrir
Fegnrðarsamkeppni Islands
UNDIRBÚNINGUR fyrir Fegurðarsanikeppni íslands 1994 er hafinn.
Úrslitakeppnin verður haldin á Hótel Islandi í lok apríl en áður fara
fram keppnir víða um landið.
Undankeppnirnar fara fram á
tímabilinu frá janúarlokum fram í
marz.. Fegurðarsamkeppni Reykja-
víkur fer fram á Hótel Islandi, feg-
urðarsamkeppni Vesturlands fer
fram í íþróttahúsinu á Akranesi,
Fegurðarsamkeppni Norðurlands fer
fram í Sjallanum á Akureyri, Feg-
urðarsamkeppni Austurlands fer
fram í Egilsbúð á Neskaupstað, Feg-
urðarsamkeppni Suðurlands fer
fram á Hótel Örk í Hveragerði og
Fegurðarsamkeppni Suðurnesja fer
fram í Stapanum í Njarðvík. Engin
keppni verður á ísafirði að þessu
sinni.
Sigurvegarar á hveijum stað öðl-
ast þátttökurétt í aðalkeppninni og
fá að auki vegleg verðlaun. Nokkrar
stúlkur til viðbótar verða að auki
valdar til þátttöku í aðalkeppninni,
en alls munu 18-22 stúlkur taka
þátt í úrslitakeppninni að þessu
sinni.
Góður árangur Svölu
Fegurðardrottning íslands 1993,
Svala Björk Arnardóttir, náði þeim
góða árangri á árinu að verða i 5.
sæti í keppninni Ungfrú Evrópa. Hún
mun taka þátt í keppninni Ungfrú
Alheimur í Puerto Rico næsta vor.
Framkvæmdastjóri Fegurðarsam-
keppni íslands er eins og í fyrra
Esther Finnbogadóttir. Hún tekur
við ábendingum um stúikur til keppn-
innar. Þá munu framkvæmdaaðilar
á hveijum stað taka við ábendingum
og Sólveig á Hótel Islandi tekur við
ábendingum um stúlkur á höfuðborg-
arsvæðinu.
r ** ■
Hjálparsveitin
er aldrei langt undan
V/SA
Hjálparsveit skáta Reykjavík
LANDSBJORG
Jxonur
í Breiðliolti!
Stundið
M
samsræ
kt
kveríi!
Að eiga kost á því að stunda leikfimi eða
líkamsrækt í eigin hverfi er eitthvað sem ekki
öllum býðst. Bæði getur það sparað tíma og gert
konum kleift að stunda líkamsrækt á öðrum
tímum en annars henta.
Ef þú býrð í Breiðholti þá skaltu nýta þér
þjónustu JSB í Hraunbergi.
Aðhaldsflokkar.
Fyrir þær sem þurfa, vilja og
ætla í megrun núna...
Vigtun-mæling-mataræði. Fundir með Báru.
■ Grænt kort.
Grænt kort gildir í alla flokka alla daga
vikunnar þar til flokkarnir eru fullsetnir.
Þessi kort eru miðuð við þarfir þeirra sem^
vilja hafa sveigjanleika
á mætingu og ástundun.