Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1994 Frumsýnir spennutryllinn í KJÖLFAR MORÐIIMGJA LUCASFILM STRIKING DISTANCE - 100 VOLTA SPENNUMYND Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Í HÝJU OG STÓRGLÆSILEGU STJÖRNUBÍÓI „Afbragðs góðir stólar“ ★ ★★★ S.V. MBL. HERRA JONES Sýnd kl. 7.10og11.30. Síðustu sýn. 350 KR. Öld sakleysisins Tilnefnd til 5 Óskarsverðlauna. Sýnd kl. 4.45 og 9. Síðustu sýningar. Þekktir gestastjórnendur hjá Sinfóníunni Geisladiskar sveitarmnar hafa haft veruleg áhrif UUfa TggTTTTTTTTTTTTTTT HELGA Hauksdóttir, tónleikastjóri hjá Sinfóníuhljóm- sveit íslands, segir ástæðu þess að tveir vel þekktir hljómsveitarstjórar óski eftir því að fá að stjórna hljóm- sveitinni vera að hróður hennar hafi borist víða og líklega hafi útgáfa sex geisladiska með leik Sinfóníunn- ar haft veruleg áhrif. Þeir Jevgeníj Svetlanov og Gennadíj Rozhdest- venskíj eru báðir þekktir hljómsveitarstjórar og eftirsóttir. Helga segir að unnið hafi verið að því í nokkurn tíma að fá Svetlanov hingað, en hann stjórnar tónleikum sem verða haldnir í maí. Á þeim tónleikum verða leiknar sinfóníur eftir Brahms og Mozart. Ekki komst á hreint fyrr en um síðustu jól að Roz- hdestvenskíj kæmí hing- að en áætlað er að hann stjómi tónleikum í maí 1996. Sinfónían hefur gefið út sex geislaplötur og segir Helga að þær hafi hlotið lof- samlega dóma í tímaritum erlendis. Geislaplöturnar hafi án efa haft mikið að segja, svona þekktir hljómsveitar- Gestastj ór nendur ÞAU mistök urðu í sunnudags- blaði að myndirnar af Svetl- anov (t.v) og Rozhdestvenskíj víxluðust. stjórar stjómi ekki hvaða hljómsveit sem er og um- boðsmenn þeirra sendi þá ekki af stað nema hljómsveit- in sé góð. „Það er langt síðan Roz- hdestvenskíj sagði í blaðavið- tali að því norðar sem drægi, því betri yrðu hljómsveitimar og hann langaði einhvern tímann að stjórna Sinfóníu- hljómsveit Islands," segir hún. „Svetlanov langaði til dæmis að komast á skak og búið er að gera ráðstafanir til að hann fái að fara á bát út á Faxaflóa." Hún segir að líklega hefði þetta tvennt haft áhrif á að báða langaði að koma hingað til lands. Báðir hljómsveitarstjórar gefa eftir hluta þóknunar sinnar þegar þeir koma hing- að til lands, en Helga segir að Sinfónían hefði ekki haft bolmagn til að greiða þeim venjulega þóknun. ♦ ♦ ♦ p Meim en þú getur/myndað þér! Selfoss ggj BORGARLEIKHUSIÐ sími 680-680 LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra svið kl. 20: • EVA LUNA leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónasson unnið upp úr bók Isabel Allende. Finn. 17/2 uppselt, fös. 18/2, uppselt, lau. 19/2 uppselt, sun. 20/2 uppselt, fim. 24/2 uppselt, fös. 25/2 uppselt, lau. 26/2 uppselt, sun. 27/2 uppselt, lau. 5/3 uppselt, sun. 6/3, fim. 10/3, fös. 11/3 örfá sæti laus, lau. 12/3 uppselt. Geisladiskur með lögunum úr Evu Lunu til sölu í miðasölu. ATH. 2 miðar og geisladiskur aðeins kr. 5.000,- • SPANSKFLUGAN e. Arnold og Bach Aukasýning mið. 16/2, allra síðasta sýning. Litla svið kl. 20: • ELÍN HELENA e. Árna Ibsen Fös. 18/2 fáein sæti laus, lau. 19/2, fös. 25/2 næst síðasta sýning, lau. 26/2 síðasta sýning. Ath.: Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning er hafin. Miðasalan er opin frá kl. 13-20 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum í síma 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasími 680383. - Greiðslukortaþjónusta. Fjölsótt sýning loðdýra- bænda Seifossi. MIKILL áhugi var fyrir sýningu loðdýrabænda á Hótel Selfossi 13. febrúar. Halldór Blöndal landbún- aðarráðherra var við- staddur sýninguna og brá sér í einn Ioðfeldinn. Hann Iýsti ánægju sinni með uppgang loðdýra- ræktarinnar og sagði að hlúa þyrfti að mörkuðum fyrir greinina. Á sýningunni var fjöldi skinna frá loðdýrabændum víðs vegar að af landinu. í dag eru starfandi 72 loð- dýrabú sem framleiða um 112 þúsund minkaskinn og um 20 þúsund refaskinn. Veruleg verðhækkun hefur orðið á skinnum og er því spáð að verðið muni lítið Morgunblaðið/Sigurður Jónsson breytast næstu 2-5 ár. Sýningarfólk frá Selfossi og af Suðurlandi sýndi loð- feldi frá Eggerti feldskera og Jakobi Árnasyni. Jakob hefur lagt mikla áherslu á verðmæti selskinna og framleiðslu úr þeim. - Sig. Jóns. Tilboð í vegi í Ásahreppi HJARÐARNESBRÆÐUR hf. áttu lægsta tilboð í lagningu sex vegarkafla í Ásahreppi í Rangárvalla- sýslu. Fyrirtækið baust til að vinna verkið fyrir 52,9 milljónir kr. sem er 59% af kostnaðaráætlun Vega- gerðarinnar en hún hljóð- aði upp á 89,5 milljónir. Vegirnir sex eru samtals 23,8 km að lengd og á lagn- ingu þeirra að vera lokið haustið 1995. Sextán verk- takar buðu í verkið og voru tilboðin á bilinu 52,9 til 121,6 milljónir króna. -----♦ ♦ ♦--- Innbrot í hús og bíl BROTIST var inn á mynd- bandaleigu við Suður- landsbraut í fyrrinótt. Þjófarnir brutu upp spila- kassa og stálu um 22 þús- und krónum. Þá var farið inn í bíl við Eirhöfða, talsverðar skemmdir unnar og tveimur myndavélum stolið, auk tal- stöðvar. simi Stóra sviðið kl. 20.00: • GAURAGANGUR ettir Ólaf Hauk Símonarson. 2. sýn. á morgun mið. 16. feb., örfá sæti laus, - 3. sýn. fim. 17. feb., uppselt, - 4. sýn. fös. 18. feb., uppselt, 5. sýn. mið. 23. feb., laus sæti, - 6. sýn. sun. 27. feb., örfá sæti laus, - 7. sýn. mið. 2. mars, laus sæti. • MAVURINN eftir Anton Tsjekhof Sun. 20. feb. - iau. 26. feb. Ath. fáar sýn. eftir. • ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller. Lau. 19. feb. - fös. 25. feb. • SKILABOÐASKJÓÐAN eftir Þorvald Þorsteinsson Ævintýri með söngvum i dag þri. 15. feb. kl. 17, uppselt, - sun. 20. feb. kl. 14, örfá sæti laus, - sun. 27. feb. kl. 14, nokkur sæti laus^/sun. 6. mars kl. 14. Smíðaverkstæðið kl. 20.30: • BLÓÐBRULLA UP eftir Federico Garcia Lorca Lau. 19. feb., nokkur sæti laus, - fim. 24. feb., uppselt, - fös. 25. feb., uppselt. Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning er hafin. Litla sviðið ki. 20.00: • SEIÐUR SKUGGANNA eftir Lars Norén Fös. 18. feb. - lau. 19. feb. - mið. 23. feb. - lau. 26. feb. Ekki er unnt að hleypa gestum í salínn eftir að sýning er hafin. Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00. Græna linan 996160. Prófkjör sjálfstæðismanna Margrét Gimnars- dóttir í fyrsta sæti í Grindavík Grindavík METÞÁTTTAKA var í prófkjöri Sjálfstæðis- manna í Grindavík sem haldið var á laugardag- inn. 650 manns tóku þátt en fyrir 4 árum voru rúm- lega 1400 manns á kjör- skrá í Grindavík. Margrét Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi hlaut afger- andi kosningu í 1. sætið með 447 atkvæði eða 69% og Halldór Halldórsson hlaut 357 atkvæði samtals í 1.-2. sæti sem er 55% þeirra sem tóku þátt. Þessi tvö hlutu bindandi kosn- ingu. Ólafur Guðbjartsson fékk 259 atkvæði í fyrstu 3 sætin og Krisinn Benedikts- son 267 atkvæði í fyrstu 4 sætin. Nánari úrslit sjást í meðfylgjandi töflu. „Eg var farin að finna meðbyr síðustu daga fyrir prófkjörið og að fólk vildi taka þátt í að stilla upp á listann. Það er mjög ánægjulegt hver margir tóku þátt í prófjörinu. Eg er mjög ánægð með eigin útkomu og hvað ég hlýt afgerandi kosningu og þakka fóki fyrir þennan stuðning. Ég er búin að • 'starfa í bæjarstórn undan- farin 4 ár og fólk metur það sem er verið að gera í bæjar- málefnum,“ sagði Margrét þegar úrslit lágu fyrir. Halldór Halldórsson _kem- ur nýr inn á listann.„Ég er mjög þakklátur þeim sem veittu mér stuðning í próf- kjörinu. Nú er mitt að standa undir þessu trausti. Ég átti von á tvísýnni kosn- ingu um annað sætið en ekki svona afgerandi eins og rau.n varð á. Ég stefndi Morgunblaðið/I'Yímann Ólafsson Þrír efstu menn í prófkjöri Sjálfstæðisfélags Grinda- víkur um helgina. F.v. Ölafur Guðbjartsson, Margrét Gunnarsdóttir og Halldór Halldórsson. á þetta sæti og vonaðist til að ná því,“ sagði Halldór við Morgunblaðið. Hann bætti því við að ánægjulegt væri að svo margir sýndu áhuga á því að stilla upp og því sem flokkurinn byði upp á. Þá væri ekki síður gott að bæjarbúar hefðu kost á því að geta tekið þátt í að hafa áhrif á upp- stillingu og styrkur flokks- ins lægi í því að hafa kjark til þess leggja í opið próf- kjör. Að sögn ívars Þórhalls- sonar formanns Sjálfstæð- isfélags Grindavíkur verður það hlutverk stjórnar og kjörstjórnar að stilla upp endanlegum lista fyrir kosn- ingarnar í vor en kvaðst reikna með því að hann yrði í sömu röð og niðurstöður prófkjörs gáfu til kynna að viðbættum 5 nöfnum. Sjálf- stæðisflokkurinn fékk 2 fulltrúa kjörna í bæjarstjórn í síðustu bæjarstjórnarkosn- ingum og myndar meiri- hluta ásamt Framsóknar- flokknum. FÓ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.