Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994 53 ÚRSLIT Knattspyrna Evrópukeppni bikarhafa Úrslitaleikur Kaupmannahöfn: Arsenal - Parma...................1:0 Alan Smith (19.). 33.765. England Chelsea - Coventry................1:2 (Cascarino 43.) - (Ndlovu 32., Morgan 34.). 8.923. Manchester United - Southampton.2:0 (Kanchelskis 60., Hughes 89.). 44.705. Frakkland Átta liða úrslit bikarkeppninnar: Marseiile - Montpellier...4:3 BiStaðan var 0:0 eftir framlengingu og þurfti því vítakeppni. Sonny Anderson og William Prunier skoruðu ekki úr tveimur fyrstu spymum Marseille. Montpellier mæt- ir Lens í undanúrslitum og Auxerre tekur á móti Nantes. Vináttulandsleikur Cannes, Frakklandi: Bólivía - Saudi-Arabía...1:0 Erwin Sanchez (79.). 700. Íshokkí Heimsmeistarakeppnin Átta liða úrslit: Bandarikin - Rússland....3:1 (1-0 2-0 0-1) Craig Janney 17:33, Scott Young 23:53, 26:43 - Andrei Kovalenko 47:20. Svíþjóð - Ítalía.........7:2 faúm FOLX B PETER Nilsson, sem verið hefur þjálfari og leikmaður KR- inga í borðtennis, hefur ákveðið að ganga til liðs við Víkinga næsta vetur. Hann verður þar þjálfari og leikmaður næsta keppnistímabil. B KRISTJÁN Þ. Krisíjánsson, fyrrum leikmaður Hauka og ÍBV, hefur verið ráðinn knattspyrnu-. þjálfari hjá Neista frá Hofsósi sem leikur í 4. deild. KNATTSPYRNA Eidur Smári valinn í landslið 18 ára og yngri Guðni Kjartansson, þjálfari piltalandsliðsins í knatt- spyrnu, hefur valið 16 manna hóp fyrir Evrópuleikinn gegn Portúgal, sem fram fer á Valbjarnarvelli í Laugardal næsta sunnudag kl. 17.00. Þetta verður fyrri leikur í 16-liða úrslitum pilta 18 ára og yngri. Síðari leikurinn fer fram í Caldas Da Rainha í Portúgal 15. maí. Það lið sem vinnur samanlagt kemst áfram í 8-liða úrslitakeppni sem frain fer á Spáni í júlí. Meðal þeirra sem valdir voru í landsliðshópinn er Eiður Smári Guðjohnsen, sem er aðeins 15 ára en verður 16 ára í haust og á enn eftir eitt ár í landsliði 16 ára og yngri. Þess má geta að hann var fyrst valinn í það lið 14 ára. Hópur- inn er annars þannig skipaður: Markverðir: Ólafur Kristjánsson, Fram Gunnar Sigurðsson, ÍBV Aðrir lcikmenn: Kjartan Antonsson, UBK Bjarki Stefánsson, Val Vilhjálmur Vilhjálmsson, KR Ragnar Ámason, Stjörnunni Sigurbjöm Hreiðarsson, Val Sigurvin Ólafsson, Stuttgart Bjarnólfur Lárasson, ÍBV Guðni Rúnar Helgason, Sunderland Brynjar Gunnarsson, KR Jóhannes llarðarson, ÍA Guðmundur Brynjólfsson, Val Ólafur Stigsson, Fylki Eiður Smári Guðjohnscn, Val Björgvin Magnússon, Werder Bremen íslenska liðið mun einnig leika æfingaleik gegn Spánveijum á Spáni 11. maí og þá munu Andri Sigþórsson, Bayern Múnchen og Þórhallur Hinriksson, KA bætast í hópinn. ÍÞRÓTTIR KORFUKNATTLEIKUR Axel ráðinn þjálfari KR Ungverjinn Laszlo Nemeth tekur við enska landsliðinu AXEL Nikuiásson, fyrrum landsliðs- maður í körf uknattleik, var í gær ráðinn þjálfari úrvatsdeildarliðs KR. Hann tek- ur við af Ungverjanum Laszlo Nemeth, sem óskaði eftir að hætta í kjölfar til- boðs sem hann fékk um að taka við landsliðsþjálfarastöðu enska iands- liðsins. Axel hefur þjálfað drengjalandsliðin síðan 1991 og var með 9. flokk ÍBK í vetur, en var nýlega ráðinn í fullt starf á skrif- stofu Körfuknattleikssambands íslands, þar sem hann sinnir unglingamálunum. „Það hefur alltaf heillað mig að verða þjálfari meistaraflokks, en ég átti ekki von á því í ár,“ sagði hann við Morgunblaðið í gær- kvöldi. „Möguleikinn opnaðist skyndilega og það var annað hvort að hrökkva eða stökkva. Hins vegar veit ég að hveiju ég geng, hef spilað með flestum strákunum í KR og Fal Harðarsyni með ÍBK og landsliðinu. Þetta gekk fljótt fyrir sig, en nú förum við að snúa okkur að komandi verkefnum.“ Laszlo Nemeth sagðist hafa kunnað vel við sig á íslandi, en hann hefði varla ^getað hafnað tilboði Englendinga. „Ég elska Island KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Kristinn Axel Nikulásson hefur þjálfað unglinga í körfuknattleik undanfarin ár, en tekur nú við úrvalsdeildarliði KR. Með honum á myndinni, sem var tekin í gærkvöldi, er Kristín Oskarsdóttir, 16 mánaða frænka hans. og því kom ég aftur. Hugur minn hefur ekki breyst og breytist ekki, en það er heill- andi að taka aftur þátt í íþróttinni á alþjóða vettvangi,“ sagði hann í gærkvöldi, en Eng- lendingar buðu honum þriggja ára samning. Sófus Guðjónsson, formaður körfuknatt- leiksdeildar KR, sagði að þessi þjálfara- skipti hefðu verið gerð í mesta bróðemi. „Við vorum með samning við Laszlo til tveggja ára, en þar sem hann fékk gott til- boð frá enska sambandinu gáfum við hann eftir. Laszlo hefur skilað mjög góðu starfi hjá KR enda einn besti þjálfari, sem komið hefur til landsins. Það var afráðið að Axel tæki við KR-liðinu eftir að Laszlo hætti og kemur hann því til starfa ári fyrr en áætlað var. Við emm mjög sáttir við þessa niður- stöðu, þökkum Laszlo samstarfið og óskum honum alls hins besta um leið og við bjóðum Axel velkominn," sagði formaðurinn. Sófus sagði að Falur Harðarson, sem lék um tíma með liðinu sl. vetur, myndi leika með liðinu næsta vetur, en hann er við nám í Bandaríkjunum. Eins hefur Bárður Eyþórs- son, leikmaður Snæfells, sýnt áhuga á að leika með félaginu, en fljótlega skýrist hvort af því verður. Rétti tíminn til að skora - sagði Alan Smith, hetja Arsenal ALAN Smith gerði glæsiiegt mark fyrir Arsenal gegn Parma á 19. mínútu í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa í Kaupmanna- höfn í gærkvöldi og markið tryggði enska félaginu sigur. „Þetta hefur verið skemmtileg Evrópukeppni og það var ánægjulegt að skora," sagði fyrirliðinn, sem hafði gert sex mörk á tímabilinu. „Ég hafði aðeins gert eitt mark í keppninni svo þetta var rétti tíminn til að bæta öðru við.“ Reuter Alan Smith, hetja Arsenal, gerði eina mark leiksins og er hér með bikarinn. Ijjetta var fyrsti Evróputitill Ars- enal í 24 ár, en lið félagsins vann Anderlecht frá Belgíu í úrslitum borgarkeppninnar 1970. Úrslita- markið kom eftir mistök Lorenzos Minottis, sem ætlaði að spyrna fram á völlinn en tókst ekki betur til en svo að nánast var um fyrirgjöf að ræða. Smith þakkaði fyrir sig, tók boltann niður og lét vaða af um 15 metra færi í nærstöng og inn, óverj- andi fyrir Luca Bucei í markinu. Arsenal varðist vel og hélt fengn- um hlut, en leikmenn ítalska liðsins áttu meira í fyrri hálfleik. Þeir áttu þá 19 skot að marki gegn sex skotum Arsenal og voru næst því að skora á 13. mínútu, þegar Svíinn Thomas Brolin skaut í innanverða stöngina, auk þess sem Zola fékk tvö góð færi. George Graham, stjóri Arsenal, bætti enn einni rós í hnappagatið. „Við vissum að næðum við að skora gætum við haldið hreinu, en seinni hálfleikur var sem klukkustund. Alan Smith var maður leiksins, en það voru margar hetjur í kvöld. Leikmenn ítalska liðsins eru leiknari en við og þeir voru mun ákveðnari og fljótari." „Það er sannfærandi að sigra ítalskt lið,“ sagði Smith, „því sagt er að ítalska deildin sé sú besta í heimi." Nevio Scala, þjálfari Parma, sagði að betra liðið hefði sigrað. „Arsenal var betra og varðist vel gegn spili Parma. Við lékum ekki eins vel og venjulega og leikmennirnir voru taugaóstyrkir, en allt var opið til loka.“ Liðin: Arsenal: David Seaman; Tony Adams, Steve Bould, Nigel Winterburn, Lee Dixon, Paul Davis, Stephen Morrow, Ian Selley, Kevin Campbell, Alan Smith, Paul Merson (Eddie McGoldrick, 86.). Parma: Luca Bucci, Antonio Bennarivo, Lorenzo Minotti, Luigi Apolloni, Alberto Di Chiara, Roberto Sensini, Gabriele Pin (Alessandro Melli, 70.), Massimo Crippa, Tomas Brolin, Gianfranco Zola, Faustino Asprilla, ÚRSLIT Körfuknattleikur Úrslitakeppni NBA-deildarinnar: Miami — Atlanta..............90:86 ■Miami er yfir 2:1. Cleveland - Chicago..........92:95 ■Eftir framlengdan leik. Chicago vann 3:0 og kemst áfram. Portland - Houston.........118:115 ■Houston hefur ylír 2:1. Utah - San Antonio..........105:72 ■Utah hefur yfir 2:1. Íshokkí NHL-deildin Austurdeild, undanúrslit: Ny Rangers - Washington..........5:2 ■Rangers hefur yfir 2:0. New Jersey - Boston..............5:6 BBoston hefur iyfiri 2:0- Keegan gerði tíu ára samning við Newcastle KEVIN Keegan verðurfram- kvæmdastjóri Newcastle Un- ited fram yfir aldamót, eða til 2004. Frá þessu var formlega gengið milli hans og félagsins í gær. Newcastle hefur gengið vel síðan Keegan tók við liðinu í febrúar 1992 og með þessum tíu ára samningi vill félagið tryggja að hann verði áfram í herbúðum félagsins. Newcastle er í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar, á eftir Manchester United og Blackburn Rovers, og er öruggt með UEFA- sæti næsta tímabil. Liðið hefur ekki tekið þátt í Evrópukeppni síðan 1978. Newcastle hefur einnig fengið Arthur Cox, sem var fram- kvæmdastjóri liðsins 1982 - 1984 og keypti m.a. Keegan til félags- ins, til starfa aftur. Hann er í miklum metum hjá félaginu eins og Keegan og verður aðstoðar- þjálfari liðsins. Cox hefur verið framkvæmdastjori Derby síðan 1984. 1'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.