Morgunblaðið - 15.02.1994, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1994
25
Varað við
blóðbaði í
Georgíu
Tbilisi. Reuter.
EDÚARD Shevardnadzhe leið-
togi Georgíu sagði í útvarpsá-
varpi til þjóðar sinnar í gær að
miklar blóðshellingar myndu
eiga sér stað í landinu ef ekkert
yrði úr því að rússneskar eða
alþjóðlegar friðargæslusveitir
stíðu stríðandi fylkingar að.
„Komi ekki friðargæslusveitir til
skjalanna mun hræðilegur harm-
leikur eiga sér stað. Mikið blóð mun
renna. Þetta mun gerast af sjálfu
sér og engum böndum verður á
vandann komið,“ sagði She-
vardnadze.
Shevardnadze sagði í síðustu
viku að Rússar væru tilbúnir að
senda gæslusveitir til Georgíu
myndu Sameinuðu þjóðirnar bera
kostnaðinn en ráðamenn í Moskvu
hafa þagað þunnu hljóð um þetta
efni.
Borgarastríð braust út í Georgíu
í ágúst 1992 er ríkisstjórnin sendi
herlið til þess að bijóta niður upp-
reisn aðskilnaðarsinna sem kröfðust
þess að fá að stofna sjálfstjórnar-
svæði í Abkhazíu. í fyrrasumar tók-
ust samningar sem fóru þó fljótt
út um þúfur og varð stjómarherinn
undan að hörfa í hörðum átökum í
september.
Reuter
Mótmæli sjómanna breiðast út
MÓTMÆLI franskra sjómanna, sem krefjast aukinna rikisstyrkja til að bæta þeim upp verðfall á
sjávarafla, breiddust út til Miðjarðarhafsins um helgina. í gær lokuðu sjómenn farþegaskipahöfninni
í Marseille, olíuhöfninni í Fos-sur-Mer og fiskihöfnunum í Port-Saint-Louis og Port-de-Bouc. í gær-
morgun stöðvuðu sjómenn frá Bretaníu fiskflutningabifreiðar á leið til Parísar og veltu niður farmi
fjögurra sem voru með innfluttan fisk. Á myndinni, sem tekin var í gær, freista sjómenn að loka
hafnarsvæðinu í Boulogne-sur-Mer með því að setja akkeri á götur.
Breskir íhaldsmenn vilja stefnubreytingu hjá stjórninni
Major falli frá aft-
urhvarfsstefnunni
Lundúnum. Reuter.
HART er nú lagt að John Major, forsætisráðherra Bretlands,
að falla frá herferð sljórnarinnar fyrir afturhvarfi til hefðbund-
inna giida til að draga úr umfjöllun fjölmiðla um ástamál þing-
manna og ráðherra Ihaldsflokksins, að sögn breskra dagblaða
í gær. Major varð fyrir enn einu áfallinu á sunnudag þegar
þingmaðurinn Hartley Booth sagði af sér sem aðstoðarráð-
herra vegna sambands hans við helmingi yngri konu.
Rússneski öfgamaðurinn Zhírínovskíj
Hótar „lokaorr-
ustu“ gegn íslam
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKI þjóðernisöfgamaðurinn Vladímír Zhírínovskíj
hótaði um helgina að senda sjálfboðaliða til Bosníu ef Atlants-
hafsbandalagið, NATO, hæfi loftárásir á stöðvar Serba í land-
inu. Leiddi hann fram 20 liðsmenn sína, sem verið hafa við
þjálfun í æfingarbúðum í úthverfi Moskvuborgar, og sagði,
að þeir og aðrir myndu heyja „lokaorrustuna" við íslam.
Zhírínovskíj sagði, að „tugir
þúsunda sjálfboðaliða hvaðanæva
að úr Rússlandi" myndu fara til
hjálpar Serbum, yrði á þá ráðist
og lýsti yfir, að menn sínir væru
tilbúnir til að „drepa múslima í
Iokaorrustunni við íslam“. Á frétta-
mannafundinum kynnti hann Sery-
ozha, 18 ára gamlan, sem kvaðst
hafa barist með Serbum í sex
mánuði. „Frá upphafi hefur kyn
Slava haft yfirburði,“ sagði Sery-
ozha, „en nú er það að deyja vegna
yfirdrottnunar Vesturveldanna."
Heldur þykir ólíklegt, að fjöldi
Rússa muni ganga til liðs við Serba
en yfirlýsingar Zhírínovskíjs geta
hins vegar valdið Moskvustjórninni
verulegum vandræðum. Rússar og
Serbar hafa lengi verið banda-
menn, tilheyra hvorirtveggju rétt-
trúnaðarkirkjunni, og Moskvu-
stjórnin hefur verið mjög andvíg
loftárásum.
Rushdie
skai dejja
Nikósíu. Reuter.
ÍRANSKA fréttastofan IRNA
sagði í gær, að breski rithöf-
undurinn Salman Rushdie yrði
að deyja og útilokað væri að
afnema dauðadóminn, sem
írönsku klerkarnir kváðu upp
yfir honum fyrir fimm árum.
Rushdie var dæmdur til dauða
fyrir bók sína „Söngva Satans"
sem að dómi sumra múslima var
guðlast og í yfirlýsingu, sem IRNA
flutti í gær, sagði, að dómnum
yrði að fullnægja jafnvel þótt
„guðleysinginn" iðraðist gjörða
sinna.
Bresku blöðin segja að nokkrir
af forystumönnum Ihaldsflokksins
viðurkenni nú að herferðin hafi
komið flokknum sjálfum í koll og
gefið fjölmiðlum færi á að hæðast
að honum vegna siðferðislegra yfir-
sjóna einstakra þingmanna. Þeir
telji að afturhvarfsstefnan, sem átti
að sameina íhaldsmenn að nýju eft-
ir langvinnar deilur, hafi verið
dæmd til að mistakast strax í upp-
hafi. Þótt Major segði nú að stefnan
hefði ekkert með siðferði einstak-
linga að gera hefði hún orðið til
þess að hvetja dagblöð til að rann-
saka einkalíf þingmanna til að finna
siðferðislegar yfirsjónir. Þeir sem
gagnrýna stefnu stjómarinnar mest
segja að Major hafi sýnt dómgreind-
arleysi með því að taka upp alltof
óskýra stefnu.
Daily Express sagði að mál Hart-
leys Booths væri kornið sem fyllti
mælinn. „Major ætti að falla frá
afturhvarfsstefnunni og snúa sér
aftur að stjórnmálum,“ sagði
Today.
Talsmaður Majors sagði í gær
að forsætisráðherrann myndi ekki
falla frá stefnunni.
Hartley Booth sagði af sér eftir
að æsifréttablöð skýrðu frá því að
hann væri í tygjum við 22 ára gamla
konu, sem hafði áður lifibrauð af
því að sitja fyrir nakin hjá lista-
mönnum. Booth er 47 ára gamall,
kvæntur og þriggja barna faðir,
lögfræðingur og óvígður prédikari
hjá meþódista-kirkjunni.
Booth kvaðst ekki hafa diýgt hór
með konunni og sagði samstarfs-
mönnum sínum að þau hefðu „að-
eins kysst og kelað“. Booth til-
kynnti afsögn sína til að „fyrir-
byggja vandræði fyrir stjórnina".
Suzuki Swift GL árg. 1990, sjsk.,
hvítur, ek. 18 þús. km, verð 650.000,-.
Subaru Lecacy 2.2 GX 4WD, árg.
1991, 5 gíra, blár, ek. 78 þús. km.
Skipti möguleg. Verð 1.650.000,-.
MMC Lancer GLX, árg. 1990, 5 gíra,
vinrauður, ek. 42 þús. km. Skipti
mögul. Verð 820.000,-.
Höfum kaupendur að:
Suzuki Vitara eða Sidekick árg. '92-'93.
j VW Transporter, lengri gerð árg. '91-'93.
BMW 316i eða 318i árg. ’92-'93.
Toyota touring árg. '92-'93.
Veist þú
að í Gagnasafni
Morgunblaðsins
er að finna
1308
greinar og fréttir
um NÁTO
Nýr yfirmaður
herafla NATO
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
hefur útnefnt George Alfred
Joulwan sem yftrmann herafla
Atlantshafsbandalagsins
(NATO) íEvrópu.
- Morgunblaðið 10. október 1993
Vamarmálaráðherrar
NATO-ríkja á fundi í Bmssel
Varað við niðurskurði á
framlögum til varnarmála
| Brussel. Reuter.
Varnarmálaráðherrar Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, samþykktu
í gær að skora á ríkisstjómir
I aðildarríkjanna að hætta miklum
niðurskurði á framlögum til
vamarmála vegna nýrra krafna,
sem gerðar væru til bandalagsins,
til dæmis varðandi friðargæslu.
- Morgunblaðið 27. maí 1993
Enn ekkert ákveðið um
varaflugvöll - segir
framkvæmdastjóri NATO
ENGAR ákvarðanir hafa verið
teknar varðandi lagningu vara-
flugvallar á íslandi, að sögn
Manfreds Wömers, framkvæmda-
stjóra Atlantshafsbandalagsins
(NATO). Wömer kom hingað til
lands á miðvikudagskvöld og átti
viðræður við íslenska ráðamenn.
- Morgunblaðið 11. apríl 1988
Hvort sem er vegna starfa eða
áhugamála getur áskrift að
Gagnasafnl Morgunblaðsins
komið að góðu gagni.
Allir sem eiga einmenningstölvu
geta orðið áskrifendur og nýtt
sér þær upplýsingar sem eru í
gagnasafninu.
Hægt er að leita í safninu eftir
oröum, nöfnum, dagsetningum,
höfundum ofl. ofl.
AUar upplýsingar veitir
Strengur hf. í síma 624700
eöa 685130.
STRENGUR hí.