Morgunblaðið - 03.05.1994, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
53
Sagði mig úr Blindrafélaginu
Frá Arnþóri Helgasyni:
HINN 11. þessa mánaðar sagði ég
mig úr Blindrafélaginu, samtökum
blindra og sjónskertra á Islandi. Eg
gekk í félagið árið 1969. Ég var
varaformaður þess á árunum 1972-
1977, formaður æskulýðsnefndar
1979-1983 og fulltrúi þess í stjórn
Öryrkjabandalags íslands frá 1982.
Formaður Öryrkjabandalagsins var
ég árin 1986-1993. Þar að auki sótti
ég fjölda erlendra ráðstefna fyrir
félagið og bandalagið og sinnti ýms-
um störfum öðrum í þágu félagsins.
Ástæður úrsagnarinnar voru þær
að sumarið 1990 fór Halldór S. Rafn-
ar, framkvæmdastjóri Blindrafélags-
ins, þess á leit við mig að ég gæfi
kost á mér til stöðu framkvæmda-
stjóra Blindrafélagsins en hann
hugðist láta af störfum fyrir aldurs
sakir um áramótin 1992-1993. Ég
var tregur til að játa þessu en lét
þó til leiðast að lokum. Afsögn Hall-
dórs dróst síðan á langinn og hann
sagði starfi sínu ekki lausu fyrr en
hann gerði um síðustu áramót samn-
ing um starfslok sín við Blindrafélag-
ið sem taka skyldu gildi 1. júlí næst-
komandi. Það var gert að mínu frum-
kvæði.
í marsmánuði auglýsti stjóm
Táknrænar blöðrur
Frá Jórunni Friðjónsdóttur:
Á SUMARDAGINN fyrsta ók ég
ásamt fjölskyldu minni niður Lauga-
veginn, sem varla telst í frásögur
færandi. Þá blasti við mér mikil sýn
og táknræn. Skrautlegar og upp-
blásnar blöðrur höfðu verið hengdar
upp, utan við skrifstofur hins svokall-
aða Reykjavíkurlista. Þetta var vel
viðeigandi sem vörumerki framboðs-
ins; skraut, fyrirferð — en ekkert
innihald.
Sigrún svíkur kosningaloforð
Þetta vörumerki er mjög í sam-
ræmi við þann málatilbúnað sem for-
ingi R-listans Sigrún Magnúsdóttir
viðhefur í ræðum og riti um þessar
mundir. Þó leitað sé með logandi Ijósi
finnst tæplega nokkurs staðar staf-
krókur frá hennar hálfu um þau
stefnuatriði sem sambræðingur
vinstri flokkanna vill leggja áherslu
á. Hvernig vill hún taka á þeim verk-
efnum sem við blasa í borginni?
Hvernig á að fjármagna þau? Og
hvernig hyggst hún lækka skuldir
Reykjavíkurborgar sem hún talar um
að séu of miklar, svo fráleitt sem
það nú annars er?
Um þetta fjallar leiðtogi R-listans
varla nokkuð, fremur en annað það
sem viðkemur málefnum. Hún hefur
kérhæft sig í neikvæðum málflutn-
ingi. Þar með hefur hún svikið kosn-
ingaloforðið sem talsmenn R-listans
gáfu Reykvíkingum í upphafi, um
að heyja jákvæða og málefnalega
kosningabaráttu.
Skotgrafahernaður
Maður hlýtur að spyrja hvort þetta
sé boðleg frammistaða hjá þeim sem
leiðir heilan framboðslista. Þær ein-
földu og sjálfsögðu kröfur hljóta
Reykvíkingar að gera til sjálfs for-
ingja R-listans að spurningum af
þessu tagi sé svarað með trúverðug-
um og marktækum hætti. Skotgrafa-
hernaður, eins og sá er Sigrún Magn-
úsdóttir ástundar, er þess vegna afar
aumt framlag af hennar hálfu til
kosningabaráttunnar.
Það er staðreynd að þessi borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins hefur
einbeitt sér að neikvæðum niðurrifs-
málflutningi sem ekkert á skylt við
málefnalega umræðu. Slíkur mál-
flutningur dæmir sig þó sjálfur og
er um leið lýsandi fyrir þá skínandi
málefnafátækt sem greinilega hijáir
R-listann. Um leið er okkur veitt
óvænt innsýn í þann hugarheim sem
Sigrún Magnúsdóttir lifir bersýnilega
og hrærist í. Sú sýn segir fleira en
mörg orð og hvetur tæpast nokkurn
mann til fylgis til samsuðu vinstri
aflanna.
JÓRUNN FRIÐJÓNSDÓTTIR,
verslunarmaður.
VELVAKANDI
VANTAR BARA
VILJANN
MIKIÐ mætti spara ef vilji væri
fyrir hendi hjá ráðamönnum þjóð-
arinnar. Það mætti til dæmis
fækka þingmönnum um 15 og
ráðherrum um 3 því það er óþarfi
að hafa svona marga þingmenn.
Svo væri gaman að vita hvað
mörgum milljónum hefði verið
eytt í ajtanlandsferðir, því ég held
þessi stjórn, sem situr nú, slái
met í þeim ferðum.
Einnig legg ég til að starfið á
Bessastöðum verði lagt niður
þegar frú Vigdís Finnbogadóttir
hefur lokið sínu kjörtímabili. Hún
hefur verið landi og þjóð til sóma
hvar sem hún hefur komið og
vona ég að hún geti setið áfram
sem lengst. Hún hefur lýst landi
og þjóð svo vel, hvar sem hún
hefur komið, að ég held að það
ætti að duga íslendingum og
hægt sé að leggja embættið niður
þegar hún hverfur frá störfum.
Ingimundur Sæmundsson,
Sörlaskjóli 56,
Reykjavík.
PYLSUPARTÍ
MÉR FINNST hálfpartinn að það
sé verið að koma aftan að neyt-
endum með tilboði SS á pylsum
sem boðið hefur verið upp á að
undanförnu. Yfirleitt eru 10 pyls-
ur í stórum pakkningum en ein-
ungis níu í þessu tilboði. Einnig
fylgja brauð með í tilboðinu og
er sagt að þau séu skorin, en svo
er ekki. Mér fannst rétt að vekja
athygli á þessu.
Elísabet Ley
TAPAÐ/FUNDIÐ
Ullarteppi tapaðist
GULT og hvítt heklað ullarteppi
af bamavagni tapaðist einhvers
staðar á milli Tösku- og hanska-
búðarinnar, niður Laugaveginn
og að Tjörninni. Finnandi vinsam-
lega hringi í sima 874717 eða
684941.
Gleraugu töpuðust
KVENGLERAUGU í svörtu
hulstri töpuðust fyrir rúmum
hálfum mánuði í austurbænum.
Finnandi vinsamlega hringi í síma
30485.
Týnt hjól
SVART 18 gíra karlmannsreið-
hjól af gerðinni Diamond hvarf
frá Hamraborg 26 sl. fimmtuðag.
Hafi einhver orðið var við hjólið
er hann vinsamlega beðinn að
láta vita f síma 642632. Sonja.
Leðurjakki tapaðist
BRÚNN og svartur hálfsíður leð-
utjakki nr. 48 tapaðist á Tveimur
vinum fyrir rúmum hálfum mán-
uði. Finnandi vinsamlega hringi
í síma 814241. Villi.
GÆLUDÝR
Kettlingur
SVARTUR og hvítur kassavan-
ur fresskettlingur fæst gefíns á
gott heimili. Mjög blíður og fall-
egur. Upplýsingar í síma 25859.
Blindrafélagsins stöðu framkvæmda-
stjóra þess lausa til umsóknar. Ég
skilaði inn umsókn ásamt þremur
öðrum sjónskertum einstaklingum og
tæplega 50 öðrum og var ég eftir því
sem sagnir herma talinn hæfastur
umsækjenda. Þegar ég kom til við-
tals við stjóm Blindrafélagsins hinn
5. þessa mánaðar var mér tjáð að
ráða ætti í stöðuna til þriggja ára.
Föstudaginn 8. apríl voru mér afhent
drög að ráðningarsamningi þar sem
6. liður hljóðaði upp á þriggja ára
ráðningu. Ég gaf ekki kost á viðræð-
um nema þessum lið yrði breytt í þá
veru að einstök atriði ráðningarsamn-
ings skyldu endurskoðuð að þremur
árum liðnum. Stjóm Blindrafélagsins
hafnaði þessari tillögu og endursendi
mér atvinnuumsókn mína 11. þessa
mánaðar. í framhaldi þess sagði ég
mig úr félaginu.
Ég hef tjáð formanni Öryrkja-
bandalags íslands að ég sé reiðubú-
inn að vinna að einstökum málum
fyrir Öryrkjabandalagið sem ein-
staklingur, en í stjórn bandalagsins
sit ég ekki lengur þar sem ég hef
gengið úr Blindrafélaginu og er því
án umboðs á þeim vettvangi.
ARNÞÓR HELGASON,
Tjamarbóli 14,
Seltjarnarnesi.
LEIÐRÉTTIN G AR
Yfir ekki fyrir
í dálkunum Draumalandið í sunnu-
dagsblaði urðu orðaskipti á fram-
leiðslustiginu, yfir var breytt í fyr-
ir. Sif Björnsdóttir er semsagt ekki
fyrirsæta, hún situr yfir, þ.e. gætir
listastúdíós frænku sinnar.
Setningarhlutar
féllu niður
í grein Magnúsar H. Skarphéð-
inssonar um samviskuna og páska-
lambið, sem birtist í Morgunblaðinu
sl. sunnudag, féll niður lína úr hand-
riti sem breytti merkingunni. Rétt
er setningin svona: „Og fíni Hall-
grímspresturinn kom og lauk lofs-
orði á fínu sýninguna. Og fíni lista-
maðurinn kom stoltur fram í fína
sjónvarpinu og öðrum fínu fjölmiðl-
unum og sagði frá fínu listinni sinni
og tengslum hennar við stórfínu
páskahátíðina sína.“
Eru hlutaðeigandi beðnir velvirð-
ingar.
Rangt
höfundarnafn
Morgunblaðið birti síðast liðinn
laugardag grein eftir Magnús Örn
Friðjónsson ísafirði: „Sameining
sveitarfélaga í Norður-ísafjarðar-
sýslu“. Þar var greinarhöfundur
nefndur Örn Friðjónsson í stað
Magnús Örn Friðjónsson sem rétt
er. Velvirðingar er beðist á þessum
mistökum.
Vinntngstölur 30. apríl 1994.
laogarUaginn -------------------------
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5aJ5 0 5.607.439
O Piu5i«2 Z. 4af5^ sn 612.538
3. 4al5 151 6.997
4. 3aJ5 4.959 497
HeikJarvinningsupphæð þessa viku:
9.741.147 kr.
Kynning
ÉR'
flutninga!!
seijet7<
i A Ð E / N S
\1.80a-kr
ISÖUJPLÍSSB
Vsk. leggst ofaná þessa upphæö
til þeirra sem geta notfært sér þaö til
frádráttar á vsk. skýrslum.
Á fimm ára ferli Kolaportsins hafa
u.þ.b. 20.000 manns prófaö aö selja
í Kolaportinu og flestum líkað vel
(skv. skoöanakónnun). Meö þessu
sértilboöi vill Kolaportiö hvetja hina
sem enn hafa ekki prófaö þessa
aðferð til tekjuöflunar og skemmtunar
aö láta verða af því þessa næst
síðustu helgi Kolaportsins í gamla
húsnæöinu, en Kolaportið flytur sem
kunnugt er í Tollhúsið 21. maí.
Bókanir í sima 625030
KOIAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
...undir Seölabunkanum!
JPoulsen
Suðurlandsbraut 10, sími 686499
MEÐ HALOGENLJÓSUM OG SPEGLI