Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Deiliskipulag miðbæjarins endurskoðað
*
Ahersla lögð á
verndungam-
allatimburhúsa
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins um að við endurskoðun
aðalskipulags Reykjavíkur verði
deiliskipulag miðbæjarins endur-
skoðað. Sérstök áhersla verði lögð á
verndun gamalla timburhúsa.
í greinargerð með tillögunni segir
að frá því núgildandi skipulag hafi
verið samþykkt árið 1986, hafi nokk-
ur hús í miðbænum verið flutt burt.
Eftir standi nokkur sem samkvæmt
skipulagi megi fjarlægja en það eru
húsin við Lækjargötu 6a, 6b og 8.
Austurstræti 8,10, 20 og 22, Kirkju-
stræti 8, 8b og 10, Vonarstræti 12,
Sjálfstæðishúsið við Austurvöll og
Hafnarstræti 21.
Byggt fyrir aldamót
Fram kemur að mörg þessara
húsa eru byggð fyrir aldamót og
njóta því vissrar verndar samkvæmt
þjóðminjalögum. Þau elstu, eins og
Austurstræti 22 og 2Ó, Aðalstræti
16 og hluti af Hafnarstræti 21, eru
friðuð enda byggð fyrir árið 1850.
Þá segir að mörg rök hnígi að
endurskoðun á deiliskipulaginu sem
samþykkt var árið 1986. Samkvæmt
þjóðminjalögum frá 1990 eru hús
byggð fyrir árið 1985 friðuð en eig-
endum húsa, sem eru reist fyrir árið
1900, gert skylt að tilkynna minja-
vörðum og húsfriðunarnefnd ríkisins
með góðum fyrirvara ef þeir hyggj-
ast breyta húsi sínu, flytja það eða
rífa. Þá segir að Alþingi hafi tekið
jákvæða afstöðu til verndunar húsa
sinna við Kirkjustræti.
í bókun borgarfulltrúa minnihluta
segir að það hljóti að gleðja alla
húsverndarsinna að tillagan skuli
vera flutt og samþykkt samhljóða í
borgarráði.
Skoðanakönnun Skáís
D-listi með 52,6%
R-listi með 47,4%
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
52,6% atkvæða og 8 borgarfull-
trúa en R-listinn 47,4% og 7 borg-
arfulltrúa ef kosið væri nú, sam-
kvæmt skoðanakönnun em Skaís
gerði fyrir Eintak síðastliðinn
laugardag.
600 manns voru í úrtaki. Af
þeim sem svöruðu sögðust 39,7%
styðja Sjálfstæðisflokkinn, 35,8%
sögðust styðja R-listann, 4,3%
svarenda kváðust ekki myndu
kjósa eða skila auðu, 20,2% voru
óákveðnir eða neituðu að svara.
Ef aðeins eru teknir þeir sem
tóku afstöðu er niðurstaðan sú
að 52,6% kysu D-lista, sem fengi
miðað við það 8 borgarfulltrúa
en 47,4% R-lista, sem fengi þá 7
borgarfulltrúa.
Frambjóðendur á förnum veöi
i
i
FRAMBJÓÐENDUR Sjálfstæðisflokksins voru í Sigríður Snæbjörnsdóttir og Helga Jóhannsdóttir
gær á ferð um bæinn að ræða við fólk og dreifa voru í Kringlunni um miðjan dag í gær og gáfu sig
til þess bæklingum flokksins. Ólafur F. Magnússon, á tal við starfsfólk og viðskiptavini.
R-listinn í strætó
Morgunblaðið/Sverrir
R-LISTINN fer nú m.a. þá leið til að koma málum
á framfæri við kjósendur að bjóða þeim í strætó.
Hann hefur tekið strætisvagn á leigu og býður
vegfarendum að taka sér far með vagninum, hlusta
á frambjóðendur og koma skoðunum sínum á fram-
færi. I gær var Guðrún Ágústsdóttir lestarstjóri.
F ramkvæmdastj óri Sjálfstæðisflokks um kvörtun vegna setu fulltrúa flokksins í kj ördeildum
Erindi Odds er á
misskilningi byggt
Einar Örn
Stefánsson
Oddur
Benediktsson
Kjartan
Gunnarsson
ODDUR Benediktsson, prófessor í
tölvunarfræðum, telur það stangast
á við lög um skráningu og meðferð
persónuupplýsinga að umboðsmenn
framboðslista krossi við kjósendur
á kjörstað, og hefur farið fram á
að Tölvunefnd komi í veg fyrir
þetta. Reykjavíkurlistinn hefur
ákveðið að umboðsmenn hans sitji
í kjördeildum en hyggst ekki safna
upplýsingum um það hveijir koma
til að kjósa. Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins, kveðst telja erindi Odds
sem var sent til Tölvunefndar,
dómsmálaráðuneytisins og yfirkjör-
nefndar, á misskilningi byggt en
standist kenning hans, þýði það
jafnframt að kjörstjórn megi ekki
heldur merkja við skrárnar þar sem
sk. tölvulög nái jafnt til opinbera
aðila og einkaaðila.
„í kosningalögunum er ákvæði
um að umboðsmönnum frambjóð-
enda er rétt og skylt að fylgjast
með öllum þáttum kosninganna, og
alveg eins og framboðslistamir til-
nefna menn til að fylgjast með taln-
ingunni þegar kosningu er lokið,
þá tilnefna þeir fulltrúa til að fylgj-
ast með því að kosningin fari lög-
lega fram,“ segir Kjartan.
„Einn þáttur þessa er að ganga
úr skugga um að aðrir kjósi ekki
en þeir sem hafi kosningarétt og
að hver maður kjósi aðeins einu
sinni. Þetta hefur verið gert hér-
lendis af öllum stjómmálaflokkum
í meira en hálfa öld. I fimmtán af
stærstu kaupstöðum landsins eru
fulltrúar allra framboðslista í kjör-
deildum og fylgjast þar með fram-
kvæmd kosninganna.
Fulltrúar R- listans hafa verið
viðstaddir kosningar á elliheimilum
og sjúkrahúsum, sem Sjálfstæðis-
Oddur Benediktsson
prófesor telur það lög-
brot að flokkar safni
upplýsingum um hverjir
komi að kjósa. Fulltrúar
beggja lista í Reykjavík
munu sitja í kjördeild-
um en R-listinn segist
ekki munu safna
upplýsingum
flokkurinn gerir ekki af tillitssemi
við sjúkt, gamalt og lasburða fólk
á þeim stöðum, og hafa auk þess
fengið sömu gögn og Sjálfstæðis-
flokkurinn um hveijir hafa kosið í
utankjörstaðakosningum.
Eg sé engan mun á þessu og að
beita eftirliti á kjörstað á kjördag
og held að verið sé að blása upp
þetta mál til að þyrla upp pólítísku
moldviðri. Ég ítreka einnig, að eitt
verkefna m.a. íslenskra eftirlits-
manna með kosningum erlendis, er
að staðfesta að umbjóðendur fram-
boðslista hafi fullkominn og greiðan
aðgang að kjörstaðnum og geti
fylgst með kosningunnu, þar með
talið þeim sem kjósa.“
„Láti af uppteknum hætti“
í bréfi Odds Benediktssonar seg-
ir m.a.: „Umboðsmönnum fram-
boðslista er heimilt að vera við-
staddir kosningar á einstökum kjör-
stöðum samkvæmt lögum.
Það hefur tíðkast hjá sumum
framboðslistum að umboðsmenn
hafi kjörskrá undir höndum og
krossi kerfisbundið við þá sem
kjósa. Þær upplýsingar hafa verið
fluttar af kjörstað og til viðkom-
andi stjórnmálaflokks.
Vart fer milli mála að hér er um
kerfisbundna skráningu að ræða
sem fellur undir lög nr. 121, 1989
um skráningu og meðferð persónu-
upplýsinga sem Tölvunefnd hefur
eftirlit með.
Væntanlega fellur skráningin
undir 4. grein laganna. Þar kveður
á um að óheimilt sé að skrá per-
sónuupplýsingar um stjórnmála-
skoðanir. Þessu til stuðnings má
nefna að tiltekinn einstaklingur
með yfirlýsta stjórnmálaskoðun
gæti tjáð stjórnmálaafstöðu sína
með því að sitja heima.
Hefur Tölvunefnd heimilað þessa
skráningu?
Ég tel að Tölvunefnd sé skylt að
leggja fyrir viðkomandi aðila að
þeir láti af uppteknum hætti.“
Beiðni um samráð hafnað
Afrit af bréfi Odds var meðal
annars sent til yfirkjörstjórnar í
Reykjavík og framboðslista í borg-
inni. Einar Óm Stefánsson, kosn-
ingastjóri Reykjavíkurlistans, sendi
Oddi svarbréf fyrir hans hönd
ásamt afritum til fjölmiðla, þar sem
m.a. segir:
„Vegna bréfsins viljum við vekja
athygli þína á því að hinn 25. apríl
sl. sendi Reykjavíkurlistinn bréf til
Kjartans Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins,
þar sem þess var vinsamlega farið
á ieit að framboðslistarnir tveir
sammæltust um að „ekki verði
merkt við fólk í kjördeildum á kjör-
stað.“
Á þetta erindi hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn ekki fallist en eins og
það ber með sér hefur kosninga-
stjórn Reykjavíkurlistans ákveðið
að ekki verði af hálfu umboðs-
manna listans setið í kjördeildum
og safnað upplýsingum um það
hveijir koma til að kjósa. Hins
vegar munu umboðsmenn Reykja-
víkurlistans að sjálfsögðu vera á
öllum kjörstöðum til þess að fylgj-
ast með því að kosningin fari rétt
fram, svo og til þess að vera til
taks ef eitthvað ber útaf við fram-
kvæmd kosningarinnar eða kjós-
endur óska aðstoðar þeirra.“