Morgunblaðið - 15.02.1994, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞIIIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1994
51
Ráðstefna um landgræðslu
Landgræðsluáætlanir
lagðar fyrir Alþingi
Selfossi.
„ÞAÐ fer saman að sýna landi okkar rækt og að rækta með okkur
menningxi," sagði dr. Björn Sigurbjörnsson í erindi sínu á ráð-
stefnu um landgræðslu sem Landgræðsla ríkisins, Fagráð í land-
græðslu og Landmælingar Islands héldu á Selfossi 12. febrúar síð-
astliðinn. Samkvæmt nýjustu tölvu- og gervitunglamyndum er land-
ið grónara, en áður var talið.Dr. Björn lagði á það áherslu að jarð-
vegseyðingin væri geysilega alvarlegt mál og hún væri enn alvar-
legra mál fyrir íslendinga' en ofveiði úr þorskstofninum. „Án jarð-
vegs þrífst ekkert mannlíf hér á jörð og engin menning. Án ræktun-
ar engin menning," sagði dr. Björn í erindi sínu, Ræktun, menning
og jarðvegseyðing.
Á hveiju ári verður gífurleg
jarðvegseyðing í heiminum. Talið
er að um 9 milljarðar tonna af
jarðvegi og leir berist til sjávar
með ám og vötnum og af manna
völdum tapist 13 milljarðar tonna
af jarðvegi til viðbótar. Það þyrfti
3.600 sjö þúsund tonna skip á
hveijum klukkutíma til að flytja
þennan jarðveg. „Það er mikil eftir-
sjá í allri þessari gróðurmold sem
svona tapast því það getur tekið
aldir að mynda nýja mold í stað
þeirrar sem tapast,“ sagði dr.
Björn Sigurbjömsson meðal ann-
ars í erindi sínu. Hann benti á að
reiknað væri með að jarðvegs-
birgðir hnattarins væru 3,8 billjón-
ir tonna og að talið væri að 7%
af jarðveginum eyddist á hveijum
áratug. Jarðvegseyðingin í heimin-
um væri mikið áhyggjuefni því
jarðvegurinn væri undirstaða mat-
vælaframleiðslunnar.
Hann benti einnig á að fólks-
fjölgunin væri gífurleg í heiminum
og gert væri ráð fyrir því að tvö-
falda þyrfti. matvælaframleiðslu í
heiminum fyrir árið 2030 með
sömu fólksfjölgun.
Dr. Björn sagði að hefja þyrfti
markvissar og árangursríkar að-
gerðir til að stöðva landeyðingu.
Þær krefðust þátttöku allra og
sérstaklega þeirra sem nota landið.
Hann benti á að í Bandan'kjunum
hefðu mál þróast þannig að land-
notendur yrðu gerðir ábyrgir fyrir
meðferð landsins. Þeir sem ofbjóða
jörð og gróðri verða gerðir ábyrgir
og bótaskyldir fyrir tjóni sem þeir
valda með misnotkun landgæða.
„Ef við ætlum að ísland verði at-
hvarf niðja okkar í framtíðinni má
ekki líðast að jarðvegseyðing verði
vegna misnotkunar landsins,"
sagði Björn.
Hann lagði áherslu á að bændur
og aðrir notendur lands yrðu virkj-
aðir til starfa til verndunar gróð-
urs og jarðvegs. Not af landinu
mættu ekki verða til þess að lands-
gæðum hnignaði. Viðhald byggðar
á viðkvæmum svæðitm mætti ekki
byggja á ofnotkun beitilands til
búvöruframleiðslu nema ráð-
stafanir væru gerðar til að næra
gróðurinn. Dr. Bjöm sagði að til
þess að ná því takmarki að stöðva
jarðvegseyðingu þyrfti að einbeita
sér að því. Tæknilega væri ekkert
því til fyrirstöðu, spurningin væri
hvort við hefðum raunverulegan
vilja og bolmagn til þess.
Áhersla á fræðslu og
rahnsóknir
Halldór Blöndal landbúnaðar-
ráðherra lagði áherslu á að bændur
væru grasrótarhreyfing land-
græðslunnar sem skynjaði breyt-
ingar á gróðri fyrst allra. Nauðsyn-
legt væri að virkja bændur til land-
græðslu og að beingreiðslur til
þeirra nýttust til uppgræðslu.
Hann lýsti þeirri skoðun sinni að
sérstakt náttúruverndarráð ætti
Landgræðsluráðstefnan var mjög vel sótt.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Tölvuunnin gervitunglakort Landmælinga íslands vöktu mikla at-
hygli á sýningunni.
Börn úr Sandvikurskóla á Selfossi unnu myndir í tilefni ráðstefnunn-
ar og undirstrikuðu með þeim nauðsyn landverndar og uppgræðslu.
Skrafað um lífræna ræktun. Herdís Þorvaldsdóttir og Baldvin Jóns-
son stinga saman nefjum á ráðstefnunni.
að vera í hveijum fjórðungi. Hall-
dór kvaðst hafa ákveðið að beita
sér fyrir aukinni fræðslu um gróð-
urfar og vistkerfið í heild. Ráðnir
yrðu tveir kennarar til tveggja ára.
Verkefni þeirra væri að kynna sér
tilhögun erlendis á fræðslu og þeim
yrði falið að skrifa kennslu- og
verkefnabækur fyrir hin ýmsu ald-
ursstig. Þetta væri liður í því að
skapa aukinn skilning fyrir þörf-
inni á uppgræðslu.
Össur Skarphéðinsson umhverf-
isráðherra sagði, að leggja þyrfti
áherslu á rannsóknir og stýra at-
höfnum mannsins við notkun
landsins. Sauðfé hefði fækkað um
40% en á móti kæmi að hrossum
hefði fjölgað um 60% í staðinn.
Nauðsynlegt væri að taka upp víð-
tæka landnýtingaráætlun. Efla
þyrfti landgræðslustarfið með
meira fé ef takast ætti að stöðva
jarðvegseyðinguna fyrir næstu
aldamót.
Egill Jónsson formaður fagráðs
Landgræðslunnar sagði nýjar leiðir
hafa opnast við skipulag land-
græðslustarfa og ná mætti meiri
árangri en hingað tií. Hann sagði
í undirbúningi breytingar á lögum
þannig að Landgræðslan fengi
nauðsynlega lagastoð. Fram-
kvæmdaáætlun um landgræðslu
yrði lögð fyrir Alþingi líkt og vega-
og hafnaáætlanir. Egill var bjart-
sýnn á að takast mætti að stöðva
jarðvegseyðinguna fyrir aldamót
með þeim aðgerðum og aðferðum
sem tiltækar væru.
Ólafur Arnalds jarðvegsfræð-
ingur fjallaði um kortlagningu
jarðvegseyðingar og sagði að nú
þegar hefðu 24% landsins verið
kortlögð og landið allt eftir 2-3 ár.
Hann benti á að eyðingin væri svo
víðtæk að hún yrði ekki stöðvuð
með einu átaki. Bætt landnýting
þyrfti að koma til og efla þyrfti
frumkvæði heimamanna á hveijum
stað. Hann fagnaði því að stórauka
ætti fræðslu í þessum efnum en
stórsókn þyfti einnig á rannsóknar-
sviðinu til þess að auka þekkingu
á jarðvegseyðingunni sjálfri.
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri sagði frá væntanlegri land-
græðsluáætlun sem liggja mun
fyrir í vor. Næsta vetur yrði lögð
fram áætlun um forgangsverkefni.
Áhersla væri lögð á markviss
vinnubrögð í samvinnu við skipu-
lagsyfirvöld. Áætlunin nær til alls
landsins og hún byggist á kortum
og rannsóknum. Lögð yrði áhersla
á að aðstoða aðila við endurheimt
landgæða. Fyrirbyggjandi starf og
fræðsla væri einn af hornsteinum
6. lcikvika , 12. feb. 1994
Nr. Leikur:
Röðin:
1. Aston Villa - Swindon 1 - -
2. Evcrton - Ipswich - X -
3. Man. City - West Ilant - X -
4. Oldham - Chclsca 1 - -
5. ShcfT. Utd - Covcntry - X -
6. Tottcnham - Blackbum - - 2
7. Wimblcdon - Newcastle 1 —
8. Barasley - Stokc 1 - -
9. Grimsby - C. Palacc - X -
10. Notts Cnty - Notth For. 1 - -
11. Oxford - Charlton - - 2
12. Sundcrland - Bristol C. - X -
13. Wolves - Southcnd - - 2
Ilcildarvinningsupphæöin:
122 milljón krónur
13 réttir: T 3.260.280 J kr.
12 réttir: 79.560 I kr.
11 réttir: 5.710 J kr.
10 réttir: 1.340 j kr.
starfsins og áætlunin yrði unnin í
samráði við heimamenn á hveijum
stað. Mikil áhersla yrði lögð á
bætta landnýtingu á einstökum
jörðum en forsenda þess að ná
mætti hámarksárangri væri að
þjóðarsátt yrði um aðgerðir í þess--
um efnum.
Undir yfírskriftinni „Þjóðin að
verki í landgræðslustörfum" fjöll-
uðu nokkrir aðilar um land-
græðslustarf á ýmsum sviðum.
Auður Sveinsdóttir landslagsarki-
tekt fjallaði um skipulag og nátt-
úruvernd, Einar Njálsson bæjar-
stjóri á Húsavík um landgræðslu
í þéttbýli. Hann lagði áherslu á að
atvinnuleysistryggingasjóður
þyrfti að auka hlutfall sitt í fjár-
mögnun ýmissa verkefna í land-
græðslu hjá sveitarfélögunum ef
slík verkefni ættu að halda áfram.
Böðvar Jónsson bóndi á Gaut-
löndum ræddi um landgræðslu-
störf bænda og lýsti árangri sínum
að því að friða land og takmarka
beitartíma á því. 300 hektara land-
spilda skilaði verulega auknum
kjötafurðum sauðfjárins.
Baldvin Jónsson fjallaði um
ásýnd landsins og arðsemi. Hann
lagði eindregið til að ísland yrði
gert að módeli um lífræna ræktun.
Það myndi skila sér á mörgum
sviðum.
Starfsemi tveggja landgræðslu-
félaga var kynnt. Örn Bergsson
formaður Landgræðslufélags-
Öræfinga kynnti starfsemi félags-
ins. Hann lýsti góðu samstarfi við
Landgræðsluna og velvild frá Nátt-
úruverndarráði. Hann sagði að slík
félög ættu að vera eins konar land-
verðir, framkvæmdaaðilar fyrir
opinbert fé og leiðandi aðilar í
hópi bænda um bætta nýtingu
lands.
Sveinn Runólfsson og Erlendur
Björnsson lýstu áherslun í starfi
Landgræðslufélags Skaftárhrepps
sem miðar helst að því að stöðv;
jarðvegseyðingu. Mikið væri um
rof í hreppnum og fok úr Skaftá
væri orðið stórt vandamál sem
bændur hefðu séð lengi fyrir um.
Frú Vigdís Finnbogadóttir for-
seti íslands, sem sat ráðstefnuna,
lýsti ánægju sinni með hana. Hún
sagði mikilvægt að geta sagt frá
því erlendis hvemig unnið væri að
málum á íslandi og kvaðst hafa
sett fram þá kenningu að íslend-
ingar gætu breytt eyðimörk í gróið
land. Hún sagði að fyrr eða sj'ðar
kæmi að því að fólki skildist að
hér á landi væri þekking í þessum
efnum og að fólk myndi sækja
hingað til að öðlast slíka þekkingu.
Hún sagðist oft líkja landinu við
tæran kristal og leggja þannig
áherslu á hreinleika landsins,
framleiðslunnar og hugarfarsins.
- Sig. Jóns.
6. lcikvika , 13. feb. 1994
Nr. Leikur:
Röð'ui:
1. Atalanta - Roma - X -
2. Gcnoa-Torino - X -
3. Lazio - Cagliari 1 - -
4. Milan- Crcmoncsc 1 -
5. Parma - Sampdoria 1 -
6. Piaccnza - Intcr 1 -
7. Udincse - Napoli
8. Ancona - Bari
9. Ccsena - Acireale
10. Palcrmo - Pisa 1 - -
11. Pescara - Padova - - 2
12. Vcnczia - Modena 1 - -
13. Vcrona - Ascoli 1 - -
Hcildarvinningsupphacöin:
18,1 milljón krónur
12 réttir:
11 réttlr:
10 réttir:
1.890 j kr.
200 | kr.
0 Jkr