Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994 13 LANDIÐ Kvennareið á vordegi Miðfirði - Hestakonur í Vestur- Húnavatnssýslu fögnuðu vorinu með glæsilegri hópreið um Mið- fjörð fyrir skömmu. Riðið var úr Fitjardal í Miðfjörð og til Laugarbakka, um 15 kílómetra. Á leiðinni var áð og hressti hóp- urinn sig á léttum veitingum. Að loknum reiðtúrnum héldu makar þeirra og velunnarar þeim mikla grillveislu við Laug- arbakkaskóla. Glampandi sól var og fremur hlýtt, enda allir þátt- takendur í sólskinsskapi. Alls tóku þtjátíu og tvær konur þátt í þessari skemmtilegu vor- stemmningu og komu þær úr öllum sveitum sýslunnar. FJÖLMENNI var í vorreið hestakvenna í V-Húnavatnssýslu, úr Filjardal í Miðfjörð og til Laugarbakka. Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Landpóstur hefur störf Miklaholtshreppi - Landpóst- ur kom sl. mánudag og er það Þórður Ingólfsson sem nú gegnir þessu gamla vinsæla starfi. Flytur hann póst frá Borgarnesi, póstleið hans er um 320 km og fer hann þrjár ferð- ir í viku. Þórður fer í hluta af Álfta- nes- og Hraunhreppi, síðan i Kolbeinstaða-, Eyja- og Mikla- holtshrepp. Það þótti viðeig- andi hjá landpóstum að hafa lúður og blása í hann áður en komið var heim til bæja til að láta vita af sér. En þá var líka þarfasti þjónninn aðalfarkost- urinn sem bar bæði mann og pósttöskur en nú er það flottur bíll sem gegnir því starfi. Morgunblaðið/Björn Blöndal SIRI Bjercke, forseti norska Soroptimistasambandsins var gestur á fundinum og er hér fyrir miðju ásamt Sigríði Friðjónsdóttur formanni Sorptimistaklúbbs Suðurnesja (t.v.) og Hildi Hálfdánar- dóttur fráfarandi forseta landssambandsins sem er til hægri. Landssambandsfundur Soroptimista Gáfu 350 þúsund kr. til tækjakaupa Akranesbær greiðir 160 milljónir króna á 10 árum Samningnr um uppbyg'g*- ingu íþróttamannvirkja Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson FRÁ undirritun samnings ÍA og Akraneskaupstaðar á ársþingi IA. F.v. Gísli Gíslason, bæjarstjóri Akraness, Ingvar Ingvarsson, forseti bæjarsljórnar Akraness, og Jón Runólfsson, formaður ÍA. Njarðvík - Um 160 konur víðs vegar af landinu sátu landssam- bandsfund Sorptimistaklúbba á ís- landi sem fram fór í Stapa í Njarð- vík á dögunum. Fundurinn stóð í 2 daga og var um leið afmælisfund- ur því samtökin voru stofnuð í júní 1974. Fráfarandi forseti, Hildur Hálf- dánardóttir úr Kópavogi, sagði að metþáttaka hefði verið á fundinum sem bæri vott um mikla grósku. Hún sagði að nafnið Soroptimisti væri komið úr latínu og þýddi besta systir. Hreyfingin hefði verið stofn- uð í Kaliforníu árið 1921 og nú væru starfandi 3.000 klúbbar í 107 löndum með urn 100.000 félaga. Hugsjón Soroptimista væri að stuðla að góðvild, skilningi og friði meðal þjóða. En höfuðmarkmiðið væri að vinna að betra mannlífí í hverfulum heimi og fá hið besta handa konum og hið besta frá kon- um. Á landssambandsfundinum í Njarðvík var skólastóra Dal- brautarskóla afhentar 350 þúsund krónur til tækjakaupa, en skólinn er sérskóli ríkisins fyrir börn og unglinga sem innlögð eru á barna og unglingageðdeild Landspítalans og þjónar öllu landinu. Þá hafa samtökin tekið virkan þátt í að styðja mannúðarstarf Þóru Einars- dóttur í Madras á Indlandi. Nú eru 15 Soroptimistaklúbbar starfandi á íslandi og eru félagar liðlega 400. Á fundinum tók Kristín Einarsdótt- ir úr klúbbnum í Hafnarfirði og Garðabæ við forsetakeðjunni, en hún tekur formlega við 1. október. Akranesi - Akraneskaupstaður og íþróttabandalag Akraness hafa undirritað samning um uppbygg- ingu íþróttamannvirkja og viðtöku bæjarins á íþróttahúsi IA á Jaðars- bökkum sem tekið var í notkun 1987. Samkvæmt samkomulaginu er tryggt að Akraneskaupstaður mun fjármagna uppbyggingu og frágang Iþróttamiðstöðvarinnar á Jaðars- bökkum, en þar er ólokið byggingu búningsklefahúss við íþróttavöllinn og samkomusalar og auk þess frá- gangs á aðstöðu í enda íþróttahúss- ins á tveimur hæðum. Þar mun verða skrifstofuaðstaða fyrir íþróttahreyfinguna, líkamsræktar- salur og gistiaðstaða. Þessi hluti mannvirkisins mun verða eign íþróttabandalags Akraness. Framkvæmdunum á að vera lok- ið í lok janúar 1996, en íþrótta- bandalag Akranes mun þá halda hátiðlegt 50 ára afmæli sitt. Kostn- aður við þessa framkvæmd mun nema röskum 70 milljónum króna. íþróttabandalagið mun hafa fram- kvæmdirnar með höndum. Þá mun bærinn taka við skuldum íþrótta- húss ÍA sem nema 46 milljónum króna. Auk þessa eru í framkvæmda- samningnum uppbygging golfvallar í 18 holur, bygging íþróttasalar í kjallara íþróttahússins við Vestur- götu, endurbygging yfírlags malar- knattspyrnuvallarins og aðstöðu fyrir hestaíþróttir og verður varið í þessar framkvæmdir um 45 millj- ónum króna. Alls er hér um 160 milljóna króna samning að ræða sem greiðist með jöfnum afborgun- urh á næstu 10 árum, eða um 16 milljónir króna árlega. Auk framkvæmda kveður samn- ingurinn á um samskipti og rekstr- armál. Þetta mun vera þriðji stærsti framkvæmdasamingur sem Akra- neskaupstaður hefur gert frá upp- hafi. Gagnkvæm ánægja Á ársþingi ÍA á dögunum var þessi samningur undirritaður með viðhöfn. Lýstu fulltrúar beggja að- ila yfír ánægju sinni með þessa nið- urstöðu og vonuðust eftir að þetta yrði til þess að efla enn frekar sterka stöðu íþróttafólks á Akra- nesi. í máli bæjarstjóra, Gísla Gísla- sonar, kom fram að með samningn- um vildi Akranesbær tryggja að fjármagn sem lagt væri fram til byggingar íþróttamannvirkja nýtt- ist sem best öllum þeim fjölda bæj- arbúa sem stundaði íþróttir sér til ánægju, heilsubótar eða með keppni fyrir augum. Jón Runólfsson, for- maður IA, sagði að með þessum samningi væri brotið blað í íþrótta- starfinu og íþróttahreyfingin myndi kappkosta að gera sem flestum bæjarbúum kleift að stunda íþróttir með því að veita þeim gceiðan að- gang að íþróttafélögum og því starfi sem fer fram á þeirra vegum. H.tTTl AB RAIA A MR FOTLEGGINA! með ONE TOUCH háreyðingarkremunum losar þú þig við óæskileg hár á þægilegan og sársaukalausan hátt o kreminu er einfaldlega rúllað á hársvæðið og skolað af í sturtu eða baði eftir tiltekinn tíma (sjá leiðb.) o húðin verður mjúk - ekki hijúf o ofnæmisprófað egular fyrir venjulega húð. Bikini - fyrir "bikini" svæði. .1 O 1 V Sensitive fyrir viðkvæma húð. Útsölustaðir: Hagkaup, apótek ogflestar snyrti- vöruverslanir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.