Morgunblaðið - 15.02.1994, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994
Athugasemd við ferðasögu
eftir Ferenc Utassy
í Morgunblaðinu 28. janúar sl. var
birt ferðasaga Sigurðar Sveihssonar
er bar yfirskriftina: „Fyrsta skoðun-
arferðin á tveimur jafnfljótum." Sig-
urður Sveinsson greinir frá ferð Sel-
fyssinga til Ungverjalands, dagana
20.-23. janúar sl., er þeir kepptu í
borginni Szeged við samnefnt lið, í
átta liða úrslitum Evrópukeppninnar
í handknattleik.
Undirrituðum finnst leitt að Sig-
urður Sveinsson skuli hafa slæma
reynslu af Ungveijalandi. Honum er
að sjálfsögðu fijálst að hafa sínar
persónulegu skoðanir á landi og þjóð.
En sem greinarhöfundur í víðlesn-
asta dagblaði landsins jiarf hann að
gæta alls velsæmis. I umræddum
texta koma fram órökstuddar full-
yrðingar og yfirborðskenndar upp-
lýsingar um ungversku þjóðina. Er
það afar ósanngjarnt, og brýtur öll
siðferðislög.
Ummæli höfundar eru bæði móðg-
andi og villandi og gætu haft nei-
kvæð áhrif á tengsl jijóðanna beggja
að mati félagsins Island-Ungveija-
land. í ljósi þessa vill undirritaður
koma með nokkrar athugasemdir.
Gamli flugvöllurinn er ekki sá eini
í Búdapest. Hann var tekinn í notkun
í byijun 7. áratugarins og þótti vera
einn fuilkomnasti sinnar tegundar í
Evrópu. Fyrir rúmlega 10 árum var
opnaður nýr flugvöllur, skammt frá
þeim gamla, og fer nær allt milli-
landaflug um hann. Umferð er orðin
svo mikil, að nýta þarf gamla flug-
völlinn einnig. Úm 12 erlend flugfé-
lög, einkaþotur og fraktflug fá þar
afgreiðslu.
„ ... þama var aðeins ein önnu
' flugvél, gömul skrúfþota frá miðöld-
um.“ Sannarlega ofmetur Sigurður
sögu Ungveija. Þótt Ungveijaland
hafí verið öflugt ríki á miðöldum,
„Við, Ungverjar, sem
búum á Islandi, vorum
niðurbeygðir og leiðir
þegar fréttir bárust
okkur til eyrna um
óhugnanlegan bardaga
sem hefði átt sér stað á
leikvellinum. Það var
afskaplega dapurlegt
að heyra um landa okk-
ar sem börðu saklausa
íslendinga á leikvellin-
um.“
notuðu menn einungis hesta á þeim
tímum.
„Hermennirnir ... hafi eflaust ekki
haft hugmynd um hvað eða hvar
ísland væri (hvað þá Selfoss).“ Það
hafa þúsundir íslendinga farið í
gegnum vegabréfaskoðun á þessum
stað; þannig að það kæmi alls ekki
á óvart að eftirlitsmennirnir vissu
hvar ísland væri. En að ætlast til
þess að þeir þekki öll fjögur þúsund
manna byggðariög í heiminum, er
ef til vill einum of mikið. Undirritað-
ur vil! benda á þá staðreynd, að Sig-
urður talar um Szeged, sem 150.000
manna iðnaðarborg. Það er alrangt.
Ibúar borgarinnar eru vel á þriðja
hundrað þúsund og mjög lítið er um
iðnað. Annars getur undirritaður
sagt sjálfur frá vegabréfsskoðun í
Keflavík, þar sem hann (Ungveiji
með ungverskt vegabréf) var spurður
hvort hann væri Rússi.
„Fyrir utan flugstöðina stóðu íjór-
ir Trabantar, einn Wartburg og Lada
Sport, en engin rúta.“ Maðurinn sér
það sem hann vill sjá. Sem betur fer
eru menn ekki dæmdir eftir því hvaða
bíl þeir aka. Til fróðleiks vill undirrit-
aður geta þess, að um 60% bílaflota
Ungveija var ura síðustu áramót
vestrænnar ættar. í landinu eru tvær
bílaverksmiðjur starfandi sem fram-
leiða Opel og Suzuki. Auk þess tak-
marka gildandi lög notkun bíla með
tvígengisvélar í allra Búdapest.
„Hótelið var eins og öll hótel í
Austur-Evrópu ... “ Hótel eru bara
hótel, hvar sem er í heiminum. Þau
flokkast eftir gæðum en ekki vind-
átt. Staðreynd er að viðhald eldri
bygginga er kostnaðarsamt. í Szeged
er flöldinn allur af merkilegum bygg-
ingum sem þarf að halda við, en
málið er einfalt. Það vantar peninga.
„Við urðum hissa þegar okkur var
sagt að skoðunarferðin væri á tveim-
ur jafnfljótum." Undanfarin ár hafa
yfirvöld í sífellt fleiri borgum bannað
akstur um miðbæi sína.
Miðbær Szeged hefur upp á margt
að bjóða. Merkar byggingar standa
í röðum á tiltölulega litlu svæði, svo
að skoðunarferð í rútu kemur ekki
til greina, slíkt hljómar sem brandari
í eyrum þeirra sem þekkja staðhætti
alla. Szeged var landamæraborg í
Rómaveldi hinu forna. Atli Húna-
kóngur dvaldi þar með hirð sinni
o.s.frv. Efnt er til óperusýninga á
Dómkirkjutorginu á sumrin. Þessar
sýningar draga tugi þúsunda ferða-
manna að á hveiju ári. Borgin getur
verið grá og litlaus að vetri til, en
þá vantar líka alla blómstrandi garð-
ana og laufskrúð tijánna. En vetur-
inn er stuttur þar um slóðir. Íbúarn-
ir sjá enga þörf á að mála húsin í
alls konar æpandi Iitum (eins og
þekkist annarsstaðar). Þeir vilja
njóta fegurðar náttúrunnar á hinum
árstíðunum. Ef Sigurði finnst Szeged
vera „óttalega skítug“, þá er undir-
ritaður tilbúinn að bjóða honum í
göngutúr í Reykjavík, einhvern laug-
ardagsmorguninn, þegar logn er yfir
borginni.
„Ekki sjást neinar meiriháttar
Ferenc Utassy
breytingar hafi orðið þama austur
frá þrátt fyrir aukið lýðræði."
Hvernig getur maður dæmt um
breytingar, sem stígur sín fyrstu
spor í ókunnu landi? Hver eru við-
mið slíks manns?
Undirritaður getur því miður ekki
sagt neitt um leikinn sjálfan. Við,
Ungveijar, sem búum á Islandi, vor-
um niðurbeygðir og leiðir þegar frétt-
ir bámst okkur til eyrna um óhugn-
anlegan bardaga sem hefði átt sér
stað á leikvellinum. Það var afskap-
lega dapurlegt að heyra um landa
okkar sem börðu saklausa íslendinga
á leikvellinum. Hvar var skynsemin?
Við reyndum að fínna skýringar á
því sem gerst hafði. Það er meira
en lítið undarlegt ef sigursælt lið
eins og Pick Szeged fari að lemja
andstæðinga sína. Slíkt hefði verið
skiljanlegt, ef „ ... óvenju margir
og miklir skapmenn, sumir með við-
urnefni, t.d. Einar ofsi 1, Einar ofsi
2 o.s.frv." hefðu sýnt gestgjöfunum
í tvo heimana. Sakborningar fengu
hins vegar aldrei tækifæri að koma
með sína hlið málsins.
Jafnt Ungveijar sem íslendingar
þykjast vera gestrisnar þjóðir. Eftir
leikinn var íslenska liðið samt sent
heim á hótel, þar sem það fékk gúll-
as í rólegheitum, síðan var flogið
heim til Islands.
Það er sagt að áfengi hafi slæm
áhrif á minnið. Þeir heimamenn, sem
muna eftir hegðun Selfyssinga eftir
leikinn, vildu ekki tjá sig frekar um
málið. Og hversu skrýtið sem það
nú er, hefur engum dottið í hug að
birta heilsíðu grein um það í ung-
verskum blöðum. „Þessi ferð verður
eftirminnileg meðal annars vegna
þess dónaskapar sem okkur var
sýndur. Við ætlum að svara fyrir
okkur með því að taka vel á móti
þeim hér, sjá hvort þeir kunna að
skammast sín.“ Birting þessarar
greinar fyrrnefndan dag, er leikmenn
Szeged liðsins lentu á íslandi, er
sannarlega sú móttaka af hálfu
gestrisinnar þjóðar sem lengi verður
í minnum höfð.
Nú eru báðir leikirnir að baki.
Úrslitin tala sínu máli. Tólf marka
tap á útivelli, sigur með tólf marka
mun á heimavelli. Bæði liðin geta
verið ánægð með árangurinn. íþrótt-
ir og listir eru besti tengiliður meðal
manna af ólíkum uppruna. Á ferða-
lögum sínum erlendis fá íþróttamenn
tilvalin tækifæri að kynnast öðrum
þjóðum. Frásagnir þeirra í blöðum
og tímaritum hafa áhrif, enda lesa
margir slíkar greinar. Glöggt er gests
augað. Öll neikvæð reynsla á er-
lendri grund getur styrkt föðurlands-
ástina. í umræddri ferðasögu ber á
fordómum og undarlegum yfírlýsing-
um, sem sýna vanþekkingu Sigurðar
Sveinssonar á ungverskum málefn-
um. Hér er á ferðinni einlit hlutdræg
frásögn sem dregur upp ranga og
villandi mynd af ungversku þjóðinni.
Reiðin er hættulegur ráðgjafi við
blaðaskrif.
Höfundur er forseti félagsins
ísland- Ungverjaland.
Vetrarleikar Gusts
í fyrsta sætið með
mótorhj ólahj álm
_________Hestar_____________
Valdimar Kristinsson
Útlitið var ekki gott hjá Jóni
Styrmissyni þegar hann var
mættur með hest sinn Skrúð
frá Lækjamóti inn á völlinn í
Glaðheimum og hugðist taka
þátt í vetrarleikum Gusts.
Hann hafði nefilega gleymt
reiðhjálminum og þulurinn til-
kynnti honum að ef hann gæti
ekki útvegað hjálm í hvelli
væri hann úr leik áður en
keppnin byrjaði. Vildi þá svo
vel til að einn áhorfenda var
með mótorhjólahjálm á sér.
Þusti hann inn á völlinn og
lánaði Jóni hjálminn sem gerði
sér lítið fyrir og sigraði í full-
orðinsflokki ásamt hesti sín-
um.
Keppt var í fímm aldursflokk-
um í tölti með firmakeppniformi.
Mótið var haldið á laugardag á
félagssvæði Gusts Glaðheimum
í blíðskaparveðri. Þátttaka var
góð, vel á þriðja tuginn í fullorð-
insflokki en þó aðeins einn kepp-
andi í öldungaflokki þar sem
Leifur Eiríksson mætti einn til
leiks á hesti sínum Degi.
Úrslit urðu annars sem hér
segir: í fullorðinsflokki sigruðu
eins og áður segir Jón Styrmis-
Þórir Kristmundsson sigraði í unglingaflokki og næst urðu
Sigurður Halldórsson, Berglind Guðmundsdóttir, Ásta Dögg
Bjarnadóttir og Sandra Karlsdóttir.
ardóttir og Gassi í þriðja sæti,
Þorvarður Guðmundsson og Atl-
as í fjórða sæti og Karl Sigfús-
son og Drafnar fimmtu. í ungl-
ingaflokki sigraði Þórir Krist-
mundsson á Greiz, Sigurður
Halldórsson og Frúar-Jarpur
aðrir, Berglind Guðmundsdóttir
og Kletta þriðju, Ásta Dögg
Bjarnadóttir og Pjakkur fjórðu
og Sandra Karlsdóttir og Júníor
frá_ Glæsibæ fimmtu.
I barnaflokki sigruðu Rakel
Róbertsdóttir og Assa, Ásta
Kristín Victorsdóttir og Nökkvi
önnur, Þórdís Guðmundsdóttir
og Vaka þriðju, Sigurður Bjarna-
son og Hæringur í fjórða sæti
og Sigríður Þorsteinsdóttir og
Hryðja í fimmta sæti.
Mótið fór vel fram í alla staði
en þó má finna að því að fæðing-
arstaðir hrossanna voru ekki
skráðir frekar en svo oft áður á
mótum sem þessu og full ástæða
til að hvetja hestamenn til þess
að svo verði gert svo hægt sé
að geta um það i hestaþætti
Morgunblaðsins en það er ein-
mitt það sem lesendur vilja að
fylgi með nöfnum knapa og
hests.
í barnaflokki hlutu verðlaun Rakel Róbertsdóttir, Ásta Kristín
Victorsdóttir, Þórdís Guðmundsdóttir, Sigurður Bjarnason og
Sigríður Þorsteinsdóttir.
son Og Skrúður frá Lækjamóti,
Páll Bragi Hólmarsson og Svaði
urðu í öðru sæti, Bjami Sigurðs-
son og Dollar þriðju, Agústa
Ágústsdóttir og Skrúður fjórðu.
Halldór Victorsson og Reginn
urðu svo í fimmta sæti.
í ungmennaflokki sigruðu
Erna Guðný Gylfadóttir og Ran-
dólfur, Sigþór Sigurðsson og
Blesi í öðru sæti, Oddný Sigurð-
Verðlaunahafar í flokki fullorðinna frá vinstri vel varinn sigurvegarinn með lijálminn góða, Jón
Styrmisson á Skrúði, þá Páll Bragi á Svaða, Bjarni á Dollar, Ágústa á Skrúði og Halldór á Reginn.