Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994 49 Hvað varð um samvinnu- hugsjónina? Frá Árna Helgasyni: Ég var að hlýða á útvarpið þar sem sagt var frá fundi borgarstjóm- ar Reykjavíkur og lokaafgreiðslu fjárhagsáætlunar borgarinnar. Sér- staklega tók ég eftir hversu borgar- stjórnin lætur sér annt um að hlúa að atvinnumálum borgaranna og mættu þar margir af læra. En það sem skar sig úr og vakti sérstak- lega athygli mína var „framsóknar- röddin“ sem átti ekki nógu sterk orð til að víta fjármálastjórn borgar- innar og sá ekkert nema skuldir — allt svart. Grét. Það virtist sem þessi rödd kynni ráð við öllu. Ósjálf- rátt þaut um huga minn hinn stór- kostlegi rekstur þeirra framsóknar- manna á málgagni sínu, sem loks sá enga færa leið aðra en biðja „íhaldið" að annast fjárreiður blaðs- ins og forða þeim frá gjaldþroti. Auðvitað varð mér á að hugsa hvar „samvinnuhugsjónin“ væri nú nið- urkomin? Hennar er nú lítið minnst í dag. Það fer lítið fyrir henni. Bless- uð sé minning hennar, stendur þar. Mér datt í hug koma mín í Hólm- inn fyrir rúmum 50 árum og það sem vakti mest athygli mína var hversu kaupmaðurinn og kaupfé- lagsstjórinn höfðu mikla samvinnu með sér, í raun. Ef annar átti ekki vöru handa viðskiptavini sínum leysti hinn það með gleði. Já og hvernig þeir störfuðu saman. Það er sú einlægasta samvinna sem ég hefí kynnst. Þetta þekkist ekki fyr- ir austan, í hinni svæsnu kaupfé- lagspólitik sem sá ekkert annað en framsóknarflokkinn, og vann hon- um. En Adam var ekki lengi í para- dís hér í Hólminum, samvinnan fyr- ir sunnan mun hafa séð til þess að sá góði og elskulegi drengur yrði hér ekki mosavaxinn og er það saga út af fyrir sig. Það er ekki nema von að fram- sóknarröddin hg.fi hátt í sölum höf- uðborgarinnar, tali digurbarkalega, svo vel stjórnuðu þeir SÍS á sinni tíð, sællar minningar. Þar var ekki haft hátt um skuldasöfnun. Þvi miður fer lítið fyrir „sam- vinnuhugsjóninni“ í dag. Því hafa þeir blessaðir séð fyrir og þarf eng- an að undra þegar litið er yfir svið- ið. Nú er verið að streitást við að koma á annarri „samvinnu" sem fólgin er í að setja fyrir ágæta stjórn Reykjavíkurborgar fótinn. Já, að setja fótinn fyrir er aðall þessarar raddar í dag. Öfundin hlýtur að vera aflið sem undir kyndir. Nú er klifað á skuldum, svo trúlegt sem það nú er, en hvað sé á bak-við þessar skuldir og hvernig þær eru tryggðar, á það er forðast að minn- ast. Ég hef fylgst með samvinnufé- Svar við fyrirspurn Leifs Sveinssonar Frá í MORGUNBLAÐINU 11. febrúar sl. bar Leifur Sveinsson fram þá fyrirspurn hvenær leg- steinninn á leiði Muggs hafi verið reistur. Einar Torfason, fyrrverandi toll- vörður frá Vestmannaeyjum, hafði samband og sagði að Júlíana Sveinsdóttir hafi komið með leg- steininn frá Kaupmannahöfn sum- arið 1936. Minnisvarðann gerði danskur listmálari, Elof Riseby, og leitaðist hann við að gera myndina í anda Guðmundar og sem næst svipbrigðum listar hans. Frásögn og mynd af legsteininum er í Morg- unblaðinu 6. september 1936 og segir þar m.a.: „Legsteinninn er úr steyptum steini. En á hann hefir gefandinn sett mynd, fangamark Guðmundar heitins og nafn hans í gler-„mosaik“. Er „mosaik“-mynd- in af fugli, sem mist hefir flugið og er að sökkva í hafi. Hugmyndin að mynd þessari er tekin úr teikn- ingu Guðmundar, er hann gerði við þulu frú Theodóru Thoroddsen, „Fuglinn í fjörinni - hann heitir Hvenær var legsteinninn á leiði Muggs reistur? Crt UUUhnutpx Li«i »<: 'w kfll*A*i iOKtUMt. Nck>rv» Uvm tttít MUí. Tii tr <**w trfná ■nö «u* tirM. txa Vrtjt Stotwwm fy.j- sKmúvumA '•* ' Sio-Ax Cu#. *« kywti gn* (tft) »*k*w vKttbk.tr» ♦«-«,. *<*?«*«*» *r. n 22 • l f i> »y«l LttlVS iViXxSSOív. tr Xííxíu WaMw tf Kryl;«vk. tr.t:M.-mvx# »« tf'tfr. rkú libl már“ ... Svo vel hefír honum tekist með legstein þennan, að allir sem hann hafa sjeð, ljúka upp einum munni um, að hann sje bæði sjer- kennilegur og fallegur, að hann ein- mitt sje sem skapaður á gröf Guð- mundar." VELVAKANDI Veski tapaðist SVART veski tapaðist í ná- grenni við Svarta svaninn föstu- dagskvöldið 4. febrúar sl. í því voru m.a. dýrmæt skilríki. Upp- lýsingar í síma 75566. Góð fund- arlaun. Föt í poka töpuðust BUXUR og skór, glæný dren- gjaföt, í plastpoka töpuðust fyr- ir röskum hálfum mánuði í strætisvagni, leið 8, eða í bið- skýlinu við Hlemm. Hafi einhver fundið fötin er hann vinsamlega beðinn að hringja 686020. Skór fannst HVÍTUR kvenleikfimiskór, fjólublár að innan, með litlu blómi á hliðinni, fannst á bíla- plani fyrir framan Breiðholts- kirkju sl. miðvikudag. Upplýs- ingar í síma 71722. GÆLUDÝR Tanja er týnd TANJA er lítil svört læða með bleika ól og hún hvarf frá Karla- götu sl. þriðjudagskvöld. Væruð þið, nágrannar, til í að athuga skúra og kjallara? Upplýsingar í síma 12713 eða 92-46713. Læða í heimilisleit BRÖNDÓTT átta mánaða læða óskar eftir góðu heimili. Upplýs- ingar í síma 73834. lögunum um allt land sem áttu svo auðveldlega að leysa allan vanda og leiða landsmenn inn í fyrirheitna landið. Ef til vill var það þeirra ógæfa að binda trúss við Framsókn- arflokkinn, enda uppskeran eftir því. Reykjavík hefir borið gæfu til þess gegnum árin að hafa farsæla forystu og það hefir hún enn og þar þarf ekkert að fela. En hvernig er svo samviska þeirra sem reyna að setja fótinn fyrir en koma ekki með neitt bitastætt. Markús Örn hefir þegar sýnt að hann er til for- ystu fallinn og þeir sem vilja borg- inni vel, óska honum og Reykjavík allrar blessunar. Og þótt framsókn líki það illa, þá er forystan góð. ARNI HELGASON, Stykkishólmi. Pennavinir SAUTJÁN ára fínnskur piltur sem safnar frímerkjum vill eignast ís- lenska pennavini: Mika Pohjanen, Ponkalantie 4, 95450 Tornio, Finland. EINHLEYP 24 ára Ghanastúlka með áhuga á ferðalögum, ljósmynd- un, matargerð: Abigal Kobbinah, P.O. Box 1167, Oguaa, Ghana. SAUTJÁN ára ísraelskur piltur með áhuga á íslandi: Michal Ozias, 105 Derech Áco St., Kiryat Motzkin, 26373 Israel. TVÍTUG fínnsk stúlka með áhuga á kvikmyndum, ferðalögum, bréfa- skriftum, ljósmyndun og íþróttum: Kirsi Tolvanen, Kuohutie 2 F 47, 80160 Joensuu, Finland. FERTUGUR íslenskur karlmaður búsettur í Svíþjóð: Jón Karlsson, PL 1172, 38294 Mybo, Sverige. LEIÐRÉTTING Nafnabrengl Aðastandendur auglýsinga fyrir breyttri staðsetningu Hæstaréttar- húss sendu Morgunblaðinu í gær eftirfarandi leiðréttingu: „Síðastliðinn sunnudag birtist auglýsing í Mbl. þar sem 156 ein- staklingar skora á stjórnvöld að endurskoða staðsetningu fyrirhug- aðs Hæstaréttarhúss. Þau leiðu mistök áttu sér stað við vinnslu auglýsingarinnar að nafn brenglað- ist þannig að í henni birtist nafn Þórsteins Gunnarssonar leikara í stað Þorsteins Guðmundssonar leik- ara. Þetta leiðréttist hér með og eru þeir nafnar innilega beðnir vel- virðingar á þessari misritun." Vinningstölur laugardaginn FJOLDl VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 2. 2.320.762 100.598 106 6.548 4. 3.143 515 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.035.887 kr. HRADLESTRARNÁMSKEIÐ Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð? Viltu margfalda afköst í námi um alla framtíð? Viltu lesa meira af góðum bókum? Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju? Ef svar þitt er jákvætt við einhverri ofangreindra spurninga skaltu skrá þig strax á næsta hraðlestrar- námskeið sem hefst fimmtudaginn 24. febrúar nk. Skráning í símum 642100 og 641091. TÍSKUVERSLUN KRINGLUNNI • SÍMI 33300 ára afmœlistilboð ‘TótvuskóCi ístands er um þessar mundir 5 ára o£ Býður af því tiCefni einstaC^t afnuefístiC6oð: Skrifstofutækninám med 20% afslætti • Bókfærsla • Ritvinnsla, Word fyrir Windows 'j? 5^ t' • Tölvubókhald • Tölvureiknir, Excel 1, . Á™ J • Verslunarreikningur jjjp • Gagnagrunnur • Tollskýrslugerð • Windows og stýrikerfi ....aðeins kr. 3990 á mánuði Tölvuskóli íslands Sími 67 14 66 • opið til kl. 22 Verðið miðast við jafnar afborganir í 24 mánuði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.