Morgunblaðið - 15.02.1994, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1994
h
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Bókmenntaverðlaun afhent
JÓN G. Friðjónsson hlaut verðlaun í flokki fræðirita fyrir Merg málsins, safn orðatiltækja, og
Hannes Péturssonar hlaut verðlaun í flokki fagurbókmennta fyrir ljóðabókina Eldhyl. Haukur son-
ur Hannesar tók við verðlaununum fyrir hans hönd, sem forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, afhenti.
íslensku bókmenntaverðlaunin veitt í fimmta sinn
Hannes Pétursson o g Jón
G. Fríðjónsson verðlaunaðir
HANNES Pétursson og Jón G. Friðjónsson hlutu íslensku bók-
menntaverðlaunin 1993. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Listasafni íslands í
gær.
Hannes hlaut verðlaunin í flokki
fagurbókmennta fyrir ljóðabók
sína Eldhyl, sem bókaforlagið Ið-
unn gefur út. Verðlaun í flokki
fræðirita hlaut Jón G. Friðjónsson
fyrir Merg málsins, safn íslenskra
orðatiltækja, sem Om og Örlygur,
Bókaklúbbur hf., gefur út.
Við verðlaunaafhendinguna í
Listasafninu komu fram þeir Þor-
steinn Gauti Sigurðsson og Guðni
Franzson og fluttu kafla úr Só-
nötu op. 167 fyrir píanó og klarí-
nett eftir C. Saint-Saens og verk
eftir Ravel og Miihaud. Jóhann
Páll Valdimarsson, formaður Fé-
lags íslenskra bókaútgefenda,
ávarpaði gesti og Vilborg Dag-
bjartsdóttir skáld flutti hátíðar-
ræðuna.
Að lokinni verðlaunaafhendingu
ávarpaði Jón G. Friðjónsson gesti
fyrir hönd verðlaunahafanna og
þakkaði sérstaklega þann sóma
sem honum hefur verið sýndur
með þessari viðurkenningu sem
verðlaunin eru. Þau séu hvatning
til að halda áfram og gera betur.
Lokadómnefnd bókmenntaverð-
launanna.skipuð Guðrúnu Nordal,
Ólafi Oddssyni og Helga Þorláks-
syni, sem var formaður hennar,
valdi verðlaunaverkin úr tíu bók-
um sem tilnefnd voru til verðlaun-
anna í desember síðastliðnum.
Fimm bækur voru í flokki fagur-
bókmennta og fimm í flokki fræði-
rita og bóka almenns efnis. Til-
nefndar fagurbókmenntir voru
auk Eldhyls Hannesar Pétursson-
ar skáldsögurnar Borg eftir Rögnu
Sigurðardóttur, Falsarinn eftir
Björn Th. Björnsson, Hvatt að
rúnum eftir Álfrúnu Gunnlaugs-
dóttur og Sú kvalda ást sem hug-
arfylgsnin geyma eftir Guðberg
Bergsson. Af fræðiritum hlutu til-
nefningu bækurnar íslenskur
söguatlas I—III, ritstjórar Árni
Daníel Júlíusson, Jón Ólafur ís-
berg og Helgi 'Skúli Kjartansson,
Saga daganna eftir Árna Björns-
son, Saga Jónasar frá Hriflu I—III
eftir Guðjón Friðriksson og Sið-
fræði lífs og dauða eftir Vilhjálm
Ámason auk orðatiltækjasafns
Jóns G. Friðjónssonar, Mergs
málsins.
Þetta er í fímmta sinn sem Fé-
lag íslenskra bókaútgefenda veitir
verðlaun fyrir athyglisverðustu
bækur ársins. Verðlaunin nema
500 þúsund krónum hvor auk þess
sem afhent eru skrautrituð verð-
launaskjöl og verðlaunagripir
smíðaðir af Jens Guðjónssyni gull-
smið, opin bók á granítstöpli með
nafni verðlaunahafa og ritverks.
Skákfrömuði frá Bosníu boðin siúkrahúsvist
Hafði verið flutt-
ur á sjúkrahús í
Bologna á Italíu
UTANRÍKISRÁÐHERRA tilkynnti í gær að íslensk stjórnvöld væru
reiðubúin til að kosta för Nusrets Causevic, forseta skáksambands
Bosníu, hingað til lands og bjóða honum nauðsynlega Iæknisþjónustu
á íslensku sjúkrahúsi, en hjálparbeiðni frá Causevic barst Skáksam-
bandi íslands á laugardag. Er beiðnin barst var tafarlaust reynt að
hafa uppi á Causevic og í gærkvöldi bárust Margeiri Péturssyni stór-
meistara og varaforseta Skáksambands Islánds upplýsingar um að
Causevic hefði í lok síðustu viku verið fluttur á sjúkrahús á Bologna
á Italíu og þar getur hann verið í þrjá mánuði með fjölskyldu sinni.
Því er óvíst hvort hann þarf á boði íslenskra stjórnvalda að halda.
Morgunblaðið/Þorkell
Fundað um aðstoð
JON Baldvin Ilannibalsson utanríkisráðherra
ásamt Ivan Sokolov, stórmeistara frá Bosníu,
og Margeiri Péturssyni, stórmeistara og vara-
forseta Skáksamband Islands, en þeir funduðu
í gær um mögulega aðstoð til handa forseta
Skáksambands Bosníu.
„Gausevic var á
gangi í götu í
Sarajévo í byijun
janúar þegar
sprengja lenti sex
metrum frá hon-
um,“ sagði Margeir
í samtali við blaðið
eftir að hann hafði
fengið fréttir af því
sem gerðist. „Hann
fékk sprengjubrot í
handlegg og mjöðm
og hefur ekki getað
gengið síðan. Um
tíma var óttast að
taka yrði af honum
annan fótinn, en því
reyndist hægt að
afstýra. Það var
bosníski stórmeist-
arinn Predrac Ni-
kolic sem hafði upp
á Causevic fyrir
Skáksamband ís-
lands og eru þeir
mjög þakklátir íslenskum stjórnvöld-
um og skákhreyfingunni fyrir stuðn-
inginn. Nikolic sagði að Gausevic
hefði örugglega komið hingað til
lands ef ekki væri fyrir fjöldamorðin
á markaðstorginu í síðustu viku.
Eftir það virðast allir særðir hafa
verið fluttir á brott frá Sarajevo.
Vinir Gausevic höfðu snúið sér til
ýmissa skáksambanda, en enn sem
komið væri hafa einungis borist við-
brögð frá íslandi,“ sagði Margeir.
Hann kvaðst fagna skjótum við-
brögðum utanríkisráðherra í málinu.
„Kjörorð Alþjóða skáksambandsins
er „Gens una surnus" eða Við erum
öll ein fjölskylda og ríkisstjórnin
gerði okkur kleift að sýna að það
er ekki innantómt hjal,“ sagði Mar-
geir. Causevic er hálffertugur,
kvæntur og eiga þau hjónin eitt
barn. Hann hefur starfað að málefn-
um skáklistarinnar í heimalandi sínu
seinustu fimmtán ár ásamt því að
starfa að ferðamálum.
Fjórir hafa beðið um
dvalarleyfi
Á síðasta ári samþykktu íslensk
stjórnvöld að vetja fjármagni til að
taka á móti sex einstaklingum frá
fyrrverándi Júgóslavíu og veita þeim
læknishjálp hérlendis. Þrjár mann-
eskjur bafa þegar komið til landsins
og fengið aðhlynningu. Hefur þeim
verið veitt tímabundið dvalarleyfí,
en fyrir liggur ósk þeirra um að
dveljast hér áfram og er sú ósk til
athugunar hjá stjórnvöldum. Einnig
kom hingað til lands seinasta haust
Króati sem dvalist hafði í Svíþjóð
um hríð og óskar nú eftir dvalar-
leyfi hérlendis. Er mál hans í skoðun
hjá dómsmálaráðuneytinu.
I
\
[
í
t
1
Forval Alþýðubandalags og-
skoðanakönnun Framsóknarflokks
Guðrún og Sig-
rún urðu efstar
SIGRÚN Magnúsdóttir varð efst í skoðanakönnun Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík vegna sameiginlegs framboðslista minnihlutaflokk-
anna til borgarstjórnarkosninganna í vor og Guðrún Ágústsdóttir
varð efst í forvali Alþýðubandalagsins vegna sama lista. Sigrún verð-
ur í fyrsta sæti listans og Guðrún í 2. sæti hans.
Útvarpsklúbburinn STÚ tekur til starfa hjá HÍ
Sveif um loftin blá
I forvali Framsóknarflokksins
neyttu 323 atkvæðisréttar síns og
fékk Sigrún Magnúsdóttir um 83%
atkvæða í 1. sætið. í öðru sæti varð
Alfreð Þorsteinsson, sem fékk 284
atkvæði í fyrstu tvö sætin eða um
57% og mun hann skipa 6. sætið á
sameiginlega framboðslistanum. I 3.
sæti í skoðanakönnuninni varð Helgi
Pétursson og fékk 270 atkvæði og
um 53% atkvæða og mun hann skipa
11. sætið. Í fjórða sæti í skoðana-
könnuninni varð Sigfús Ægir Árna-
son sem fékk um 50% atkvæða og
verður í 16. sæti á sameiginlega
framboðslistanum.
Ami Þór í 2. sæti
í forvali Alþýðubandalagsins voru
880 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 609
og voru 23 atkvæði ógild. Guðrún
Ágústsdóttir fékk 415 atkvæði í 1.
sætið eða 70,8%. í 2. sæti varð Árni
Þór Sigurðsson, sem fékk 293 at-
kvæði í fyrstu tvö sætin og 50% at-
kvæða. Hann mun því skipa 5. sætið
á sameinlegum framboðslista minni-
hlutaflokkanna. Arthúr Mortens varð
í 3. sæti. Hann fékk 289 atkvæði í
fyrstu þrjú sætin og þar af 254 at-
kvæði í fyrstu tvö sætin. í 4. sæti
varð Guðrún Kr. Óladóttir, í 5. sæti
Helgi Hjörvar og í 6. sæti Sigþrúður
Gunnarsdóttir.
Alþýðuflokkurinn hefur þegar í
prófkjöri ákveðið hveijir skipa sæti
hins sameiginlega lista af þeirra
hálfu. Pétur Jónsson verður í 4. sæti
og í 9. sætiniteverður Gunnar Gissur-
arson. Kvennalistinn hefur ekki enn
gengið frá því hveijir skipa hinn
sameiginlega lista af þeirra hálfu.
ÚTSENDINGAR voru hafnar í
gærdag hjá útvarpsklúbbnum
STÚ sem Vaka, félag lýðræðis-
sinnaðra stúdenta í Háskóla
íslands, á frumkvæði að. Hófst
dagskráin klukkan 16 á því að
útvarpsstjórinn, Baldur Stef-
ánsson, var sendur um háloftin
með flugvél og stökk síðan út
í fallhlíf í beinni útsendingu
með Þóijóni Péturssyni, fall-
hlífarstökkvara, sem á 1.100
stökk að baki.
Að sögn Baldurs var það ólýs-
anleg upplifun að stökkva út úr
vélinni. „Við vorum í 10.000 feta
hæð þegar við stukkum og fórum
5.000 fet í fijálsu falli. Hraðinn
var rosalegur, útsýnið meiriháttar
og veðrið frábært. Það má segja
að þetta hafi verið alveg geð-
veikt,“ segir Baldur sem er stjórn-
málafræðinemi á 2. ári. Hann
segist ekki hafa verið mjög
hræddur en ekki hafí verið laust
við að fiðringur færi um hann.
Útvarpsklúbburinn, sem er til
húsa á Suðurgötu 7, er opinn öll-
um nemendum háskólans. Sent
er út á FM, 102.9, og segir Bald-
ur að í fyrstu muni dagskráin
helgast af umfjöllum um fyrirhug-
aðar kosningar í skólanum til
dæmis með þáttum og viðtölum
við fulltrúa frambjóðenda. Baldur
segir að hugmyndin sé sú að deild-
ir innan skólans setji mark sitt á
dagskrána í framtíðinni.
Morgunblaðið/Sverrir
Mjúk lending
BALDUR Stefánsson sljórnmálafræðinemi og Þórjón Pétursson
fallhlífarstökkvari stukku úr flugvél í beinni útsendingu í gærdag.