Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
KON.
Háskólabíó
SffllNDÉÍSI
Leikstjórl Steven Spielberg
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5.15 og 9
L./TL.I BUDDA,
HASKOLABIO
SÍMI 22140
ROBOCOP er mættur aftur í
nýrri, hraöri og haröri mynd
sem þykir mesta bomban í
seríunni. Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 9 og 11.10
>■
jtjormn
alleikarinn
Nýr greiöslumáti
í kvikmyndahúsum.
Háskólabíó ríöur á vaðiö 8
- þú átt góða mynd VÍSA
STÆRSTA BIOIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
Svört komidia um sérvitringinn Johnny, andhetju niunda áratugarins sem kemur til Lundúna og heim-
saekir gömlu kærustuna, henni til mikilla leiðinda. Hann sest að hjá henni, á i ástarsambandi við með-
eiganda hennar og gerir þar meó lif allra að enn meiri armæöu. Einnig blandast inn i þessa ringulreið
sadiskur leigusali, sem sest einnig að i ibúðinni og herjar á kvenpeninginn með afbrigðilegum kynorum.
Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 16 ára.
/ NAFN/ FÖÐURINS
HH PRESSAN
Ö.M. TÍMINN •
A.I. MBL
★ ★★★
ftk. EINTAK
Sýnd kl. 9.10. B.i. 14.
BLAR
SV.Mbl.
Stórmynd fra Bertolucci leik-
stjóra Siðasta keisarans.
AÐALHLUTV.. KEANU REEVES,
BRIDGET FöNDA OG CHRIS ISAAK.
Sýnd kl. 5
Sióustu sýningar
. Rás 2
„Þetta einstaka listafólk hefur
skilað afar tregafullri en engu að
síður einni bestu mynd ársiris."
*** S v. MBL
Sýnd kl. 5 og 7
Adalhlutv. River Phoenix
og Samantha Mathis.
Sýnd kl. 9 og 11.10.
Síðustu sýningar
Smlldarmynd um ungan
snilling.
Adalhlutverk: Ben
Kingsley, Joe Mantegna,
Sýnd kl. 5 og 7
Siðustu sýningar
UR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
Ástæða þótti til að kæra
55 ökumenn, sem ekki gátu
virt leyfileg hámarkshraða-
mörk um helgina. Á sunnu-
dagskvöld þurfti t.d. að
færa ökumann á lögreglu-
stöðina eftir að hafa mælst
á 147 km/klst. á Vestur-
landsvegi. Auk þeirra, sem
kæra þurfti fyrir of hraðan
akstur, þurfti að kæra 17
aðra og veita 26 skriflega
áminningu. Á sama tíma
voru lögreglumenn 31 sinni
kvaddir á umferðaróhappa-
vettvang. í einu tilfellanna
var um meiðsli á fólki að
ræða. Stúlka varð fyrir bif-
reið á gatnamótum Grettis-
götu og Rauðarárstígs á
föstudag. Hún meiddist á
höfði og á fæti, en meiðsli
hennar voru ekki talin al-
varlegs eðlis.
Sex ökumenn eru grun-
aðir um að hafa ekið undir
áhrifum áfengis. Einn
þeirra hafði lent í óhappi
áður en til hans náðist.
Nokkuð bar á ölvun um
helgina og þá ekki síst hjá
þeim fullorðnu, þ.e. fyrir-
myndum þeirra yngri.
Þannig eru bókfærð 58 til-
vik þar sem lögreglan þurfti
að hafa afskipti af ölvuðu
fólki vegna háttsemi þess,
15 öðrum vegna hávaða og
ónæðis innan dyra, 3 vegna
heimilisófriðar, 7 vegna
skemmdarverka, 8 vegna
rúðubrota og 9 vegna lík-
amsmeiðinga. Bókfærð eru
11 innbrot og 12 þjófnaðir.
Síðdegis á sunnudag var
tilkynnt um viðskiptavin í
lyfjaverslun vera að reyna
að svíkja út lyf á falsaðan
lyfseðil. Maðurinn var hand-
tekinn og færður á lögreglu-
stöð.
Líkamsmeiðingarnar
voru flestar eftir slagsmál
eða ryskingar á milli ölvaðs
fólks. Þannig stöðvuðu lög-
reglumenn slagsmál í Fisc-
herssundi skömmu eftir
miðnætti á föstudag án eft-
irmála. Maður var fluttur á
slysadeild eftir slagsmál í
Austurstræti við Lækjar-
götu og ástæða þótti til að
láta líta á annan eftir slags-
mál á Laugavegi við
Stjörnubíó. Skömmu eftir
miðnætti á laugardag voru
menn skildir að eftir slags-
mál í Austurstræti, einn
aðili var fluttur á slysadeild
eftir ryskingar á Hverfis-
götu við Þjóðleikhúsið, tveir
menn töldu sig hafa orðið
fyrir atlögu eins á Lauga-
vegi við Tvo vini, stúlka var
lamin í andlitið með glasi á
Gauki á Stöng og handtaka
þurfti þrjá aðila og flytja
einn á slysadeild eftir slags-
mál á Laugavegi við
Frakkastíg undir morgun á
sunnudag. Aðfaranótt
mánudags þurfti að hand-
taka tvo menn eftir að hafa
veist að öðrum á Höfða-
bakka við Feita dverginn. í
flestum tilvikanna var um
minni háttar meiðsli að
ræða.
Samstarfshópur lögregl-
unnar á Suðvesturlandi kom
saman á föstudag. Ákveðið
var að næsta sameiginlega
umferðarátak lögreglunnar
verði dagana 12.-18. maí
og þá verði athyglinni sér-
staklega beint að umferð
ogbúnaði hjólreiðafólks. 15.
maí verður sérstakur hjól-
reiðadagur fjölskyldunnar í
tengslum við alþjóðlegan
fjölskyldudag Sameinuðu
þjóðanna. Síðasta um-
ferðarátak þótti hafa tekist
vel og er ástæða til að þakka
ökumönnum sérstaklega
fyrir að virða almennt regl-
ur um leyfilegan hámarks-
hraða. Hinir fá á næstu
dögum senda heim gíróseðla
með þeim sektarupphæðum,
sem þeir unnu til. Vonandi
er að sem flestir haldi áfram
eftir sem áður að virða regl-
ur um leyfileg hámarks-
hraðamörk því lögreglan
mun halda áfram að fylgjast
með þeim þætti umferðar-
málanna.
Unglingaathvarfið var
opið í miðborginni um helg-
ina. Svo mun og verða
næstu helgar. Þeir ungling-
ar 16 ára og yngri, sem
verða í miðborginni eða ná-
grenni hennar aðfaranætur
laugardaga og sunnudaga
verða færðir í athvarfið og
sóttir þangað af foreldrum
sínum.
Sunnudaginn 1. maí, frí-
dagur verkamanna, var ró-
legur. Fjölmenni var í kröfu-
göngum og fólkið meðtók
boðskap leiðtoganna á úti-
fundi á Ingólfstorgi með
jafnaðargeði á meðan vind-
ar blésu um viðstadda.
Sambíóin sýna Kon-
ung hæðarinnar
SAMBÍÓIN sýna um þessar
mundir myndina Konung
hæðarinnar, „King of the
Hill“.
Myndin gerist í kringum
1930 og fjallar um 12 ára
dreng, Aron að nafni. Foreldr-
ar hans eru aðframkomnir sök-
um fátæktar. Móðir hans er
heilsutæp og faðirinn með en-
demum óheppinn. Þau hafa
neyðst til að koma yngri syn-
inum, Sullivan, fyrir hjá ætt-
ingjum og sjá sér ekki annað
fært en fara betlandi hús úr
húsi. Aron þarf að standa á
eigin fótum og treysta á sitt
eigið hyggjuvit. Hann er stað-
ráðinn í að finna einhver ráð
til að fjölskyldan megi samein-
ast á ný.
Leikstjóri er Steven Soder-
bergh en með helstu hluverk
fara Jesse Bradford, Jeroen
Krabbe og Elizabeth McGo-
vem.
Atriði úr myndtnni Konungur hæðarinnar.
UPPGJOR
VIÐ LÍFIÐ
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Trylltar nætur („Les
nuits fauves“). Sýnd í
Regnböganum. Leik-
stjórn og handrit: Cyril
Collard. Aðalhlutverk:
Collard, Romane Bo-
hringer, Carlos Lopez.
Franska verðlauna-
myndin Trylltar nætur eft-
ir Cyril Collard er ansi ólík
annarri mynd, Fíladelfíu,
sem einnig fjallar um sjúk-
dóminn eyðni. Hún er fyr-
ir það fyrsta ekkert nánd-
ar nærri eins pempíuleg
og bandaríska myndin og
höfundur hennar og aðal-
leikari, Collard, var sjálfur
með sjúkdóminn þegar
hann gerði hana og lést
úr honum fljótlega eftir
að myndin var frumsýnd.
Það gefur henni óneitan-
lega aukna vikt en Trylltar
nætur er uppgjör hans við
líf sem er að renna honum
úr greipum.
Þetta er þó ekki niður-
drepandi sjúkdómasaga
með alltof fyrirsjáanlegum
endi. Þegar maður fer að
hugsa út í það skipar
eyðnin engan verulegan
sess í myndinni og þótt
örli aðeins á eftirsjá er
ekkert pláss fyrir vor-
kunnsemi. Þvert á móti er
þetta mynd sem er full af
lífi og átökum og' hraða.
Hún gefur einkar forvitni-
lega lýsingu á næturlífi
Parísar og er eldheit og
rómantísk ástarsaga að
hætti Frakka.
Vandamálið sem aðal-
persóna myndarinnar, en
það er kvikmyndagerðar-
maður sem Collard leikur
sjálfur, stendur frammi
fyrir er að hann er tvíkyn-
hneigður og getur ekki
gert upp við sig hvort
hann vill vera með karl-
mönnum eða konum.
Helst er eins og hann kysi
algert frelsi en það er ein-
mitt slíkt frelsi og óheflað-
ur lífsmáti sem gert hefur
hann dauðvona. Þessi
vandi kristallast í sam-
bandi hans við tvær aðal-
persónurnar í lífi hans,
ungum íþróttamanni og
gersamlega ástsjúkri
unglingsstúlku, sem er
frábærlega leikin af Ro-
mane Bohringer.
Frásögnin er hröð og
oft átakamikil með óvænt-
um klippingum en Collard
stefnir á mjög raunsanna
frásögn og helst sem
næsta raunveruleikanum
í einskonar cinéma vérité-
stíl. Myndin er öll tekin
með handstýrðri myndavél
þar sem kvikmyndatöku-
maðurinn heldur á mynda-
vélinni og eltir persónurn-
ar úti og inni og hún er
tekin í húsakynnum sem
ekki er að finna í neinum
myndverum. Mikið af
henni er tekið úti á götum
Parísar og leikurinn ein-
kennist af spuna og innlif-
un. Stærsta uppgötvun
myndarinnar er hin korn-
unga leikkona Romane
Bohringer, dóttir leikar-
ans Richard Bohringers.
Hún sýnir óvenju kraftm-
ikinn leik í hlutverki vin-
konu leikstjórans og á
ekki sístan þátt í því að
gera Trylltar nætur að
mjög athyglisverðri mynd.