Morgunblaðið - 06.01.1994, Síða 50

Morgunblaðið - 06.01.1994, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994 CD CZD BAN C 1 CD O 1992 Fvcus Círloons/Dtstnbuied by Unrversal Press Synckcate 10-7 LJAISá>i-A SS/CóOC-TUAP-T // AfsakaJba.-.en Pú ert meh penn.anyi okkcur " Með mí)rgunkaffinu En sniðugt að við skyldum hittast, það er afmælisdag- urinn minn í dag! Ást er. . . 2-H ... að lesa ástarbréfin aft- ur og aftur og aftur ... TM Reg. U.S Pat OH.-all rlghts raservod * 1994 Los Angetes Times Syndicate f HÖGNI HREKKVtSI BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Fyrsta hóphnattferðin? Frá Birni Stefánssyni: Fyrir nokkru birtist í Morgun- blaðinu frétt frá „hnattförum á vegum Heimskiúbbs Ingólfs“, þar sem skýrt var frá því, að „fyrsta hópferð Islendinga kringum hnött- inn“ væri þá nær hálfnuð. Keilmlík frétt birtist í Morgun- blaðinu, að mig minnir síðari hluta árs 1985 eða árið 1986, frá ferða- skrifstofu Ingólfs Guðbrandssonar, sem á þeim tíma hét Ferðaskrif- stofan Utsýn. Þá stærði ferðaskrif- stofan sig af fyrstu hópferð íslend- ing_a til Suðurálfu. Ég fann mig þá knúinn til að mótmæla þeirri fullyrðingu og fékk svargreinina birta í Morgunblað- inu. Það sama geri ég nú, í sam- bandi við þessa nýju frétt. A um það bil sex vikna hringferð um hnöttinn fóru íslendingar meðal annars í hópferð til Suðurálfu í janúar til marz 1985! Á íslandi eru starfandi félags- skapur fyrrverandi skáta og stuðn- ingsmanna skátahreyfingarinnar, sem heitir St.Georgs gildin á ís- landi. Félagið er grein á alþjóðleg- um meiði, „International Fellowship of former Scouts and Guides", sem hélt sambandsþing í borginni Christchurch á suðureyju Nýja Sjá- lands í janúarlok og byrjun febrúar 1985. íslenzku gildin áttu um þess- ar mundir fulltrúa í stjóm samtak- anna, sem var að ljúka sex ára kjörtímabili, en annar Islendingur var í framboði til stjómarkjörs. Ekki þótti annað fært en mæta til leiks. Var því ákveðið með góð- um fyrirvara, að gildin efndu til hópferðar á þingstað. Hópurinn, sem í ferðinni ætlaði, var ekki stór, aðeins þrettán manns — en hópur þó. Löng ferð var framundan. Svö löng, að fljótlega kviknuðu hug- myndir um að gera hana að virki- legri heimsreisu. Haft var samband við ferða- skrifstofur, bæði innanlands og utan. Samþykkt var, eftir nána skoðun tilboða, að semja við Ferða- skrifstofuna Útsýn, þótt dönsk ferðaskrifstofa hefði boðið nokkru hagstæðara verð, og ákveðið að leggja upp 20. janúar 1985. Undir- búningur virtist í góðum farvegi og tilhlökkun feðafélaganna mikil, þegar skilaboð komu frá Útsýn um miðjan nóvember 1984 í þá veru, að því miður gæti hún ekki skipu- lagt ferðina! Engan skyldi undra, þótt vonbrigðin yrðu mikil. Ekki var þó gefizt upp, og sam- dægurs var haft samband við dönsku ferðaskrifstofuna Hans H. Kristensen, Rejsebureau. Ekki þurfti lengi að veljast í vafa, því strax morguninn eftir var komið símbréf frá Kaupmannahöfn með fullkominni ferðaáætlun og verðtil- boði, miðað við gistingu á fyrsta flokks hótelum, ýmist með hálfu eða fullu fæði og fjölbreyttar skoð- un arferðir. Verðið reyndist tiltölu- lega lítið hærra en á jafnlangri sólarlandaferð íslenzku ferðaskrif- stofanna, þrátt fyrir að danskur fararstjóri ferðaðist með hópnum alla leiðina, sem reyndist happa- dijúgt. Lagt var upp í ferðina 21. jan- úar 1985 og flogið til Lundúna. Þar var gist í eina nótt, en síðan flogið beint til Los Angeles, þar sem dvalið var í nokkra daga í Beverly Hills og famar skoðunar- ferðir um borgina og nágrenni hennar. Þaðan var síðan flogið til Auckland á Nýja Sjálandi, með milliiendingu á Hawaii, en í Auck- land var skipt um flugvél og flogið til Christchurch. Tók ferðin milli hótela í Beverly Hills og Christ- church samtals 26 klukkustundir. Það fældi okkur þó ekki frá því að bregða okkur í rússneskan ís- sirkus, er við höfðum skolað af okkur ferðarykið og neytt kvöld- verðar. Talsvert var ferðazt um báðar eyjarnar og ýmsir merkir og fagrir staðir skoðaðir, áður en flogið var til Sydney í Ástralíu. Þar var dval- ið í nokkra daga og lystisemda og fegurðar borgarinnar notið í ríkum mæli, áður en haldið var til Singa- pore, þar sem við tókum meðal annars þátt í austurlenzkum ára- mótafagnaði 19. feþrúar. Eftir nokkurra daga viðdvöl í Singapore var haldið til Tælands, eða nánar tiltekið til Bangkok, þar sem einnig skyldi eytt nokkrum frábærum dögum, en móttökur þar og skipulagning voru til fyrirmynd- ar, ferðast vítt og breitt um borg- ina og nágrenni hennar og merkir staðir skoðaðir. Að lokum var flogið aftur til Lundúna, með millilendingu í Bahrain. Það voru ánægðir ferða- langar, sem komu heim til Islands, eftir sex vikna ótrúlega vel skipu- lagða og heppnaða „hópferð kring- um hnöttinn“. í upphaflegri ferðaáætlun hafði verið ráðgerð áning á einhverri af Suðurhafseyjunum, en því miður hafði dönsku ferðaskrifstofunni ekki reynzt unnt að útvega gisti- rými á neinni þeirra með svo skömmum fyrirvara, svo við urðum að sleppa þeim að sinni, og bætti klukkustundar dvöl á Hawaii þar lítið úr. Áður en lagt var upp í ferðina, var haft samband við innlenda hljómplötuútgefendur og sníktar af þeim hljómplötur með flutningi íslenzkra tónlistarmanna á rammíslenzkri tónlist. Plöturnar voru afhentar útvarpsstöðvum í Christchurch, Auckland og Sydney og íslendingafélaginu í Sydney að gjöf. Eiga útgefendurnir miklar þakkir skildar fyrir. Vonandi hafa þessar hljómplötur orðið suðurálfu- hlustendum til nokkun-ar ánægju og reynzt góð kynning íslenzkrar tónlistarmenningar á fjarlægri slóð. BJÖRN STEFÁNSSON, Háholti 27, Keflavík. segja að þetta fallega torg er gamla Miðbænum mikil lyftistöng. Það hlýtur að vera næsta skref að gera myndarlega upp gömlu húsin í kringum torgið, ljarlægja ýmsar missmekklegar síðari tíma breyt- ingar á þeim og gera þetta torg að þeirri borgarprýði, sem það hefur alla burði til að verða. xxx Víkverji sér nú ástæðu til að fagna því að búið er að ijar- lægja staurana, sem troðið var nið- ur við listaverk Jóns Gunnars Árnasonar, Sólfar, við Skúlagöt- una. Brottnám stauranna kostaði baráttu og eiga þeir, sem þar gengu fram fyrir skjöldu, miklar þakkir skildar. Hitt er svo aftur að listaverkinu stendur nú ógn af garði þeim sem hlaðinn hefur verið meðfram göt- unni. Er með ólíkindum að borgar- yfirvöld skuli enn og aftur vilja ganga á hlut þessa listaverks. Sól- farið á auðvitað að standa það hátt, að það njóti sín, hvaðan sem það er litið augum. Víkverji leggur til að pallurinn undir listaverkinu verði hækkaður upp fyrir skammsýni borgaryfir- valda í garð þessa listaverks. Víkveiji skrifar Yíkveiji fagnar mjög kjöri Sig- urbjörns Bárðarsonar, hesta- íþróttamanns, sem íþróttamanns ársins. Áður en til úrslitanna kom var enginn vafi í huga Víkveija um það, að Sigurbjörn væri sá, sem útnefndur skyldi. Hins vegar verð- ur að segjast eins og er, að Vík- veiji hafði von en ekki vissu um það, að íþróttafréttamenn þekktu sinn vitjunartíma og gætu séð út fyrir hinar hefðbundnu íþrótta- greinar, þegar til efsta sætisins kæmi. Þeim til ævarandi hróss svöruðu íþróttafréttamenn kalli tímans. Það er ástæða til að óska öllum til hamingju með þessa útnefningu. Kunningja Víkverja, sem bú- settur er í Englandi, var tvennt efst í huga þegar hann kom heim í jólafrí og hitti skrifara að máli. I fyrsta lagi hafði flugi Flug- leiða frá London seinkað um þijá klukkutíma þegar kunninginn var á leiðinni heim og hann hímdi því á Heathrow-flugvelli í fjóra tíma. En kunninginn lét vel af þjónustu Flugleiða; farþegum var boðið upp á myndarlegan málsverð og flug- fréyjurnar lögðu sig fram um að þóknast farþegum á leiðinni heim. Til fyrirmyndar, sagði kunninginn. xxx Hitt atriðið, sem kunningjanum lá á hjarta, var auðvitað munurinn á biðraðamenningu Eng- lendinga og íslendinga. Útlaginn sagðist ekki fyrr hafa verið kominn á Keflavíkurflugvöll en farið var að ryðjast fram fyrir hann í biðröð- um. Svo fór hann í Kringliina og kvartaði sáran yfir því að íslend- ingar kynnu ekki að nota rúllu- stiga. Víkveiji getur tekið undir það og hefur bent á þennan vanda áður. Með siðmenntuðum þjóðum standa menn ævinlega hægra meg- in í rúllustiganum, til þess að þeir, sem eru að flýta sér, geti skotizt fram úr vinstra megin. Þetta er svipuð regla og sú, að ökumenn eigi að taka fram úr á vinstri ak- rein og hægfara farartæki að halda sig á hægri, þar sem tvær akrein- ar eru í hvora átt. En íslendingar kunna hvoruga regluna. Víkverji lagði leið sína niður í Miðbæ í fyrsta sinn um nokk- urt skeið óg sá þá Ingólfstorg fúll- búið: Það er skemmst frá því að'

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.