Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
FOLK
Rolling
Stones
Gömlu kemp-
urnar ætla I
tónleikaferð til
Bandaríkjanna
og Evrópu
►MICK Jagger og félag-
ar í Rolling Stones eru
ekki dauðir öllum æðum,
þrátt fyrir að vera komn-
ir á sextugsaldur. 1. ág-
úst hefja þeir tónleika-
ferð um Bandaríkin, en
30 ár eru liðin síðan
fyrsta slíka ferð þeirra
var farin. Til Evrópu
og Asíu ætla þeir '95.
Hljómsveitina
skipa Mick Jagger,
Keith Richards,
Ron Wood, Charlie
Watts og Darryl Jo-
, nes sem kom í stað
; Bills Wymans.
Miðaverð á tón-
| leikana verður á bil-
inu 1.800-3.600 kr.í
síðustu tónleikaferð
I sinni árið 1989 höfðu
Ffélgarnir til samans
'rúma tvo milljarða upp
úr krafsinu. Jagger var
spurður hvort ferðin
væri farin vegna pening-
i anna en hann kom með
' aðra spurningu á móti:
Hvað með allan bjórinn
og stúlkurnar sem standa
í fremstu röð?
Nýja platan þeirra,
„Voodoo Lounge“ kemur
út í júlí og hafa þeir sam-
ið við nýja útgefendur,
Virgin Records. Hafa
þeir valið tónleikaferð
sinni sama nafn.
MICK Jagger og félagar hans í Rolling
Stones hefja tónleikaferð í ágúst.
Gömul ást blossar á ný
► LEIKKONAN Liza Minelli og Desi Arnaz^
sem áttu í stormasömu ástarsambandi fyrir
rúmum tuttugu árum, hafa nú endurnýjað
kynnin að því er fréttir herma. Desi er giftur
en það virðist ekki koma í veg fyrir að þau Liza
hittist æ oftar. Einkum hafa þau sést saman á frumsýn
ingum, en þau láta sér sýningarnar ekki nægja, því
eftir þær hafa þau farið saman á uppáhaldsveitinga-
stað Lizu þar sem þau hafa setið fram eftir kvöldi.
NORÐLENSKAR dísir brosa sínu breiðasta.
Þær heita Pálína Sigurðardóttir, Hildur
Símonardóttir, Guðný Sif og Kristín Oladóttir.
Minelli og
Amaz sjást
æ oftar saman.
Liza
Desi
Þannig litu þau Liza
og Desi út fyrir tutt-
ugu árum.
Á ANNAN tug
vélsleðaöku-
manna hlutu
gullverðlaun fyr-
ir sigur í vél-
sleðamóti, sem
haldið var í
Hlíðarfjalli fyrir
helgi. Heima-
menn höfðu
ástæðu til að
gleðjast, því
norðlenskir öku-
menn fengu
flestöll verðlaun
mótsins. Var það
ekki í fyrsta
skipti í þessari
erfiðu íþrótt. Á
laugardagskvöldið var síðan haldið mikið hóf í
Sjallanum, þar sem verðlaunin voru afhent, auk
þes sem tískuvöruverslanirnar Contact og Ynja
stóðu fyrir tískusýningu með norðlenskum fyrir-
sætum.
Verðlaunahöfum fannst ekki ónýtt að fá
koss frá fyrirsætunum Aldísi og Óddu, sem
sýndu fatnað frá Contact. Yfir höfuð ríkti mik-
il ánægja með norðlensku fyrirsætumar. Þá
vöktu undirfötin frá Ynju einnig lukku hjá vél-
sleðamönnunum, en karlmenn voru í miklum
meirihluta á verðlaunaafhendingunni.
NORÐANMENN gerðu sér glaðan dag í Sjal-
lanum á laugardagskvöldið.
Mannfagnaður
Fjör í
Sjallanum
Blöndal
Morgunblaðið/Björn
LEIKHÓPURINN Perlan ásamt Sigríði Eyþórsdóttur leikstjóra
þegar þau voru að leggja í hann sl. mánudag.
Leikhópurinn Perlan
sýnir í Brassel
LEIKHÓPURINN Perlan hélt til Brussel síðastliðinn
mánudag þar sem félagarnir taka þátt í alþjóðlegri
listahátíð fatlaðra. Sýnir hópurinn leikritið Mídas
konung í leikstjórn Sigríðar Eyþórsdóttur, sem jafn-
Búningarnir eru viðamiklir, að
sögn Sigríðar, og af þeim sökum voru þátttakendur
í vandræðum með að koma þeim fyrir í ferðatösk-
um. Þetta er í annað sinn sem Perlan tekur þátt í
alþjóðlegri listahátíð, en árið 1989 fór hópurinn til
Washington, þar sem 55 lönd tóku þátt í hátíðinni.