Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994 41 Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjörnsdóttir SIGURVEGARARNIR í Austurlandsmótinu, sem fram fór um síð- astliðna helgi. Gauti Halldórsson, Ólafur Sigmarsson, Stefán Guðmundsson og Þórður Pálsson. Vopnfirðingar sigruðu í sveitakeppni á Austurlandi BRIPS Umsjón Arnór G. Kagnarsson AÐALSVEITAKEPPNI BSA og aðalfundur fóru fram á Hótel Höfn í Hornafirði dagana 29. apríl til 1. maí. Þar kepptu 22 sveitir um titil- inn Austurlandsmeistari í sveita- keppni. Úrslit urðu þessi: 1. sæti sveit Landsbankans á Vopnafirði en hana skipa Ólafur Sigmarsson, Stefán Guðmundsson, Þórður Pálsson og Gauti Halldórs- son. Hlutu þeir 155 stig. Næstu sveitir: Sveit Hafþórs Guðmundss., Stöðvarfirði 150 Sveit Lífeyrissjóðs Austurl., Neskaupstað 147 Sveit Herðis, Fellabæ 142 Sveit Hótel Hafnar, Hornafirði 133 Sveit Sparisjóðs Norðfjarðar, Neskaupstað 133 Mótið fór allt hið besta fram og sátu mótsgestir sameiginlegan kvöldverð á laugardagskvöld. Bær- inn á Höfn gaf verðlaun til mótsins sem Albert Eymundsson forseti bæjarstjórnar afhenti vinningshöf- um. Keppnisstjóri var Sigurpáll Ingibergsson. BSA veitti í fýrsta skipti verðlaun fyrir flest silfurstig og útnefndi silfurstigameistara BSA. Fyrsti spilarinn sem þau verð- Iaun hlýtur er Pálmi Kristmanns- son, Egilsstöðum. Hann hlaut 269 silfurstig á árinu 1993. Hlaut hann að launum silfurrefínn, styttu hann- aða af Hlyni Halldórssyni á Miðhús- um. Þá má það einnig teljast til tíðinda að á verðlaunapalli stóðu að þessu sinni þijár konur sem er nýtt. Þær voru í sveit Lífeyrissjóðs Suðurlands sem hlaut þriðja sætið. Vetrarvertíðinni í brids er að ljúka en Austfirðingar láta þó ekki deigan síga og halda úti sumarbrids á hverjum þriðjudegi. Það er Brids- félag Reyðar- og Eskifjarðar sem rekur sumarbridsinn og eru allir velkomnir í eins kvölds tvímenning kl. 20 í Félagslundi. íslandsmót í paratvímenningi 1994 SKRÁNING í íslandsmótið í par- atvímenningi, sem haldið verður á Akureyri 12. og 13. maí nk., er nú komin vel af stað og hafa yfir 30 pör þegar skráð sig. Spilaður er Barómeter-tvímenningur og hefst spilamennska kl. 11 fimmtudaginn 12. maí, en nánari tímaáætlun verð- ur gerð um leið og ijöldi para er ljós. Keppnisgjald er 6.600 kr. á par og spilað er um gullstig. Skrán- ing er á skrifstofu Bridssambands íslands í síma 91-619360 og skrán- ingarfrestur rennur út þriðjudaginn 10. maí á hádegi. Bikarkeppni Bridssambands Islands 1994 DREGIÐ verður í fyrstu umferð bikarkeppni Bridssambands íslands í lok afmælismóts Bridsfélags Ak- ureyrar 15. maí nk. Skráningar- frestur er til miðvikudagsins 11. maí og er tímaáætlun umferðanna sem hér segir; fyrstu umferð skal lokið í síðasta lagi 26. júní, annarri umferð skal lokið í síðasta lagi 24. júlí, þriðju umferð skal lokið í síð- asta lagi 21. ágúst, fjórðu umferð skal lokið í síðasta lagi 11. septem- ber. Undanúrslit og úrslit fara síðan fram helgina 22.-23. október. Eins og undanfarin ár er keppnisgjald innheimt fyrir hveija umferð og er það 3.000 kr. á sveit fyrir hveija umferð. Skráning er á skrifstofu Bridssambandsl Islands í síma 91- 619360. 1 Laugardaginn 7. maí ganga sjálfboðaliðar Lions-hreyfingarinnar í hús og bjóða til sölu blóm. Vinsamlegast takið vel á móti þeim og styrkið gott málefni. STYRKJCIM ÆSKONA í "AÐ NA TÖKOM Á TILVERONNI"* Eitt blab fyrir alla! JlbrgmUtáa - kjami málsins! Stretsbuxur kr. 2.900 Mikið úrval af allskonar buxum Opið á laugardögum kl. 11 - 16 R AD AUGL YSINGAR FJÖLBRAUTASKÚUNN BREIDHOUl Innritun í dagskóla Fjölbrautaskólans í Breið- holti fyrir haustönn stendur yfir. Umsóknir skulu hafa borist skrifstofu skólans fyrir 3. júní nk. Skólameistari. Vefstofan, Ásvallagötu 10a, hættir rekstri. Rýmingarsala hefst 5. maí á veggteppum, svuntuefnum við íslenska bún- inginn, hör o.fl. Allt selt ódýrt. Opið kl. 10-16 frá mánudegi til laugardags. Sími 14509. SlttCI auglýsingor Innflytjendur til Bandaríkjanna Þú gæti orðið einn af þeim 55.000, sem valdir verða úr til að flytja til Bandaríkjanna, sam- kvæmt nýja (USINS) fjölbreyti- lega vegabréfsáritunar-happ- drættinu. Láttu skrá þig núna! Frestur rennur út 30. júní 1994. Það er auðvelt og einfalt. Við sýnum þér hvernig á að taka þátt í happ- drættinu með fullnægjandi upp- lýsingum og leiðbeiningum. Sendu 25 Bandaríkjadali (tékka eða póstávísun) til: East-West Immigrant Services, Þ.O. Box 1984, Wailuku, Hl 96793, U.S.A. Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvist í kvöld, fimmtudaginn 5. maí. Byrjum að spila kl. 20.30 stundvíslega. Allir velkomnir. I.O.O.F. 11 = 17505057'/2 = Lf. I.O.O.F. 5 = 175557 = Lf. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Almenn samkoma kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Aglow, kristileg samtök kvenna Maífundurinn verður í kvöld i Sóknarsalnum, Skipholti 50a kl. 20.00. Gestur fundarins. Sig- rún Ásta Kristinsdóttir. Allar konur eru hjartanlega velkomnar. Þátttökugjald 300 kr. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Almenn samkoma kl. 20.30. Lautinant Sven Fosse talar. Verið velkomin á Her. UTIVIST Hallveigarstig 1 • simi 614330' Myndakvöld hjá Útivist fimmtudaginn 5. maí Guðmundur Löve frá Hellarann- sóknafélaginu sýnir myndir frá Surtsey og hellunum þar, mynd- ir frá Kalmanshelli og frá sigi f hella o.fl. Eftir hlé verða sýndar myndir frá ferð Útivistar um Lónsöræfi sl. sumar. Sýningin hefst kl. 20.30 í húsnæði Skag- firðingafélagsins í Stakkahlíð 17. Hlaðborð kaffinefndar er innifal- ið í aðgangseyri. Útivist. Orð lífsins, Grensásvegi 8 Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir! Ath.: Rani Sebastian kennir annað kvöld. Pýramídinn - andleg miðstöð Breski miðillinn Ann Coupe verð- ur með skyggni- lýsingu í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.00 í Duggu- vogi 2. Allir vel- komnir meðan húsrúm leyfir. Upplýsingar í símum 881415 og 882526. Pýramídinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.