Morgunblaðið - 03.05.1994, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
23
Sjávarútvegur
Tæplega 89 milljóna
tap af Faxamjöli hf.
Allt lagðist á eitt um að gera afkomuna afleita, sagði Árni Vilhjálms-
son, stjórnarformaður Granda hf.
TAP FAXAMJÖLS hf., dótturfélags Granda hf., nam um 88,9 milljón-
um króna á sl. ári og var bókfært eigið fé félagsins í árslok orðið
neikvætt um 8,6 milljónir. Hlutdeild Granda í tapi dótturfélagsins
var 68,4 milljónir. Arni Vilhjálmsson, stjórnarformaður Granda sagði
á aðalfundi félagsins á föstudag að allt hefði lagst á eitt um að
gera afkomuna afleita, bæði óviðráðanleg ytri atvik og mannleg
mistök.
„Af ytri atvikum eru þessi helst,“
sagði Arni Vilhjálmsson. „í fyrsta
lagi lágt afurðaverð, sérstaklega á
mjöli, sem var hið lægsta í dollurum
talið síðan árið 1987. í öðru lagi
urðum við fyrir skelli af völdum
gengisbreytingarinnar í lok júní.
Og síðast en ekki síst er um að
kenna afhendingardrætti erlends
viðsemjanda á deiligír í skip félags-
ins, Faxa. Þær vanefndir urðu til
þess, að Faxi var úr leik við loðnu-
veiðarnar í júlí og ágúst. Ætla má
að skipið hafi af þessum sökum
orðið af allt að 8.000 tonna afla sem
hefði gert um 35 m.kr. í tekjur og
þá um 14-17 m.kr. upp í fastan
kostnað.
Af misráðnum ákvörðunum
stjórnenda Faxamjöls er sú helst
að hafa tekið verksmiðjuna að Kletti
á leigu á loðnuvertíðinni seinni hluta
vetrar 1993. Eins og flestum fund-
armanna mun kunnugt seldi Faxa-
mjöl Reykjavíkurborg verksmiðjuna
vorið 1991. Við tókum verksmiðj-
una svo á leigu yfir vorvertíðina
1992 og rákum hana með lítilshátt-
ar, en óvæntum halla. Tapið á
rekstri verksmiðjunnar varð svo
miklu hærra í fyrra. Er þar sérstak-
lega tvennu um að kenna. Verk-
smiðjan var orðin í miklu verra
ástandi en við höfðum talið okkur
trú um. Það kom fram í afar lé-
Philips
Hagnaður
vegna betrí
fjármála-
stjórnar
legri nýtingu hráefnis. Hitt var
það, að við höfðum gerst þátttak-
endur í stofnun ísmjöls hf., fyrir-
tækis sem ætlað var að ryðja nýja
braut við sölu á mjöli með því að
fara framhjá hefðbundnum millilið-
um framleiðenda og endanlegra
notenda. Við vorum þarna í góðum
félagsskap með 3 af stærstu mjöl-
framleiðendum landsins. Það er
skemmst af að segja, að þessi til-
raun mistókst hrapallega. Mjölið
seldist bæði seint og illa. Enn önnur
ástæða ófara fyrirtækisins, sem við,
fulltrúar Granda hf. í stjórn Faxa-
mjöls, getum kennt okkur um, er
sú að hafa dregið úr hömlu að hafa
knúið meðstjórnendur okkar, full-
trúa Lýsis hf. og Frosts hf. til að
taka með okkur þátt í fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækisins.
Dráttur á sllkri aðgerð varð til þess
að fyrirtækið sá af allt of mörgum
krónum í dráttarvexti vegna van-
skila.“
Árni rakti í ræðu sinni samskipti
fulltrúa Granda við meðeigendur
SUMARTÍMI:
1. maí
til
31. ágúst
kl. 800 - 1600
Amsterdam. Reuter.
BÚIST er við að Philips-fyrir-
tækið tilkynni um hagnað upp á
63-200% á miðvikudag, er rekstr-
artölur fyrir fyrsta ársfjórðung-
inn verða gefnar upp. Er það
fremur þakkað góðri fjármála-
stjórn en aukinni sölu.
Sérfræðingar á hlutabréfamark-
aði segja að átak til að draga úr
skuldum muni ekki hafa áhrif allt
þetta ár, en á síðari hluta ársins
muni bætt efnahagsástand í Evrópu
ýta undir hagnað hjá fyrirtækinu.
Giska þeir á að hagnaður á fyrsta
ársfjórðungi verði allt frá 165 millj-
ónum gyllina til 300 milljóna en
hann var 103 milljónir gyllina á
fyrsta ársfjórðungi 1993.
Lýsing hf.
SUÐURIANDSBRAUT 22
SÍMI 689050 • FAX 812929
félagsins í Faxamjöli í tengslum við
þá ákvörðun sl. sumar að lækka
nafnverð hlutabréfa um 90% og
hækka hlutaféð að því búnu um 80
m.kr. með sölu á nafnverði. Á hlut-
hafafundi hinn 28. desember sem
samþykkti þessar aðgerðir brugðust
meðeigendur Granda við með því
að kynna stefnu þar sem Grandi
var krafinn um 105 m.kr. í skaða-
bætur vegna fjárhagslegs ofríkis
sem þeir hefðu verið beittir. Hinn
14. apríl lagði lögfræðingur Granda
fram greinargerð sína fyrir héraðs-
dóm ásamt með skýrslu fulltrúa
Granda um allt málið.
Hlutafjáraukningin fór fram ílok
janúar og stóð Grandi þar einn að
verki en af 80 m.kr. hlutafjárfram-
lagi voru rúmlega 50 m.kr. greiddar
með skuldajöfnuði. Grandi á nú 96%
hlutafjárins. Hefur reksturinn
gengið ágætlega það sem af er ár-
inu og er aflaverðmæti Faxa nú
orðið 73 milljónir sem er svipað
aflaverðmæti alls ársins í fyrra.
0RACLE kynningar
Hótel Loftleiðum, bíósal
4. og 5. maí.
Oracle - Cooperative Senver Technology
4. maí kl. 13:30 - 16:30
Dreifð upplýsingakerfi
Oracle7 högun
Oracle7 eiginleikar
Oracle7 valmöguleikar
Nýir eiginleikar í Oracle7, útgáfu 7.1
Almennar umræður og fyrirspurnir
5. maí kl. 10:00 - 11:45
• Nýir eiginleikar í Oracle7, útgáfu 7.1
• SQL*NetV2
• Open Gateway Technology
• Almennar umræður og fyrirspurnir
Dagskráin er sjálfstæð hvorn dag
Kynningin fer fram á ensku undir leiðsögn
Henrik Andersen frá Oracle DanmarkA/S.
Þátttaka er ókeypis og óskast tilkynnt í síma 623088
sem allra fyrst.
ORACL6
ORACLE ísland Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími 91-618131 Fax 91-628131
Frábært!
Verð kr.
Litir: Hvítur og blár.
Stærdir: 23-30
Litur: Marglitir
Stærdir: 22-30
I* 0 S T S i: \ I) l M S A M D i: V l U S • % S T A D<; R E I I) S L l A F S 1. Á T T I K
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN j?
To p p s k ó i
VEUUSUNDI
ni n
VIUUSUNDI V/ING01FST0RG
SINII 2121?
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN ^
simi os°r i.’