Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
37
I
I
I
I
i
1
i
i
i
i
i
i
(
(
(
i
(
i
Jón Baldursson Evrópumeistari í einmenningi í brids
Urslitin réðust ekki
fyrr en í síðasta spili
_______Brids_______
Guðm. Sv. Hermannsson
JÓN Baldursson vann Evrópu-
mótið í einmenningi i París í
síðustu viku. Þetta er ekki lít-
ið afrek því þarna voru saman-
komnir flestir sterkustu spil-
arar í Evrópu auk nokkurra
heimsþekktra spilara frá Am-
eríku og Asíu. Með þessu hef-
ur Jón styrkt stöðu sína og
íslands verulega á landakorti
bridsheimsins.
Þetta er í annað skipti sem
Bridssamband Evrópu heldur
einmenningsmót í samvinnu við
franska stórfyrirtækið Generali.
Fyrir tveimur árum kepptu ein-
ungis spilarar frá Evrópu en í
þetta skiptið var boðið nokkrum
spiiurum utan Evrópu, þar á
meðal Zia Mahmood, Gabriel
Chagas og Edgar Kaplan. Áfram
var þó keppt um Evrópumeist-
aratitil auk dágóðra peninga-
verðlauna, sem samtals námu
250 þúsund frönskum frönkum
eða um þremur milljónum króna
samanlagt í karla- og kvenna-
flokki.
52 spilarar kepptu í karla-
flokki og 28 í kvennaflokki og
spilaði hver þátttakandi tvö spil
við alla hina keppendurna. Sagn-
kerfi, útspil og varnarmerki voru
fyrirfram ákveðin og föstum
spilafélögum var bannað að nota
aðrar aðferðir. Jón sagðist ekki
hafa lent í neinum vandræðum
í sögnum enda reyna menn að
hafa þær einfaldar í svona mót-
um. Villurnar komu hins vegar
einkum í vörninni þar sem reyn-
ir mest á samæfingu spilafélaga.
Spilað var í fjórum lotum og
eftir fyrstu iotuna var Jón í 9
sæti. í annarri lotunni fékk hann
síðan risaskor og fyrsta sætið
en fór niður í annað sætið eftir
þriðju lotuna. í fjórðu og síðustu
lotunni náði hann efsta sætinu
aftur þegar fjórum spilum var
lokið en Frakkinn Christian Mari
var ávallt á hæla honum. Og sig-
ur Jóns var ekki tryggður fyrr
en í síðasta spilinu þegar hann
hafði Brasilíumanninn Gabriel
Chagas á móti sér og fráfarandi
Evrópumeistara í einmenningi,
Pólveijann Piotr Gawrys, í and-
stöðunni.
Norður
♦ 9
VÁK3
♦ K94
♦ 976532
Vestur Austur
♦ G ♦ D8754
¥ 98752 ¥ DG
♦ G872 ♦ 10653
♦ Á104 ♦ KG
Suður
♦ ÁK10632
¥ 1064
♦ ÁD
♦ D8
Vestur Norður Austur Suður
Jón Szwarc Chagas Gawrys
1 Gr
pass 3 Gr/
Grandopnun Gawrys er ekki
alveg eftir bókinni en þeir
Szwarc enduðu í eðlilegum
samningi. Jón spilaði út hjarta-
níunni sem neitaði háspili og
Gawrys stakk því upp ás í blind-
um og felldi gosann. Eins og
spilið liggur hefði verið best fyr-
ir Gawrys að spila strax laufi
Morgunblaöid/Amór
Evrópumeistara fagnað
FORSVARSMENN Bridssambands íslands tóku á móti Jóni Bald-
urssyni og Elínu Bjarnadóttur eiginkonu hans þegar þau komu
frá París á sunnudag.
úr borði. Chagas verður þá að
stinga upp kóng og spila hjarta-
drottningu og Jón á síðan tvær
innkomur á lauf til að fríspila
og taka tvo hjartaslagi. En ef
Chagas lætur laufgosann nær
sagnhafi að fría lauflitinn áður
en vörnin fríar hjartað.
En Gawrys taldi að spaðinn
gæfi meiri möguleika enda vant-
aði hann aðeins einn slag. Hann
spilaði spaðaníunni og hleypti
henni á gosa Jóns sem spilaði
meiri hjarta. Gawrys stakk upp
kóng, fór heim á tígulás og tók
spaðaás. Þegar Jón henti tígli
reyndi Gawrys laufadrottningu
en Chagas drap með kóng og
spilaði gosanum til baka og Jón
yfirdrap með ás og spilaði hjarta
í þriðja sinn.
Gawrys tók nú spaðakóng og
tíguldrottningu og spilaði sig út
á spaða og Chagas tók þar tvo
slagi en varð svo að gefa blindum
á tígulkóng. En spilið var einn
niður og Jón og Chagas fengu
22 stig af 24 mögulegum. Nokk-
um tókst að stoppa í bút, og
aðrir unnu 3 grönd þegar vörnin
spilaði út tígli.
Lokastaðan varð svo þessi:
Jón Baldursson 1350,6
C. Mari, Frakklandi 1347,9
J. Westerhof, Hollandi 1321,8
M. Roudinesco, Frakkl. 1321,8
A. Versace, Ítalíu 1315,4
G. Chagas, Brasilíu 1311,1
H. Szwarc, Frakklandi 1302,8
M. Abecassis, Frakkl. 1299,8
G. Helgemo, Noregi 1291,5
A. Forrester, Bretlandi 1279,9
Pólski Evrópumeistarinn
Kryzstof Lasocki vermdi botn-
sætið en næstir honum komu
Svíarnir Hans Göthe og P.O.
Sundelin.
Norður
♦ 9
¥ Á9742
♦ K10852
♦ 52
Vestur Austur
♦ ÁKG5 ♦ 107
¥ K8 ¥ G1065
♦ G64 ♦ ÁD983
♦ ÁDG4 ♦ G9
Suður
♦ D86432
¥ D3
♦ -
♦ K10863
Vestur Norður Austur Suður
Jón Perron Mari Roud.
- pass pass 2 spaðar
3 Gr dobl pass redobl/ pass 4 lauf
Hreinn toppur
Jón fékk hreinan topp þegar
hann hafði helsta keppinaut sinn
fyrir makker:
N/Enginn
Það voru þrír Frakkar hjá Jóni
í þessari setu og Roudinesco
opnaði á véikum 2 spöðum. Sam-
kvæmt kerfinu hefðu 2 grönd
hjá Jóni lofað 15-18 punktum
og honum fannst spilin sín of
sterk fyrir þá sögn. Jón vildi
heldur ekki dobla og skaut því á
3 grönd sem hefðu unnist auð-
veldlega.
Roudinesco er ekki mikið fyrir
að gefast upp baráttulaust og
þegar kom að honum aftur
reyndi hann 4 lauf sem Jón tók
fagnandi við. Perron hefur lík-
lega ekki litist á svipinn á Jóni
því hann redoblaði til úttektar
þótt ólíklegt væri að Roudinesco
ætti mörg rauð spil eftir sagnir.
Og Roudinesco ákvað að kenna
félaga sínum að skipta sér ekki
af því sem honum kæmi ekki
við, passaði og fór 2.200 niður.
■ FRAMBOÐSLISTI Þ-listans,
lista „venjulegs fólks“ á Siglu-
firði, er þannig skipaður: Krislján
S. Elíasson, sjómaður, Sævör
Þorvarðardóttir, húsmóðir, Frið-
finnur Hauksson, verkamaður,
Díana Oddsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur, Þormóður Birgisson,
sjómaður, Ægir Bergsson, sjó-
maður, Pétur Karlsson, sjómað-
ur, Þórður Björnsson, sjómaður,
Hafliði J. Hafliðason, sjómaður,
Bjarni Harðarson, loftskeyta-
maður, Árni V. Stefánsson, sjó-
maður, Anna María Jónsdóttir,
húsmóðir, Guðrún Hauksdóttir,
verkakona, Jóhann Sigurðsson,
vélvirki, Magnús Traustason,
vélvirki, Erlendur Þ. Sigurðsson,
sjómaður, Hafdís H. Haralds-
dóttir, húsmóðir, og Haukur.
Kristjánsson frá Kambi.
Láttu ekki vanann veráa jaér aá lieilsutjóni.
HugleiJdu kvort ekki er kominn tími til að endurnýja
gömlu dýnuna Jaína. Lystadún-Snæland. framleiðir allt
írá einföldustu dýnum til úrvals rúmdýna sem fullnægja
ströngustu kröfum um útlit, gæði og Jrægindi.
'T/'.N
LYSTADÚN-SNÆLAND
lg dýnan er jarískipt. Efst er lag af
mjúkum svampi, í miðjunni
er latex, sem er unnið úr náttúru-
gúmmíi, og neðst er stífur svampur.
Stgr.verð; 26.900 kT. (80x200sm)
BonneH
yjooradyna
er klædd eggja-
kakkaskomum
mjúkum svampi efst og neðst og í
miðjunni er vandaður fjaðrakjami.
Stgr.verð [18.500 kr.| (80x200sm)
er klædd Lúxus
aöraayna latexi efst og
neást, á milli em mjúkar fjaðrir sem
steyptar em inní stuðpúða úr frauði.
Hver fjaðraeining er klædd í poka og
fjaðrar j>ví sjálfstætt.
Stgr.verð
32.800 kr.
(80x200sm)
Skútuvogi 11* Sími 68 55 88