Morgunblaðið - 08.02.1994, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞUIÐJUDAGUR 8. FÉBRUAR 1994
Fundið til í ljóði
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Unnur Sólrún Bragadóttir: Mar-
íutásur í bandaskóm. Blómakarf-
an, bókaútgáfa 1994.
Er á þetta lítandi? hét fyrsta ljóða-
bók Unnar Sólrúnar Bragadóttur og
kom út 1971. Svarið var umsvifa-
laust já. Síðan hefur komið frá henni
ljóðabókin Fyrir utan gluggann
(1991) og nú Maríutásur í banda-
skóm.
Nýja bókin_ skiptist í tvo hluta,
ljóðaflokkinn ísafold og Maríutásur
sem í eru ýmis ljóð.
Saga ísafoldar er rakin í myndum
úr lífi hennar. Þungamiðjan er basl.
Það er helst í bernskunni, „í rabarb-
araskóginum með ömmu“, sem lífíð
er áhyggjulaust. Baráttan tekur svo
við með öllum þeim kröfum sem þjóð-
félagið gerir til fólks. Aftur á móti
gildir það um ljóðaflokk Unnar Sól-
rúnar að yfir honum er léttleiki sem
forðar honum frá að verða tómur
harmagrátur.þótt ástandið sé alveg
nógu slæmt.
Þegar „fímbulvetur sálar“ tekur
völd finnur ísafold „svo til í ljóðinu".
Aður en lauf taka líka að falla í ljóða-
garði „gjaldþrotasumarið" er farið í
langa göngu í sama garði:
laufpð tré
og lítt þroskuð epli
gleypti hvert orð
með kjarnahúsi
fann það vaxa í sér
hún
Unnur Sólrún Bragadóttir
ljóðhús vetrar
að vori
allar gáttir opnar
og svo
heilt sumar
Miðað við það hve erfitt er að tjá
lífsreynslu á borð við ísafoldar í ljóði,
hætt við að úr verði eingöngu flatur
texti og einhliða boðun, þykir mér
Unni Sólrúnu takast það á viðunandi
hátt. Þrátt fyrir þjakandi upptalning-
ar hversdagsefna, ásókn „óskáld-
legs“ veruleika, hefur flokkurinn
ljóðræna kosti sem gerir hann meira
en skýrslu.
Skýjalykt í húsi
Hversdagsleikanum lýkur ekki
með ísafold. í síðari hluta
bókarinnar, Maríutásum, er hann
enn á ferð. Þeir sem búa til dæmis
við Grágötu 13, öryrkinn Jón í risinu,
Sigga í kjallaranum og Sigurður á
miðhæðinni, hafa ekki ástæðu til
bjartsýni. Það er helst að sú sé örugg
og að vissu marki hamingjusöm sem
heima á í húsi sem.ekki er hægt að
selja á uppboði vegna þess að inni í
því er „svo vond skýjalykt“.
í þessum hluta eru ljóð sem eru
æskilega hnitmiðuð án þess að vera
gátur. Ég nefni Um stjörnu, Til
Gústa, Þín að eilífu og lokaljóðið
samnefnt bókinni.
Ballerínan er heppnað ljóð að því
leyti að það segir sögu brostinna
vona og fjarlægra drauma á skýru
máli án málalenginga og óþarfra
ályktana.
Um afskorið eyra Van Goghs hafa
margir ort og fæstir með- árangri.
Slíkum ljóðum hættir til að verða
eins konar ávani skálda. Unnur
Sólrún vandar sig og er ekki í
vondum félagsskap hvað þetta
varðar, en hún nær betur til
lesandans þegar hún speglar hina
fremur dapurlegu íslensku samtíð.
Það er þó á færi skáldskaparins að
ljá henni lit.
riLBOB TilBO® TiLBOÐ TIIBOS TILBOB TILBOÐ Tflfc
AEO Rykbamba...
...nú bjóðast allar tegundir
AEG ryksuga á sérstöku tilboðsverði
Vampyr 730i
kraftmikil
1300 wött
dregurinn
snúruna,
2 fylgihlutur,
Litur: Ijósgrá.
Réttverö 12.520,-
eba 11.894,- stgr
Tilboð stgr.
9.990,-
0 JiíBOB
Vampyr 763i ^
1300 wött,
stillanlegur sogkraftur,
dregur inn snúruna,
innbyggö fylgihluta-
geymsla.
Litur: Ljósgrá.
Réttverö 15.210,-
eöa 14.450.- stgr
Tilboö stgr.
12.710,-
Vampyr 821
1300 wött, stillanlegur
sogkraftur,
dregur inn snúruna,
innbyggö fylgihluta-
geymsla.
Litur: órá.
Réttver b 17.618,-
eba 16.737,- stgr
Tilboð stgr.
13.490,-
Vampyr761i
1300 wött,
stillanlegur sogkraftur,
dregur inn snúruna,
innbyggö fylgihluta-
geymsla.
Litur: Raub.
Réttverö 15.210,-
eÓa 14.450,- stgr
Tilboö stgr.
12.710,-
VELDU ÞER TÆ.KI SEM ENDAST
Hjá Bræbrunvm Ormsson bjóðast þér góðar ryksvgur
á sjrstöku tilbobsverbi
O I
Umboðsmenn Reykjavík
og nágrenni:
BYKO Reykjavík, Hafnarfiröi
og Kópavogi
Byggt & Búiö, Reykjavík
Brúnás innréttingar.Reykjavík
Fit, Hafnarfiröi
Þorsteinn Bergmann.Reykjavík
H.G. Guöjónsson, Reykjavík
Rafbúöin, Kópavogi/
Vesturland:
Málningarþjónustan, Akranesi
Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi
Blómsturvellir, Hellissandi
Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi
Ásubúö.Búöardal
Vestfiröir:
Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfiröi
Edinborg, Bíldudal
Verslun Gunnars Sigurössonar
Þingeyri
Straumur.Isafiröi
Noröurland:
Kf. Steingrímsfjaröar.Hólmavík
Kf. V-hún., Hvammstanga
Kf. Húnvetninga, Blönduósi
Skagfiröingabúö, Sauöárkróki
KEA, Akureyri
KEA, Dalvík
Bókabúö, Rannveigar, Laugum
Sel.Mývatnssveit
Kf. Þingeyínga, Húsavík
Urö, Raufarhöfn
Austurland:
Sveinn Guömundsson, Egilsstööum
Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi
Stál, Seyöisfiröi
Verslunin Vík, Neskaupsstaö
Hjalti Sigurösson, Eskifiröi
Rafnet, Reyöarfiröi
Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi
KASK, Höfn
Suöurland:
Kf. Rangæinga, Hvolsvelli
Mosfell, Hellu
Árvirkinn, Selfossi
Rás, Þorlákshöfn
Brimnes, Vestmannaeyjum
Reykjanes:
Stapafell, Keflavík
Rafborg, Grindavík.
Um land allt!
o
Ö'
*
0
Ó
AEG
Heimilistæki og handverkfæri
índesíf
Heimilistæki
Heimilistæki
ismet
Heimilistæki
ZWILLING
J.A. HENCKELS
Hnífar
@BOSCH
Bílavarahlutir - dieselhlutir
BRÆÐURNIR
ORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
Umbobsmenn um land allt
MENNING/LISTIR
Myndlist
Olíumálverk á
Kaffi Mílanó
Guðrán H. Jónsdóttir (Gígja) opnar
í dag, þriðjudaginn 8. febráar, sýn-
ingu á olíumálverkum á Kaffi Mílanó,
Faxafeni 11. Þetta erönnureinkasýn-
ing Gígju, en hún hefur áður haldið
sýningu í Hafnarborg 1991.
Strákar á stöpli
S Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi hefur undanfarið staðið yfir
sýningin „Karlímyndin" með þátttöku
12 karlkyns listamanna. Auk þess
hafa tekið þátt í sýningunni 29 gest-
ir ýmist nemendur úr Myndlista- og
handíðaskóla íslands eða nýútskrifað-
Verk á sýningunni í Gerðu-
bergi.
von Zieritz, Arne Mellnás og William
Sweeney.
í kynningu segir m.a: „Tónverkið
Mar eftir Þórólf Eiríksson byggist á
upptökum úr undirdjúpum hafsins,
af söng hvala. The Songs of the
Decaying Gardens er nýlegt verk eft-
ir danska tónskáldið Bent Sörensen.
Þetta er fínleg stemmning í þremur
köflum á mjög persónulegu tónmáli.
Scroll Fragments eftir ísraelska tón-
skáldið Gabriel Iranyi verður frumf-
utt í sir.ni upphaflegu mynd. Verkið
er í tveimur köflum og byggist á forn-
um hebreskum bænum. Italinn Luc-
iano Berio er einna þekktastur núlif-
andi tónskálda. Hann hefur á löngum
ferli samið fjölda einleiks-sequenza
fyrir flest nútímahljóðfæri. Sequenza
IXa er eitt af klassísku verkum klárí-
nettubókmennta tuttugustu aldar,
margþætt verk þar sem litir hljóðfær-
isins njóta sín til fullnustu. Grete von
Zieritz er fædd í Austurríki árið 1899
og verður því 95 ára á þessu ári.
Hún tók snemma sérstöku ástfóstri
við klarínettuna, hefur samið flölda
verka fyrir hljóðfærið og er enn að.
Árið 1991 skrifaði hún Ein Mensch
erinnert sich þar sem hún lítur yfir
farinn veg í stuttri hugvekju. Riflessi-
oni er verk fyrir klarínettu og hrein
rafhljóð á segulbandi. Þetta er sérlega
vel samið verk eftir Arne Mellnás sem
í dag er eitt mest áberandi tónskáld
Svía. Þess má geta að hann lauk
nýverið við konsert fyrir flautu og
kammersveit, „Intimate Games“, fyr-
ir Manuelu Wiesler. Lokaverk tónleik-
anna er eftir skoska tónskáldið Will-
iam Sweeney, Nine Days Piobaire-
achd er grundað á hefðum og tækni
sekkjapíputónlistar, tilbrigði á til-
brigði ofan. I þessu verki yfirfærir
tónskáldið leiktækni sekkjapípuleik-
ararns yfir á klarínettuna með marg-
víslegu skrauti og flúri.“
ir myndlistarmenn. Hefur hver og
einn gestanna sett upp verk sem
stendur 1 einn dag. í þessum verkum
hafa komið fram ýmsar útfærslur og
túlkanir á karlímyndinni og hefur
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
ákveðið að sýna þau sérstaklega í
þijá daga. Myndverkin eru unnin á
hinn fjölbreytilegasta hátt. Sýningin
„Strákar á stöpli" var opnuð sl.
sunnudag og stendur til og með 16.
febrúar. Opið verður frá kl. 10-22.
Tónlist
Ljóð úr ýmsum áttum
Á tónleikum Guðna Franzsonar i
Listasafni Akureyrar í dag, þriðjudag,
verða leikin verk eftir sjö höfunda og
hefjast þeir kl. 20.30. Tónleikarnir
verða einnig á Kjarvalsstöðum sunnu-
daginn 13. febráar og hefjast á sama
tíma.
Á efnisskrá tónleikanna verða verk
eftir Þórólf Eríksson, Bent Sörensen,
Gabriel Iranyi, Luciano Berio, Grete
Fyrirlestur
Bragi skáld og Snorri
Dr. Olga A. Smimickaja, prófessor
í norrænum fræðum og miðaldaensku
við háskólann í Moskvu, flytur opin-
beran fyrirlestur í boði heimspeki-
deildar Háskóla íslands fimmtudag-
inn 10. febrúar kl. 17.15 í stofu 311
í Árnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist Bragi skáld
og Snorri og verður fluttur á ensku.
Olga Smirnickaja hefur birt fjölda
greina í viðurkenndum fræðiritum um
ýmsa þætti germanskra málvisinda
og bragfræði. Hún hefur ritstýrt út-
gáfu á engilsaxneskum ljóðum og
Sverris sögu og þýtt Snorra-Eddu,
Gísla sögu Súrssonar, Grettis sögu
og vísur í Heimskringlu á rússnesku.
Þá hefur hún samið tvær bækur og
önnur þeirra fjallar um brag og mál
í fornum germönskum skáldskap sem
eru um það bil að koma út hjá há-
skólaforlaginu í Moskvu.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Nýjar bækur
■ Út er komið 5. bindið í
flokknum Málfræðirannsóknir.
Það nefnist Beygingakerfi nafn-
orða í nútímaíslensku og er eftir
Ástu Svavarsdóttur cand. mag.
Ritið fjallar um beygingakerfi nafn-
orða í nútímamáli og skiptist í fjóra
meginkafla auk inngangs og niður-
lags. í öðrum kafla er vikið lítillega
að mismunandi kenningum í mái-
fræði og síðan gerð grein fyrir
ýmsum lykilhugtökum í beyginga-
fræði. Þriðji kafli fjallar um mis-
munandi lýsingar á beygingakerfi
íslenskra nafnorða. í fjórða kafla
er greint frá framkvæmd og niður-
stöðum athugunar sem höfundur
gerði á tíðni og stærð beygingar-
flokka. Meginniðurstaðan er sú að
rúmlega þrír fjórðu hlutar nafnorð-
anna í athuguninni falla í fimm
stærstu beygingarflokkana.
Útgefandi er Málvísindastofn-
un Háskóla Islands. Ritið sem er
156 bls. er fáanlegt í öllum helstu
bókabúðum en einnig er hægt
að panta það hjá Málvisinda-
stofnun.