Morgunblaðið - 23.02.1994, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1994
Bætum ímynd
bæjarins
eftir Kristján
Guðmundsson
Saga byggðar í Kópavogi er
sérstæð. Fyrir ótrúlega skömmum
tíma voru hér aðeins örfá bænda-
býli og þau heldur rýr. í ársbyijun
1948 verður Kópavogur sjálfstætt
sveitarfélag og kaupstaður 1955.
Byggðin þenst út — fjölgunin er
ótrúleg — það myndast borgarsam-
félag við hlið sérstakrar sumarbú-
staðabyggðar. En strax í upphafi
kaupstaðaráranna eflist hér sam-
kennd, félagasamtök dafna — sam-
hjálpin er sterk og menningarþætt-
ir blómstra.
Að leggja grannanum lið verður
lagboði margra og til forystu velj-
ast stæltir fulltrúar sem missa
aldrei sjónar á mannræktinni.
Landsfræg samtök hér í bæ,
Sunnuhlíðarsamtökin, eru afrakst-
ur þessarar lífsafstöðu samvinnu
og samhjálpar. Þau lyftu Grettis-
taki og hlutu almenna aðdáun
landsmanna.
Nú um stundir finnst mér við
hafa villst af íeið. Kópavogur er
ekki sami eftirsótti bærinn — hvar
er stoltið?
Fyrst öldrunarþjónustan er
nefnd — Hvað veldur því t.d. að
ekki er leitað til Sunnuhlíðarsam-
takanna um uppbyggingu öldrun-
arþjónustu í Kópavogsdal? Þess í
stað er einum utanaðkomandi
byggingarmeistara falið það verk-
efni að byggja íbúðirnar og ráð-
stafa þeim.
Því miður er Kópavogurinn ekki
eins eftirsóttur tii búsetu nú og
var um árabil. í mörgum grann-
sveitum okkar hefur Ijölgað mun
meir á yfirstandandi kjörtímabili.
Hafnarfjörður siglir t.d. hraðbyri
fram úr okkur, helmingi meiri
fjölgun á sl. ári — 680 þar í stað
340 hér. Forysta okkar í mörgum
menningar- og mannræktarmálum
hefur minnkað.
Leikskólinn fær ekki sömu um-
hyggju, aldrei í sögu bæjarins hef-
ur fyrr verið boðið upp á slíka
skólaþjónustu og nú. Böm selflutt
milli dala úr Kópavogsdal í Foss-
vogsdal. Og í allri mammons-
græðginni var bæjarlistamannin-
um úthýst þótt nú eigi að reyna á
nýjan leik að bjóða hann velkom-
inn. Það er e.t.v. einkenni þessa
tímabils — það hefur verið lokað
á svo marga.
Ég var svo lánsamur að fá tæki-
færi til að taka nokkum þátt í
þessari bæjaruppbyggingu á árun-
um 1970-1990, undir forystu allra
stjórnmálaflokkanna, mislengi.
Ég sakna bæjarstoltsins sem þá
var, samkenndarinnar og öflugrar
mannræktar. Ég vil nú leggja mitt
af mörkum á nýjan leik. Stolt mitt
sem Kópavogsþúa er sært. Mögu-
leikar hér eru fima miklir. Við
erum landmeiri og landbetri en
flestir grannanna. Við verðum að
gæta þess vel að láta ekki stund-
argræðgi ríða við einteyming.
Nú geta allir — án tillits til getu
— rokið til og fengið lóðir — byggt
og braskað, íbúabyggðin mótuð að
*
Afram Hafn-
arfjörður
Kristján Guðmundsson
„Nú um stundir finnst
mér við hafa villst af
leið. Kópavogur er ekki
sami eftirsótti bærinn
— hvar er sto!tið?“
þeirra vild og atvinnusvæðum út-
hýst. Stoltinu um eflingu atvinnu-
tækifæra í bænum er ýtt til hliðar.
Er svefnbæjarhugtakið á næsta
leiti? Ekki ætla ég núverandi ráða-
mönnum annað en þeim gangi
gott eitt til en við erum mismun-
andi lánsöm og lífssýn okkar er
misjöfn.
Ég hvet Kópavogsbúa til að
hugleiða hvert þeir vilja stefna í
þróun bæjarfélagsins okkar. Mitt
svar er maðurinn í öndvegi.
Höfundur er fyrrum bæjarsljóri í
Kópavogi og tekur þátt í prófkjöri
Alþýðuflokksins um næstu helgi.
eftir Sigþór Ara
Sigþórsson
Með reynslusveitarfélagi er átt
við að sveitarfélag fái til sín mála-
flokk frá ríkinu til umráða ásamt
íjárveitingu til reynslu.
Hafnaríjörður er eitt þeirra sveit-
arfélaga sem kemur vel til greina
að gerast reynslusveitarfélag m.a
vegna stærðar sinnar og hér eru
margir málaflokkar í höndum ríkis-
ins sem myndu henta vel í höndum
sveitarfélags.
Meðal verkefna sem bærinn gæti
fengið eru heilsugæslan, öldrunar-
mál, St. Jósepsspítali, framhalds-
skólar, skipulags- og byggingarmál
og svo mætti lengi telja. Ahuga-
verðasta verkefnið og jafnframt eitt
það mikilvægasta er flutningur
framhaldsskólanna Flensborgar-
skóla, Iðnskóla og Fiskvinnsluskóla.
En með því yrði stjórnun þessara
skóla í höndum sveitarstjórnar-
manna í Hafnarfirði.
Fiskvinnsluskólinn er einn þeirra
skóla sem verið hafa í mikilli lægð
á undanförnum árum í höndum rík-
isins en með flutningnum opnast
nýir möguleikar fyrir sveitarstjórn-
armenn í nánum tengslum við sjáv-
arútveginn í Hafnarfirði og jafnvel
aðra framhaldsskóla að taka á hans
málum. Við Hafnfirðingar höfum
horft á nemendur svo hundruðum
skiptir sækja framhaldsskólanám
til næsta nágrannasveitarfélags, þ.e
Fjölbrautaskólans í Garðabæ, á
Við viljum Helga í bæjarstjóm
eftir Katrínu
Hrafnsdóttur
Helgi Jóhann Hauksson mun
gefa kost á sér til prófkjörs í Kópa-
vogi sem verður haldið 26. og 27.
febrúar næstkomandi. Fyrir hönd
stuðningsmanna hans vil ég kynna
hér nýjan talsmann „mannvænn-
ar“ umhverfisstefnu í anda jafnað-
arstefnunnar.
Helgi Jóhann er fæddur í Hafn-
arfirði árið 1956 og ólst þar upp.
Hann er kvæntur Aðalheiði Einars-
dóttur húsmóður og eiga þau fjög-
ur böm. Málefni Alþýðuflokksins
eru Helga í blóð borin en faðir
hans, Haukur Helgason skólastjóri
í Hafnarfírði, er fyrrum þinglóðs
Alþýðuflokksins og Kristín H,
Tryggvadóttir, skólastjóri í
Reykjavík, móðir Helga, er fyrrum
varaþingmaður Alþýðuflokksins.
KRIPALUJOGA
Jóga er líkamleg og andleg iðkun. Nómskeið
fyrir byrjendur hefjast í byrjun mars. Kennd-
ar verða teygjur, öndunaræfingar og slökun.
Kennari: Áslaug Höskuldsdóttir. Kynning verð-
ur laugardaginn 26. febr. kJ. 14.
Verið velkomin
Jógastððin Heimsljós
Skeifunni 19,2.hæð,s. 679181 (kl. 17-19).
„ Að fenginni reynslu
vitum við að Helgi mun
vinna að sínum baráttu-
málum af fullri einurð
óg heilindum, því hann
er rökfastur og mjög
fylginn sér.“
Systir Helga, Unnur A. Hauksdótt-
ir, er einnig fyrrum varaþingmaður
Alþýðuflokksins en afi þeirra
systkina, Helgi Hannesson, var
lengi bæjarstjóri Hafnarfjarðar og
forseti ASÍ.
Að loknu stúdentsprófi stundaði
Helgi nám í 'verkfræði 1976-78
og seinna nám til kennsluréttinda
1988-90. Hann hefur starfað sem
kennari og skólastjóri í 12 ár. Sam-
hliða námi og kennslu hefur Helgi
starfað við ljósmyndun, blaða-
mennsku og við útgáfumál. Hann
rekur nú útgáfuþjónustuna „Leik-
ur að ljósi“ í Hamraborg 12 í Kópa-
vogi.
Sem fjögurra bama faðir og
skólamaður hefur áhugi Helga
vaknað á umhverfis- og skipulags-
málum og hefur hann kynnt sér
þau mál vel og beitt sér fyrir endur-
bótum á þeim sviðum. Helga hefur
sviðið sárt að sjá hve illa hefur
verið hugsað um hinn mannlega
Ný lækningastof a
Hef opnaó lækningastofu í Læknasetrinu sf.,
Þönglabakka ó.
Viðtalsbeiðnum veitt viðtaka í síma 677700
alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-18.
Már Krisljánsson
Sérgrein.- Lyflækningar og smitsjúkdómar.
þátt og þá sérstaklega öryggi
barna í skipulagi nýbyggðra hverfa
í Kópavogi. Vegna áhuga síns og
afskipta af þessum málum hefur
hann smám saman mótað með sér
hugmyndir um það sem hann vill
kalla „mannvænt umhverfí“.
Kjarninn í þessum hugmyndum er
að umhverfið sé þroskandi jarðveg-
ur fyrir vaxandi kynslóð og öruggt
skjól fyrir þá sem minna mega sín,
umhverfi sem laðar börn frá fyrstu
bernsku til útivistar í heimagörðum
og sameiginlegum útivistarsvæð-
um í öruggu skjóli frá umferð.
Fátt er hollara börnum en mikil
útivist og hreyfing. Ýmsir þeir sem
best til þekkja hafa vaxandi
áhyggjur af atgervi bama þar sem
myndbönd og tölvuleikir koma
stöðugt meira í stað útivistar. Það
er álit Helga að þessi þróun sé
ekki síst að kenna þeim umhverfis-
aðstæðum sem við höfum skapað
og telur að við þessari þróun þurfi
að bregðast með mannvænu skipu-
lagi sem mætir grundvallarþörf
barna og fullorðinna fyrir leiki og
útivist við dyrnar heima.
Helgi hefur einnig þá skoðun
að taka þurfi nýja stefnu í skóla-
málum, m.a. að bafa skólana litla,
fleiri og nær hverju heimili en áð-
ur, sem hluta af þeirri heild sem
hvert lítið hverfi er. Helgi telur
einnig nauðsynlegt að setja á stofn
þróunarmiðstöð atvinnulífs í hverju
bæjarfélagi til að skapa jarðveg
fyrir nýsköpun og uppgötvanir.
Mæðraleikfimi/Foreldrafræðsla
i tilefni af 40 ára afmæli foreldrafræðslu á islandi,
gefum við 40% afslátt af næstu námskeiðum, sem hald-
in verða á gamla góða staðnum í Ingólfsstræti.
Allir velkomnir, en einstæðar mæður sérstaklega
velkomnar.
Aðalleiðbeinandi Hulda Jensdóttir, Ijósmóðir.
Upplýsingar í síma 12136/23141.
Helgi Jóhann Hauksson
Að fenginni reynslu vitum við
að Helgi mun vinna að sínum bar-
áttumálum af fullri einurð og heil-
indum, því hann er rökfastur og
mjög fylginn sér. Því skorum við
á alla Kópavogsbúa að greiða at-
kvæði í opnu prófkjöri Alþýðu-
flokksins nú um helgina og setja
Helga í 2. sæti.
Höfundur er kennari.
Sigþór Ari Sigþórsson
„Þar mætti bæta ýmis-
legt, t.d er óþarfi að
teikningar af mann-
virkjum sem falla aug-
ljóslega undir settar
reglugerðir fari fyrir
byggingarnefnd. Með
þessu mætti flýta fyrir
og spara tíma flestra
sem koma að þeim mál-
um ekki síst hjá hinum
almenna húsbyggjanda
í Hafnarfirði.“
sama tíma og nemendum hefur
fækkað svipað í Flensborgarskóla.
Skólarnir tveir eiga að vera fyllilega
samanburðarhæfír og vekur þessi
þróun furðu. Þetta gerir það að
verkum að nemendafjöldi í Flens-
borgarskóla er ekki nægur til þess
að fá fjárveitingar til að halda uppi
viðunandi námskeiðafjölda. Með
flutningi opnast sá möguleiki að
snúa vörn í sókn, þ.e. hafnfirskir
nemendur sem ætla í nám í sam-
bærilegum skólum sæki í Flens-
borgarskóla.
Iðnskólinn í Hafnarfirði er ört
vaxandi skóli þrátt fýrir að enn
sæki menn sama nám til Reykjavík-
ur. Þar mætti m.a fjölga kennslu-
sviðum.
Auk ofangreindra atriða varð-
andi framhaldskólana opnast sá
möguleiki að afnema skólagjöld í
þessum skólum þar sem það á við
enda andstætt stefnu jafnaðar-
manna.
' Annar möguleiki er flutningur
bygginga- og skipulagsmála. Þar
mætti bæta ýmslegt t.d er óþarfi
að teikningar af mannvirkjum sem
falla augljóslega undir settar reglu-
gerðir fari fyrir byggingarnefnd.
Með þessu mætti flýta fyrir og
spara tíma flestra sem koma að
þeim málum ekki síst hjá hinum
almenna húsbygéjanda í Hafnar-
firði. í dag líður alltof langur tími
frá því að teikningum er skilað inn
fram að staðfestingu bæjarstjórnar.
Byggingarnefndin virkar þá sem
afrýjunardómstóll í málefnum hús-
byggjenda og hefði því mun meiri
tíma til að skoða vandlega þau vafa-
mál sem upp kunna að koma.
Hafnfirðingar geta að sjálfsögðu
valið að taka við öðrum málaflokk-
um frá ríkinu og jafnvel fleiri í einul
En framhaldskóla- og byggingar-
mál eru tvímælalaust að mínu mati
áhugaverðustu og jafnframt brýn-
ustu málaflokkarnir þar sem úrbóta
er þörf í Hafnarfirði.
Höfundur er verkfræðingur og
stcfnirá 6. sætið í prófkjöri
Aiþýðuflokksins í Hafnarfirði.