Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 52
'símGmmASmBRÉFN69lm, 'pósthólf^Íow^/ AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Ráðherra opnar Y estfj arðagöng Isafirði. VESTFJARÐAGÖNG opnast til Súgandafjarðar á morgun fef ekkert óvænt hendir. Fimm sentímetra víð hola var boruð á milli á sunnudag- inn til að kanna hvort mælingar stæðust. Þá voru eftir 37,5 metrar eins og mælingar gáfu til kynna og keppast nú bormennirnir við að hafa allt tilbúið fyrir Halldór Blöndai samgönguráðherra sem mun sprengja síðasta haftið um hádegisbil á morgun, miðvikudag. Komnir í g'eg'n Morgunblaðið/Úlfar STÓRA stundin runnin upp. Borinn kominn í gegn. Mikael Myhre og Steindór Óli Ólason, starfsmenn Vesturíss, undirbúa að mæla þykktina á haftinu sem skilur göngin að. Nú er mikill snjór í gangaopinu að vestanverðu en þar á eftir að byggja forskála. Að öðru leyti er vegurinn frá göngunum að núver- andi vegi að mestu snjólaus. Mikil vinna er nú eftir við styrk- ingar, lagna- og vegagerð en vonast er til að hægt verði að hleypa einhverri umferð þarna um á næsta vetri. Eftir nokkra daga verður haldið áfram með borun í Breiðadalslegg þar sem vatnsæð- in opnaðist í fyrra en þaðan eru ógrafnir um þrír kílómetrar. - Úlfar. Árleg hátíð hljómplötuútgefenda í Bretlandi Björk hlaut tvenn helstu verðlaunin Frá Árna Matthíassyni, fréttamanni Morgunblaðsins í London. UM 3.000 manns, rjóminn af breska tónlistar- heiminum, fylgdust með þegar Björk Guðmunds- dóttir hlaut tvenn verðlaun á Brit-hátíðinni svo- nefndu. Hátíð þessa halda hljómplötuútgefendur í Bretlandi ár hvert. Hún fékk verðlaun sem besti alþjóðlegi nýliðinn og sem besta alþjóðlega söngkonan og voru það tvenn af helstu verðlaun- um þessarar hátíðar. Björk Guðmundsdóttir, sem var tilnefnd til tvennra verðlauna, var greinilega taugaóstyrk áður en hátíð- in bytjaði. Þegar verðlaunin fyrir besta alþjóðlega nýliðann voru tilkynnt mátti sjá að töluvert kom á Björk því hún kafroðnaði og óskaði þess greinilega að hún væri annars staðar í smástund. Hún varð þó að taka því að fara upp á svið í sviðsljósi kvik- myndavéla og taka við verðlaununum. Þegar þangað var komið var hún greinilega búin að jafna sig eft- ir mestu geðshræringuna og þakkaði Bretlandi sér- staklega fyrir góðar móttökur og síðan öllum þeim sem hefðu unnið með henni að gerð plötunnar Debut. Hún var rétt komin í sætið sitt og búin að' skála í kampavíni við móður sína, Hildi, útgefanda sinn, Derek Birkett, Dom T., sambýlismann sinn, og fleiri viðstadda þegar lesið var upp að hún hefði hlotið verðlaun sem besta alþjóðlega söngkonan og þar með slegið við söngkonunum Tinu Turner, Mariah Carey og Janet Jackson. Þegar hér var komið sögu gat Björk fátt annað gert en haldið fyrir andlit sér þar sem hún gekk upp að sviðinu, undir lófataki v Stuttu eftir þetta tróð Björk upp með bresku söng- viðstaddra og húrrahrópum og tók í annað sinn við konunni PJ Harvey. Hátíðinni verður sjónvarpað í silfurstyttunni sem er Brit-verðlaunin. Að þessu sinni kvöld í Bretlandi og búist er við að um tíu millj. gat hún fátt annað sagt en stutt takk fyrir. manna horfi á. Björk Guðmundsdóttir Þorsteinn sagði að ástand loðnu- stofnsins væri gott og þar sem loðna sé aðalfæða þorsksins þá hafi þetta haft þau áhrif að þorskur hefur safnast saman á ýmsum miðum og orðið auðveiðanlegri en oft áður. Athugun á aldursdreifingu þorsks í afla togara á Vestfjarðamiðum í september-desember í vetur sýndi að a.m.k. 70% aflans væru fjögurra ára fiskur og yngri. Öll aukning í veiðiheimildum um þessar mundir myndi koma okkur í koll síðar og nauðsynlegt væri að byggja þorsk- stofninn upp. „Ekkert gæti komið Vestfirðingum verr en ef stjórn- málamenn létu undan tímabundn- um þrýstingi, því þá fyrst mundi byggðin á Vestfjörðum hrynja ef við tækjum óábyrgar ákvarðanir af þessu tagi,“ sagði hann. Jóna Valgerður sagði að ástand veiðistofnsins væri betra en sjó- menn hefðu þorað að vona og greinileg aukning hefði orðið á fisk- gengd allt í kringum landið. Því væri fullkomlega réttlætanlegt að úthluta meiri veiðiheimildum á botnfiski og sagðist taka undir til- lögu Einars K. Guðfinnssonar, Sjálfstæðisflokki, í blaðagrein að auka mætti þorskkvóta í allt að 205 þúsund tonn. Ágreiningur innan flokka Kristín Astgeirsdóttir, flokks- systir Jónu Valgerðar, var á ann- arri skoðun og varaði eindregið við að þorskkvóti yrði aukinn. Sama sinnis var Jóhannes Geir Sigur- geirsson, Framsóknarflokki, sem sagði þorskstofninn nú í lágmarki en flokksbróðir hans Olafur Þ. Þórð- arson. sagði að umhyggjan fyrir þorskinum mætti aldrei verða meiri en umhyggjan fyrir fólkinu í land- inu. Loðnan kom frá Þorlákshöfn úr Faxa og Gullborgu en ekki fengust upplýsingar um hversu mikið hefði verið keyrt til Reykjavíkur. Að sögn Teits Stefánssonar veiddust rúm- lega 20 þúsund tonn yfir helgina og er gert ráð fyrir rúmlega 12 þúsund tonnum til löndunar til við- bótar. Þrír bátar lönduðu í Færeyj- um; Guðmundur, Grindvíkingur og Hólmaborg og voru samtals með um 3.500 tonn, samkvæmt upplýs- ingum Þórðar Jónssonar rekstrar- stjóra SR-mjöls á Siglufirði. Teitur Stefánsson framkvæmda- stjóri Félags íslenskra fiskimjöls- framleiðenda segir að verið sé að frysta um allt land þótt mest fari í bræðslu, loðnuveiði hafi verið ágæt um helgina og raunar síðustu daga og ástæða sé til bjartsýni með framhaldið. V Allir dóm- arar van- hæfir og víkja sæti ALLIR dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur, 21 talsins, hafa vikið sæti í máli Geirs Waage, formanns Prestafélags Islands, gegn ríkinu. Málinu hefur nú verið vísað til dómsmálaráðuneytisins, með ósk um að það skipi setudómara í því. Dómsmálaráðherra segir að það verði gert á næstu dögum. Málið höfðaði Geir Waage til að fá sér dæmdar þær launabætur sem Kjaradómur úrskurðaði prestum sumarið 1992 en voru síðar afnumd- ar með bráðabirgðalögum. Kjara- dómur úrskurðaði þá einnig um laun opinberra starfsmanna, þar á meðal dómara, og vinni Geir málið ættu dómarar rétt á kjarabótum til sam- ræmis við presta. Á þeim forsendum eru héraðsdómararnir vanhæfir til að fara með málið. Ekki er gert ráð fyrir að unnt sé að skipa setudómara nema allir starf- andi héraðsdómarar við héraðsdóm hafi áður úrskurðað sig vanhæfa. Dómari á næstu dögum Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráð- herra, sagði í samtali við Morgun- blaðið i gær, að lög stæðu til þess að hann skipaði setudómara og það myndi hann gera á næstu dögum. „Sá dómari verður löglærður maður sem starfar ekki við dómstóla. Hann verður, eins og aðrir dómarar, óháð- ur framkvæmdavaldinu og sjálfstæð- ur í starfi sínu,“ sagði ráðherra. Sjávarútvegsráðherra hafnar hugmyndum um aukmngu aflaheimilda Abyrgðarleysi að láta iind- an tímabimdnum þiýstingi ÞORSTEINN Pálsson vísaði öllum hugmyndum um aukmngu afla- heimilda algerlega á bug á Alþingi í gær í svari sínu við fyrirspurn frá Jónu Valgerði Kristjánsdóttur, Kvennalista, og sagði Þorsteinn að stjórnmálamenn mættu ekki láta undan tímabundnum þrýstingi. „Ekkert hefur komið fram sem breytir þeim forsendum sem lagðar voru til grundvallar ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í maímánuði í fyrra og ákvörðunum sljórnvalda. Sem betur fer reyndist klakmæl- ingin síðastliðið haust betri en áður og gefur góða von en þorskur- inn er ekki svo bráðþroska að það gefi tilefni til þesg, að auka afla- heimildir nú. Það væri ábyrgðarleysi," sagði sjávarútvegsráðherra. 200 manns fá vinnu við loðnufrystingu ÁGÆTIS loðnuveiði var á miðunum um helgina og segir Teitur Stefánsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra fiskimjölsframleið- enda að menn séu bjartsýnir á framhaldið. Byijað var að vinna loðnu í Reykjavík í gær og að sögn Teits fengu um 200 manns af atvinnuleysiskrá vinnu við loðnufrystingu í kjölfarið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.