Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 14
14
Verk eft-
ir Askel
Másson
gera víð-
reist
TÓNLIST eftir Áskel Másson
verður flutt víða um lieim á
næstu vikum og mánuðum. Dag-
ana 24. til 26. febrúar mun sin-
fóníuhljómsveitin í Cincinnatti
Ohio, halda þrenna tónleika þar
sem leikinn verður Konsertþátt-
ur fyrir litla trommu og hljóm-
sveit eftir Áskel Másson.
Enski slagverksleikarinn Eve-
lyn Glennie mun leika einleik í
konsertinum. Verkið var skrifað
1982 og er það tileinkað sænska
slagverksleikaranum Roger Carl-
son.
Verkið Snjór verður meðal
verka sem flutt verða í tónleika-
ferð Ýmis í apríl. í þessari ferð
fer kammerhópurinn m.a. til Hol-
lands og Japan.
Orgelverkið Hugleiðing eftir
Áskel var flutt tvisvar í Portúgal
í desember og í janúar á tónlistar-
hátíð í London.
Orgelverkin Elegie, Sonata og
Hugleiðing eru væntanleg á
geisladiski sem gefinn verður út
af Merlin Records, Englandi. Á
þessum diski leikur Ian Quinn
þessi verk á Hallgrímskirkjuorgel-
ið.,
Áskell Másson er fæddur 1953
og hóf fyrst nám í klarinettleik
við Tónmenntaskóla Reykjavíkur,
en lærði síðan á slagverk í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík. Fram-
haldsnám stundaði hann í London
hjá Patrick Savill (tónsmíðar) og
James Blades (slagverk). Verka-
listi Áskels telur yfir 60 verk.
Meðal þeirra helstu má nefna óper-
una Klakahöllina, sinfóníuna Sin-
fonia Trilogia og sex einleikskon-
serta. Verk hans hafa verið flutt
víða í Evrópu, Bandaríkjunum,
Ástralíu og Ásíu.
^Tsurumi
VATNSSUGA/GOLFDÆLA
Cterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994
Inntak málverksins
Myndlist
Bragi Asgeirsson
Málverkið lifir erfiða tíma á
íslandi jafnt á opinberum vett-
vangi sem á almennum markaði
og geldur hér skipulagsleysis,
fámennis og hagsmunaárekstra.
Markaðurinn er lítill, og hvorki
skólakerfið né fjölmiðlar rækta
hlutverk sitt sem skyldi varðandi
hlutlæga miðlun sjónmennta.
Hins vegar láta áhangendur
málverksins andstreymið sig litlu
varða og mála eins og andinn og
hugarflugið býður þeim, sem ætti
að vera lifandi vitnisburður þess
að þeir vinna af innri þörf og
láta ekki markaðssjónarmið ráða
ferðinni. Og eins og ég hefi þrá-
faldlega bent á í skrifum mínum
lifir málverkið góðu lífi meðal
stórþjóða, og er aftur á uppleið
á heimsmarkaðinum, jafnframt
því að mest sóttu myndlistarvið-
burðirnir eru yfirleitt málverka-
sýningar.
Málarinn og grafíklistamaður-
inn Einar Hákonarson, er einn
þeirra sem hvað harðastir eru í
sannfæringunni um gildi mál-
verksins, enda er menntun hans
af þeim gamla skóla er agi var
enn við líði, og aðalatriðið var að
halda nemendum við grunnþætti
myndlistar. Þannig styðst hann
fyrst og fremst við hin myndrænu
frumatriði í uppbyggingu mynd-
heilda sinna og er hér ágætlega
íhaldssamur. Það er að segja,
fastheldinn á form að því leyti,
að sömu frumatriðin skjóta iðu-
lega upp kollinum án þess þó að
um beinar endurtekningar sé að
ræða. Þetta ætti að teljast nokkur
kostur og merki um staðfestu á
upplausnartímum er menn haga
seglum eftir því hvernig úthafs-
vindar blása hvetju sinni í núlist-
um.
List Einars hefur þannig ekki
breyst tiltakanlega mikið frá því
að hann kom fyrst fram með sýn-
ing í Bogasal Þjóðminjasafnsins
1967, nema kannski að því leyti
að hún er fágaðari og Einar hef-
ur mun meira vald á litunum.
Sumir munu gjarnan nefna þetta
formalisma og stöðnun, en það
er aðallega fólk sem hefur ekki
hæfileika til að upplifa málverk
sem slíkt, og fyrir þeim er lifun
gærdagsins fortíð. Það var nú
einmitt burðarás og inntak mód-
ernismans er hann reis hæst,
þannig um leið og þetta fóik af-
greiðir málverkið, er það sem
sagt að halda fram kenningum,
sem þeir telja sig andsnúna og
vilja kollvarpa.
Aldrei hef ég séð minnst á
formalisma í sambandi við Cobra-
hópinn en áhangendur hans unnu
eftir svipuðum grunnreglum og
Einar, þannig að ákveðið mynd-
þema gekk sem rauður þráður í
gegnum feril þeirra allan. Lítum
einungis að myndir Carls Henn-
ing Pedersens og Asger Jorns,
en Pedersen sem enn lifír málar
á fullu sömu myndefnin og á
fimmta áratugnum og er einn
ástsælasti myndlistarmaður Dan-
merkur.
Ofanskráð þurfti allt að koma
fram í sambandi við sýningu Ein-
ars, því að þrátt fyrir formrænar
endurtekningar er hún að mínu
viti ferskasta og lífrænasta sýn-
ing hans um langt skeið. Það er
til að mynda dtjúgur munur á
henni og þeirri á Kjarvalsstöðum
1991, bæði hvað myndgæði snert-
ir og yfirvegaða upphengingu.
Segja má að höfuðeinkenni
sýningarinnar sé ferskleikinn,
inntakið og sérstæð átök við sjálft
yfirborð málverksins, en hann
sagar út plast til að ná fram efnis-
legri dýpt og eins konar formræn-
um titringi og bylgjuhreyfingu
(vibration), sem ertir sjóntaug-
arnar. Ferlið hefur hann notast
við áður, en styðst nú minna við
sjálfa efniseiginleika plastsins, en
þeim meira til að dýpka og stokka
upp myndflötinn. Þá málar hann
á plastið þannig að það er vart
sýnilegt, en hins vegar finnur
skoðandinn fyrir ójöfnum á
myndfletinum.
Alveg ósjálfrátt hefur þessi
aðferð opnað Einari heim innri
lífæða myndflatarins sem voru
áður eins og í seilingarfjarlægð,
og jafnframt hefur þetta haft
áhrif á hin hreinu tvívíðu mál-
verk, sem standa fullkomlega fyr-
ir sínu og í engu að baki hinna,
og eru hér myndirnar „Draumur-
inn“ (29) og „Sitjandi“ (26) tákn-
ræn dæmi.
Einar Hákonarson.
Það er mikið að gerast í mynd-
um eins og „Hamfarir" (3) og
„Hollywood koss“ (6), sérstæður
strengur í „Vinátta", mikil birta
í „Vetur“ (10) og samræmd lita-
dýrð í „Konan og dýrið“ (15) og
„Aðskilnaður“ (17).
Þetta voru þær myndir sem ég
staðnæmdist helst við en einnig
voru nokkrar myndir í bláu flæði
áleitnar svo.sem „í vanda“ (28)
og „Dökkir tímar“ (30), en í þeirri
mynd tekst listamaðurinn vafalít-
ið á við ástandið í þjóðfélaginu.
í stuttu máli er þetta sterk
sýning hjá Einari Hákonarssyni
sem staðfestir að hann vinnur á
fullu í list sinni og er heill í sann-
færingu sinni um mátt og megin
málverksins sem sjónræns miðils.
Þorvaldur Skúlason
Listhúsið Borg opnaði fyrir
helgi sýningu á málverkum Þor-
valds Skúlasonar (1906-1984),
og er sýningin sett upp í sérstöku
tilefni jafnframt því að vera eins
konar kynning á einu og öðru
sem hann tók sér fyrir hendur á
listferli sínum.
Það hlaut að koma að því að
erlendir listhöndlarar kæmu auga
á íslenzka myndlistarmenn, og
þá einnig aðra en þá sem stífast
er haldið fram af hérlendum um
þessar mundir. Þannig hafa út-
lendir listhöndlarar og listáhuga-
menn fest sér myndlistarverk
sem þeir hafa rekist á er þeir
hafa haft lengri eða skemmri
viðdvöl hérlendis, og gert það
þegjandi og hljóðlaust.
Ahuginn er því mun meiri en
fram kemur og margt bendir til
að þessi viðskipti muni eiga eftir
að aukast fremur en hitt á næstu
árum, og menn eru farnir að
gera sér ferð hingað til lands í
tilefni einstakra sýninga og svo
mun einmitt éiga sér stað um
sýninguna á verkum Þorvaldar.
Það telst til nokkurra tíðinda
er útlendir gera sér ferð hingað
ótilkvaddir, og mikill er munurinn
að eiga viðskipti við þá en marg-
an landann, því að þetta fólk er
svo þakklátt yfir að eignast mynd
og greiðir uppsett verð mögl-
unarlaust, - er þá frekar að það
reki upp stór augu yfir því hve
ódýr myndlistarverkin eru.
Hér mætti enn einu sinni vekja
athygii á því hve markaðssetn-
ingu íslenzkrar listar er hörmu-
lega ábótavant bæði innanlands
sem utan, og svo að afrakstur
hugvits er næsta lítils metinn.
Á sýningunni eru 25 verk eftir
Þorvald frá árunum 1930-1982,
en segja má að höfuðáherslan sé
lögð á eldri myndir og þannig
er tugur verka frá þvi fyrir stríð,
en slíkar myndir eru fáséðar er
svo er komið og þeim verðmæt-
ari.
Fram kemur hve ríkum hæfi-
leikum Þorvaldur var gæddur og
að hann gerði þreifingar til
margra átta áður en hann sneri
sér að ákveðnum og mörkuðum
myndefnum, en gerðist svo einn
af frumkvöðlum óhlutlæga mál-
verksins hérlendis. Annars voru
verk hans alla tíð myndgrindar-
málverk eins og það nefnist, og
hann var ágætlega skóiaður á
því sviði og sú skólun var öðru
fremur frönsk. Þótt hann stund-
aði upphaflega nám í Reykjavík
og Osló, var námsgi-unnurinn
fyrst og fremst byggður á
franskri hefð.
Þorvaldur lagði ásamt Valtý
Péturssyni homstein að íslenzku
strangflatamálverki, sem var
byggt upp á hugmyndum Par-
ísarskólans, og það er einmitt
þetta tímabil listar hans sem hinn
útlendi gestur mun hafa áhuga
á. Þessi tegund listar á sér harða
áhangendur erlendis og einnig
sá geiri hennar er veit að Norður-
löndum, en þau áttu frammúr-
skarandi fulltrúa á vettvanginum
og suma heimsþekkta eins og
t.d. Danann Richard Mortensen.
Þorvaldur Skúlason.
Áhugasamir um þróun íslenzkrar
myndlistar og viðgang málverks-
ins skal sérstraklega bent á þetta
tækifæri til að beija augum þetta
samsafn listar brautryðjandans
Þorvaldar Skúlasonar.
FÉLAGS- og þjónustumiðstöðin,
Hvassaleiti 56-58. Skemmtun í
umsjón Sigurðar Björnssonar kl.
14.15 í dag í tilefni af opnun Þjóð-
leikhússins. Leikararnir Guðný
Ragnarsdóttir og Hákon Waage
lesa úr leikritum.
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Lönguhlíð 3. Vefnaðarkennslan er
hafin. Uppl. á skrifstofunni í 24161.
KRISTNIBOÐSDEILD KFUM og
KFUK í Hafnarfirði. Samvera í
kvöld kl. 20.30 á Hverfisgötu 15.
Fréttir af kristniboðsstarfi, hugleið-
ing o.fl.
BRIDSKLÚBBUR Félags eldri
borgara, Kópavogi. Spilaður tví-
menningur í kvöld kl. 19 í Fann-
borg 8. Kl. 18 verður aðalfundur
haldinn svo félagar eru beðnir um
að mæta í fyrra lagi.
HJÁLPRÆÐISHERINN. Flóa-
m^rkaðsbúðin Garðastræti 2 er
opin þriðjudaga, fimmtudaga og
föstudaga kl. 13-18. Mikið úrval.
BÚSTAÐASÓKN. Fótsnyrting
fimmtudag. Uppl. í s. 38189.
DÓMKIRKJUSÓKN. Fótsnyrting
í safnaðarheimili kl. 13.30. Úppl. í
s. 13667.
KIRKJUSTARF______________
ÁSKIRKJA: Opið hús fyrir alla
aldurshópa í dag kl. 14-17.
BÚSTAÐAKIRKJA: Starf 11-12
ára krakka í dag. Húsið opnar kl.
16.30.
DÓMKIRKJAN: Mömmumorgunn
í safnaðarheimilinu Lækjargötu
14a, kl. 10-12.
GRENSÁSKIRKJA: Kyrrðarstund
kl. 12. Við upphaf stundarinnar
leikur Hallfríður Ólafsdóttir á þver-
flautu í 10 mín. Altarisganga, fyrir-
bænir, samvera. Opið hús kl. 14.
Sr. Halldór S. Gröndal verður með
biblíulestur. Síðdegiskaffi.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum.
LANGHOLTSKIRKJA: Vinafund-
ur kl. 14-15.30 í safnaðarheimilinu.
Leiðsögn í lestri ritninganna. Leið-
beinandi sr. Flóki Kristinsson. Aft-
ansöngur í dag kl. 18.
NESKIRKJA: Mömmumorgunn í
safnaðarheimilinu kl. 10-12. Kaffi
og spjall.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Foreldramorgunn kl. 10-12. Starf
fyrir 10-12 ára í dag kl. 17.30.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Starf
10-12 ára barna (TTT) í dag kl.
16.30. Bænaguðsþjónusta með alt-
arisgöngu kl. 18.30. Fyrirbænum
má koma til sóknarprests í viðtals-
tíma.
KÁRSNESSÓKN: Samvera æsku-
lýðsfélagsins í kvöld kl. 20-22 í
safnaðarheimilinu Borgum.
í
I
I
I
í
í
i
í
í