Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
BQ býst l'idod þú hjCi-fir' h.c!ci(jr fkk'<
dýu/go- ó- garfetn-t-ti/• tfh.t >.(. /
Með
morgunkaffíriu
ætla að sækja þá svo við get.um
verið í stíl
*
Ast er...
... að trufla hana EKKI
meðan hún horfir á uppá~
halds sjónvarpsþáttinn.
TM R«g. U.S Pat Otl.—all rights reservod
® 1993 Los Angeles Times Syndicate
HÖGNI HREKKVÍSI
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Sjónvarpið - Plága
nútímamannsins
Frá Ólafi Ormssyni:
FJÖLMIÐLAR eru fyrirferðarmikl-
ir í nútímaþjóðfélagi. Sérstaklega
á það við um sjónvarpið og er nú
svo komið að Islendingar hafa ekki
einungis um að velja tvær sjón-
varpsstöðvar, Ríkissjónvarpið og
Stöð 2, heldur einnig ótal stöðvar
í gegnum getvihnattasjónvarp.
Með auknu framboði vex lág-
kúran, siðleysið, innihaldsleysið og
sá gerviheimur sem sjónvarpsrás-
irnar eru flestar fulltrúar fyrir
þrengir sér inn í líf nútímafólks í
auknum mæli.
Við þessari þróun hafa margir
varað í ræðu og riti og nú síðast
Jóhannes Páll páfi sem fór hörðum
orðum um sjónvarpið fyrr á þessu
ári og sagði það vera beina ógnun
við heilbrigt íjölskyldulíf. Þar væri
ofbeldi og kyniíf í hávegum haft
og áróður rekinn fyrir röngum lífs-
gildum. Jóhannes Páll páfi skoraði
á foreldra að „slökkva einfaldlega
á tækinu“. Hann var harðorður í
ræðu er hann hélt um sjónvarpið
og fordæmdi foreldra sem notuðu
sjónvarpið sem eins konar barn-
fóstru.
Ofbeldi er ótrúlega fyrirferðar-
mikið í dagskrá sjónvarpsstöðv-
anna og Stöð 2 hefur t.d. gert of-
beldismyndir að sérstakri dægra-
styttingu áskrifenda stöðvarinnar
um helgar. Þar á bæ er engin helgi
án þes að byssu eða hníf sé brugð-
ið á loft og hópur manna liggi í
valnum. Frá föstudagskvöldi til
aðfaranætur mánudags birtast á
Stöð 2 á annan tug ofbeldismynda,
flestar úr smiðju þeirra í Holly-
wood.
Auðvitað er ofbeldi einnig að
finna í kvikmyndum í Ríkissjón-
varpinu og reyndar óþarflega fyrir-
ferðarmikið í bíómyndum um helg-
ar. Stöð 2 gengur þó að mínu áliti
feti framar í dekri sínu við framleið-
endur ofbeldismynda og leitar þá
jafnvel uppi til að seðja hungur
áskrifenda sinna í slíkt efni.
Það er sannarlega full ástæða
til að vara við ofbeldi í sjónvarpi
þar spm það er sannað að það hef-
ur beinlínis haft skaðleg áhrif á
ungt fólk í hinum vestræna heimi.
Og eins og við höfum ekki nóg
af hryllingnum, ofbeldinu og
skepnuskapnum í fréttum sjón-
varpsstöðvanna daglega. Er ekki
rétt að hvíla sjónvarpsáhorfendur
yfir helgar? Leyfa þeim að njóta
klassískra meistaraverka kvik-
myndasögunnar eða að reyna að
koma með frambærilega skemmti-
þætti. Þeir Spaugstofumenn eru
önnum kafnir við leikhúsin. Hemmi
Gunn stendur auðvitað alltaf fyrir
sínu en auðvitað má auka fjöl-
breytnina. Mikil er ábyrgð þeirra
manna sem velja ofbeldismyndir á
dagskrá sjónvarpsstöðvanna,
gagnvart uppvaxandi kynslóð. Þá
ekki síður framleiðenda. Afþrey-
ingariðnaðurinn er undirlagður fá-
tækt þegar kemur að vönduðu
uppbyggjandi efni fyrir sjónvarp.
Af])reyingariðnaðurinn vill greini-
lega ekki kannast við fagurt mann-
líf og virðist aldrei hafa heyrt get-
ið um kærleikann og boðskap
Krists og það ætlunarverk hans
að frelsa manninn frá hinu illa.
Afþreyingariðnaðurinn með lág-
kúruna að leiðarljósi hefur hertek-
ið sjónvarpið og sleppir ekki svo
gjarnan takinu.
Valið er auðvelt. Það er svo ótal
margt fremra sjónvarpinu eins og
það birtist hér á íslandi og víðast
hvar um heiminn. T.d. bók, góð
leiksýning, mannleg samskipti,
þátttaka í uppbyggilegu starfi sem
þroskar manninn, útivist, náttúru-
skoðun, heilsurækt. Sú stöðuga
mötun og innræting sem fram fer
í sjónvarpi nútímans í þeim til-
gangi að sundra heilbrigðu fjöl-
skyldulífi og koma í veg fyrir
mannleg samskipti kemur fyrst og
fremst niður á uppvaxandi kyn-
slóð. Hinir eldri og lífsreyndari
verða ef til vill ekki svo auðveld-
lega blekktir með lágkúru nútíma-
sjónvarpsefnis, plágu nútíma-
mannsins.
ÓLAFUR ORMSSON,
rithöfundur,
Eskihlíð 16a,
Reykjavík.
Gagnasafn
Morgnnblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsingasafni
þess. Morgunblaðið áskilur sér
rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu
eða á annan hátt. Þeir sem af-
henda blaðinu efni til birtingar
teljast samþykkja þetta, ef ekki
fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Opið bréf til Magnúsar
Skarphéðinssonar
Frá Predrag Dokic:
Magnús, vinur.
„ímyndið ykkur, lesendur góðir,
að ykkur væri kippt þriggja til sex
ára gömlum úr faðmi fjölskyldu ykk-
ar af einhverri annarri dýrategund
en okkar og rneð ykkur farið út
í Morgunblaðinu fimmtudaginn
17. febrúar sá ég þetta haft eftir
þér. Þar grætur þú örlög hvala. Mér
finnst rétt að minna þig á að ná-
kvæmlega svona gerðu Tyrkir við
Serba með hjálp bosnískra múslima
á sínum tíma. Þeir ruddust um sveit-
ir Serba, „kipptu" serbneskum svein-
börnum, sex ára gömlum, úr faðmi
fjölskyldunnar, fluttu burt til Tyrk-
lands og gerðu úr þeim tyrkneska
hermenn (fallbyssufóður). Eftir það
fengu þau ekki að hitta neina aðra
mennska manneskju.
Þú ert sagnfræðinemi, er það
ekki? Semi slíkur ættir þú að vita
um örlög Serba meðal Tyrkja og
bosnískra múslima — sem voru verri
en Tyrkir. Þú og margir landar þín-
ir vitið einfaldlega ekki neitt um
sögu Serba eða Balkanskaga, og
bakgrunn átakanna á þeim slóðum,
en samt viljið þið dæma og fordæma.
PREDRAG DOKIC,
bílstjóri.
„þETTA. ER. STF-lMI FF.Á F‘(SKf5ÚF> FJÓt.'WJMPAR.''
Víkveiji skrifar
Isunnudagsblaði Morgunblaðsins
er frá því skýrt, að lækkun á
verði bjórs frá ÁTVR hafi ekki skil-
að sér nema að takmörkuðu leyti
til neytenda. Bjórtegundir, sem hafi
lækkað um rúmlega 5% hjá ÁTVR
hafi ekki lækkað nema um 1% að
meðaltali' hjá veitingahúsum.
Þetta er ein af ástæðunum fyrir
því, að íslenzkir neytendur eru svo
tortryggnir í garð viðskiptaaðila,
sem raun ber vitni. Dæmin eru of
mörg um það, að lækkun á vöru-
verði skilar sér ekki til neytenda.
Viðskiptaaðilar skáka Þm of í því
skjóli, að við búum hér í einangrun
langt norður í Atlantshafi og sam-
keppni er lítil og samráð stundum
meira en það virðist vera á yfirborð-
inu.
Ferðamannaþjónusta er ein fárra
atvinnugreina, sem hafa verið í
vexti hér á undanförnum árum.
Hins vegar er alkunna að ferða-
menn kvarta undan háu verði m.a.
á veitingahúsum. Hvers vegna- f
ósköpunum nota veitingahúsin ekki
tækifærið til að lækka verð á vöru
eins og bjór í þessu tilviki, þegar
innkaupsverð lækkar?
xxx
Mörgum þykir Framsóknar-
flokkurinn hafa breytt
snögglega um svip nú fyrir helgina,
þegar formannsskipti fóru fram. I
viðtali, sem Morgunblaðið birti sl.
laugardag við Halldór Ásgrímsson,
formann Framsóknarflokksins og í
ræðu, sem hann hélt á miðstjórnar-
fundi flokksins sl. föstudag komu
fram athyglisverð ný sjónarmið í
atvinnumálum, sem lofa góðu.
Hins vegar er það ótrúleg bjart-
sýni hjá hinum nýja formanni Fram-
sóknarflokksins að halda, að Islend-
ingar hafi möguleika á að hafa
áheyrnarfulltrúa hjá Evrópusam-
bandinu meira að segja með mál-
frelsi! Hvernig dettur formanni í
stjórnmálaflokki, með tveggja ára-
tuga reynslu í stjórnmálum í hug
að láta svona hugmyndir frá sér?
xxx
Fréttir um slys á vélsleðum eru
að verða of tíðar. Á undanförn-
um árum hefur hálendi Íslands opn-
ast til ferðalaga að vetri til með
stórkostlegum hætti. Yfirleitt fara
menn á vélsleðum eða sérstaklega
útbúnum jeppum. Vetrarferðir um
hálendið eru að verða eftirsóttar
hjá erlendum ferðamönnum.
En hætturnar eru augljósar.
Menn þeytast um á vélsleðum en
gæta ekki að sér. Það er tímabært
að hefja umræður um það, hvernig
hægt er að koma í veg fyrir tíð
slys á vélsleðum, í sumum tilvikum
dauðaslys. Hvaða kröfur eru gerðar
til leiðsögumanna í þessum ferðum?
Hvaða aðvaranir fær óvant fólk
áður en það Ieggur af stað á vélsleð-
um o.s.frv.