Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994 Reuter Díana sólarsig DÍANA prinsessa skrapp til Spánar á sunnudag og hyggst sleikja sólina í nokkra daga hjá Malaga. Ljósmyndarar stóðust ekki freistinguna, settu upp aðdráttarlinsur og mynduðu í bak og fyrir. HREINLÆTISTÆKI ! 120x70 170x70 KR. 5.600 Jk®-940 160x70 Kr. 6.600 Setkar 140x70 kr. 6.150 Kn 6*150 I WC | sett 1 meö stút í vegg I eða yfirbyggt í I gólf m/harðri 1 setu , i Kr- Sturtubotnar i | 70x70 80x80 I Kr. 3.150 Kr. 3.450 A vegg frá kr. 2.590 í borð frá kr. 6.670 Sturtuklefar og sturtuhorn Verð frá kr. 7.900 öll verð eru stgr.verð nWSK. Opið mánudaga til föstudaga 9-18. Opið laugardaga 10-16. FAXAFEN9 SÍMI 91-677332 Vinsæld- ir Kohls aukast Bonn. Reuter. VINSÆLDIR Helmuts Kohls, kanslara Þýskalands og leið- toga kristilegra demókrata (CDU), hafa aukist meira en vinsældir höfuðandstæðing- anna, jafnaðarmanna (SPD), í fyrsta sinn á árinu. Sam- kvæmt skoðanakönnun, sem birt var um helgina, er fylgi CDU 38,9% en SPD, undir for- ystu Rudolfs Scharpings, hlyti 37,7% ef gengið væri til kosn- inga nú. í niðurstöðum skoðanakönn- unnarinnar segir að fólk treysti CDU fremur en SPD til að skapa ný störf og styður það niðurstöður annarra kannanna sem hafa sýnt fram á að traust fólks til stjórnar- innar, sem setið hefur í tólf ár, hefur aukist með batnandi efna- hag. Fijálsum demókrötum, sam- starfsflokki CDU, er spáð 7,1% fylgi, sem er aukning frá könnun- um sem gerðar voru fyrr í vetur. Fylgi Græningja, sem talið er að myndu ganga til stjórnarsamstarfs með SPD, hljóti sá síðarnefndi nægilegt fylgi, er nánast óbreytt, 8,9%. í annarri nýlegri skoðanakönn- un hlaut SPD aðeins meira fylgi en CDU, 38% á móti 36%, en Kristilegir demókratar höfðu þó bætt við sig fylgi. Ottast að borgarastríð sé yfirvofandi í Jemen Sunnanmenn vilja að sameining gangi til baka - segir Guðrún Margrét Guðmundsdóttir í Sanaa í Jemen „ÞAÐ er allt með kyrrum kjörum í dag en spenna er mikil og aldrei að vita nema upp úr sjóði,“ sagði Guðrún Margrét Guðmundsdóttir í Sanaa í Jemen í samtali við Morgunblaðið í gær. Stríðsá- tök brutust út í síðustu viku milli tveggja herfylkja sem lúta stjórn andstæðra fylk- inga í landsstjórninni en bar- dagar hafa legið niðri frá því á laugardag. Að sögn Guðrúnar er þó enginn sátta- tónn í þjóðarleiðtogum sem deila um hvort skipta skuli ríkinu aftur upp. Fyrir sam- einingu réðu marxistar ríkj- um í suðurhlutanum. Frétta- skýrendur telja allt eins lík- legt að borgarastríð brjótist út vegna krafna um að Jem- en verði aftur skipt í tvö ríki. Átökin áttu sér stað við borg- ina Amran sem er 50 km norður af Sanaa. í fréttum segir að þar hafi tvö herfylki verið þurrkuð út í þriggja daga bardögum en í jemensku herfylki eru milli 500 og 2.000 menn. Reuters-frétta- stofan hafði í gær eftir tals- manni varnarmálaráðuneytisins í Sanaa að vopn fyrir 500 millj- ónir dollara væru ónýt eftir átökin, þar á meðal 85 skrið- drekar, en Jemen er fátækast arabaríkja. Fáir vita um átökin „Við urðum ekki átakanna vör hér í Sanaa að öðru leyti en því að hingað hefur ekkert eldsneyti borist og því myndast margra kílómetra biðraðir frétt- ist af bensíndropa á einhverri bensínstöð. Annars fer ekkert fyrir þessum bardögum í jem- enskum fjölmiðlum og fæstir vita því af þeim. Einungis þeir sem geta fylgst með gervi- hnattasjónvarpi vita af þeim. Þannig fréttum við af bardögun- um,“ sagði Guðrún Margrét. Flóknar deilur „Átökin blossuðu upp út 'af nokkuð flóknum deilum. í ein- földu máli má ef til vill segja að þær snúist um það að suður- hlutinn vill falla frá sameining- Guðrún dóttir Margrét Guðmunds- UPPLAUSNIJEMEN Skriídrekasveitum stjórnarhersins f Jemen laust saman f sfðustu viku vegna deilna um framtíð landsins. Talin er hætta á að deilurnar leiði til borgarastríðs DJIBOUT! .••"1WS(Su| EÞfÓPÍA : , SOMALiA 7 ‘■T"g^b\ unni sem átti sér stað 1990 og verða aftur sjálfstætt ríki. Norð- anmenn taka ekki til greina að skipta ríkinu upp því allur olíu- auðurinn er sunnanmegjn. Þeir hafa lagt sitt af mörkum til uppbyggingar olíuvinnslunnar og vilja því ekki gefa auðinn frá sér,“ sagði Guðrún Margrét. Samkvæmt Reuters-fréttum kristallast þessi deila í átökum Ali Abdullah Saleh forseta sem er norðanmaður og Ali Salem al-Baidh varaforseta sem er sunnanmaður. Guðrún Margrét \ sagði það út af fyrir sig rétt en deilan væri þó mun flóknari þar sem landið byggðu um 30 ætt- bálkar sem væru allir á móti hveijum öðrum. „Þetta eru margir smáhópar sem ráða hver á sínu svæði. Brytist út borgara- stríð færi allt í bál og brand.“ „Sunnanmenn hafa ákveðið að stofnun nýs ríkis þeirra fari fram 22. maí en þann dag voru ríkin sameinuð 1990. Af þessu sökum hefur skapast mikil spenna hér. Leiðtogar arabaríkj- anna hafa látið deilurnar í Jem- en til sín taka en án árangurs. Hér láta menn eins og börn og engin lausn er í sjónmáli.“ „Þá eru Jemenar gramir stjórnmálamönnunum sem lof- uðu öllu fögru fyrir kosningarn- ar í apríl í fyrra en hafa svikist um að efna loforðin. í stað þess að bæta hag manna hefur ástandið þvert á móti hríðversn- að eftir kosningar. Verðbólgan hefur vaxið hratt og stöðugt fjölgar þeim sem svelta í eigin landi. Fólk á ekki lengur peninga fyrir mat.“ Valsa um vopnaðir „Hér er allt mjög frumstætt á okkar mælikvarða og upplausn blasir hvarvetna við. Allir eiga byssu, meira segja krakkar ganga vopnaðir um borgina eft- irlitslausir. Ringulreiðin er miklu meiri en áður. Útlendingar eru ekki látnir óáreittir þeir eiga alltaf á hættu að verða fyrir barðinu á ræningjum sem sækj- ast m.a. eftir bílunum þeirra. Gerð var tilraun til þess að ræna mig í fyrra en ég slapp. Yfirmað- ur minn var ekki eins heppinn. Fyrir tveimur mánuðum stöðv- aði hópur vopnaðra manna bif- reið hans og rændu henni fyrir framan nefið á her- og lögreglu- mönnum sem gerðu enga tilraun til að skakka leikinn. Stendur ekki á sama „Auðvitað stendur manni ekki alveg á sama en það er hins vegar ekki hægt að loka sig inni. Sjóði upp úr reynum við að koma okkur strax úr landi,“ sagði Guðrún Margrét Guðmundsdótt- ir sem búið hefur í Jemen í tvö ár ásamt íjölskyldu sinni. Maður hennar, Hannes Yaghi, er Líbani en íslenskur ríkisborgari. Hann er einn af stjórnendum Shera- ton-hótelsins í Sanaa. Eiga þau tvær dætur. Líkur á vopnahléi í Rúanda litlar Afskiptum SÞ af Rúanda hafnað Nairobi. Rcuter. GERT var ráð fyrir að í dag færi fram fundur Jacques-Roger Booh-Booh sendimanns Sameinuðu þjóðanna í Rúanda með leiðtogum deiluaðila í bænum Arusha í Tanzaníu þar sem gera átti tilraun til þess að semja um vopnahlé í landinu. Litlar lík- ur þóttu hins vegar á því að takast mundi að stöðva bardagana. Láta mun nærri að 200.000 manns hafi týnt lífi í blóðbaðinu í Rúanda og um 300.000 nafi flú- ið til nágrannaríkjanna. Uppreisn- armenn sem eru úr röðum Tútsía hafa unnið mikla landvinninga undanfarnar þijár vikur og hafa harðlega neitað að gefa eftir landssvæði í hugsanlegum vopna- hléssamningum. Hermt er að leið- togar þeirra geri sér vonir um að geta smám saman brotið baráttu- þrek stjórnarhermanna á bak aftur og neytt þá til að snúa baki við stjórninni. Um helgina hafnaði öryggisráð SÞ hugmynd framkvæmdastjóra SÞ um afskipti af deilunni í Bosn- íu. Bandaríkjamenn hafa sagt að þeir séu tilbúnir til að leggja fram fjármagn þannig að nágrannaríki reyni að stilla til friðar í landinu. FLYJA BLOÐBAÐIÐ I RUANDA 200.000 manns hafa falliö í bardögum stjórnarhersins og uppreisnarmanna (RFP) í Rúanda og 300.000 hafa flúiö til grannríkjanna. Átökin blossuöu upp eftir aö Juvenal Habyarimana forseti var myrtur 6. apríl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.