Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1994
Espigerði - 2ja herb.
Ti! sölu falleg 2ja herb. 60 fm íb. á 8. hæð í húsinu nr.
4 við Espigerði í Reykjavík. Parket. Fallegt útsýni. Sval-
ir. Lyfta. Góð sameign. Laus fljótlega. Verð 6,4 millj.
Áhv. 2,2 millj. langtímal. Upplýsingar í síma 91-689299.
Hjallabraut 33 - Hf. - þjónustuíbúð
Höfum fengið til sölu eina af þessum vinsælu íbúð-
um fyrir 60 ára og eldri. íbúðin er ca 70 fm og er á
3. hæð, snýr í suður.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugsson hdl.,
Linnetsstfg 3, 2. hæð, Hfj.,
símar 51500 og 51601.
Dalshraun - Hf.
Gott iðnaðar/verslunarhúsnæði á einni hæð alls 280
fm. Innkeyrsludyr. Góð lofthæð. Möguleiki að skipta í
tvær 140 fm einingar. Áhvílandi langtímalán ca 7,3
millj. Verð 12,4 millj.
Nánari upplýsingar hjá:
Fasteignasölunni Ás,
Strandgötu 33, Hafnarfirði,
sími 652790.
Gegn Bandaríkjunum
Bækur
Bjöm Bjarnason
ÁTAKASVÆÐI í heiminum.
Höfundur: Jón Ormur Halldórs-
son. Útgefandi: Mál og menn-
ing, Reykjavík, 1994. 272 bls.
með kortum.
Fjölmargar ritgerðir og bækur
birtast um þessar mundir, þar sem
höfundar takast á við að sþilgreina
þróun og stöðu alþjóðamála eftir
hrun Sovétríkjanna. Enginn ætlar
sér þá dul að rekja hvern einstaka
þráð í þeirri flóknu mynd, sem við
blasir. Þess í stað velja menn sér
gjarnan sjónarhól og líta síðan frá
honum á það, sem þeim finnst
best hæfa eigin lýsingu.
Samuel P. Huntington, prófess-
or í stjórnmálafræði við Haivard-
háskóla, ritaði til dæmis á síðasta
ári grein í sumarhefti tímaritsins
Foreign Affairs, þar sem hann
varpar fram spurningunni, hvort
átök í heiminum verði á milli ólíkra
menningarheilda. Hafa síðan orðið
miklar umræður um skoðanir hans
í því efni. Á vegum Alþjóðaher-
málastofnunarinnar í London hef-
ur verið gefinn út fjöldi ritsmíða
um þessi efni, þar er viðfangsefn-
ið meðal annars nálgast með
sjálfsákvörðunarrétt þjóðernis-
hópa og upplausn ríkja að leiðar-
ljósi.
Jón Ormur Halldórsson kynnir
bók sína á þann veg, að með henni
sé hann að auðvelda fólki að átta
sig á ástæðum stríðsátaka og hún
sé „lítilsháttar tilraun til að skýra
rætur og eðli átaka á nokkrum
helstu ófriðarsvæðum jarðar,“ eins
og höfundur orðar það í formála.
Sagt er frá átökum er snerta Júgó-
slavíu, Norður-írland, Afganistan,
Kúrda, Líbanon, Palestínu, Persa-
flóa, Mið-Ameríku, Kýpur, Sri
Lanka og Austur-Timor.
í stuttu máli leitast höfundur
við að lýsa í senn ástæðum átaka
og atburðarás. Segja má, að það
sé vanþakklátt verk að rita slíka
bók, því að hún úreldist fljótt, ef
höfundurinn fer hratt yfir eins og
blaðainaður. Þannig vinnur Jón
Ormur þetta verk.
Fyrir utan yfirlýst markmið
höfundar gerir hann almennt lítið
úr hlut Bandaríkjanna. Einnig er
honum í nöp við Ísraelsríki.
Francis Fukuyama varð frægur
fyrir nokkrum misserum vegna
ritgerðar um endalok sögunnar við
hrun kommúnismans. I nýrri rit-
smíð segir hann, að sérfróðir menn
um alþjóðamál séu allir sammála
um það, hvort sem þeir eru hauk-
ar eða dúfur, að heimurinn hafi
orðið miklu verri eftir brotthvarf
Sovétríkjanna. Hann segir einnig,
að vinstrisinnaðir sérfræðingar
séu daufir í dálkinn vegna þeirrar
skoðunar, að Vesturlönd hafi unn-
ið hugmyndafræðilega baráttu
kalda stríðsins, og þeir haldi því
stíft fram, að ekki sé allt sem
sýnist, þegar rætt sé um yfirburði
kapítalisma og lýðræðislegra
stjórnarhátta. Þessi lýsing Fukuy-
ama á vel við, þegar hugað er að
sjónarhóli Jóns Orms.
í bókinni upplýsist, að ekki er
mikiil frumleiki í hugtakasmíði hjá
þeim íslendingum, sem vísa til
áhrifa „kolkrabbans“ og_ ítaka
„Ijölskyldnanna fjórtan“. í Mið-
Ameríku kölluðu innfæddir United
Jón Ormur Halldórsson.
Fruit Company „el pulco", kol-
krabbann. I E1 Salvador er nafn
almennings á valdaklíkunni, sem
ráðið hefur landinu á þessari öld,
„los catorce", fjölskyldurnar fjórt-
án. Það er í anda samanburðar-
fræða, sem vilja gera lítið úr gildi
lýðræðislegra stjórnarhátta, að
leiða þessi mið-amerísku hugtök
inn í íslenska stjórnmálabaráttu.
Bók Jóns Orms Halldórsson er
lipurlega skrifuð á einföldu og
skýru máli. Það hefði aukið gildi
hennar sem uppflettirits að hafa
nafnaskrá og fyllra efnisyfirlit.
Athygli vekur, að bókin er pentuð
og bundin sem kilja í Norhaven
bogtrykkeri a/s.
Hvassaberg
í einkasölu er þetta glæsilega og vandaða einbýlishús
um 220 fm á tveimur hæðum auk tvöfalds bílskúrs um
43 fm. Efri hæðin er um 160 fm en neðri hæð um 60
fm. Mögulegt er að hafa séríbúð á neðri hæð. Áhvíl-
andi byggingarsjóðslán um 2,7 millj.
Fasteignasala
Árna Grétars Finnssonar hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugsson hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hafnarfirði
si'mi 51500.
Ný fyrirtæki á skrá:
★ Bílaþjónusta, bónstöð, rafgeymaþjónusta.
★ Umbsala á nýjum og not. húsg., tækjum o.fl.
★ Framköllunarfyrirtæki.
★ Framleiðsla á matvælum.
★ Framleiðsla á sælgæti og súkkulaðivörum.
★ Vöruflutningar, frekar stutt leið.
★ LítiJ bílasala í Skeifunni.
★ Matvöruverslun með 7,0 mjllj. kr. mánveltu.
★ Lítil ísbúð, vel staðsett.
★ Söluturn á góðum stað.
★ Framleiðsla á landbúnaðartækjum.
★ Skyndibitastaður með stóru eldh.
★ Sérversl. með hreinlætistæki o.þ.h.
★ Innfl. og smásala á vönduðum barnavörum.
★ Lítil hársnyrtistofa.
★ Framleiðsla á frábærum ruslatunnum.
uamnssESjnM
SUDURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
51500
Hafnarfjörður
Laufvangur
Til sölu góð 2ja herb. íb. á 1.
hæð. Ekkert áhv. Laus.
Hvassaberg
Glæsil. ca 220 fm tvíl. einbh.
auk bílsk. Mögul. á tveimur íb.
Hjallabraut
- þjónustuíbúð
Góð 2ja herb. þjónustuíb., fyrir
Hafnfirðinga 60 ára og eldri, á
4. hæð ca 63 fm. Áhv. byggsj.
ca 3,2 millj. Verð 7,8 millj. Skipti
mögul.
Álfaskeið
Góð ca 100 fm 4ra herb. íb. á
1. hæð í þríbýlishúsi.
Klettagata
Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í
tvíbýlishúsi auk bílskúrs. Geta
selst saman.
Arnarhraun
Góð 5 herb. íb. á 3. hæð í þríb-
húsi ca 136 fm. Sérinng. Áhv.
ca 1,5 millj.
Lindarhvammur
Glæsil. efri sérhæð ásamt risi
ca 140 fm. Mikið endurn.
Æskil. skipti á einbhúsi í Hafn-
arfirði ca 200-300 fm.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hfj.,
símar 51500 og 51601.
Cterkurog
L/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokto 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
3. flokto 1992
Innlausnardagur 15. febrúar 1994.
1. flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 786.451 kr. 78.645 kr. 7.866 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 694.339 kr. 69.434 kr. . 6.943 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.373.848 kr. 137.385 kr. 13.738 kr.
2. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.277.024 kr. 127.702 kr. 12.770 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.635.536 kr. 1.127.107 kr. 112.711 kr. 11.271 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
\y&3 HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
Lj HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 6? 69 00