Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994 KENNETH BRANAGH ROBERT SEAN LEONARD EMMA THOMPSONjÆ^ NOTHINC.: Arísa* A*x«rrt Ys og þys ut af engu Stórkostleg mynd sem hefur hlotiö' mikiö lof gagnrýnenda. Sýnd kl. 9 og 11.15. Addams fjölskyldugildin Sönn ást ANGEL Grín- og spennumynd meö CHRISTOPHER LAMBERT og MARIO VAN PEEBLES í aðalhlutverkum. Fíkniefnalögreglumaður handtekur glæpamann og í Ijós kemur, aö hvor þeirra um sig býr yfir helmingi af leyndar- máli sem mun gera þá forríka, ef þeir dreþa ekki hvor annan fyrst. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Mbl ★★★ DV ★★★ Rás 2 llrlr* ★★★★ EMPIRE Háskölabíö STÆRSTA BIOIÐ. ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS. HASKOLABIO SÍMI22140 Barnakórar Selfosskirkju og kórskóla Langholtskirkju NEIL JORDAN Myndin sem gerði leikstjóra og aöalleikara Undirbúa flutning Gloriu Yivaldis The Crying Game fyrst þekkta. Stephen Rea í hlutverki manns sem hefnir ástkonu sinnar sem var á röngum stað á röngum tíma. Selfossi. KÓRAR barna og ungl- inga frá Selfosskirkju og kórskóla Langholtskirkju undirbúa af kappi flutn- ing verksins Gloria eftir Vivaldi. Verkið hefur ver- ið raddsett og gert að- gengilegt fyrir börn. Ráð- gert er að flytja verkið 19. mars í Langholts- kirkju og 20. mars í Sel- fosskirkju við undirleik hljóðfæraleikara úr Sin- fóníuhljómsveitinni. Gloria tekur hálfa klukkustund í flutningi og verður flutt með einsöngv- urum úr Langholtskirkju. Það eru Glúmur Gylfason organisti og kórstjóri Sel- fosskirkju og Jón Stefáns- son kórstjóri Langholts- kirkju sem annast undirbún- ing tónleikanna í mars. „Þetta er lífsreynsla fyrir ævina hjá krökkunum að fá að syngja þetta verk. Það er álíka og þau ynnu í lottói og fengju líka bónusvinn- inginn að vera með í þessu,“ sagði Glúmur. Frá árinu 1988, þegar bömin voru 8 og 9 ára, hef- Gloría sungin af innlifun á æfingu. Glúms Gylfasonar búið að biðja um kórinn til að syngja ættjarðarlög á landsmóti ungmennafélaganna á Laugarvatni í sumar. - Sig. Jóns. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Barnakórar Selfosskirkju og kórskóla Langholtskirkju á æfingu í Sólvallaskóla á Selfossi 13. febrúar. ur átt sér stað markvisst barnakórstarf hjá Selfoss- kirkju. Segja má að það starf blómstri nú í þessu samstarfí kóranna. Á næsta ári verða sex árgangar í kórstarfínu. Starfíð fær dyggan stuðning frá virku foreldrafélagi sem starfar með krökkunum og styður starfíð með ráðum og dáð. Barnakórinn syngur alít- af eitthvert kórverk í hverri viku frá aðventu og fram að föstunni. Kórinn syngur í fermingarmessum og við ýmsar athafnir í kirkjunni. Starf kórsins hefur þannig skapað nýja vídd í því starfí sem fram fer í kirkjunni. Vetrarstarfí kórsins lýkur síðan á vorin með tónleikum og nú í vor syngur kórinn inn á plötu. Þá er að sögn Skotveiðifélag Austurlands Flutningur veiðistj óraembættisins rústar rannsóknum margra ára STJÓRN Skotveiðifélags Austurlands gagnrýnir flutn- ing veiðisljóraembættisins frá Reykjavík til Akureyrar sem hún telur orka tvímælis í bréfi sem félagið hefur sent Össuri Skarphéðinssyni, umhverfisráðherra. Þar segir m.a.: „Sam- kvæmt upplýsingum úr fjöl- miðlum virðist því miður vera ljóst að ákvörðun þín heimili landsins! fltargtmMitMfr um þennan flutning sé tekin í skyndi og af einhverjum öðrum hvötum en þeim að auka og bæta náttúru- og dýrafræðirannsóknir sem vissulega er mikil þörf fyrir að verði auknar. Eins og þér er kunnugt um, þá er starfssvæði Skot- félags Austurlands á því svæði landsins þar sem m.a. hreindýrin halda sig. Þess vegna bendum við á það tjón sem yfirstandandi rannsóknir á hreindýrum og aðrar rannsóknir verða fyr- ir, því samkvæmt okkar upplýsingum munu allir núverandi starfsmenn veiði- stjóraembættisins hætta störfum ef til flutnings kemur. Það er og hefur ver- ið viðurkennt af öllum þeim sem að hreindýramálum koma að alvöru rannsóknir á þessari tignarlegustu teg- und veiðidýra á íslandi hafí skort og nú þegar þær eru loks nýhafnar þá kemur eins og skrattinn úr sauða- leggnum ákvörðun sem við teljum að rústi með öllu eða tefji ofangreindar rann- sóknir til margra ára. Stjórn Skotfélagsins tel- ur að það eigi að geta verið fagnaðarefni þegar ákveðið er að flytja ríkisstofnun út á landsbyggðina, Akureyri er ekkert verri staður en hver annar. En þegar ákvörðun er tekin með þess- um hætti og það af manni sem auk þess að vera með ráðherravald er menntaður í náttúrufræðum þá liggur einhvers staðar fískur undir steini.“ Skálmöldin á Norður Irlandi séö með augum heimamanns. Sýnd kl. 9. Athugasemdir um vínveitingahús MORGUNBLAÐINU hafa borist nokkrar athugasemd- ir frá Áfengisvarnarráði: „1. Evrópudeild Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar (WHO) samþykkti 17. september 1992 að hvetja til átaks gegn tjóni af völdum áfengis. Samþykkt- in var gerð samhljóða af full- trúum ríkisstjóma í öllum 45 aðildarríkjunum. í áætluninni er m.a. gert ráð fyrir að keppt verði að því marki að draga úr áfengisneyslu um fjórðung átímabilinu 1980-2000. Lögð er áhersla á að heillavænleg áfengismálastefna sé grund- völluð bæði á fræðslu og laga- setningu enda hafi hár Iögald- ur til áfengiskaupa, hátt verð og hömlur á framboði (að- gengi) reynst hafa mikil áhrif til góðs. í þessu felst m.a. að áfengisveitingatími sé styttur. Sé hann aftur á móti lengdur gengur það þvert gegn tilmælum Heilbrigðisstofnun- arinnar. 2. Hverju meðalgreindu barni mun ljóst að því víðar sem vara er á boðstólum og því lengur sem hún er höfð til sölu dag hvern þeim mun meira er af henni keypt að öðru jöfnu. í ljósi þessa er skiljanlegur áhugi þeirra sem leitast við að hagnast á drykkju fólks á því að hafa sölustaði sína opna sem allra lengst. 3. Áfengisveitingamenn leggja ofuráherslu á að fá að selja þetta eina lögleyfða vímuefni sem allra lengst jafnt á nóttu sem degi — og hefur í því efni orðið undarlega og óeðlilega mikið ágegnt undan- farin misseri. Það þarf dálítið sérstæða greind eða vafasama dómgreind til að leggjast á árar með þeim. Augljóst er að kröfur þeirra stjórnast af hagnarðavon en ekki áhuga á velferð almennings. 4. Samkvæmt rannsókn Hagfræðistofnunar Háskóla Islands er kostnaður vegna áfengisneyslu hérlendis meiri en þær tekjur sem sameigin- legir sjóðir okkar hafa af sölu þess. Þann mismun greiðir al- menningur í landinu. Áfengi- sveitingamenn gjalda síst meira í þá hít en aðrir þótt þeir hagnist á drykkjuskap manna. Og þeir eru ekki — eins og til að mynda starfs- bræður þeirra í Bandaríkjun- um — ábyrgir fyrir því tjóni sem ölvaðir viðskiptavinir þeirra valda er þeir halda brott úr húsum þeirra. Ef svo væri hefði það að líkindum áhrif til góðs. 5. Diykkjusiðir íslendinga eru svipaðir drykkjuvenjum annarra norrænna þjóða, ýmissa Austur-Evrópuþjóða og ekki mjög ólíkir siðum Eng- ilsaxa í Bandaríkjunum og Kanada og jafnvel Bretá sjálfra. Hins vegar eru þeir gjörólíkir drykkjuvenjum Mið- og Suður-Evrópubúa. Þær þjóðir, sem líkastar okkur eru og nánast á sama menningar- svæði og við, leyfa flestar mun styttri áfengisveitingatíma en tíðkast á Islandi um þessar mundir. Svo er um þær þjóðir allar sem Norðurlönd byggja nema Dani og einnig íbúa Bretlandseyja. í Kanada og flestum ríkjum Bandaríkjanna er áfengisveitingatími styttri en hér, sums staðar miklu styttri. Meðal suðrænna þjóða og í mörgum þróunarríkjum er hins vegar leyfílegt að selja áfengi allan sólarhringinn. Norræn menningarþjóð, sem slíka skipan mála tæki upp, yrði fljótlega að athlægi. Hætt er við að hún yrði ekki lengi í hópi þeirra þjóða í Evrópu og Norður-Ámeríku sem minnst drekka."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.