Morgunblaðið - 03.05.1994, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
Hver er framtíðarstefnan?
Opið bréf til Davíðs Oddssonar forsætisráðherra
eftir Ellert Ólafsson
Heill og sæll og kærar þakkir
fyrir heilladrjúgt starf sem borgar-
stjóri og ekki síður fyrir einstakt
hugrekki við að losa Sjálfstæðis-
flokkinn úr þeirri sjálfheldu sem
hann var kominn í.
Nú stendur þjóðin á tímamótum
í atvinnumálum og samskiptum við
útlönd og á þessum örlagatímum
finnst mörgum að alþingi og ríkis-
stjórn leggi fátt til mála og skorti
nauðsynlega dirfsku og framtíðar-
sýn.
Þess vegna langar mig í allri vin-
semd að benda á nokkur atriði sem
ég tel að stjórnmálamenn þurfi að
leggja meiri rækt við.
Sögubrot
Það er erlendum mönnum mikið
undrunarefni hvernig fátækir ís-
lenskir kotbændur, sem kúldi-uðust
í ljóslausum moldarhreysum og klof-
uðu daglangt snjóskafla með hríð-
argrettu á vör gátu sett saman og
varðveitt frumleg skáldverk sem telj-
ast nú til heimsbókmennta. Enn í
dag eru þessar merku skræður dýr-
mætasta djásn og stolt þessarar
þjóðar.
Sagnahefðin, einangrunin og hinn
flókni uppruni skipa okkur sérstöðu
meðal þjóða, enda erum við uppá-
haldsrannsóknarefni mannfræðinga
um heim allan. Eftir rúmlega þúsund
ára sult, kúgun og harðæri lenti
þessi fátæka bókaþjóð skyndilega i
þeirri miklu reynslu að verða á
nokkrum árum fokrík með nokkuð
óvenjulegum hætti.
Danir sendu okkur Thor Jensen,
Norðmenn kenndu okkur að veiða
síld og hval, stríðið reyndist okkur
hreinasta gullnáma og við fengum
gjafmildan og örlátan bandarískan
„Með því að breyta sjáv-
arútveginum úr háþró-
aðri rányrkju í vísinda-
legan sjávarbúskap
væri hægt að marg-
falda aflann og gera
útgerð og fiskvinnslu
að arðbærum og vax-
andi atvinnugreinum.“
her. Ofan á allar þessar dásemdir
fengum við suðurameríska verð-
bólgu og bankastjóra sem lánuðu
án endurgreiðslu. Það ríkti kátína á
þjóðarskútunni, þá jafngilti banka-
lán happdrættisvinningi og var ávís-
un á eilífa sælu. Bankastjórar hlutu
guðlegt vald og ákváðu hveijir hlytu
biessun Mammons og hveijir ekki.
Á þessum dýrðardögum urðu margir
fokríkir og enn fleiri misstu aleig-
una.
Eftirstöðvar þessa blómaskeiðs
sjást í fjölbreyttum, ofvöxnum íbúð-
arbyggingum um allt land, fiski-
skipaflota, frystihúsum og iðnaðar-
mannvirkjum sem sóma hvaða stór-
veldi sem er ásamt glæsilegum fisk-
eldisköstulum og lítt notuðum orku-
verum til fjalla sem eru villugjörnum
og göngumóðum ferðamönnum til
mikillar hjálpar við að rata um land-
ið.
Dapurlegur hrunadans
Það er dauft yfir landsmönnum
þessa fallegu vordaga. Atvinnumál
eru í lamasessi, heilu byggðarlögin
í sárum, blekbóndinn mikli frá Lax-
nesi er hættur búskap, nú eru ekki
lengur skrifuð bréf til Láru, inn-
heimtulögfræðingar standa blóðugir
uppfyrir haus við að höggva ekkjur,
einstæðar mæður, húsbyggjendur
og athafnamenn, eiturlyfjabarónar
dafna vel, frumkvöðlar og vísinda-
menn yfirgefa landið í hópum.
Klósettveggjabókmenntir piýða
nú litskrúðug tímarit og mannorðs-
morðingjar og klámhundar leika þar
lausum hala, sjónvarpsstöðvarnar
hafa á boðstólum mikið úrval af
glæpaefni og Morgunblaðs-Sigmund
gerir sitt besta við að ræna stjórn-
málamenn ærunni. Fiskistofnarnir
eru að verða uppveiddir og þúsundir
ungmenna í framhaldsnámi sjá fram
á algjört svartnætti í atvinnumálum.
Jæja Davíð, nú er komið tækifæri
fyrir þig að sýna að þú sért verðug-
ur eftirmaður Ólafs og Bjarna og
markir nýja stefnu fyrir land og lýð.
Forystusauðir
Tii er einkennileg manngerð sem
velur sér það hlutskipti að kanna
ókunn lönd, feta ótroðnar slóðir,
framkvæma það sem aðrir töldu
ófært, láta drauma verða að verú-
leika. Náttúra og eðli þessara manna
er með þeim ólíkindum að þeir láta
oft jarðnesk gæði víkja fyrir köllun
sinni. Þeir sem skipa þennan flokk
eru m.a. uppfinningamenn, frum-
kvöðlar í félags- og trúmálum, frum-
heijar í atvinnulífi, skáld og lista-
menn.
Hjá erlendum menningarþjóðum
er allt gert til að greiða götu slíkra
manna enda fer velmegun þjóða að
miklu leyti eftir því hversu vel þeim
tekst til. Áður fyrr þegar gróður var
blómlegri en nú er þótti hæfa að
brenna þetta fólk, nú er reynt að
þaga það í hel.
Islendingar eru í eðli sínu róttæk
menningar- og hugvitsþjóð sbr. dá-
læti okkar á skáldskap, skák, bridds,
tölvutækni og jarðfræði.
Upplýsingaöldin er gengin í garð
og þekkingar- og skemmtimiðlun á
Ellert Ólafsson.
eftir að verða stærsti atvinnuvegur
heimsins. Kenna þarf landsmönnum
að líta á heiminn sem eitt markaðs-
svæði og láta af hinni innhverfu
heimsmynd kotbóndans. Tónlistar-
menn, auglýsingateiknarar, hönn-
uðir, uppfinningamenn og aðrir
skapandi menn eiga að leggja aðalá-
hersluna á erlendan markað og
stjórnvöld verða að taka virkan þátt
í þeirri baráttu.
Því má samt aldrei gleyma að það
sem gleður og styrkir mannsálina á
stuttum lífsferli er einlæg trú og
gagnkvæm ást og virðing á sam-
ferðafólki. Til þess að ná þessu
markmiði þarf að bæta menntun og
kjör presta og barnaskólakennara
og stuðla að ýmiskonar mannbæt-
andi félagsstarfsemi. Prestarnir
verða að láta af þessu eilífa sífri og
leiðigjarna halelújakvaki og fara að
tala mannamál, ganga á meðal fólks
og hafa skoðun á siðfræðilega um-
deildum málum svo sem klámi,
launa- og félagslegu misrétti, vímu-
efnum og íjölskyldumálum.
Alþjóðlegt samstarf þarf að stór-
auka og leggja meiri áherslu á
tungumálakennslu. Því miður fara
tengsl okkar við hinar norrænu
frændþjóðir minnkandi en það stafar
af óhóflegri dönskukennslu, en það
mál geta Islendingar ekki lært þrátt
fyrir 6-8 ára nám. Með því að kenna
norsku í stað dönsku væri hægt að
leysa þann Gordíonshnút.
Sjávarbúskapur við ísland er
framtíðardraumur
Fyrir nokkrum áratugum tókst
vísindamönnum að búa til með erfða-
fræðilegum aðferðum nýjar tegundir
af hveiti og hrísgtjónum. Þessi
græna bylting færði akursvæði jarð-
ar verulega til norðurs og uppskeran
í Mexíkó og Indlandi margfaldaðist.
Nú er svo'komið að akurlendi jarð-
ar sem er aðeins ‘/10 af þurrlendinu
og 3% af yfirborði jarðar getur ekki
gefið meira af sér en mannkyninu
ijölgar með ógnvekjandi hraða. Á
árabilinu 1995-2025 er gert ráð
fyrir að jarðarbúum fjölgi um 2,6
milljarða sem er sama tala og íbúar
jarðar voru árið 1950.
Aukin matvælaframleiðsla úr haf-
inu sem þekur 71% af yfirborði jarð-
ar er nú álitin vænlegasta leiðin til
að bjarga mannkyninu frá hungurv-
ofunni.
Sjórinn í kringum ísland er eitt
fijósamasta hafsvæði heimsins og
fiskistofnarnir við landið lifa flestir
allt sitt líf á íslenska landgrunninu.
Hafsvæðið sem afmarkast af land-
grunninu er því í raun risavaxið
fiskabúr, þar sem okkar nytjafiskur
dvelur allt sitt líf. Með því að breyta
sjávarútveginum úr háþróaðri rán-
yrkju í vísindalegan sjávarbúskap
væri hægt að margfalda aflann og
gera útgerð og fiskvinnslu að arð-
bærum og vaxandi atvinnugreinum.
Meðalstór árgangur af 3ja ára
þorski er aðeins um 150 milljón fisk-
ar en það er svipuð tala og hrogna-
ijöldinn í 15-20 fiskum. Með því
að klekja út t.d. 1 milljarð þorsk-
hrogna á ári og ala lirfurnar og seið-
in í nokkra mánuði og sleppa þeim
síðan í hafið væri hægt að auka
Styðjum við bakið á þeim,
Þau eru á
okkar vegum.
+
Rauöi kross íslands
Rauðarárstíg 18,105 Reykjavík, sími 91-626722
Sendifulltrúar Rauða krossins á neyðarsvæðum eru oft síðasta
von hinna varnarlausu. Þeir hafa bjargað milljónum mannslífa
um víða veröld.Við íslendingar höfum lagt okkar að mörkum í
því mannúðarstarfi. En betur má ef duga skal.
Á sjötta tug íslenskra sendifulltrúa úr mörgum starfsgreinum
hafa starfað á vegum Rauða krossins í 30 löndum á undan-
förnum árum. Þeir njóta virðingar og eru eftirsóttir vegna
víðtækrar reynslu, útsjónarsemi og dugnaðar - mannkosta sem
nýtast vel þar sem allt er í hers höndum.
Taktu þátt í mannúðarstarfínu með okkur og greiddu
gíróseðillnn í næsta banka eða pósthúsi.
Framlag þitt hjálpar þeim.