Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994 VIÐSKIFn AIVINNULÍF Fyrirtæki Hlutabréfasjóðurinn tapaði 15,5 millj. ífyrra Fyrsta tapið í átta ára sögu sjóðsins TAP varð af rekstri Hlutabréfasjóðsins hf. á síðasta ári sem nam 15,5 milljónum króna. Samkvæmt ársskýrslu orsakast tapið af því verðfalli sem varð á hlutabréfamarkaðnum á árinu og lækkaði verð- mat hlutabréfasafns félagsins um 55 milljónir. Þetta er í fyrsta skipti í átta ára sögu Hlutabréfasjóðsins sem tap er á rekstrinum, en árið 1992 skilaði sjóðurinn 19 milljóna króna hagnaði. Húsavík Hagnaðurog tap á úgerðar- fyrirtækjum Húsavík. ÚTGERÐARFYRIRTÆKIN Höfði hf. og íshaf hf. á Húsavík sem eru undir sömu stjórn hafa nýlega haldið aðalfundi sína og fram kom þar að Höfði hf. skil- aði um 20 millj. króna hagnaði en tap á íshafi hf. varð um 49 millj. króna. Höfði hf. gerir út togarann Júlíus Havsteen ÞH 1, sem aðallega er gerður út á rækju, tvo báta og rek- ur einnig netagerð. Hjá félaginu voru að meðaltali á árinu 35 starfs- menn og heildar launagreiðslur 116,2 millj. Heildarvelta 319,7 millj. en árið áður 243,4 millj. og hafði því aukist um 37,5%. Rekstur veiðar- færagerðar hefur gengið vel. Hlut- hafar í Höfða hf. eru 120 en af hluta- fé á Húsavíkurbæ 50,74% og Fisk- iðjusamlag Húsavíkur hf. 36,78%. íshaf hf. gerir út togarann Kol- beinsey ÞH 10 sem alls fór 31 veiði- ferð á árinu, seldi aflann erlendis' úr tveimur veiðiferðum en landaði annars í heimahöfn. Rekstur félags- ins var með svipuðu móti og árið áður. Heildarvelta 153,5 millj. og hafði dregist saman um 1% frá fyrra ári, og heildarafli 2.348 tonn, sem er 5,6% minna en árið áður. Rekstrarhalli varð 48,9 milij. en vaxtagjöld, verðbætur og gengistap nam 47,4 millj. króna. Stærstu hluthafar félagsins eru Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. 44,59%, Húsavíkurbær 21,12% og Kaupféíag Þingeyinga 17,36%. Þar sem Fiskiðjusamlagið og Húsavíkur- bær eiga stóran meirihluta í félag- inu, hefur Kolbeinsey lagt mest af afla sínum upp hjá samlaginu, en ekki verið leitað eftir hærra verði á fiskmörkuðum. Stjórnin hefur til athugunar að setja í Kolbeinsey frystibúnað til að hægt verði að heiifrysta grálúðu, karfa og fleira, og selja á erlendan markað en annar afli kæmi sem áður til vinnslu á Húsavík. - Fréttaritari. Hlutabréfasjóðurinn seldi á síð- asta ári hlutabréf í þremur félögum og færði hagnaðinn, 7,2 milljónir króna til tekna. Þorsteinn Haralds- son framkvæmdastjóri sjóðsins sagði í ræðu sinni á aðalfundi fé- lagsins sl. miðvikudag, að við þær aðstæður sem ríktu á síðasta ári hefði verið æskilegt að eignir fé- lagsins hefðu í minna mæli verið bundnar í hlutabréfum, og stjórn félagsins hefði haft vilja til að draga úr vægi hlutabréfaeignar. Hins veg- ar hefðu markaðsaðstæður verið með þeim hætti að ekki hafi gefist nægileg tækifæri til að selja bréf þannig að viðunandi þætti. Skuldabréfaeign Hlutabréfa- sjóðsins hf. var í árslok 1993 135,7 milljónir. Vaxtatekjur sem sjóður- inn hafði af þeirri eign og lausu fé námu á síðasta ári 17,6 milljónum að frádregnum verðbre>tingagjöld- um. Það jafngildir því að skulda- bréfasafnið og bankareikningar hafi skilað sjóðnum 12% raunávöxt- un á sl. ári. Avöxtun hlutabréfa- safns Hlutabréfasjóðsins var nei- kvæð á árinu um 10,45% miðað við verðbreytingu sem varð á safninu á árinu að viðbættum söluhagnaði og arði. Hluti lækkunar hlutabréfa- safnsins færður á óinn- leystan gengishagnað Samkvæmt uppgjöri í ársreikn- ingi nam gengistap hlutabréfaeign- ar á síðasta ári 39,4 milljónum króna. Samtals lækkaði verðmat hlutabréfasafnsins um 54,1 milljón á árinu en hluti lækkunarinnar, 14,7 milljónir, er bókaður á óinn- leystan geymsluhagnað frá fyrra ári. Þorsteinn skýrði þessar færslur nánar í ræðu sinni. Hann sagði, að félagið færði hlutabréf sín til eignar á markaðsvirði og til þessa hefði það verð staðið hærra en verð sem félagið hefði greitt fyrir bréfín. Umframverðmætið hefði þá ekki verið fært til tekna á rekstrarreikn- ing heldur á sérstakan eiginfjárlið í efnahagsreikningi, svokallaðan óinnleystan geymsluhagnað. „Þeg- ar svo verð fer lækkandi er lækkun- in bókuð á þann lið, þar til eins og nú g'erist að hann er uppurinn. Eft- ir það ber að færa lækkunina til gjalda í rekstrarreikningi," sagði Þorsteinn. DRAUPNISSJÓÐURINN hf. Hlutabréfaeign í árslok 1993 Nafnverð Bókfært verð Nýherji Kr. 52.435.000 Kr. 68.166.000 Grandi 33.498.000 63.310.000 Skeljungur 7.264.000 31.236.000 Haraldur Böðvarsson 11.172.000 27.708.000 Eimskip 5.452.000 22.297.000 Jarðboranir 11.800.000 22.066.000 Hampiðjan 15.433.000 20.834.000 Útqerðarfélaq Akurevrinqa 6.742.000 20.765.000 Ármannsfell 25.417.000 20.333.000 Síldarvinnslan 6.000.000 17.100.000 Sæplast 5.374.000 16.446.000 Flugleiðir 12.713.000 14.874.000 Olíuverslun íslands 5.689.000 11.776.000 Þormóður rammi 5.000.000 10.500.000 íslandsbanki 11.862.000 10.201.000 Skagstrendingur 3.973.000 9.932.000 Olíufélagið 1.005.000 5.799.000 ísl. útvarpsfélagið 2.008.000 5.623.000 Tollvörugeymslan 4.087.000 5.110.000 Samskip 9.824.000 4.912.000 Sjóvá/Almennar 772.000 4.362.000 Hlutabréfasjóðurinn 3.110.000 3.390.000 Eignarhaldsf. Alþýðubanka 314.000 345.000 Samtals: Kr. 240.944.000 Kr. 417.085.000 HLUTABRÉFASJÓÐURINN hf. Hlutabréfaeign í árslok 1993 Eimskip Kr. 18.143.307 Kr. 74.206.126 Flugleiðir 45.560.629 53.305.936 Grandi 22.529.100 42.579.999 Skeljungur 9.301.240 39.995.332 Hampiðjan 14.348.767 19.370.835 íslandsbanki ! 21.480.736 18.473.433 Tollvörugeymslan 13.524.042 16.905.053 Þormóður rammi 7.500.000 15.750.000 Útgerðarfélag Akureyringa 3.607.303 11.110.493 Skagstrendingur 4.400.000 11.000.000 Haraldur Böðvarsson 4.300.000 10.664.000 Olíuverslun íslands 5.000.000 10.350.000 Sjóvá/Almennar 1.598.990 9.034.294 Sæplast 2.373.815 7.263.874 Faxamarkaður 1.925.000 4.562.250 Veð 15.000 15.000 Samtals: Kr. 175.607.929 Kr. 344.586.625 Fyrirtæki íslenska saltfélagið hf. ósk- ar eftir gjaldþrotaskiptum Allir starfsmenn hafa fengið uppsagnarbréf en engin laun nú um mánaðamótin STJÓRNIR íslenska saltféiagsins hf. á Reykjanesi og móðurfélags þess, Saga Food Ingredients A/S (SFI), hafa óskað eftir því að félög- in verði tekin til gjaldþrotaskipta. Akvörðun þessa efnis var tekin á stjórnarfundi félaganna sl. föstudag. Heildarskuldir eru nálægt 600 milljónum króna og eru eignir nánast eingöngu bundnar í salt- verksmiðjunni á Reykjanesi. Að sögn Júlíusar Jónssonar, forstjóra Hitaveitu Suðurnesja og sljórnarmanns í SFI, hefur öllum starfs- mönnum félaganna, tæplega 40 talsins, verið sagt upp störfum frá 1. maí sl. Fyrirtækið gat ekki greitt starfsmönnunum laun nú um mánaðamótin. Danska fyrirtækið Saga Food Ingredients A/S var stofnað árið 1988 í þeim tilgangi að taka við og reka Saltverksmiðjuna á Reykja- nesi sem þá var í eigu Sjóefna- vinnslunnar hf. í upphafi voru hlut- hafar SFI nokkrir danskir lífeyris- sjóðir, Den Danske Bank, Wilmar Friis Fredriksen framkvæmdastjóri SFI, Burðarás hf., Þróunarfélag íslands hf. og Iðnlánasjóður hf. Áttu dönsku hluthafarnir 85% og FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA OG HAGFRÆÐINGA AÐALFUNDUR Aðalfundur Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga verður haldinn miðvikudaginn 4. maí 1994 kl. 16.00. Fundarstaður: Þingholt, Hótel Holti. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Yfirlit um störf siðanefndar, innlegg úr kandítads- ritgerð. 3. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, flyt- ur erindi: Asía - markaður tækifæranna? Mætið stundvíslega. Stjórn FVH. íslensku hluthafamir 15%, en heild- arhlutafé var um 320 milljónir króna. SFI átti síðan allt hlutafé íslenska saltfélagsins hf. sem sá um daglegan rekstur saltverksmiðj- unnar á Reykjanesi. Tæknilegir erfiðleikar í greinargerð sem framkvæmda- stjóri íslenska saltfélagsins hf. og fulltrúar minnihlutaeigenda í stjórn þess hafa sent frá sér kemur m.a. fram að frá því verksmiðjan var tekin í notkun um mitt ár 1992 hafi tæknilegir erfiðleikar takmark- að framleiðslugetu fyrirtækisins, og ekki hafi tekist að afla fjár til þeirra úrbóta sem nauðsynlegar voru. Átti að afla yfir 400 milljóna kr. útflutn- ingstekna á ári, en fyrstu þrjá mánuði þessa árs voru útflutnings- tekjurnar orðnar liðlega 60 milljón- ir kr. Aðalframleiðsluvaran var heilsusalt sem selt var erlendis af hollenska fyrirtækinu AKZO, en það fyrirtæki hefur jafnframt verið meirihlutaeigandi saltfélagsins frá því í ágúst á síðasta ári þegar gjald- þrot blasti við fyrirtækinu og fram fór fjárhagsleg endurskipulagning á því. Eftir að AKZO varð meiri- lilutaeigandi voru bundnar vonir við að rekstur félagsins myndi ganga upp, en AKZO reyndist hins vegar ekki reiðubúið til að fjármagna nauðsynlegar viðbótarfjárfestingar til að fyrirtækið næði upp viðun- andi afköstum, en til þess þurfti 150-200 milljónir kr. Óskað eftir greiðslustöðvun Frá því í janúar hafa innlendu hluthafarnir og framkvæmdastjór- inn undir forystu Hitaveitu Suður- nesja leitað leiða til að bjarga fyrir- tækinu. Var hugmyndin sú að Hita- veita Suðurnesja sem jafnframt er einn stærsti innlendi hagsmunaaðili málsins myndi taka við öllu hlutafé og fjármagna síðan nauðsynlegar breytingar með áframhaldandi rekstur í huga. Viðræður fóru fram við lánardrottna um að fella niður hluta skulda, en þær viðræður gengu erfiðlega og til að knýja á um svör ákvað stjórn SFI að óska eftir greiðslustöðvun 25. apríl. Frá því í byijun apríl hefur svo AKZO neitað að greiða fyrir það salt sem því var selt vegna krafna um breyt- ingar á kornastærð og eðlisþyngd saltsins, en SFI getur ekki uppfyllt þær kröfur með svo skömmum fyr- irvara. Fyrirækið er því komið í greiðsluþrot og í ljósi þess varð stjórnin að leita eftir gjaldþrota- skiptum. í greinargerðinni segir að fulltrú- ar minnihlutaeigenda í stjórn fyrir- tækisins séu mjög ósáttir við þessa niðurstöðu og lýsa þeir allri ábyrgð á hendur meirihlutaeigenda í stjórn fyrirtækisins vegna tjóns sem fyrir- varalaus stöðvun á greiðslum og gjaldþrot fyrirtækisins í framhaldi af því kann að valda lánardrottnum, starfsmönnum og öðrum þeim sem tengjast málinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.