Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
21
Happdrættí DAS á 40 ára starfsafmæli
Einn milljarður
til uppbyggingar
HAPPDRÆTTI DAS fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir en
happdrættið var stofnað vorið 1954 til að fjármagna byggingu
dvalarheimilisins Hrafnistu á Laugarási í Reykjavík sem Sjó-
mannadagsráð var byrjað að reisa. A þessum 40 árum hefur
Happdrætti DAS skilað tæplega einum milljarði króna til uppbygg-
ingar Hrafnistuheimilanna í Reykjavík og Hafnarfirði og greidd-
ar hafa verið um 250 milljónir til Byggingarsjóðs aldraðra.
Starfsemi Happdrættis DAS fór
mjög vel af stað, miðar seldust
upp fyrsta árið og allar götur síð-
an hefur happdrættið verið bak-
hjarl fyrir uppbyggingu dvalar-
heimila aldraðra og flýtt fyrir
lausn á vanda í málefnum aldr-
aðra. í frétt frá happdrættinu seg-
ir ennfremur að ljóst sé að hús-
næðismál aldraðra væru ekki svo
vel á vegi stödd ef sjómannasam-
tökin hefðu ekki notið þessa stuðn-
ings.
Heildarsala happdrættismiða
hefur, miðað við núverandi verð-
lag, numið 7.900 milljónum króna
á 40 ára starfsferli Happdrættis
DAS. Greiddir vinningar nema
4.800 milljónum, í Byggingarsjóð
aldraðra hafa verið greiddar 253
milljónir króna og hagnaður nem-
ur 960 milljónum, miðað við núver-
andi verðlag.
Stórframkvæmdir
fyrirhugaðar
„Uppbyggingu Hrafnistuheimil-
anna er hvergi nærri lokið og stöð-
ugt er unnið að endurnýjun og
viðhaldi. I ár verður hafist handa
við byggingu endurhæfingarmið-
stöðvar með sundlaug við Hrafn-
istu í Laugarási og síðan eru fyrir-
hugaðar fleiri stórframkvæmdir.
Bygging fjölbýlishúss við Klepps-
veg og 100 rúma hjúkrunarálma
við Hrafnistu í Hafnarfirði. Kostn-
aður við byggingu hjúkrunarheim-
ilis verður mun lægri en sambæri-
leg bygging sem reist yrði annars
staðar þar sem nýtt verður sú
þjónusta sem þegar er fyrir hendi
í Hrafnistu," segir í fréttinni.
Jóhanna Vigfúsdótt-
ir, Hellissandi, látin
JÓHANNA Vigfúsdóttir, organ-
isti frá Munaðarhóli, Helliss-
andi, lést á Landspítalanum 29.
apríl á 83. aldursári.
Jóhannna var fædd á Bjöllu-
hóli, Hellissandi, 11. júní 1911.
Foreldrar hennar voru Vigfús
Jónsson, trésmiður, frá Elliða í
Staðarsveit, og Kristín Jensdóttir,
óðalsbónda á Rifi. Veturinn 1927-
1928 stundaði Jóhanna nám í söng
og orgelleik hjá Sigfúsi Einars-
syni, tónskáldi í Reykjavík.
Hún lék á orgel í Ingjaldshóls-
kirkju og stjórnaði kirkjukór þar
í 52 ár. Hún rak sunnudagaskóla
fyrir börn og unglinga í 30 ár, var
formaður Kvenfélags Hellissands
í 25 ár og gengdi ótal trúnaðar-
störfum fyrir sveit sína og hérað.
Hún sat m.a. á kirkjuþingi um
árabil. Jóhanna var kjörin heiðurs-
borgari Hellissands 10. apríl 1990.
Jóhanna giftist 14. maí 1930
Hirti Jónssyni, útvegsbónda, og
hreppstjóra á Munaðarhóli, d. 10.
ágúst 1963. Þau eignuðust átta
börn og eru sjö þeirra á lífi.
Jóhanna verður jarðsett laugar-
daginn 7. maí á Ingjaldshóli, en
minningarathöfnin um hana fer
fram í Dómkirkjunni í Reykjavík,
föstudaginn 6. maí kl. 15.
• •
Ogmundur Jónasson gagnrýndi stjómvöld og fjölmiðla 1. maí
Morgunblaðið/Árni Sæberg
A baráttufundi
AÐ SÖGN lögreglunnar var á annað þúsund manns í kröfugöngu verkalýðsins 1. maí. Kalt var í
veðri og hvasst.
Stjórnvöld hafa sjálf
skipulagt atvinnuleysi
Guðmundur J. Guðmundsson sakaði
verkalýðshreyfinguna um þróttleysi
ÖGMUNDUR Jónasson, formaður BSRB, gagnrýndi, í ræðu á
baráttufundi verkalýðsins 1. maí, stjórnvöld fyrir að skipuleggja
yfir fólk atvinnuleysi með því að reka þúsundir verkafólks af
vinnumarkaði í nafni hagræðingar. Hann gagnrýndi einnig fjöl-
miðla harðlega og fullyrti að meginstoðir lýðræðisins væru í
hættu vegna skoðanaeinokunar. Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, gagnrýndi verkalýðshreyfinguna og sak-
aði hana um þróttleysi í baráttunni gegn atvinnuleysi.
„Á íslandi ríkir djúp pólitísk
kreppa. Við horfum upp á sam-
drátt, fjöldaatvinnuleysi, félags-
legar og efnahagslegar þrenging-
ar. En kreppan er pólitísk vegna
þess að þetta hefur verið skipu-
lagt yfir okkur. Það er búið að
skipuleggja yfir okkur samdrátt
þanliig að víða í atvinnulífinu jaðr-
ar við hrun. Og það er búið að
skipuleggja yfir okkur atvinnu-
leysi þannig að þúsundir karla og
kvenna hafa beinlínis verið reknar
út af vinnumarkaði - Þeir kalla
það hagræðingu," sagði Ögmund-
ur.
Svona talaði Thatcher
Ögmundur vitnaði m.a. í leiðara
Morgunblaðsins sem birtist 1.
maí, en þar segir m.a.: „Nú þegar
landsmenn liafa kynnst nánast
verðbólgulausu þjóðfélagi og
kostum þess má búast við, að
meirihluti þjóðarinnar vilji fremur
sætta sig við eitthvert atvinnu-
leysi heldur en að kalla yfir sig
nýtt óðaverðbólgutímabil."
„Svona talaði Tliatcher og svona
skrifar Morgunblaðið á degi
verkalýðsins,“ sagði Ögmundur.
„En vitið þið að mánaðarlaun þess
manns sem sendir þessa hroka-
fullu kveðju til atvinnulauss fólks
á íslandi eru á við 15-föld verka-
mannalaun? Þetta er misréttið
holdi klætt. Þetta er misréttið sem
þarf að uppræta."
Ögmundur sagði að búið væri
að gera lýðræðislega umræðu í
þjóðfélaginu að skrípaleik.
Stærstu fjölmiðiar landsins skoði
mál út frá sífellt þrengra pólitísku
sjónarhorni. Þegar ráðið sé í lykil-
embætti á íjölmiðlunum, nú síðast
á DV og Stöð tvö, séu sjónarmið
klíkunnar og einkavinanna höfð í
öndvegi.
V erkalýðshreyf ingin
þróttlaus
„Alltaf hafa verkalýðsfélögin
lýst því yfir að þau muni berjast
gegn atvinnuleysi. Nú hefur at-
vinnuleysið haldið innreið sína og
hver er þrótturinn í andstöðu
verkalýðshreyfingarinnar? Hann
er sáralítill. Ég ákæri þróttleysi
verkalýðshreyfingarinnar," sagði
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, m.a. í sinni
ræðu.
„Ég vil að hvert verkalýðsfélag
skipi sér ráð til að rannsaka orsök
atvinnuleysis á sinu svæði og
haldnir séu fundir með félags-
mönnum til að fá alla til starfa.
Síðan eiga þessi félög að mynda
öflugt bandalaggegn atvinnuleys-
inu. Á þann hátt taki hinn al-
menni maður virkan þátt í þess-
ari baráttu, taki ráðin af kreddum
hagfræðinganna og misvitrum
stjórnmálamönnum og útrými at-
vinnuleysinu," sagði Guðmundur.
Stillinq
SKEIFUNNI 11 • SlMI 67 97 97
SKEIFUNNI 11 • SÍMI 67 97 97
®]Stillingi
SKEIFUNNl 11 • SÍMI 67 97 97