Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1994 47 BANVÆN MÓDIR Einn mesti sálfræðiþriller seinni tíma. Hún er hættuleg - hún heimtar fjölskylduna aftur með góðu eða illu. Jamie Lee Curtis frábær í hlutverki geðveikrar móður. Sýndkl. 5,7,9 og 11 . Bönnuö innan 14 ára. HX ÚR DAGBOK LÖGREGLUIMIMAR í REYKJAVÍK: 11.-14. febrúar Um helgina var tilkynnt um 56 umferðaróhöpp. í þremur tilvikanna var um að ræða meiðsli á fólki. Heimilisófriðir eru skráðir 8 talsins og 18 sinnum þurfti að hafa afskipti af ónæði og hávaða. Innbrot- in eru 6 og þjófnaðirnir eru 7. Tólf ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur á tímabilinu, en einn þeirra hafði lent í óhappi áður en til hans náðist. Líkamsmeiðing- arnar eru „einungis" 4, en samtals þurfti að vista 29 einstaklinga í fanga- geymslum, flesta vegna ölvunarháttsemi. Ails eru 406 færslur í dagbókinni, en það er undir meðaltali helganna. A'föstudag varð vinnu- slys í verksmiðju á Höfðanum. Þar slasaðist maður á hendi og var flutt- ur á slysadeild til aðhlynn- ingar. Meiðsli hans voru talin minniháttar. Skömmu eftir miðnætti varð árekstur tveggja bif- reiða á Bústaðavegi við Litluhiíð. Flytja þurfti ökumann annarrar bif- reiðarinnar á slysadeild, en hann virtist hafa meiðst á hálsi. Skömmu síðar var til- kynnt um innbrot í verk- smiðjuhús í Iðnvogunum. ■--------------i---------- Þar hafði ýmsu verið stolið og annað skemmt. Þrír menn, sem grunaðir voru um verknaðinn, voru handteknir og færðir á stöðina. Síðar um morguninn var tilkynnt um að maður hefði náð að stela vindlin- gapökkum úr söluturni í austurborginni. Þjófurinn hvarf á braut, en hann mun vera þekktur. Seinnipart laugardags lenti bifreið á ljósastaur við Vesturlandsveg gegn Blikastöðum. Flytja þurfti farþega og ökumenn á slysadeild. Bifreiðin var óökufær eftir óhappið. Aðfaranótt sunnudags var piltur handtekinn eftir innbrotstilraun í söluturn í Árbæjarhverfi. Skömmu síðar komu lögreglumenn í veg fyrir innbrot í hús við Túngötu. Um miðjan dag á sunnudag varð árekstur þriggja bifreiða á Breið- holtsbraut. Farþegi úr einni bifreiðinni þurfti að leita á slysadeild. Meiðsli munu hafa verið minni- háttar. Tiltölulega fátt fólk var í miðborginni að kvöld- og næturlagi. Unglingar und- ir 16 ára aldri sáust þar ekki og er það góðs viti. Tveir sendibílstjórar voru staðnir þar að því að aka fólki gegn gjaldi aðfara- nótt laugardags. Margir notfærðu sér þjónustu strætisvagnanna, en þeir sem ekki náðu síðasta vagninum virtust ekki hafa kynnt sér nægilega vel tímaáætlunina eða hvar hægt væri að nálgast næturvagnana. Sam- kvæmt upplýsingum SVR fer síðasti strætisvagninn frá stöð neðst á Hverfis- götu gegnt Stjómarráðinu kl. 3 aðfaranætur laugar- dags og sunnudags. Töluvert var um akstur vélsleða í og við Mos- fellsbæ um helgina. Þess skal sérstaklega getið af þessu tilefni að samkvæmt umferðarlögum er akstur slíkra tækja óheimill í þétt- býli, nema í undantekn- ingartilvikum. Þá bannar lögreglusamþykkt Mos- fellsbæjar akstur vélsleða á götum bæjarins nema með leyfi lögreglu. Og að sjálfsögðu er allur akstur vélsleða á gangstéttum og göngustígum óheimill, enda beinlínis hættulegur öðrum vegfarendum. Sameiginlegt umferð- arátak lögreglunnar á Suðvesturlandi hefst nk. .miðvikudag. Athyglinni verður að þessu sinni sér- staklega beint að ökurétt- indum þeirra, sem eru við stjórn vélknúinna öku- tækja, ástandi ökumanna og búnaði tengitækja, s.s. hestakerra, vélsleðakerra og annarra slíkra. Allt miðast þetta að því að auka öryggi vegfarenda. SÍMI: 19000 KRYDDLEGIN HJÖRTU Aðsóknarmesta erlenda myndin í USA frá upphafi. „Drífið ykkur. Þetta er hnoss- gæti, sælgæti, fegurð, ást, losti, list, matarlyst, þolgæði og snilld..." „...Gerið það nú fyrir mig að sjá þessa mynd og látið ykkur líða vel...“ „...Fyrsta flokks verk, þetta er lúxusklassinn..." ★ ★ ★ hallar í fjórar, Ólafur Torfason, Rás 2. ★ ★ ★ ★ Hallur Helgason, Pressan. ★ ★ ★ Júlíus Kemp, Eintak ★ ★ ★ Hilmar Karlsson, D.V. ★ ★ ★ 1/2 Sæbjörn Valdimarsson, Mbl. ★ ★ ★ 1/2 B.J., Alþýðubl. Aðalhlutverk: Marco Leonardi (Clnema Paradiso) og Lumi Cavazos. Leikstjóri: Alfonso Arau. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Tilnefnd til 8 Óskarsverðlauna M.a. besta mynd, besti leikstjóri, besta aðalleikkona og besta aukaleikkona. PÍAINJÓ Sigurvegari Cannes-hátíðarinnar 1993 „Píanó, fimm stjörnur af fjórum mögulegum." ★ ★ ★ ★ ★ G.Ó. Pressan Aðalhlutverk: Holly Hunter, (Golden Globe verðlaunin, besta aðalleikkona), Sam Neill, Harvey Keitel og Anna Paquin. Leikstjóri: Jane Campion. Sýnd kl. 4.50, 6.50,9 og 11.10. MAÐUR ÁIM ANDLITS ★ ★ ★ A.l. MBL. Aðalhlutv.: Mel Gibson. Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.10. Miðav. kr. 350. Stepping Razor HVfTATJAIDlBÍ Stórbrotin mynd um reggímeistar- ■ ann Peter Tosh. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. lAltÍViBftt-'Í'fl „Hrifandi, spennandi og erólísk.“ (Aiþýðubl.) ★ ★★1/2„MÖST“, Pressan „Yngslu leikararnir fara á koslum.“ (Morgunbl.) Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. íslenskt - Já takkl Þjófar stela þjófum frá Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Undir vopnum („Gunm- en“). Sýnd í Háskólabíói. Leikstjóri: Deran Saraf- ian. Aðalhlutverk: Christopher Lambert, Mario Van Peebles, Den- is Leary, Brenda Bakke og Patrick Stuart. Undir vopnum er svona spræk gaman-spennu- mynd sem hefst á því að meginbófinn lætur jarða svikula eiginkonu sína lif- andi og maður tekur strax að undrast dularfullan hú- mor kvikmyndagerðar- mannanna. Þetta er ómerkileg B-mynd til síð- asta ramma sem þeir Gol- an og Globus hefðu verið hreyknir af fyrir nokkrum árum en maður hélt reynd- ar að væru liðnar undir lok, í það minnsta í kvik- myndahúsum. Með aðalhlutverkin í myndinni, sem best er að taka skýrt fram að er hvorki fyndin né spenn- andi en með ódýrum of- beldisatriðum, fara franski leikarinn Christopher Lambert og bandaríski leikarinn Mario Van Pee- bles' sem lítur út eins og ófrumleg Camel-auglýs- ing, nema hann hafi ekki tímt að henda gallanum sínum úr rappvestranum „Posse“. Þessir vita hvar 400 milljón dollarar eru faldir en hafa hvor um sig aðeins helming vitneskj- unnar og verða því að hanga saman þótt þeir þoli ekki hvor annan. Það er þó léttvægt miðað við hvað áhorfandinn þarf að þola í samvistum við þá tvo. Það er ekki mikið lagt í handrit og leikstjórn og annað slíkt og þýðingin er að sama skapi bagaleg því í henni er upp sama og niður og 400 milljónir geta aldrei orðið meira en .400 þúsund sama hvað þær reyna. Lambert á að vera trúðurinn í félagasam- bandinu óg ferst það af- leitlega úr hendi með ger- samlega ófyndnum fífla- látum og einhverju aula- ■brosi sem þó fer honum ekkert illa. Peebles er aft- ur sá alvarlegi en um leið sá leiðinlegi. Bófarnir eru svo hópur af skítugum aukaleikurum sem óvart verða fyndnir þegar þeir eiga að virka hvað mest ógnandi. Sjálf atburðarásin er grautur úr gömlum Tony * Curtis/Yul Brynner ævin- týramyndum og einhveiju úr „Butch Cassidy and the Sundance Kid“: Stökkið fram af klettunum er svo þjófstolið hér að maður grípur ósjálfrátt eftir seðlaveskinu. (Það er ekki í fyrsta og ekki síðasta skipti sem minni spámenn ljósrita atriðið.) Kaflar úr nýlegum ævintýramynd- um úr S-Ameriku fylla svo uppí restina. Svo hvað er þá eftir þegar handritið er léleg og klisjukennd eftiröpun íjöida annarra mynda, leikstjórnin fálmkennd í besta falli og leikurinn af- leitur? Það liggur í augum uppi. Léleg skemmtun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.