Morgunblaðið - 03.05.1994, Síða 1
64 SIÐUR /B
98. tbl. 82. árg. ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mandela fagnar sigri í suður-afrísku kosningunum
„Loksins er Suður-
Afríka orðin fnáls“
Jóhannesarborg, Pretoríu. Reuter.
„ÞIÐ hafið sýnt slíka stillingu, þolinmæði og staðfestu í barátt-
unni fyrir því að endurheimta landið, og gleðin er slík að þið
getið hrópað af þökum húsanna - loksins er Suður-Afríka frjáls,"
sagði Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins (ANC), í
gær þegar hann fagnaði sigri í fyrstu þingkosningunum með
þátttöku allra kynþátta.
Þegar tæpur helmingur atkvæð-
anna hafði verið talinn í gærkvöldi
Af sálar-
stríðinu
í Kreml
Lundúnum. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, hefur skrifað nýja end-
urminningabók, þar sem
hann lýsir sjálfum sér sem
einmana manni, höldnum
þunglyndi og efasemdum um
eigið ágæti, hörðum í garð
undirmanna sinna en jafn
gagnrýnum á sjálfan sig.
Endurminningabók Jeltsíns
heitir „Sjónarhornið frá Kreml“
og er jafn opinská og fyrri bók
hans, sem gefin var út fyrir fjór-
um árum, skömmu eftir að hann
varð forseti rússneska þings-
ins. Bókin þykir afar ólík
hefðbundnum • æviminningum
stjórnmálamanna, sem leggja
sig yfirleitt fram við að sanna
að þeir hafi tekið réttar ákvarð-
anir. Jeltsín er óhræddur við
að greina lesandanum frá sálar-
stríði sínu, viðkvæmninni og
breyskleika sínum. Hann skýrir
meðal annars frá „lamandi
þunglyndisköstum, alvarlegum
eftirþönkum, svefnleysi og höf-
uðverkjum um miðja nótt, tár-
um og örvæntingu ..
Ut á við virðist Jeltsín einarð-
ur stjórnmálamaður en hann
kveðst sjálfur oft ráðalaus og
hikandi og gerast stundum sek-
ur um fljótfærnisieg mistök,
sem hann sjái síðan eftir. Til
að mynda hafi sér orðið á í
messunni með því að velja Alex-
ander Rútskoj sem varaforseta-
efni sitt í kosningunum árið
1991. Hann seg'st ekki hafa
vitað hvern hann ætti að velja
og asnast til að tilnefna Rútskoj
sökum glæsileika hans og
vegna þess að hann væri „fædd-
ur til að standa í kosningabar-
áttu“.
Jeltsín segir að sú ákvörðun
að leysa upp þingið í september
í fyrra hafi valdið sér mikilli
sálarangist. Hann hafi of lengi
verið tregur til að beita valdi
og láta vopnaða verði veija
þinghúsið, og þau hörmulegu
mistök hafi leitt til enn meiri
blóðsúthellinga.
var Afríska þjóðarráðið með 62,8%
fylgi á landsvísu en Þjóðarflokkur
de Kierks með 23,6%. Líklegt var
þó að Þjóðarflokkurinn héldi völd-
unum í Vestur-Höfðafylki, en þar
var hann með meirihlutafylgi í fylk-
iskosningunum.
Pallo Jordan, yfirmaður upplýs-
ingaskrifstofu ANC, kvaðst telja
að flokkurinn myndi fá 58-62%
atkvæðanna í kosningunum.
Inkatha-frelsisflokkur Zúlu-
manna var með 6,1% fylgi og
hægrimenn í Frelsisfylkingunni,
sem vilja sjálfstjórn Búa, 2,9%.
„Á þriðjudag læt ég af embætti
forseta í þeirri trú að við höfum
tryggt það sem við settum okkur
fyrir fjórum árum og þremur mán-
uðum,“ sagði F.W. de Klerk í ræðu
við höfuðstöðvar Þjóðarflokksins
og vísaði til sögulegrar ræðu sinnar
á þinginu í febrúar 1990, þar sem
hann tilkynnti þá ákvörðun sína
að afnema aðskilnaðarstefnuna.
„Ég fel völdin ekki í hendur
núverandi meirihluta, heldur suður-
afrísku þjóðarinnar. Ég geri -það í
þeirri vissu að hér eftir verði æðsta
valdið í hennar höndum," sagði de
Klerk og óskaði Mandela til ham-
ingju með sigurinn. „Mandela tekur
bráðlega við æðsta embætti þessa
lands með þeirri miklu ábyrgð sem
því fylgir. Hann þarf að beita þessu
valdi á sanngjarnan hátt til að full-
vissa alla kynþættina um, að hann
beri hag þeirra allra fyrir bijósti.
Og ég er viss um að það er ein-
mitt ætlun hans.“ Hópur blökku-
manna hlýddi á ræðu de Klerk og
söng: „Við elskum þig F.W. de
Klerk..“
Senna syrgður
BRASILÍUMAÐURINN Ayrton Senna, þrefaldur heimsmeistari í Formula 1
kappakstri, lést á sunnudag eftir að hafa ekið út af á 300 km liraða í keppni
í San Marínó á Ítalíu. Áður hafði Austurríkismaðurinn Roland Ratzenberger
beðið bana eftir útafakstur í tímatöku fyrir keppnina. Myndin er af aðdáend-
um Senna, sem söfnuðust saman við líkhús í Bologna. Þar er lík hans geymt
þar til það verður flutt til Brasilíu.
Sjá nánar á bls. B8.
Reuter
Hátíðahöld í Suður-Afríku
MILLJONIR blökkumanna í Suður-Afríku fögnuðu í gær kosningun-
um og nýfengnu frelsi. Á myndinni eru svört og hvít börn með fána
Afríska þjóðarráðsins og nýjan fána landsins.
Liðsflutningar Serba til N-Bosníu
Ottast að átökin
færist til Brcko
New York, Kaupmannahöfn, Madrid. Reuter.
SERBAR hafa hafið mikla liðs- og vopnaflutninga til borgarinn-
ar Brcko í Norður-Bosníu og Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) ætla að
senda þangað eftirlitsmenn á næstu dögum. Madeleine Al-
bright, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
hefur í tvígang á einni viku gagnrýnt störf friðargæslusveita
og stjórn hennar, sem er í höndum Frakka og Breta.
Fréttir bárust í gær af því að
spenna hefði aukist mjög í Norður-
Bosníu, Serbar og múslimar hefðu
aukið mjög viðbúnað sinn við borg-
ina Brcko, sem er mjög mikilvæg
hernaðarlega. Sagði útvarpið í
Sarajevo að herir Serba hefðu flutt
menn og vopn frá Gorazde til
Brcko og þetta væru umfangs-
mestu flutningar til þessa í stríð-
inu.
Albright gagnrýnir
Boutros-Ghali
Madeleine Aibright hefur sent
bréf til Boutros Boutros-Ghalis,
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, og mótmælt harðlega
yfírlýsingum sem háttsettir menn
innan gæslusveitanna létu falla á
fundi með blaðamönnum á föstu-
dag. Þeir létu þá í ljós efasemdir
um loftárásir á Serba umhverfis
Gorazde í Bosníu, þar sem her
múslima liefði ýkt það hversu
siæmt ástandið væri í borginni, í
von um að fá hjálp erlendra heija.
Hlutar úr bréfi Albright voru
biitir í New Yovk Times i gær.
Þar minnti Albright Boutros-Ghali
á að hann hefði fyrstur óskað eft-
ir því að Atl-
antshafsbanda-
lagið (NATO)
gerði loftárásir
á Bosníu-Serba
til að koma í veg
fyrir að þeir
næðu Gorazde á
sitt vald.
Boutros-
Ghali svaraði bréfi Albrights ,í gær
og sagði gagmýni embættismanna
Sameinuðu þjóðanna „algjörlega
óviðunandi" og óskaði eftir því að
málið yrði rannsakað.
Osættið á milli Bandaríkjanna
og Sameinuðu þjóðanna hófst fyr-
ir tíu dögum þegar Manfred Wörn-
er, framkvæmdastjóri NATO,
gagnrýndi ákvörðun Yasushis Ak-
ashis, sérlegs sendimanns SÞ í
Bosníu, að samþykkja ekki loft-
árásir á Serba, sem NATO hafði
áður samþykkt. Studdu Banda-
ríkjamenn Wörner í þessu máli en
Sir Michael Rose, yfirmaður her-
afla SÞ í Bosníu, og Beitmnd de
Lapresle, yfirmaður heija SÞ á
Balkanskaga, fylgja Akaslú að
málum.