Morgunblaðið - 15.02.1994, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Einhver sem þú átt viðskipti
við í dag kemur þér á óvart.
Þú átt gott samstarf við
vinnufélaga og nærð góðum
árangri.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Taktu enga áhættu í við-
skiptum í dag og ekki leggja
öll spilin á borðið strax.
Bíddu betra tækifæris til að
kynna áform þín.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú gætir vanmetið örðug-
leikana við lausn verkefnis
í vinnunni og verður að
íhuga málið gaumgæfílega.
Góðar fréttir berast.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HSB
Þig langar til að skemmta
þér, en gættu þess að eyða
ekki of miklu í óþarfa.
Reyndu að láta vinnuna hafa
forgang.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft á sjálfsaga að halda
til að koma einhveiju í verk
vegna sífelldra truflana. Þér
tekst að ná góðum samning-
um.
Meyja
(23. ágúst - 22. sentcmbcrt C&T
Eitthvað óvænt gerist í ásta-
málunum hjá sumum í dag,
en það kemur ekki í veg
fyrir góðan árangur í vinn-
unni.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Farðu ekki of geyst í dag
og varastu alla áhættu í
peningamálum. Kapp er bezt
með forsjá. Sumir eiga
stefnumót í kvöld.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það gengur á ýmsu í vinn-
unni árdegis, en svo færð
þú næði til að einbeita þér
og fínna rétta lausn á áríð-
andi verkefni.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Varastu að segja eitthvað
óvart sem þú munt sjá eftir
síðar. Ef þú ætlar að kaupa
eitthvað hugsaðu fyrst hvort
þú þarfnast þess.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú lætur skynsemina ráða
við innkaupin í dag en þér
hættir til að sóa peningum
þegar þú ferð út að skemmta
þér.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú átt auðvelt með að tjá
þig í dag en það sama verð-
ur ekki sagt um suma sem
þú átt samskipti við og mis-
skilningur getur komið upp.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ?nS<
Ef þú íhugar ferðalag gættu
þess þá að halda kostnaðin-
um innan hóflegra marka.
Sparnaður er alitaf góður
kostur.
Stjórnuspána á að lesa sem
dœgradvöí. Sþár af þessu tagi
byggjast ehki á traustum grunni
m'sindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
þ/l£> IÓ4/2 E&FITT
' AF> ktO/rtA&T FfSáAj
' OH R.OMIMU .—
TÆjjA, þARHA K.B/VIOR. \ o
QOÐj ML'ýJ/ SfcÓLABUl -Jo
FERDINAND
SMAFOLK
/-27
VOURE RI6HT.JT 15 A LITTLE MORE
U)INDV TODAV THAN USUAL..
Þú hefur rétt fyrir þér. Það er aðeins hvassara í dag en venjulega.
BRIDS
Sagt er að heilinn á Bob Ham-
man, stigahæsta spilara heims, starfi
eins og tölva; hann reiknar út mögu-
leikana og velur bestu leiðina sam-
kvæmt líkindafræðinni. Á hinum.
kantinum er Zia Mahmood, sem
treystir mun meira á innsæi sitt og
borðtilfinningu. Zia hikar ekki við
að hafna tölfræðilega „bestu“ leið-
inni ef mannleg rök mæla gegn
henni. Hér er dæmi úr heimsmeist-
arakeppninrii í Stokkhólmi 1983, sem
Zia notar sjálfur í bók sinni „Bridge
My Way“.
Suður gefur; enginn á hættu.
Vestur
♦ D85
♦ 964
♦ K10852
Norður
♦ G1043
♦ G32
♦ DG7542
♦ -
Austur
Suður
♦ 976
♦ 75
♦ ÁK1096
♦ G63
♦ ÁK2
♦ ÁKD108
♦ -
♦ ÁD974
Vestur Norður Austur Suður
— ; — 2 lauf
Pass 2 tíglar* Dobl 2 hjörtu
Pass 3 tíglar Pass 4 lapf
Dobl 5 lauf Pass 5 spaðar
Pass 6 hjörtu Pass Pass
Pass
Zia hélt á spilum suðurs og fékk
út tíguláttu. Tæknilega er besta leið-
in að taka á laufás og reyna síðan
að fría litinn með trompun. Sem
heppnast ef liturinn fellur 4-4 eða
ef kóngurinn er þriðji. Trompið þarf
alltaf að liggja 3-2, en ef laufkóngur-
inn birtist ekki þegar þriðja laufið
er stungið má svína fyrir spaða-
drottningu. Eins og sést, tapast spil-
ið ef þessari áætlun er fylgt.
Zia fór aðra leið. Hann tók ekki
á laufásinn, heldur trompaði lauf
þrisvar og fór tvisvar heim á ÁK f
spaða og einu sinni með því að stinga
tígul. Tók síðan trompin. í þríggja
spila endastöðu átti hann eftir einn
spaða og ÁD í laufí, en austur spaða-
drottningu og KIO f laufi. Zia spilaði
spaðanum og fékk tvo síðustu slagina
á lauf!
Þessi áætlun er bersýnilega verri
frá tæknilegu sjónarmiði, en sú sem
fyrst var nefnd. Zia hafði þó dobl
vesturs á fjórum laufum sér til leið-
sagnar, sem benti til að liturinn lægi
illa. En hvað með spaðadrottning-
una? Gat hún ekki legið í austur?
Ekki að mati Zia. Vestur hafði sýnt
sögnum mikinn áhuga og spurði í
þaula áður en hann loks ákvað að
koma út í lit makkers. Þetta þættu
þunn rök i rásum tölvuheila, en inn-
sæi og rökhugsun eru heldur ekki
alveg sami hluturinn.
SKÁK
Þessi staða kom upp á Reykja,-
víkurskákmótinu í sögulegri við-
ureign þeirra Alexanders Shab-
alovs (2.590), Bandaríkjameist-
ara, sem hafði hvítt og átti leik,
og Hannesar Hlífars Stefáns-
sonar (2.525).
Hvítur er hrók undir fyrir þijú
peð en er með stórhættulega sókn-
arstöðu. Shabalov fann þó engan
vinning yfir borðinu. Eins og fram
kom hér í Morgunblaðinu á
fímmtudaginn lék hann 27. Khl,
sóknin rann úr í sandinn og svart-
ur vann. En nokkrum dögum
seinna var staðan prófuð á heims-
meistara einkatölvuforrita, Me-
phisto Genius 2, sem fann
stórglæsilegan vinningsleik sem
engum hafði dottið í hug:
27. Bg6+I! - Hxg6, 28. Hfl +
— Bf6, 29. e6+!! (Þetta var það
sem engum hafði dottið í hug) 29.
— Kxe6, 30. Dxg6 og nú á svart-
ur enga vöm við hótuninni 31.
g5. Hvítur hefur þá fengið allt
sitt lið til baka og meira til, auk
þess sem svarti kóngurinn er í
vonlausri stöðu á miðborðinu.
Skáklistin býr vissulega yfir
furðulegustu möguleikum!