Morgunblaðið - 15.02.1994, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. F’EBRÚAR 1994
(-
Framkvæmdir á vegnm skólanefndar \
Leikfimihús við
Oddeyrarskóla
reist fyrir haustíð
LEIKFIMIHÚS sem reisa á við Oddeyrarskóla er á meðal helstu
nýframkvæmda á vegum skólanefndar Akureyrar á árinu, en
nefndin gekk á dögunum frá skiptingu fjármagns til nýfram-
kvæmda og viðhalds við skóla bæjarins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
SJÖ stúlkur taka þátt í Fegurðarsamkeppni Norðurlands sem haldin verður í næstu viku, í efri röð
frá vinstri eru Kristín Kristjánsdóttir, Lilja Björg Hauksdóttir, Brynhildur Sölvadóttir og Freyja
Árnadóttir, en í neðri röð eru Anna Karen Kristjánsdóttir, Ásdís Rögnvaldsdóttir og Eva Ingimars-
dóttir.
Ungfrú Norðurland krýnd í Sjallanum annan föstudag
Sjö stúlkur keppa um titilinn
SJÖ stúlkur taka þátt í Fegurðarsamkeppni Norðurlands sem
haldin verður í Sjallanum á Akureyri 25. febrúar næstkomandi.
Sex þeirra eru frá Akureyri og ein frá Húsavík.
Stúlkurnar hafa verið í þjálfun
hjá Þorgerði Kristinsdóttur og Sig-
urði Gestssyni í Vaxtarræktinni
síðustu vikur og einnig hafa þær
verið í ljósum hjá Stjörnusól, að
sögn Kolbeins Gíslasonar fram-
kvæmdastjóra Sjallans.
í keppninni koma stúlkurnar
fram í kvöldkjólum og sundfötum,
kosin verður vinsælasta stúlka
hópsins, besta ljósmyndafyrirsæt-
an og hápunkturinn er kjör feg-
urðardrottningar Norðurlands, en
stúlkan sem hlýtur titilinn tekur
þátt í Fegurðarsamkeppni íslands
sem haldin verður í maímánuði.
Fyrr um kvöldið verður vönduð
dagskrá, m.a. vaxtárræktarsýning
og þá syngur Rut Reginalds nokk-
ur lög, en kynnir verður Hermann
Gunnarsson.
Stúlkurnar sem taka þátt í Feg-
urðarsamkeppni Norðurlands_ eru
Anna Karen Kristjánsdóttir, Ásdís
Rögnvaldsdóttir, Brynhildur
Sölvadóttir, Eva Ingimarsdóttir,
Freyja Árnadóttir, Lilja Björg
Hauksdóttir og Kristín Kristjáns-
dóttir. Freyja er Húsvíkingur en
hinar stúlkurnar eru allar frá
Akureyri.
Nýbyg’g'iiig- Hæstaréttar
eftir Ólöfu
Ríkharðsdóttur
í ráði er að reisa nýbyggingu
Hæstaréttar við Lindargötu í
Reykjavík, á bak við Safnahúsið.
Ferlinefnd félagsmálaráðuneyt-
isins, sem hefur það starfssvið að
fjalla um aðgengi fyrir fatlaða, fékk
til umsagnar teikningar að um-
ræddri nýbyggingu og gjörði við
þær ýmsar athugasemdir.
Rétt er að taka fram strax að
komið hefur verið til móts við sum-
ar þarfir fatlaðra eins og bygging-
arreglugerð mælir fyrir um.
Það voru þó nokkur veigamikil
atriði sem fulltrúar ferlinefndarinn-
ar gjörðu athugasemdir við, svo sem
hallandi ganga, að lyftan er ekki
ætluð almenningi og ógreiðan að-
gang að henni, staðsetningu bif-
reiðastæðis fyrir hreyfihamlaða og
tröppur upp úr bifreiðastæði í kjall-
ara. Eitt atriði var lagfært, þ.e.
bifreiðastæði var fært nær inn-
gangi. Hitt sendur óbreytt.
Hallandi gangar eru nýmæli í
íslenskri húsagerð og þótt víðar
væri leitað. Upp í hugann koma
reyndar tvær byggingar erlendar,
sívali turninn í Kaupmannahöfn og
Guggenheimerlistasafnið í New
York.
Samkvæmt byggingarreglugerð
skal brúa lítinn hæðarmun svo sem
nokkrar tröppur með skábraut og
sé um lengri spöl að ræða skal
„Það voru þó nokkur
veigamikil atriði sem
fulltrúar ferlinefndar-
innar gjörðu athuga-
semdir við, svo sem
hallandi ganga, að lyft-
an er ekki ætluð al-
menningi og ógreiðan
aðgang að henni, stað-
setningu bifreiðastæðis
fyrir hreyfihamlaða og
tröppur upp úr bif-
reiðastæði í kjallara.“
hafa lárétta hvíldarpalla með sex
metra millibili. í reglugerðinni er
því miður ekkert sem bannar hall-
andi ganga innanhúss og skýringin
er augljós eins og áður segir. Þetta
er nýmæli í venjulegu húsnæði og
engum hefur því dottið í hug að
þama þurfí að slá varnagla. Það
breytir hins vegar ekki þeirri stað-
reynd að haílandi gangar geta verið
beinn farartálmi fyrir suma hreyfí-
hamlaða að maður ekki tali um
þijátíu og fimm metra langa ganga
án lóðréttra palla, eins og þarna
er um að ræða.
í bréfí frá hönnuðum hússins
varðandi aðgengi fatlaðra að bygg-
ingunni segir m.a.:
„Auk þess var það talinn kostur
Ólöf Ríkharðsdóttir
að í þessari byggingu hafa allir,
fatlaðir sem ófatlaðir, sama aðgengi
upp lágan gönguhalla." Þetta er
mikill misskilningur. Láréttir gang-
ar og lyftur eru sú hönnun sem
kemur til móts við þarfir allra.
í umræddu bréfí stendur einnig
orðrétt: „Tekið skal fram að starfs-
maður í móttöku við aðalinngang
er stöðugt reiðubúinn til aðstoðar
ef ske kynni að einhver treysti sér
ekki upp gönguhallann...."
Þessi setning skýrir sig sjálf.
Alls skipti nefndin 15,2 milljón-
um króna milli grunnskólanna í
bænum til áhalda og muna, al-
menns viðhalds og stofnbúnaðar
og fer bróðurparturinn, eða rúmar
10 milljónir, í viðhaldsverkefni af
ýmsu tagi.
Þá hefur skólanefnd falið bygg-
ingadeild að undirbúa fram-
kvæmdir við nokkra skóla, m.a.
að ljúka við að koma upp lyftu við
Lundarskóla og fullgera þijár
kennslustofur í kjallara skólans.
Umhverfisdeild var falið að und-
irbúa framkvæmdir við nokkrar
skólalóðir, m.a. endurbætur á lóð
Bamaskóla Akureyrar, lagfæringu
malarvalla og frágang við lóð Síðu-
skóla og að ljúka frágangi á aust-
urhluta lóðar við Gagnfræðaskóla
Akureyrar.
Leikfimihús
Hvað nýframkvæmdir varðar er
fyrirhugað að reisa leikfimihús við
Oddeyrarskóla og hefur bæjarráð
samþykkt að fela bæjarstjóra að
ganga til samninga um hönnun
þess, en tillöguteikningar af húsinu
hafa verið lagðar fram. Miðað er
að því að hraða hönnunarvinnu
þannig að hægt verið að bjóða
framkvæmdir út fyrir vorið og er
að því stefnt að ljúka byggingunni
næsta haust.
Þijú þrep eru upp úr bifreiða-
stæði í kjallara og eitt þrep upp í
aðstöðu dómara. Það á að bæta úr
þessu með lyftupalli, að sögn hönn-
uða, EF fatlaður maður kemur til
vinnu í húsinu. Hvers vegna á ekki
að ganga frá því strax fyrst að
„stefnt er að því að gjöra bygging-
una sem þægilegasta fyrir fatlaða
sem ófatlaða?"
Hún getur orðið löng biðin eftir
lyftum eins og mörg dæmi sanna.
Heyrst hefur að gangarnir séu
hafðir hallandi til þess að spara
rými, sem auðvitað er mjög tak-
markað á þessum litla skika sem
ætlaður er undir húsið. Það ber allt
að sama brunni. Hús Hæstaréttar
má ekki rísa á þessum stað og eng-
in önnur bygging heldur.
Sem betur fer hafa þær fréttir
nú borist að ráðamenn ætli jafnvel
að hlusta á raddir fólksins í þetta
skipti, sem hafnað hefur byggingu
á bak við Safnahúsið eins og alþjóð
veit. Við endurskipulagningu verður
að taka tillit til þeirra þátta sem
hér hafa verið raktir.
Veljum nýbyggingu Hæstaréttar
verðugan stað sem uppfyllir nauð-
synleg skilyrði.
Björgum Safnahúsinu, einni feg-
urstu byggingu landsins frá
skemmdum.
Höfundur er formaður
Öryrkjabandalags íslands og á
sæti í ferlinefnd
félagsmálaráðuneytisins.
Skólanefnd hefur einnig ijallað
um uppbyggingu grunnskóla og
skólastarf í Giljahverfi og hvernig
staðið skuli að byggingu skóla í
hverfinu. Þá hefur skólastjóri Síðu-
skóla gert nefndinni grein fyrir
fyrirsjáanlegri húsnæðisnauð skól-
ans næsta vetur og ítrekað að efst
á óskalistanum er ein viðbótar-
stofa, þ.e. eins laus kennslustofa.
-------» ♦ ♦---------
Zontaklúbburinn Þórunn hyrna
heldur sitt árlega ball í Dynheimum
á morgun, öskudaginn, frá kl. 14
til 17. Veitt verða verðlaun fyrir
búninga, grettukeppni verður hald-
in sem og hæfileikakeppni. Gos
selt á staðnum.
(Fréttatilkynning.)
—— i
■ ■ KYRRÐARSTUND verður í
hádeginu á morgun, miðvikudag- I
inn 16. febrúar, frá kl. 12 til 13 í
Glerárkirkju. Orgelleikur, helgi-
stund, altarissakramenti, fyrir- >
bænir. Léttur málsverður að stund-
inni lokinni. Allir velkomnir. Bæna-
stund kvenna kl. 20.30 til 21.30,
bæn og fyrirbæn. Starfandi er fyr-
irbænahópur við kirkjuna og er
einnig beðið fyrir þeim sem þess
óska í messum, á kyrrðarstundum
og bænastundum.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fyrsti heima-
leikurinn
Fyrsti heimaleikur Skauta-
félags Akureyrar í íshokkí var
um helgina þegar félagar úr
Skautafélagi Reykjavíkur
sóttu þá heim. Akureyringar
höfðu mun betur í leiknum,
sigruðu 12:2. Atkvæðamestur
var Heiðar Ingi Ágústsson,
sem sækir að marki á mynd-
inni, gerði 5 mörk, Ágúst Ás-
grímsson gerði 2 og þeir Héð-
inn Björnsson, Sigurður Sig-
urðsson, Sveinn Björnsson,
Auðunn Eiríksson og Aki
Mykkanen 1 mark hvor. Þeir ’
Jouni Förmanen og Nikolaj
Nefjodov gerðu sitt markið
hvor fyrir Reykjavíkurliðið.
Öskudagsball
/