Morgunblaðið - 03.05.1994, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
PFAFF
ÞAR SEM
HEIMILISTÆKIN FÁST
CANDY ÞVOTTAVÉL 14 þvottakerfi,
5 kg, 800sn.vinda og sparnaöarrofi.
CANDY ÞURRKARI. Snýst í báðar áttir.
5 kg. Tímarofi 0-120 minútur.
CANDY KÆLI/FRYSTISKÁPUR.
Kælir 225 Itr. frystir 92 Itr. MáM63x60x60
►
CANDY UPPPVOTTAVÉL Hljóölát
og sparneytin 8-12 manna, 5 kerfi
og uppþvottavél 6 manna, í einu tæki.
Upplýsingar um
umboðsaðila
hjá Gulu Ifnunni
öll verð miðast við staðgreiðslu
BORGARTUNI 20
sími 626788
\/!■ I • -VlWj:-1 /W
Elliðavatn
FÉLAGAR í SVFR mega nú veiða endurgjaldslaust í Elliðavatni í sumar. Veiði hefst í vatninu á
morgun, 1. maí, en mynd þessi er frá opnunardegi við vatnið í fyrra.
Félagar í SVFR veiða
ókeypis í Elliðavatni
ÞEIR félagar í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur sem greitt hafa
árgjaldið geta í sumar veitt endurgjaldslaust í Elliðavatni, en
veiði hófst þar 1. maí og stendur fram í septemberbyrjun. Frá
þessum samningi var gengið sl. föstudag. Auk þess standa yfir
samningaumleitanir um slíkt hið sama við umsjónarmenn Þing-
vallavatns fyrir landi þjóðgarðsins.
Bjarni Júlíusson stjórnarmaður ingar upp að 16 ára hafa nefni-
hjá SVFR og samningamaður fé-
lagsins sagði að mikils velvilja
hefði gætt hjá veiðifélagi Elliða-
vatns, en Haukur Pálmason hefði
verið fulltrúi þeirra. „Það er við
hæfí á ári fjölskyldunnar að SVFR
gangi í mál af þessu tagi. Ungl-
lega getað veitt þarna frítt fyrir
tilstilli Reykjavíkurborgar. Nú
ættu fjölmargar fjölskyldur að
geta átt þarna góða daga við
veiðiskap," sagði Bjami.
Hann gat þess enn fremur að
engin takmörk væru fyrir því
hversu oft menn færu til veiða á
fríkort þetta og mætti minna á
að sumarkort í vatnið hafi kostað
5.800 krónur í fyrra. „Ef menn
vilja nýta sér þetta strax geta
þeir farið rfieð kvittanir sínar að
Vatnsenda og Elliðavatnsbænum
og fengið útgefin veiðileyfi út á
það. Um miðjan maí munum við
hins vegar gefa út sérstök félags-
skírteini sem nota má, auk þess
sem á þeim er að fínna fjölmörg
sértilboð handa félögum i SVFR,“
sagði Bjarni Júlíusson.
Lionsklúbbur Stykkishólms
fundar um siávarútvegsmál
Stykkishólmi.
LIONSKLÚBBUR Stykkishólms hélt fimmtudaginn 28. apríl opinn
fund um sjávarútvegsmál, útgerð, fiskvinnslu og fiskveiðar og lög-
gjöf þá og breytingar og bætur sem nú eru fyrirhugaðar og eru í
vinnslu á Alþingi. En fiskveiðalöggjöfin er hér mikið umræðumál
enda veltur atvinnulíf hér mjög á að henni farnist vel.
Gestur fundarins og framsögu-
maður var Sturla Böðvarsson al-
þingismaður, en nefnd sú sem átti
að annast fundarefni hafði fengið
hann heim til skrafs og ráðagerða.
Þorbergur Bæringsson kynnti efni
fundar og bauð alþingismanninn
velkominn. Gunnar Svanlaugsson,
3. 5. 1994 Nr ^81
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4500 0022 0316
4543 3700 0009 7116
4543 3718 0006 3233
4546 3912 3256 0090
4842 0308 1995 3028
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4550 50** 4560 60**
4552 57** 4941 32**
Algreiðslulólk vmsamlegast takiö otangreind
kort úf umferð og sendið VISA íslandi
sundurklipfk.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og visa á vágest.
Höföabakka 9 • 112 Reykjavik
Simi 91-671700
^ ' .......................
forseti klúbbsins, stýrði fundi.
Sturla flutti siðan kjamgott og
umfangsmikið erindi um hvernig
sú löggjöf sem nú stjórnaði veiðum
og vinnslu hefði reynst og kom inn
á misnotkun hennar og galla. Hann
lagði áherslu á hve vandfarið væri
með minnkandi þorskstofn og
hættu á að ganga of nærri honum,
vegna mikils ágangs. Hann sýndi
mörg línurit um þróun og stjórnun
Kynnir ferð-
ir til Nepals
og Kenýa
FILIPPUS Pétursson kynnir fyr-
irhugaðar ferðir sínar til Nepals
og Kenýa á Ferðaskrifstofunni
Úrvali-Utsýn miðvikudaginn 4.
maí kl. 20.
Ferðirnar eru Ævintýraferðin
mikla um Nepal, 16. október, og
Jólasafarí í Kenýa, 21. desember.
Filippus Pétursson er heimavan-
ur bæði í Himalaya-fjöllunum og á
safarislóðum í Kenýa. Hann hefur
farið í fjölmargar ferðir til beggja
áfangastaða bæði með íslendinga
og ferðamenn annarra þjóða.
Filippus mun halda fyrirlestra
um ferðir sínar og sýna litskyggn-
ur. Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
þessara mála og breytingar gegnum
árin og hve nauðsyn bæri til að
gera betur og bæta löggjöfina og
breyta mörgu í sókn landsmanna í
fiskistofnana. Hann sagði að nú
væri að nást á Alþingi samkomulag
um betri stjórnun, sem að hans
dómi gengi í rétta átt. Hann sagði
að vitaskuld þyrfti þetta aðal hags-
munamál þjóðarinnar að sitja í fyr-
irrúmi fyrir öðru, því lífsafkoman
væri bundin við það. Stöðuga end-
urskoðun þyrfti og girða fyrir mis-
notkun veiðanna. Hún mætti ekki
eiga sér stað og þar þyrftu allir að
leggja lið. Urðu siðan mikiar um-
ræður um málið og eins fyrirspurn-
ir til þingmannsins sem hann leysti
vel úr. Þarna komu menn að sínum
sjónarmiðum, bæði þeir sem stjórna
fyrirtækjum með stóra báta og eins
minni báta en smábátaútgerð fer
hér vaxandi. Þá urðu almennari
umræður og gáfu fundarmenn
þingmanninum margar ábendingar
sem hann þakkaði fyrir og kvað
myndu stuðja sig í baráttunni fyrir
betri fiskveiðilöggjöf.
Skipstjórar sem voru á fundinum
komu með ábendingar og sögðu
sína reynslu. Þeir voru á því að þær
breytingar sem Alþingi væri nú með
stefndu í góða átt. Hétu þeir þing-
manninum stuðningi við fram-
kvæmd þeirra. Sturla þakkaði
ábendingar og hreinskilinn fund og
kvað hann góðan stuðning við sig
til-starfa á Alþingi og þetta myndi
hann nýta vel. Fundurinn var allur
hinn líflegasti og mörg viðhorf
komu fram og af honum fóru menn
bæði fróðari og ánægðari. Það var
liðið nær miðnætti er fundi^ lauk.
- Arni.
Tvær ferðir
með Jóni
Böðvarssyni
SAMVINNUFERÐIR - Landsýn
efna dagana 26. júlí til 1. ágúst
til vikuferðar með hinum kunna
fræðaþul Jóni Böðvarssyni til
Þrándheims. Boðið verður upp á
margar áhugaverðar skoðunar-
ferðir um slóðir Islendingasagna.
Fyrirhuguð dagskrá ferðarinnar
er svohljóðandi: 26. júlí: Flogið til
Þrándheims, 27. júlí: Skoðunarferð
um borgina með hliðsjón af frásögn-
um í íslenskum fornritum og Niðar-
óssdómkirkja heimsótt, 28. júlí:
Frostaþing - Steinker - Slóðir
Hrafns og Gunnlaugs, 29. júií: Sti-
klarstaðahátíð: spelect om heilag
Olav, 30. júlí: Söguslóðir sunnan
Þrándheims - Dofrafjöll - Súran-
dalur og 1. ágúst er heimferð.
Dagsferð til Grænlands
Þá efna Samvinnuferðir Landsýn
til dagsferðar til Grænlands 3. júní
nk. undir leiðsögn Jóns Böðvarsson-
ar. Flogið verður til Narsassaruaq
og þaðan haldið yfir Eiríksíjörð til
Brattahlíðar. Litast verður um í
byggingarústum frá tímum Eiríks
rauða og Leifs heppna.
------»--♦ ■*--
Garðyrkju-
fyrirlestur
í Hólmaseli
FYRIR u.þ.b. ári síðan stóð félags-
miðstöðin Hólmasel í Seljahverfi
fyrir fyrirlestri um umhirðu garða
fyrir íbúa hverfisins. Fyrirlestur-
inn var vel sóttur og gerður góður
rómur að þessu framtaki. Vegna
þessa þykir ástæða til að bjóða
aftur upp á fyrirlestur af svipuðu
tagi þriðjudaginn 3. maí kl. 20 og
er hann öllum opinn.
Garðyrkjameistarinn Jón Júlíus
Eilíasson kemur og fjallar um um-
hirðu grasflata og trjáa m.a. tijá-
klippingar. Eftir fyrirlesturinn gefst
fólki kostur á að koma með fyrir-
spurnir og í samvinnu við Seljasafn
Borgarbóksafnsins munu bækur og
tímarit um garða liggja frammi.
Aðgangseyrir er 200 kr. og eru létt-
ar kaffiveitingar innifaldar í verði.
♦ ♦ ♦---
Námskeið
um breytt
kjötmat
NÝTT kjötmat á nauta- og
svínakjöti tekur gildi 1. júní
næstkomandi og af því tilefni
heldur Yfirkjötmat ríkisins
námskeið fyrir kjötmatsmenn
sína dagana 28.-29. apríl og 5.-6.
maí. Yfirkjötmatið, Samtök iðn-
aðarins og Rannsóknastofnun
Iandbúnaðarins, standa fyrir
ráðstefnu um sama efni fyrir
starfsmenn kjötvinnsla og ann-
að áhugafólk laugardaginn 30.
apríl á Akureyri og laugardag-
inn 7. maí á Selfossi.
í fréttatilkynningu frá Samtök-
um iðnaðarins kemur fram að
mestar verða breytingarnar á
nautakjötsmati, en þyngdarmörk
inn í einstaka flokka eru felld nið-
ur og teknir upp þyngdarflokkar
í staðinn. Tekin er upp nákvæm-
ari flokkun á fitu og matið sam-
ræmt kjötmati hjá Evrópusam-
bandinu. Þá verður kjötmat sam-
ræmt milli kjöttegunda. Búist er
við að breytingar á kjötmati leiði
til endurskoðunar á verðlagningu
kjöts og verða hugmyndir þar að
lútandi kynntar á ráðstefnunni
sem haldin verður á Akureyri og
á Selfossi.