Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Halldór Ásgrímsson telur að ekki
verði gengið lengra í skattheimtu
Hærri skattar kalla
fram samdrátt og
lækka tekjur ríkisins
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, telur að ekki
verði gengið lengra í skattheimtu hér á iandi og áfram verði þörf á
verulegu aðhaldi í ríkisbúskapnum. Frekari hækkun skatta muni verða
til að kalla fram samdrátt og hefta verðmætasköpun í þjóðfélaginu.
Þegar hafi t.d. verið gengið of langt varðandi skattlagningu ferðaþjón-
ustu og meiri skattheimta ríkisins verði til þess að tekjur ríkisins drag-
ist saman en aukist ekki. „Við þurfum fyrst og fremst á því að halda
að auka framleiðsluna til þess að vinna okkur út úr vandanum og þá
má ekki ganga svo langt í skattheimtu að framleiðslustarfsemi verði
beinlínis kyrkt,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið.
■
\ • . • .
. v' '
.
-
'ÆjgNmr'i'S:.
3.
Morgunblaðið/RAX
V atnsskortur?
ÞEIR voru í áköfum samræðum, þessir herramenn sem ljósmynd-
arinn rakst á við Skógafoss. Hæpið er þó að vatnsöflun slökkvi-
liðsins hafi verið umræðuefni þeirra á þessum stað.
Meirihluti félagsmálanefndar Alþingis
Námsmenn fái rétt
til húsaleigubóta
Halldór sagðist á þessu stigi ekki
vera með neinar ákveðnar tillögur
varðandi ríkisbúskapinn. „Ég geri
mér grein fyrir því, að fjárlagagerð-
in í haust verður mjög erfið og þar
þarf áreiðanlega að halda vel á og
ég á því miður von á, að þar þurfi
að koma til aðhaldsaðgerða, en ég
hef ekki fengið gögn um það svo
ég geti tjáð mig nægilega vel um
það.“
Aðspurður hvort vænta mætti frá
honum tillagna um skattalækkanir
á næstunni sagðist Halldór Ás-
Bruggað í
Breiðholti
LÖGREGLUMENN af Breið-
holtsstöð lögðu hald á brugg-
tæki og gambra í íbúð við Yrsu-
fell á mánudag. Þá voru brugg-
tæki einnig tekin í íbúð við Vest-
urberg á þriðjudag.
Þegar lögreglan kvaddi dyra
í Yrsufellinu kom ölvaður hús-
ráðandinn til dyra. í eldhúsi
hans var 20 lítra eimingartæki,
fullt af glærum vökva og í svefn-
herbergisskáp var 120 lítra
tunna með gambra. Lögreglan
tók_ allt í sína vörslu.
Á þriðjudag fór lögreglan svo
í íbúð við Vesturberg og lagði
þar hald á bruggtæki heimilisins.
grímsson ekki vera svo bjartsýnn,
að telja að menn gætu vænst mik-
illa skattalækkana. „En ég tel að
það hafi verið gengið of langt í
sambandi við skattlagningu ferða-
þjónustunnar á viðkvæmu vaxtar-
tímabili núna. Ég er þeirrar skoðun-
ar að ferðaþjónustan hefði þurft að
hafa það virðisaukaskattfrelsi sem
hún hafði, án þess að ég vilji úti-
loka það fyrir alla framtíð. Það er
okkar helsta von, að við getum
aukið hér allmikið störf á næstunni
með vaxandi ferðamannastraumi.
Við erum með mun minni aukningu
en meðaltalið er í OECD-löndunum
á undanförnum árum og ég held,
að skýringin sé helst sú, að verðlag
sé of hátt.“
Halldór sagðist einnig hafa verið
þeirrar skoðunar, að virðisauka-
skattshlutfall hefði verið orðið of
hátt og þess vegna hefði þurft að
lækka almenna hlutfallið til sam-
ræmis við það sem gerist í löndun-
um í kringum okkur. „Við erum
með eitt hæsta virðisaukaskatts-
hlutfall sem þekkist í Evrópu og
ég taldi það vera rétt skref, að
lækka J)að en ekki að taka upp tvö
þrep. Ég tel að það verði að endur-
skoða þá ákvörðun í ljósi reynslunn-
ar og minni á, að Ríkisendurskoðun
er að vinna að ítarlegri skýrslu um
það mál og vona að hægt verði að
varpa ljósi á ýmsar fullyrðingar sem
ég hef sett fram um þetta mál og
bíð spenntur eftir þeirri niður-
stöðu,“ sagði Halldór Ásgrímsson.
MEIRIHLUTI félagsmálanefndar
Alþingis leggur til að námsmenn,
sem stunda nám fjarri heimabyggð
fái rétt til húsaleigubóta verði
frumvarp um þær að lögum.
í frumvarpi félagsmálaráðherra
um húsaleigubætur er það gert að
skilyrði fyrir húsaleigubótum að við-
komandi eigi lögheimili þar sem
hann býr. Félagsmálanefnd Alþingis
hefur fjallað um frumvarpið og legg-
ur meirihluti hennar til að náms-
mönnum, sem stunda tímabundið
nám ijarri heimabyggð, verði veitt
undanþága frá þessu. Þeir verða þó
að sækja um bætur til þess sveitarfé-
lags þar sem þeir eiga lögheimili.
Meirihluti félagsmálanefndar
leggur einnig til að bætur vegna
ungmenna greiðist þar til þau ná
18 ára aldri, en frumvarpið miðar
við 16 ára aldur.
Tekinní
bílmeð
kíló af hassi
35 ÁRA maður var handtekinn
í fyrrinótt og við leit á honum
fannst tæpt kíló af hassi innan-
klæða.
Maðurinn kom með fiugi frá
Amsterdam á þriðjudag. Þá var
leitað á honum, enda á hann
langan feril í fíkniefnaafbrotum
að baki. Ekkert fannst viðJeitina
og var manninum sleppt. í fyrri-
nótt stöðvaði lögreglan svo för
leigubíls í austurbæ Reykjavík-
ur, en maðurinn var farþegi í
bílnum. Hann var fluttur á lög-
reglustöðina og leitað á honum
að nýju og nú brá svo við að
hann var með tæpt kíló af hassi
á sér. Samkvæmt upplýsingum
fíkniefnalögreglunnar er óvíst
hvort maðurinn kom með hassið
til landsins á þriðjudag.
Enn brotist
inn í bíla
INNBROT í bíla eru daglegt
brauð í Reykjavík. Frá þriðju-
degi þar til síðdegis í gær var
lögreglu tilkynnt um innbrot í 6
bíla.
Oftast sækjast þjófarnir eftir
hljómtækjum eða radarvörum
og sú var raunin þegar brotist
var inn í bíl við Frostafold og
annan við Einholt. Þá var farið
inn í bíl við Ugluhóla og þrjá
við Vesturberg, sömu erinda.
Hundar drápu
kettling
TVEIR hundar réðust á tveggja
mánaða kettling í fjöru á Kjal-
arnesi á mánudag og drápu
hann.
Kona var með hundana tvo,
sem eru af Scháffer-kyni, á
gangi í fjörunni fyrir neðan Klé-
bergsskóla á Kjalarnesi á mánu-
dag. Annar hundurinn reif sig
lausan frá konunni og fékk hún
ekki við neitt ráðið, heldur missti
einnig taum hins hundsins.
Hundarnir réðust að kettlingn-
um, sem var í fjörunni og í sam-
einingu drápu þeir hann.
Eigandi kattarins sneri sér til
lögreglunnar í Reykjavík vegna
málsins. Lögreglan sendir
hreppstjóra Kjalarneshrepps
málið, en hann fer með yfirum-
sjón hundahalds í hreppnum.
Kona og barn
fyrir bíl
KONA og fjögurra ára barn
urðu fyrir bíl á Miklubraut
skömmu fyrir hádegi á þriðju-
dag. I fyrstu var óttast að
meiðsli þeirra væru mikil, en svo
reyndist ekki vera.
Konan og barnið voru á leið
yfír Miklubraut á gangbraut á
móts við Tónabæ, þegar ekið
var á þau. Við rannsókn á slysa-
deild kom í ljós að þau höfðu
bæði hlotið innvortis meiðsli,
sem reyndust þó mun minni en
í fyrstu var óttast.
Slapp lltið
meiddur
ÖKUMAÐUR slasaðist lítillega
í hörðum árekstri á mótum Rétt-
arholtsvegar og Sogavegar á
þriðjudag.
Bílarnir tveir skemmdust mik-
ið. Annar ökumannanna slapp
ómeiddur, en hinn var fluttur á
slysadeild. Hann reyndist lítt
meiddur.
Taufas^
LANGHOLTSVEGUR 128
ÍBÚÐ SÝND í DAG
LÆKKAÐ VERÐ
3ja herb. íbúð á 2. hæð. Inngangur frá lóð. Gott geymsluris
yfir íbúðinni, en þar hafa verið innréttuð tvö herbergi. Nýtt
rafmagn og nýtt gler í stofu. Endurnýjað baðherbergi.
Svalir og garður. Frábært lækkað verð kr. 5.590 þús.
Sölumaður okkar verður á staðnum kl. 17.00 í dag
Blómabúð til sölu!
Vél staðsett verslun við milíla umferáagötu og fjölmenn
kverfi. Miklir möguleifear á velt uaufeningu með litlum
tilfeosnaði. Gott tæfeifæri fyrir feugmynJarífea aðila.
Ymis greiðslufejör og sfeipti feoma til greina.
Upplýsingar ekki veittar í gegnum síma.
FYRIRTÆKI OG FIÁRMÁL
_—\
0
FYRIRTÆKJASALA, LEIGUMIDLUN, INNHEIMTUR
Borgarferinglan 3 - fe æ ð • Símar 887750 og 887751
SímUði 984-60088 • Fax 887751
Veitingastaður til sölu!
Um er að ræða góðan rótgróin sfeyndifeitastað
sem er vel tæfejum feúinn með góða veltu og
mifela fejórsölu. Ymis greiðslufejör feoma
til greina fyrir góða kaupentlur.
Upplýsingar ekki veittar í gegnum síma.
FYRIRTÆKI OG FIÁRMÁL
0
FYRIRTÆKJABALA, LEIGUMIDLUM, INNHEIMTUR
Borgarkringlan 3-liajð • Sími
Símfeoði 984-60088
r 887750 o g 887751
Fax 8.8 7 75 1
Hinstakt tækifæri!
Til sölu feefefet fe eildverslun á feerra og clömufatnaði.
Góá viðsfeiptasamfeöncl, feeimsfræg vörumerfei
og fjöldi fyrirtæfeja í föstum viásfeiptum.
Ýmis greiðslukjör fyrir trausta feaupendur.
Upplýsingar ekki veittar í gegnum síma.
FYRIRTÆKI OG FJÁRMÁL
FYRIRTÆKJASALA, LEIGUMIDLUN, INNHEIMTUR
Borgarkringlan 3 - li * 6 Símar 887750 og 887751
Síintoði 984-60088 • Fax 887751
Snyrtivöruverslun til sölu!
Verslunin er stórglæsi leg í nýlegum
verslunarkjarna, með góð snyrtivörumerki og
mi feið af gj afavöru, einnig með eigin innflutning.
Gott tæfe ifæri til að sfe apa sér atvinnu.
Upplýsingar ekki veittar í gegnum síma.
FYRIRTÆKI OG FfÁRMÁL
FYRIRTÆKJASALA, LEIGUMIDLUN, INNHEIMTUR
Borgartringlan 3-hœð • Símar 8S7750 og 887751
SlmUði 984-ÓO0S8 ■ Pa* 887761