Morgunblaðið - 15.02.1994, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1994
Farsi
„Treystu mér, strákur, svona reynslu færðu
ekki í blaðamannaskóla.“
Með
morgnnkaffinu
Ég ætla að kíkja I tvær mínút-
ur til hennar Siggu á númer
10. Ætlarðu að hræra í
grautnum á tíu mínútna fresti
vinur?
HÖGNI HREKKVÍSI
BREF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Opið bréf til viðskipta-
ráðherra
Frá Albert Jensen:
Þegar Albert Guðmundsson, ráð-
herra í stuttan tíma, talar um litla
manninn, skilur hann trúlega ekki
niðrandi merkingu orðsins, en hon-
um er þó greinilega ljóst, að enginn
er svo smár að ekki sé betra að
hafa hann með sér en móti. Það
aftur á móti er nokkuð sem topp-
krötum er ómögulegt að skilja nema
stutt sé í kosningar.
Ég skrifa þér Sighvatur, til að
reyna að opna augun þín fyrir aug-
ljósri spillingu í stjórn og embættis-
kerfi landsins. Að þú sjáir ranglæt-
ið sem meðal annars birtist í eftir-
farandi.
Að fá nokkrum mönnum fiskauð-
lind okkar að gjöf, sem þeir svo
nota til að auðga sig en kúga sjó-
menn og eyðileggja sjávarpláss.
Einkavæðing sem er að verða alls-
heijar ógeð og birtist meðal annars
í að félög og einstaklingar kaupa
ríkisfyrirtæki fyrir lítið og bjóða í
allskonar rekstur hjá ríki og borg,
nú síðast geðþótta endurráðningar
en allat.af launalækkun og aukið
vinnuálag. Á opinberum stöðum á
Gagnasafn
Morgnnblaðsins
Allt efni'sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
sér stað aukið vinnuálag þeirra
lægstlaunuðu, það er þeirra sem
framkvæma verkin og felst það
meðal annars í því að starfsmönnum
er fækkað en ekki verkefnum. Ef
einn veikist verða hinir að bæta
verkum á sig. Aumleg lágkúra það,
er Securitas gerir út á skúringar-
konur og makar krókinn á svo auð-
virðilegan hátt. Eyðilegging skipa-
smíðaiðnaðarins hefur gengið svo
langt, að ólöglegum undirboðum
útlendinga hefur ekki aðeins verið
tekið í smíðar, líka viðgerðir, og er
nú svo komið að þessi ótrúlegu ís-
lensku stjórnvöld minnka atvinnu-
leysi erlendra þjóða á okkar kostn-
að. Það er enginn skilningur á eyði-
leggingunni. Þegar þetta er að ger-
ast hækka laun hæstaréttardómara
úr 250.000 á mánuði í 350.000 og
svo hlunnindin. En hugsaðu Sig-
hvatur, á sama tíma og eftirlauna-
dómarar með sömu laun fá sömu
hækkun, er ekki hægt að reka laug-
arnar í Reykjalundi og Grensás að
fullu. En til að slíkt sé hægt þarf
hvor laug álíka ijármagn og einn
aflagður dómari fær fyrirhafnar-
laust ofan í lúxuslaun. Launamál
bankastjóra og hlunnindi eru slík
spillingarásýnd að engu tali tekur.
Ef stjórnmálamönnum finnst ekkert
athugavert við þetta þá er eitthvað
athugavert við þá. Trúlega er þér
ekki ljóst' hve víðs fjarri þú ert
venjulegu launafólki. Að sparka í
liggjandi eða veikan mann er ekki
á stefnuskrá Alþýðuflokks, því hún
er góð þó ekki sé eftir henni farið.
Þú lést það verða eitt af fyrstu
verkum sem heilbrigðisráðherra, að
torvelda sjúku fólki og gömlu að
komast af. Þar vannstu gegn því
góða í þjóðarsálinni, það er, einn
fyrir alla, allir fyrir einn. Sám-
kenndin er af hinu góða, Sighvat-
ur, henni má ekki spilla. Þið sem
ráðið Alþýðuflokknum urðuð i
mörgum tilfellum með aðgerðum,
að aðgerðarleysi, til að auka vanda
Iáglaunamanna. Ykkur tókst að
auka óvinsældir Alþýðuflokksins.
Aldrei, hefði ég trúað, að svo lengi
gæti vont versnað. Á miðju kjör-
tímabili var engu líkar en flokkurinn
væri að fremja pólitískt sjálfsmorð.
Þá var eins og hann rankaði til
raunveruleikans, séð að verið var
að eyðileggja það sem hann er langt
síðan, allir búnir að gleyma því.
Til í gömlum skjölum
Með nýju ráðuneyti eru sjúkir og
gamlir ekki Iengur fyrir stafni, nú
eru það skjólstæðingar einkavina-
væðingar og hátekju bankamenn
og aðrir bruðlarar. Þarna er þér
sannarlega óhætt að láta hendur
standa fram úr ermum, laga móral-
inn. Launamisrétti er spilling og
kúgun. Svo eru það skipin. Það hlýt-
ur að þurfa snarruglaða dómgreind
til borga hundruðum góðra verka-
manna laun fyrir að gera ekki neitt,
þó nóg sé að gera. Að flytja skipa-
smíðastöðvar úr landi er glæpur
gagnvart þjóðinni. Þeir ráðherrar
sem flytja málið þannig að ekki sé
um annað að ræða, eiga strax að
víkja og svara til saka. Ég vona
að þú hafir þor lil að stöðva þessa
vitleysu. Notaðu tækifærið, ég trúi
að þetta sé það síðasta sem þú
færð, láttu ekki góða fagmenn týna
niður kunáttu sinni á meðan útlend-
ir vinna störfin þeirra. Atvinnuleys-
ið er heimska. Engum er þó alls
varnað. Kvótamálið, á því hafa
kratar þjóðhagslega skoðun. En
bara skoðun. Þeim vantar dugnað-
inn þar sem þeir þeir gætu gert
gagn.
ALBERT JENSEN,
Háaleitisbraut 129,
Reykjavík.
Víkveqi skrifar
Sl. laugardag birtist hér í blaðinu
grein eftir Þórdísi Guðjóns-
dóttur, þar sem hún lýsir samskipt-
um fyrirtækis, sem hún á aðild að
við Ríkisútvarpið, nánar tiltekið Rás
2. í Morgunblaðinu í fyrradag,
sunnudag, kom fram að útvarpsráð
hafi vegna kæru gert samþykkt um
málið og að þar komi fram, að út-
varpsráði þyki leitt, hvernig til
tókst. Eins og málið hefur birzt hér
á síðum Morgunblaðsins er þetta
ekki fullnægjandi afgreiðsla.
I fyrsta lagi heldur Þórdís Guð-
jónsdóttir því fram, að viðtal hafi
verið tekið upp á segulband við
erlendan meðeiganda að fyrirtæki
hennar og það sent út án þess, að
manninum hafi verið kunnugt um
að talað væri við hann í því skyni.
í öðru lagi kemur fram ásökun í
grein Þórdísar Guðjónsdóttir um að
persónuleg tengsl hafi ráðið því, að
deilur fyrirtækis hennar og fyrrver-
andi starfsmanns þess voru teknar
til meðferðar í útvarpsþætti á Rás 2.
Víkvetji hyggst ekki setjast í
dómarasæti í þessu máli en bendir
á, að óhjákvæmilegt er að Ríkisút-
varpið svari þessum ásökunum efn-
islega. Fjölmiðlar sæta nú vaxandi
aðhaldi af háifu almennings og það
er vel. Forráðamenn Ijölmiðla geta
ekki vikizt undan því að gera efnis-
lega grein fyrir afstöðu sinni til
mála af þessu tagi. Það er svo ann-
að mál, að nærtækara sýnist vera,
að stjómendur Rásar 2 gefi þau
svör en útvarpsráð.
xxx
Halldór Blöndal, landbúnaðar-
ráðherra, er orðinn býsna
öflugur málsvari þess málaflokks,
sem undir hann heyrir. Þetta kom
skýrt fram í samtali hans og Ingva
Hrafns Jónssonar á Stöð 2 í hádeg-
inu á sunnudag, þar sem frétta-
stjóri Stöðvar 2 gekk hart að land-
búnaðarráðherra úr ýsmum áttum,
en ráðherrann varðist fimlega og
var raunar frekar í sókn en vörn.
Þetta er þeim mun merkilegra,
sem landbúnaðarmálin eru erfið við-
fangs og frá almannasjónarmiði séð
eru röksemdir talsmanna landbún-
aðarins oft mjög veikar. En ráðherr-
ann var þéttur fyrir, eins og frétta-
stjórinn komst raunar að orði í lok
þáttarins.
xxx
Grandadagurinn, sem Grandi hf.
hefur efnt til nokkur síðustu
ár er lofsvert framtak af hálfu fyrir-
tækisins. Sl. föstudag komu 2300
nemendur og kennarar í heimsókn
í Granda en alls hafa um 8000
manns heimsótt fyrirtækið á slíkum
dögum.
Börn, unglingar og ungt fólk,
sem alast upp í Reykjavík og nær-
liggjandi sveitarfélögum, hafa ekki
sömu tilfinningu fyrir því og jafn-
aldrar þeirra í sjávarplássum víðs
vegar um landið, að þjóðin lifir á
fiski. Raunar er hægt að alast upp
í Reykjavík og komast á fullorðins-
ár án þess að hafa fullnægjandi
skilning á því, að sjávarútvegurinn
skiptir okkur öllu máli.
Fræðsla af því tagi, sem skóla-
krakkar fá á Grandadeginum hefur
því mikla þýðingu fyrir skilning
þeirra á málefnum lands og þjóðar.
Þetta framtak Granda ætti áð verða
öðrum fyrirtækjum í sjávarútvegi
hvatning til þess að taka upp svip-
aða kynningu einu sinni á ári.
xxx
Deilurnar um staðsetningu ný-
byggingar Hæstaréttar voru
að magnast fyrir helgina, þegar
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
hjó skyndilega á hnútinn með örfá-
um orðurn á Alþingi. Viðbrögð af
þessu tagi eru óvenjuleg hjá íslenzk-
um stjórnmálamönnum. Þau eru
hins vegar einn helzti styrkur nú-
verandi forsætisráðherra. Hann
kemur aftur og aftur öllum að óvör-
um og kemur málum í nýjan farveg
með stuttorðum athugasemdum.