Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR .15. FEBRÚAR 1994 * ___________________________ Ráðuneyti á Islandi og í Noregi vinna að lausn deilunnar um fiskiimflutning tíl Frakklands Unnið að tillögnm um ein- faldara landamæraeftirlit UNNIÐ er að tillögum um einfaldara landamæraeftirlit á vegum sjávar- útvegsráðuneytanna á íslandi og í Noregi til lausnar innfiutningsdeil- unni í Frakklandi. Tillögurnar verða lagðar fram á vettvangi EFTA og Evrópubandalagsins í Brussel síðar í vikunni að sögn Kristjáns Skarphéðinssonar, fiskimálafulltrúa Islands í Brussel. Fiskinnflutning- ur til Frakklands er í biðstöðu og hefur ekkert breyst frá því fyrir helgi. í sjónvarpsþætti í Frakkiandi í gærkvöldi sagðist Balladur forsætis- ráðherra ekki sjá neina ástæðu til að hitta sjómenn á fundi, hann hefði þegar boðið það sem hann gæti boð- ið og sagðist vera forsætisráðherra allra Frakka. Hann sagði eina helstu ástæðuna fyrir vandamálum í frönsk- um sjávarútvegi vera innflutning frá öðrum EB-löndum og frá löndum utan bandalagsins og talaði um óheiðarlegan innflutning án þess að útskýra það frekar. Tillögur þær sem leggja á fyrir Evrópubandalagið síðar í vikunni felast m.a. í að reglum sem leyfa sýnatöku úr hverri einustu vörusend- ingu við landamæri hvers EB-lands verði breytt í þá veru að sýni verði aðeins tekin úr ákveðnu úrtaki. Að sögn Kristjáns tekur afgreiðsla slíkra tillagna talsverðan tíma og miða þær í raun ekki að því að leysa vanda þann sem fiskinnflytjendur eru i nú heldur að því að koma í veg fyrir að hægt verði að beita innflutning slíkum tæknihindrunum í framtíð- inni. Birgir S. Jóhannsson, forstjóri Nord Morue í Jonzac í Frakklandi, segir að sjómenn hafí unnið skemmd- ir í nágrannabæ Jonzacs og hafi hótað að ráðast á verksmiðju fyrir- tækisins. Lögregluvörður var um hana um helgina. Þá segir Birgi’r að æ erfiðara sé að fá flutningabíla til að flytja físk fyrir fyrirtækið, flutn- ingafyrirtækin vilji ekki ábyrgjast varninginn af hættu við að ráðist verði á bílana. Á föstudaginn var ráðist á bíl frá fyrirtækinu sem var á leið til Ítalíu og stolið úr honum um tveimur tonnum af fiski. Nord Morue á fískbirgðir í Ant- werpen í Belgíu og sagði Birgir að hann ætlaði að fá fjóra flutningabíla með físk yfír til Frakklands í dag. „Fiskinum verður vísað til heilbrigð- isskoðunar hér í Frakklandi og þá kemur í ljós hvort þeir hleypa honum í gegn. Það á að vera allt í lagi með merkingar og skjöl og annað tengt sendingunni." Birgir sagðist hafa fengið franska vöruflutningabíla til ferðarinnar, enda taldi hann minni líkur á að sjómenn réðust á franska bíla heldur en útlenda. Birgir sagði að á miðvikudag yrði lögð fram áætlun um hvernig starfs- fólki verksmiðjunnar yrði fækkað í samræmi við minnkandi hráefni. Hún er unnin í samvinnu við starfsmanna- félag og atvinnuyfírvöld í héraðinu. Pétur Einarsson hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í París sagði að ekki myndi reyna á neinn innflutning hjá fyrirtækinu fyrr en á morgun en að vonir væru bundnar við að for- sætisráðherrann myndi gefa ein- hveijar yfírlýsingar sem skýrðu stöð- una. Pétur sagði að forsætisráðherra kæmi ekki fram undir þessum kring- umstæðum nema þegar um væri að ræða stór hitamál L«þjóðfélaginu. Pétur sagði að ekkert hefði heyrst frá hinu opinbera síðan á fimmtudag um málið og því væri það í algjörri biðstöðu. Morgunblaðið/Áki Fálki fannst á víðavangi Bakkafirði. FÁLKI fannst við Steinatún yið Digranesvita við utanverðan Bakkafjörð í gær. Víðir Her- mannsson fann fálkann þegar hann var að leika sér á fjór- hjóli. Fálkinn flögraði lítið og átti Víðir ekki erfítt með að hlaupa hann uppi. Hann barðist þó nokkuð um þegar búið var að handsama hann og náði Víð- ir í kassa og flutti í hús. Var fálkanum gefíð að éta og át hann nærri heilan svartfug! sem skorinn var ofan í hann. Hann fór síðan flugleiðis í bæinn og verður til skoðunar hjá Ævari Petersen fuglafræðingi. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 15. FEBRUAR YFIRLIT: Skammt norður af Melrakkasléttu er 1.000 mb lægð á leið norðnorðaustur ogfrá henni liggur lægðardrag suður um austanvert land- ið og hreyfist það austur í bili, en fer að hreyfast til vesturs í nótt. Yfir Grænlandi er 1.020 mb hæð en1.007 mb smálægð á vestanverðu Græn- landshafi. SPÁ: Norðlæg átt og snjókoma eða stydda vestast á landinu með hita nálægt frostmarki, en suðaustankaldi eða stinningskatdi og rigning eða súld annars staðar, þó yfirleitt úrkomulaust í innsveitum á Norður- og Norðausturlandi oghiti á bilinu 4 til 8 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Fremur hæg sunnan- og suðaustanátt, rign- ing eða slydda sunnan- og suðaustanlands, éljagangur á Vesturlandi, en úrkomulítið um landið norðanvert. Hiti2-4 stig suöaustantil, en ann- ars nálægt frostmarki. HORFUR Á FIMMTUDAG OG FOSTUDAG: Suðaustan- og austanstrekk- ingur. Dálítil rigning eða slydda, síst þó norðanlands. Hiti verður viöast á bilinu 2-5 stig á láglendi. Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu (slands — Veðurfregnir: 990600. •a & m Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað v .Ý 'ý Skúrir Slydduél Él r r r * r * r r * / r r r r * r Rigning Slydda * * * * * * * * Snjókoma Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig Súld = Þoka V itig.. FÆRÐA VEGUM: vx.™*** Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni linu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að fsl. tíma hiti veður Akureyri 1 skýjað Reykjavik 0 mistur Björgvin +3 heiöskírt Helslnki +7 alskýjað Kaupmannehöfn -r4 heiðskírt Narssarssuaq +19 léttskýjað Nuuk vantar Ósló +12 léttskýjað Stokkhólmur +10 léttskýjað Þórshöfn 3 skýjað Algarve 12 léttskýjað Amsterdam +2 heiðskírt Barcelona 10 þokumóða Berlín +5 heiðskírt Chicago 4 iéttskýjað Feneyjar 0 heíðskírt Frankfurt +1 léttskýjað Glasgow 1 snjóél Hamborg +3 heiðskirt London 0 mistur LosAngeles 18 léttskýjað Lúxemborg +3 heiðskírt Madríd 8 skýjað Malaga 14 skýjað Mallorca 12 skýjaö Montreal +15 skafrennlngur NewYork heiðskirt Orlando 20 léttskýjað París 0 snjókoma Madelra 16 skýjað Róm 5 heiðskirt Vín -r-6 léttskýjað Washington vantar Winnipeg +3 hálfskýjað IDAG kl. 12.00 * Heimild: Veöurstofa íslands (Byggt ó veöurspó kl. 16.30 í gær) Margir vildu fræðast um ferðatilboð Yerð hefur staðið í stað og fólk leit- ar í styttri ferðir MARGAR ferðaskrifstofur kynntu sumaráætlun sína á sunnudag og voru forsvarsmenn þeirra sem Morgunblaðið ræddi við ánægðir með viðtökurnar. Verð á utanlandferðum hefur staðið í stað eða lækkað frá síðasta sumri. Forsvarsmennirnir segja að fólk fari nú gjarnan í styttri ferðir og einnig séu Islendingar að verða ferðavanari og óski þá gjarnan eftir svokölluðum ævintýraferðum. Einar Sigurðsson, upplýs- ingafulltrúi Flugleiða, segir að talsverður fjöldi fólks hafi mætt á kynningu Flugleiða á sumaráætlun félagsins í Kringlunni. Hann segir að ekki sé hægt að segja til strax hvernig bókanir verða í sum- ar, það komi í ljós í mars. Félagið stefnir á að auka farmiðasölu héðan um 2% og er mest áhersla lögð á ferðir til Bandaríkjanna og hefur verð á flug og bíl þangað lækkað um allt 20-25% frá síðasta ári. Sumarleyfisfargjöldin til Evrópu hafa hins vegar hækkað að meðal- tali um 1.000 krónur frá síðasta sumri og segir Einar að markmiðið sé að halda fjölda farþega þangað svipuðum og í fyrra. Hann segir að einna helst megi merkja að fólks sækist eftir styttri ferðum nú en' fyrir nokkrum árum. Nú sé algengt að fólk vilji fara í 1-2 vikna ferðir. „Fólk virðist taka hluta sumarleyfis hér og hluta erlendis," segir hann. Ævintýraferðir vinsælar Um 7.000 manns komu á sölu- skrifstofur Úrvals-Útsýnar á sunnu- dag til að kynna sér sumarleyfisferð- ir segir Goði Sveinsson, sölu- og -markaðsstjóri ferðaskrifstofunnar. Hann segir að þróunin sé í átt til styttri ferða og í sumar verða fleiri tveggja vikna ferðir í boði en áður. Einnig segir Goði að meiri sókn sé í ýmiss konar ævintýraferðir og skemmtisiglingar. Hann segir að verð ferða sé svipað og í fyrra. Helgi Pétursson, markaðsstjóri Samvinnuferða/Landsýnar, segir að ferðaskrifstofan hafí dreift um 10.000 bæklingum á sunnudag sem hafí verið svipað og í fyrra. Hann segir erfítt sé að segja til um hvern- ig sumarið verði, nú þegar hafi meira verið bókað af aðildarfélags- ferðum verkalýðsfélaganna en á sama tíma í fyrra. „Ég veit ekki hvort þetta er fyrirhyggja eða hvort fólk muni ferðast meira erlendis í sumar," segir hann. Verð á ferðum hefur lítið breyst frá í fyrra og jafn- vel lækkað segir Helgi. Til dæmis hafi dvöl í sumarhúsum í Hollandi hefur lækkað um 20% segir hann. Fólk vill komast í sumarskap íslaug Aðalsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Reykjavíkur, segir að kynningin hafí gengið vel á sunnudag og alls hafi verið dreift um 1.000 bæklingum. Hún segist vera bjartsýn á sumarið þrátt fyrir atvinnuleysi og samdrátt í þjóðfélaginu. „Fólk vill komast í sumarskap og fara úr vetrinum og vandamálunum," segir hún og að fólk spyiji meira um ferðir á fram- andi slóðir með leiðsögn. Hún segir að verð á ferðum hafi lítið breyst í þijú ár nema þær ferðir sem séu verðlagðar í Bandaríkjadölum, þær hafi hækkað vegna gengisbreytiriga. Andri Már Ingólfsson, forstjóri Heimsferða, segist hafa orðið hissa og glaður þegar hann sá ösina á ferðaskrifstofunni á sunnudag og segist hafa dreift um 800 bækling- um. „Þetta er meira en ég átti von á,“ segir hann. „Við gerðum ekki það mikið úr þessu." Andri Már seg- ist bjartsýnn á sumarið, margir hafí setið heima síðasta sumar vegna veðurblíðu hér og þeir skili sér þá núna. Einnig sé oft dýrara að fara í frí hér heldur en erlendis og verð á ferðunum hafi haldist svipað á milli ára. Hann hefur litið orðið var við þá þróun að fólk fari í styttri ferðir, og segir að um 65% af við- skiptamönnum Heimsferða kjósi að dvelja erleridis í 3 vikur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.