Morgunblaðið - 15.02.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1994
7
Hannes Hlífar í 1.-3. sæti á Reykjavíkurskákmótinu
„Menn verða að standa
sig ef þeir ætla að tóra“
REYKJARVÍKURSKÁKMÓTINU lauk á sunnudag með
ánægjulegum úrslitum fyrir íslenska skákmenn en Hannes
Hlífar Stefánsson deildi 1.-3. sæti með rússnesku stór-
meisturunum Zvjaginsev og Evgení Pigusov. Skipta þeir
verðlaunafénu jafnt á milli sínum og koma um 350 þúsund
krónur í hlut hvers og eins. Hannes Hlífar vann fimm
skákir, gerði fjögur jafntefli og tapaði engri, en á mótinu
tefldu 30 stórmeistarar og er það talið eitt sterkasta opna
skákmót sem haldið er í Evrópu í ár. Hannes segir það
hafa komið sér ánægjulega á óvart að ná þessum árangri
vegna þess hversu sterkir andstæðingar hans voru að
þessu sinni, þó að ekki sé undrunarefni að Islendingar
blandi sér í toppbaráttuna miðað við stöðu þeirra í skák-
heiminum.
Einbeiting við taflið
Hannes Hlífar er tuttugu og
eins árs gamall og varð formlega
stórmeistari í fyrrasumar þegar
hann náði 2.500 ELO-stigum,
en hafði þegar árið 1992 náð
nauðsynlegum áfanga að titlin-
um. „Það var ágætt að losna við
pressuna sem fylgdi keppni að
þessum stórmeistaraáfanga og
geta loks einbeitt sér að því að
tefla án þess að þurfa að hugsa
um titilinn,“ segir Hannes Hlíf-
ar. Hann segir mikilvægustu
skákir mótsins tvímælalaust
hafa verið við Bandaríkjameist-
arann Shabalov, sem nýfluttur
er til Bandaríkjanna frá Rúss-
landi, og næstsíðasta skákin við
Bosníumanninn Ivan Sokolov,
sem var stigahæsti skákmaður
mótsins.
2.600 stiga markið
Hannes kveðst nú setja sér
að sækja mót erlendis og ná
2.600 ELO-stigum áður en stiga-
taflan er reiknuð í júlí, sem sé
ekki auðvelt. Mótið nú hafi hins
vegar fært honum 20 stig þann-
ig að leiðin sé ögn greiðari en
áður. „Ef það markmið næst er
maður meðal 50 efstu skák-
manna í heiminum stigalega séð
og fær í kjölfarið boð á sterkari
mót. Ég er núna að skoða hvaða
mót koma til greina á næstunni
og hyggst reyna að ná þessum
stigafjölda til að byija með,“
sagði Hannes Hlífar.
Morgunblaðið/Sverrir
Sigursælir skákmenn
HANNES Hlífar Stefánsson stórmeistari ásamt félaga sínum í
skáklistinni, Helga Áss Grétarssyni, sem þótti koma mjög á
óvart í Reykjavíkurskákmótinu en hann varð í 4.-5. sæti móts-
ins, aðeins sextán ára gamall. Helgi vann þrjár seinustu skákirn-
ar sem hann tefldi og voru þær allar við stórmeistara.
Harður heimur
Hann starfar nú sem atvinnu- .
skákmaður, en íslenska ríkið
greiðir stórmeisturum laun og
kenna þeir við Skákskóla Is-
lands, og segir Hannes drjúgan
tíma fara í að fylgjast með
skákum og velta þeim fyrir sér,
og að einkum sé undirbúnings-
vinna af þeim toga mikil fyrir
mót, „enda er þetta harður heim-
ur og menn verða að standa sig
ef þeir ætla að tóra,“ segir hann.
18 sækja
um stöðu
trygginga-
yfirlæknis
ALLS sóttu 18 læknar um stöðu
tryggingayfirlæknis við Trygg-
ingastofnun ríkisins en frestur
til að skila inn umsóknum rann
út 10. febrúar. Heilbrigðisráðu-
neytið sendi umsóknirnar í gær
til landlæknisembættisins og
verða umsóknirnar metnar af
sérstakri nefnd sem gefur álit
um allar yfirlæknisstöður sem
auglýstar eru lausar til umsókn-
ar skv. upplýsingum Páls Sig-
urðssonar ráðuneytissljóra í heil-
brigðisráðuneytinu. Nefndin hef-
ur 6 vikur til að fara yfir umsókn-
irnar en að því loknu verða þær
sendar til umfjöllunar Trygg-
ingaráðs áður en heilbrigðis- ög
trygingaráðherra skipar í stöð-
una.
Eftirtaldir 15 læknar sóttu um
stöðu tryggingayfirlæknis en þrír
óskuðu nafnleyndar: Brynleifúr
Steingrímsson, Guðbrandur Þor-
kelsson, Guðmundur I. Sverrisson,
Gauti Arnþórsson, Gunnar Ingi
Gunnarsson, Hrafn V. Friðriksson,
Jón K. Jóhannsson, Júlíus Valsson,
Magnús Guðmundsson, Ólafur H.
Oddsson, Páll B. Helgason, Snorri
Ingimarsson, Vigfús Magnússon,
yilhjálmur Rafnsson og Þórarinn
Ólafsson.
Sjö umsækjendanna sóttu einnig
um stöðu staðgengils tryggingayf-
irlæknis en þeir eru Gauti Arnþórs-
son, Guðbrandur Þorkelsson, Jón
K. Jóhannsson, Júlíus Valsson,
Magnús Guðmundsson og Vigfús
Magnússon en einn umsækjandi
óskaði nafnleyndar.
VZterkur og
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
RENAULT 19 R N
- með hörkuskemmtilegri og sparneytinni 1400 vél.
HAGSTÆÐUSTU
BÍLAKAUP ÁRSINS?
Fallegur fjölskyldubíU á aðeins kr. 1.169.000,-
STAÐALBÚNAÐURINNIFALINN IKYNNINGARVERÐI:
• l400cc vél - bein innspýting.
• 80 hö. din.
• Eyðsla 8,1/100 km, innanbæjar .
• Rafdrifnar rúðuvindur framan.
• Vökvastýri.
• Olíuhæðarmælir í mælaborði.
• 460 lítra farangursrými.
• Utvarp með kassettu.
• Ryðvörn, skráning.
Fjarstýrðar samlæsingar.
Fjarstýrðir útispeglar.
Oryggisbitar í hurðum.
Vönduð innrétting.
Snúningshraðamælir.
Vetrardekk.
1 Málmlitur.
1 Veghæð 17 cm.
RENAULT
- fer á kostuml