Morgunblaðið - 03.05.1994, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
27
Reuter
Vilja aftur Stalín!
KOMMÚNISTAR í Moskvu héldu upp á 1. maí og mættu um 15
þúsund þeirra á Októbertorginu. Héldu sumir á myndum af einræðis-
herranum Jósef Stalín og hrópuðu slagorð um ágæti hans.
Fómarlömbum flugslyssins 1 Japan fjölgar
Vélin kom of hátt
inn til lendingar
Tókýó. Reuter.
TALIÐ er að þota tævanska flugfélagsins, sem brotlenti á Nago-
ya-flugvelli í Japan í síðustu viku, hafi komið of hátt inn til
lendingar á vellinum. Af flugritanum er ljóst að 26 ára gamall
aðstoðarflugmaður vélarinnar, Airbus A300-600R, flaug henni
þar til nokkrum sekúndum fyrir slysið en þá tók flugstjórinn við.
Rannsóknarmenn frá japanska
samgöngumálaráðuneytinu sögðu
um helgina að upptökur úr stjórn-
klefa þotunnar hefðu leitt í ljós
að er flugstjóranum varð ljóst að
aðstoðarflugmaðurinn hefði komið
of hátt inn í aðfluginu hefði hann
skipað honum að stilla stjórntækin
til fráhvarfsflugs. Á upptökunni
heyrist aðstoðarflugmaðurinn
segja að hann geti ekki ýtt á takk-
ann og tók þá flugstjórinn við.
Hann náði ekki tökum á þotunni,
virðist hafa reist hana of bratt upp
með þeim afleiðingum að loft
streymdi ekki eðlilega inn í hreyf-
lana svo að drapst á þeim. Féll
þotan niður á hægri vænginn og
rákust hann og stélið samtímis í
flugbrautina. Við það urðu þrjár
sprengingar í vélinni.
21 árs maður frá Filippseyjum,
sem var farþegi í vélinni, lést á
spítala um helgina og er tala lát-
inna nú komin upp í 264. Aðeins
sjö manns lifðu slysið af.
Danir leita
að lækna-
stúdentum
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt-
ur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Danskir háskólar hyggjast í
haust bjóða litlum hópi stúdenta
upp á læknanám á ensku.
Kennslan fer fram á ensku til
að laða að erlenda stúdenta, einkum
frá Bandaríkjunum og Bretlandi. Í
báðum þessum löndum fara fram
miklar rannsóknir í læknisfræði,
sem danskir stúdentar eiga ógreið-
an aðgang að, þar sem þeim reyn-
ist erfitt að fá skólapláss þar.
Breskir háskólar hafa nánast tekið
fyrir læknanám danskra stúdenta
því næstum engir enskir stúdentar
stunda læknanám í Danmörku.
Hátíðarhöldum 1. maí á Kúbu aflýst vegna neyðarástands í efnahagsmálum
Boða minni niðurgreiðslur
og afnám ókeypis þjónustu
Havanna. Reuter.
STJÓRNVÖLD á Kúbu aflýstu hátíðarhöldum á 1. maí, baráttu-
degi verkalýðsins, vegna neyðarástands í efnahagsmálum lands-
ins. Þess í stað var boðað til skyndifundar í þinginu til að ræða
óhjákvæmilegar aðgerðir, aðhald í peningamálum, verðhækkanir
og lækkun niðurgreiðslna. Fidel Kastró, forseti Kúbu, sagði í
gær, að ekki dygði að taka neinum vettlingatökum á því „krabba-
meini“, sem væri allt of mikið af peningum í umferð.
I fyrsta sinn frá því kommúnist-
ar tóku völdin á Kúbu 1959 leið
1. maí án þess hundruð þúsunda
manna tækju þátt í hátíðarhöldum
í Havanna en embættismenn
Kastrós sögðu, að þau væru mun-
aður, sem landsmenn hefðu ekki
efni á. Með hruni Sovétríkjanna
hvarf einnig milljarða dollara
stuðningur Moskvustjórnarinnar
og nú glíma Kúbveijar, 11 milljón-
ir talsins, við skort á öllum sviðum.
Granma, málgagn kommún-
istaflokksins, skýrði frá því í
fyrradag, að meðal hugsanlegra
aðgerða væru verðhækkanir; af-
nám eða gjaldtaka fyrir ýmsa
þjónustu, sem hefur verið ókeypis;
upptaka skattkerfis og minni nið-
urgreiðslur eða styrkir til ríkisfyr-
irtækja. Fyrir tæpum hálfum
mánuði var tilkynnt, að opinberum
starfsmönnum á Kúbu yrði fækk-
að skipulega og fjöldinn allur af
efnahagsnefndum lagður niður.
„Holl lexía“
Á skyndifundi þingsins í gær
sagði Jose Luis Rodriquez, fjár-
málaráðherra Kúbu, að líklega
yrði verð á tóbaki, áfengi og bens-
íni hækkað og sú nýbreytni tekin
upp á Kúbu að krefjast gjalds
fyrir rafmagnið samkvæmt notk-
un. Þá mætti búast við, að sím-
reikningar hækkuðu og matar-
kostnaður í mötuneytum og
Rodriquez sagði það geta orðið
„holla lexíu“ öðrum en fátækasta
fólkinu að afnema ókeypis skóla-
máltíðir.
ERLENT
„Hér dugir engin hálfvelgja.
Við verðum að stíga skrefið til
fulls og tryggja, að peningarnir
séu einhvers virði,“ sagði Kastró
Kúbuforseti á þinginu í gær. Sagði
hann, að það þyrfti „pólitískt hug-
rekki“ til að ráðast gegn efna-
hagsvandanum, sem fælist meðal
annars í því „krabbameini", sem
væri allt of mikið peningamagn í
umferð. Opinbert gengi á pesón-
um á móti dollara er einn á móti
einum en á svarta markaðnum er
gengið hins vegar einn á móti
100. Mikið er af dollurum í um-
ferð á Kúbu en þeir fara hins
vegar alveg framhjá bankakerf-
inu. Til að ná til þeirra og annars
erlends gjaldeyris eru hugmyndir
uppi um að gefa út sérstakan
pesó, sem yrði skiptanlegur eða
bundinn gengi dollara.
S-Kóreu-
her við
öllu búinn
KIM Young-sam, forseti S-
Kóreu, skipaði í gær her landsins
að vera við öllu búinn vegna
óvenjulegra heræfmga N-Kóreu-
manna undanfarna daga. Lögðu
S-Kóreumenn þó áherslu á að
þeir teldu heræfmgarnar ekki
merki um að Norðanmenn hygg-
ist ráðast á Suður-Kóreu.
Hvirfilbylur í
Bangladesh
DJÚPUR hvirfílbylur með miklu
hvassviðri og rigningu gekk inn
yfir strönd Bangladesh í gær-
kvöldi. Óttast var að flóðbylgja
kynni að valda miklu tjóni.
Polisario sam-
þykkir þjóð-
aratkvæði
SKÆRULIÐAR í Vestur-
Sahara, Polisario-hreyfingin,
hafa samþykkt áætlun Samein-
uðu þjóðanna (SÞ) um þjóðarat-
kvæðagreiðslu um framtíð svæð-
isins, að sögn talsmanns SÞ.
Polisario átti í 15 ára stríði við
Marokkó um yfírráð yfír Vestur-
Sahara, en fyrir þremur árum
var samið um vopnahlé, sem
hefur verið haldið síðan.
ísraelar efast
um Christopher
AÐSTOÐAR-
RÁÐHERRA
Yitzhak Rab-
ins, forsætis-
ráðherra
ísraels, sagði
í gær að
Warren Chri-
stopher, ut-
anríkisráð-
herra Banda-
ríkjanna hefði ekki tekist að
koma neinu áleiðis í friðarsamn-
ingum Israela og Sýrlendinga.
Christopher hafí áður lýst því
yfír við komuna til Israel frá
Sýrlandi, að samningaviðræð
urnar væru komnar á nýtt stig
og farnar að snúast um efnisat-
riði.
28 farast í
rútuslysi
AÐ MINNSTA kosti 28 manns
fórust þegar rútu var ekið á tré
í grennd við Gdansk í Póllandi
í gær. Farþegarnir voru á leið
til borgarinnar úr helgarleyfi í
þorpinu Zawory. Þetta er
mannskæðasta slysið í Póllandi
í áratugi, að sögn pólsku lögregl-
unnar.
Christopher
Kynningartilboð til
Benidorm 1. júní
- Aðeins kr. 39.900 í 3 vikur -
Glæsilegt kynningartilboð á nýjan gististað Heimsferða
á Benidorm í sumar. í tilefni þess að við bjóðum nú í
fyrsta sinn þennan gististað, bjóða hóteleigendur okkur
sértilboð fyrir farþega okkar í fyrstu ferðina, þann 1. júní
í 3 vikur. Aðeins 8 íbúðir eru í boði. Bókaðu því strax og
tryggðu þér sæti meðan enn er laust.
Verð kr. 39.900
Verð pr. mann m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára.
Verð kr. 49.900
Verð pr. mann m.v. 2 í ibúð.
Flugvallaskattar:
Kr. 3.660 fyrir fullorðna,
kr. 2.405 fyrir böm
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17 Sími 624600
TISKUVERSLUN
Kringlunni
25% afsláttur
af kápum og úlpum
í dag