Morgunblaðið - 08.02.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1994
19
fjölda hluthafa í stórfyrirtækjun-
um breyti nokkru í þessum efnum.
Árangnr kvótakerfisins
Ágúst og Ragnar fara mörgum
orðum um mun stærra viðfangs-
efni sem við höfum leitt hjá okkur
að ræða - um ágæti kvótakerfa
í fiskveiðum. „Stjórnkerfí okkar,“
segja höfundar, „er viðurkennt
sem hagkvæmasta stjórnkerfi sem
þekkist við fiskveiðar." Hér er
ekki tóm til að leggja mat á rétt-
mæti slíkrar fullyrðingar; aðeins
skal minnt á þrjú atriði sem mikil-
vægt er að hafa í huga. í fyrsta
lagi er nauðsynlegt að skilja vand-
lega á milli kenningar og veru-
leika. Eflaust hefur sú róttæka
tilraunastarfsemi sem kennd er við
kvótakerfið borið nokkurn árang-
ur, en talsmenn kvótakerfisins
verða að horfast í augu við þá
nöturlegu staðreynd að árangur-
inn er heldur rýr ef höfð eru í
huga tvö af megin markmiðum
kerfisins, að draga úr veiðigetu
flotans (hamla gegn offjárfestingu
í skipum) og stuðla að skynsam-
legri nýtingu fiskistofna; þrátt
fyrir áratugs reynslu af slíku fyrir-
komulagi í botnfiskveiðum hefur
fjárfesting í fiskiskipum haldið
áfram að aukast og veiðiþol þeirra
stofna sem mestu máli skipta gef-
ur, a.m.k. að mati fiskifræðinga,
síður en svo tilefni til bjartsýni.
í öðru lagi má ekki horfa fram-
hjá því að kvótakerfið hefur haft
ýmsar félagslegar og pólitískar
afleiðingar í för með sér (m.a.
byggðavanda og „kvótabrask")
sem kenningasmiðirnir létu undir
höfuð leggjast að fjalla um svo
nokkru næmi. Stundum er niður-
staðan raunar þvert á við það sem
menn hafa spáð. Því hefur til að
mynda verið haldið fram, að vegna
þess að kvótakerfi leiði óhjá-
kvæmilega til aukinnar arðsemi
hljóti samningsstaða sjómanna að
styrkjast. Erfitt er að koma þessu
heim og saman við atburðarás síð-
ustu vikna; sjómenn fóru í tveggja
vikna verkfall m.a. til að sporna
gegn því að þeir væru „neyddir"
til að taka þátt í kvótakaupum
útgerðarmanna.
I þriðja lagi er ástæða til að
setja spurningarmerki við ráðandi
skilning á orðinu „hagkvæmni“.
Umræðan um kvótakerfi í fisk-
veiðum' endurspeglar einmitt djúp-
stæðan ágreining um þetta efni.
í mörgum mannlegum fræðum,
m.a. í hagfræði, er deilt um það
að hve miklu leyti hægt sé að
aðskilja „tæknilega" umræðu um
hagstjórn og „siðferðilega“ um-
ræðu um réttlæti, ábyrgð og jöfn-
uð. Margir hagfræðingar hafa til-
hneigingu til að einbeita sér að
tæknilegu hliðinni og vísa spurn-
ingum er varða siðferði algjörlega
á bug. Hagfræðingar eru þó alls
ekki allir á sama máli hvað þetta
snertir.
Þær breytingar sem nú eiga sér
stað í íslenskum sjávarútvegi, m.a.
breytingar á skiptingu veiðiheim-
ilda, eru margþætt og flókið við-
fangsefni sem brýnt er að ræða
til hlítar, opinskátt og fordóma-
laust. Grein þeirra Ágústs og
Ragnars, sem hér hefur verið til
umræðu, er ágætt framlag til
þessarar umræðu. Margar fullyrð-
inga þeirra eru hins vegar ekki
studdar nauðsynlegum gögnum og
rökum. Eitt er að ala með sér
sannfæringu um það hvernig hlut-
irnir hljóti að vera og annað að
horfast í augu við hvernig þeir eru.
Gísli Pálsson er prófessor í
mannfræði við félagsvísindadcild
Háskóla íslands. Agnar Helgason
stundar frnmhaldsnám og
rannsóknir við sömu stofnun.
Samráðsfundur félaga gegn aðild Norðurlanda að EB
FÉLAGASAMTÖK sem berjast gegn aðild einstakra Norðurlanda
að Evrópusamfélaginu héldu samráðsfund í Helsingfors dagana
23.-24. janúar sl. Þau eru Nei til EF, Noregi, Nei til EU, Svíþjóð,
Alternativ til EU, Finnlandi, Junibevægelsen og Folkebevægelsen
mod EF, Danmörku, og Samstaða um óháð Island.
Á fundinum voru aðallega rædd
eftirfarandi atriði: Meginatriði í
Hvítbók EU, sem samþykkt var í
desember 1993. í henni kemur fram
að markviss er stefna að sveigjan-
legri atvinnumarkaði, sem fyrirsjá-
anlega mun auka atvinnuleysi og
lakari kjör vinnandi fólks.
Þróun umhverfismála innan EU
og að ekki hefur verið staðið við
yfirlýsingar um að fullt tillit yrði
tekið til sérstöðu Danmerkur í þeim
efnum eftir samþykkt Maastricht-
samkomulagsins.
Rætt var um nauðsyn þess að
þróa „norrænan efnhagslegan val-
kost“ við að sækja um inngöngu í
Evrópusamfélagið. Taka ber hug-
myndir um „NORDEK“ sem ræddar
voru í byijun áttunda áratugarins.
Ákveðið var að stórefla samstarf
milli félaganna, auka upplýsinga-
flæði milli þeirra og leggja drög að
mótun á sameiginlegri stefnuskrá
varðandi þá pólitísku stefnumörkun
sem tekin hefur verið með stofnun
EES og umsóknum Noregs, Sví-
þjóðar og Finnlands að EB.
Skilafrestur skattframtals
rennur út 10. febrúar
Leiðbeiningabæklingur með skattframtali
hefur að geyma nauðsynlegar upplýsingar
varðandi framtalsgerðina. Kynntu þér
bæklinginn vel - og útfylling framtalsins
verður auðveldari en þig grunar.
Rétt útfyllt skattframtal tryggir þér
rétta skattlagningu.
Eyðublöð liggja frammi hjá skattstjórum
og umboðsmönnum þeirra, og í Reykjavík
í bönkum, bankaútibúum og sparisjóðum.
Þá er minnt á mikilvægi þess að
varðveita launaseðla. Ef þörf
krefur eru þeir sönnun fyrir því
að staðgreiðsla hafi verið dregin
af launum.
Skattframtalinu á að skila til skattstjóra í
viðkomandi umdæmi og mundu að taka
afrit af framtalinu áður en því er
skilað.
Skilaðu tímanlega
og forðastu álag!
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
HVÍTA HÚSIO /SlA