Morgunblaðið - 03.05.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
9
Franskir, tvískiptir ullarkjólar
í stærðum 36-48
TESS
v
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
MOULINEX
örbylgjuofnar með
snúningsdiski létta
heimilisstörfin í ys og erli
dagsins.
MOULINEX
örbylgjuofnar hraðvirk
heimilisaðstoð.
Fæst í næstu
raftækjaverslun
I. GUÐMUNDSSON & Co. hf.
- UMBOÐS OQ HEILOVERSLUN
SlMI 91-24020 FAX 91-623145
L i s t r æ n
hönnun!
Dönsku ELFA háfarnir eru glæsilegir,
stílhreinir og sönn eldhúsprýði.
Við bjóðum nú nýjar gerðir af þessum
vinsælu háfum í 16 mismunandi litum, stáli eða kopar.
Einar Farestveit & Cohf
Borgartún 28 ® 622901 og 622900
LOGSUÐUTÆKI
MARGAR GERÐIR
argon- og propangas-
mælar
súr- og gasmælar,
tvöfaldar slöngur,
kveikjur,
logsuðugleraugu,
einstreymislokar,
logsuðutæki í settum,
súr- og gaskútar.
Varahlutaþjónusta.
ÁRVÍK hf.
ARMÚU 1 - PÖSTHÓLF 8000 -128 REYKJAVlK - SlMI 687222 • TELEX 3012 ■ TELEFAX 687295
Iupphafí
skyldi endir-
inn skoða
Sighvatur Bjarnason,
komst svo að orði i seiiini
fréttum Sjónvarps (RÚV)
á mánudag í fyrri viku:
„Það sem í raun og
veru kom mér mest á
óvart er þessi litli skiln-
ingur og litia þekking
alþingismanna á sjávar-
útvegi og sjávarútvegs-
málum. I raun og veru
er mjög einkennilegt að
heyra að sjávarútvegs-
nefnd Alþingis skuli ekki
hafa meiri uppiýsingar
en þeir hafa um sjávarút-
vegsmál."
Fréttamaður spyn
„Áttu við það að menn í
sjávarútvegsnefndinni
viti ekki hvað þessir hlut-
ir [merkja] eins og tonn
á móti tonni og amiað í
þeim dúr?“
Sighvatur svarar:
„Eg held að svo sé, að
hugsanlega sé verið að
keyra málin alltof hratt
i gegnum þingið; mönn-
um gefst ekki tima til að
kynna sér málin sem er
í raun eðlilegt.
Þetta mál er verið að
keyra alltof hratt í gegn-
um þingið; það liggur í
raun ekkert á þvi. Það
þarf að klára ákveðin
mál varðandi smábátana
og annað sem er hægt
að gera núna, hitt er
hægt að kára i haust,
þegar menn eru búnir að
átta sig á afleiðingunum.
Það á ekki að samþykkja
lög i gegnum Alþmgi, þai’
sem menn hafa ekki liug-
mynd um hvaða afleið-
ingar þau liafa.“
Sighvatur Bjarnason, Vest-
mannaeyjum.
Er þekking þingheims á
sjávarútvegi í molum?
Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum,
sagði í sjónvarpsviðtali í fyrri viku að lítill
skilningur og lítil þekking þingheims á sjávar-
útvegi og sjávarútvegsmálum hafi komið sér
mjög á óvart. Varhugavert væri af þeim
sökum að keyra þar í gegn afgreiðslu mikil-
vægra sjávarútvegsmála sem þingmenn
skorti frekari innsýn í til að afgreiða svo vel
sé.
*
Ohagræðið
verðlaunað?
Síðan segir fréttamað-
ur:
„Sighvatur segir að
með lögunum sé einfald-
lega verið að leysa kj:ir-
deilu við sjómenn. Frum-
varpið hafi það hins veg-
ar í för með sér að stór
hluti fiskvinnslufólks
missi vinnuna. Hann segir
einnig að stefnubreyting
sem felst i lögunum, geri
mönnum erfitt fyrir."
Sighvatur: „Menn hafa
verið að reyna að skera
niður fjái-festingai% losna
við skuldir, skera niður
fjármagnskostnað en svo
dettur alþingismönnum í
hug að vinna í þveröfuga
átt og þá verðum við að
breyta öllu þvi sem verið
er að vinna eftir."
Fréttamaður spyr: „Þú
ert að meina með öðrum
orðum að það sé verið að
verðlauna þá sem ekki
hagræddu"?
Sighvatur: „Sumir hafa
kannski ekki þurft að
hagræða, en það er verið
að verðlauna marga þá
sem ekkert hafa aðlagað
sig að kvótakerfinu.
Kvótakerfið er búið að
vera hérna þó nokkur ár.
Sumir hafa aðlagað sig
að því. Aðrir ekki. Og það
er verið að verðlauna þá.“
Staðreyndir
verður að
virða
Flestir eni sammála
um að veiðisókn verði að
ráðast af veiðiþoli tak-
markaðra auðlinda sjáv-
ar. Keppikeflið er að
verðmætustu tegundim-
ar nái eðiilegri stofn-
stærð, miðað við aðstæð-
ur í lífríki sjávar og gefi
þamiig mestan viðvarandi
arð í þjóðarbúið. Þami
afla sem fiskifræðileg rök
standa til að taka megi
úr nytjastofnum á að
sækja með sem minnstum
tilkostnaði og vinna í eins
verðmæta vöru og kostur
er hverju sinni.
Sjávarútvegurinn verð-
ur að laga sig að þeim
veruleika, sem við blasir
bæði í lífríki sjávar og
viðskiptalegu umhverf;
hans og þjóðarbúsins. í
því efni má enn betur
gera.
Löggjafinn verður á
hinn bóginn að búa sjáv-
arútveginum og atvinnu-
rekstri almennt eins góð-
ar starfsaðstæður og
kostur er. Það er
áhyggjuefni, ef ásakanir
á borð við þær sem fram-
kvæmdastjóri Vinnglu-
stöðvarinnar ber fram
eiga við rök að styðjast.
Jafnvel þótt aðeins væri
að hluta.
Sinueldar á þremur stöðum í Fliótsdal
Geitagerði.
KVEIKT var í sinu á þremur
bæjum í sveitini sl. laugardag þ.e.
á Hrafnkelsstöðum, Langhúsum
og Skriðukiaustri. Bæði mann-
virki og skóglendi voru þar af
leiðandi í verulegri hættu.
Slökkvilið, sem var frá Egilsstöð-
um, ásamt lögreglu var kvatt á vett-
vang með tvo slökkvibíla. Nokkurn
tíma tók að slökkva eldana jafnvel
þó að veður væri fremur kyrrt. Eld-
ar náðu að umkringja olíutank á
einum bænum og hann var orðinn
heitur þegar tókst að slökkva.
Eftir fjárskiptin og tveggja ára
hvíld á landinu er viða mikil sina og
því mun erfiðara að ráða við sinu-
elda. - GVÞ.
Útbob ríkisvíxla
til 3, 6 og 12 mánaba
fer fram mibvikudaginn 4. maí.
Nýtt útboö á ríkisvíxlum fer fram á
morgun. Um er að ræða 9. fl. 1994
A, B og C í eftirfarandi verðgildum:
Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000
Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000
Ríkisvíxlarnir eru til 3, 6 og 12 mánaða
með gjalddaga 5. ágúst 1994,
4. nóvember 1994 og 5. maí 1995. Þessi
flokkur verður skráður á Verðbréfaþingi
íslands og er Seðlabanki íslands
viðskiptavaki ríkisvíxlanna.
Ríkisvíxlarnir veröa seldir með
tilboðsfyrirkomulagi. Lágmarkstilboð
samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu er
5 millj. kr. og lágmarkstilboð í
meðalverð samþykktra tilboða er
1 millj. kr.
Löggiltum verðbréfafyrirtækjum,
verðbréfamiðlurum, bönkum og
sparisjóðum gefst einum kostur á að
gera tilboö í ríkisvíxlana samkvæmt
tiltekinni ávöxtunarkröfu.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í
ríkisvíxla eru hvattir til að hafa
samband við framangreinda aðila,
sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá
og veita nánari upplýsingar. Jafnframt
er þeim sjálfum heimilt að bjóða í
vegið meðalverö samþykktra tilboða
(meðalávöxtun vegin með fjárhæð).
Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa
að hafa borist Lánasýslu ríkisins
fyrir kl. 14, miðvikudaginn
4. maí. Tilboðsgögn og allar nánari
upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu
ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 62 40 70.
Athygli er vakin á því að
6. maí er gjalddagi á 21. fl.
ríkisvíxla sem gefinn var út
5. nóvember 1993 og 3. fl. ríkisvíxla
sem gefinn var út 4. febrúar 1994.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 40 70.