Morgunblaðið - 25.05.1994, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Litlaust umhverfi
MYNPLIST
Nýlistasafnið
INNSETNING
Haraldur Jónsson
Opið 14-18 daglegatil 5. júní
Aðgangur ókeypis
MAÐURINN og umhverfí ’nans
hefur löngum verið eitt helsta við-
fangsefni listamanna, og stefnu-
breytingar í listasögunni hafa ekki
síst falist í nýjum aðferðum við að
nálgast þetta viðfangsefni. Þar eru
straumar síðustu ára-
tuga engin undantekn-
ing; innsetningar í sýn-
ingarsölum hafa stefnt
að því að byggja upp
ný umhverfi, þar sem
aðrir meginþættir eru
ráðandi en þeir sem eru
mest áberandi I daglegu
lífi, og umhverfislista-
verk af ýmsu tagi, stað-
sett á ólíklegustu stöð-
um, hafa ekki síður
gegnt því hlutverki að
beina sjónum manna að
ýmsum þáttum náttúr-
unnar en að eigin form-
gildum.
Haraldur Jónsson
hefur dvalið við listnám bæði í
Þýskalandi og Frakklandi eftir að
hann lauk námi við MHÍ 1987. Und-
anfarin ár hefur hann notið vaxandi
athygli fyrir skemmtilegar sýningar
og frumlega nálgun við viðfangs-
efni, sem tengjast tilveru mannsjns
í umhverfi sínu; einkum er sýning
hans í Gerðubergi á síðasta ári
minnistæð. Stök verk hans hafa
vakið eftirtekt fyrir mýkt og mann-
lega nálgun, þar sem efnið hefur
verið lifandi þáttur í heildinni.
Innsetningar í sýningarsölum
hafa verið stundaðar í íslensku lista-
lífí síðan á sjötta áratugnum, og
húsnæði Nýlistasafnsins við Vatns-
stíg (og áður Gallerí SÚM) hefur
reynst afar dtjúgt á þessum vett-
vangi listarinnar. Salirnir eru hæfí-
lega grófir í allri umgjörð til að auð-
velt er að breyta þeirn, jafnframt
því sem oft þarf litlu að hnika til
að rýmið verði að virkum þætti í því
sem listamenn vilja þar gera. Þegar
hins vegar er búið að nýta staðinn
með þessum hætti bæði oft og lengi,
er hætt við að rýmið taki völdin, og
bæði þurfi vönduð og nákvæm
vinnubrögð til að næsta innsetning
verði ekki ósköp svipuð hinni síð-
ustu, og missi loks algjörlega marks
vegna þess sem mætti nefna ofnotk-
un á staðnum.
Vinnubrögð af þessu tagi hafa
hlotið ýmis nöfn önnur en hér er
notað: uppsetningar, umhverfi og
kringumstæður, svo nokkur séu
nefnd. Haraldur Jóns-
son hefur kosið að kalla
verk sín hér „Kringum-
stæður“, og myndar
eina slíka í hvorum sal.
Þessar innsetningar
falla hins vegar báðar
fyrir rýminu, og ná
hvorki að móta það né
marka á eftirtektar-
verðan hátt, enda verk-
in sem notuð eru í nær
öllum tilvikum litlaus
og lítil um sig.
Þá bætir afar frasa-
kenndur og sundurslit-
inn texti engu við, þó
honum sé greinilega
ætlað að skýra baksvið
þess, sem listamaðurinn er að fást
við (Hluti: „til dæmis um daglega
lífið nánasta umhverfi í víðari skiln-
ingi eiginleikar líffræðilega sýni ein-
kenni af raunverulegum sýndarveru-
leikanum þegar hann er áþreifanleg-
ur æxlun fyrirbæri sem eru undir
eða handan við sjónsviðið á jaðrinum
...“); skýringar af þessu tagi hafa
verið til allt frá dögum fískiljóða
dadaistanna, og hafa fyrir löngu
misst allan slagkraft.
Haraldur Jónsson hefur þegar
sýnt á stuttum ferli, að hann er
þess vel megnugur að skapa áhuga-
verða myndlist, fari hann eigin leið-
ir að því marki. Þessi litla sýning
er hins vegar dæmi um hvað getur
gerst ef farið er að eltast of greini-
lega við almenna frasa, sem löngu
er búið að blóðmjólka, og er því
best gleymd sem fyrst.
Eirfkur Þorláksson
Haraldur Jónsson.
Morgunblaðið/Kristinn
MÓTETTUKÓRINN í Hallgrímskirkju æfir Óðinn til kærleikans.
Tónleikar Mótettu-
kórsins á Listahátíð
MÓTETTUKÓRINN heldur tónleika
með a cappella tónlist í Hallgríms-
kirkju sunnudaginn 29. maí klukkan
17. Á tónleikunum verður frumflutt
verkið Óðurinn til kærleikans, eftir
Pál P. Pálson en hann samdi það
sérstaklega fyrir kórinn.
Texti verksins er úr Fyrra Kor-
intubréfi Páls postula, en sami texti
er í tónverkinu sem mynd Kieslowsk-
is, „Blue“, snýst um. Önnur verk á
tónleikunum verða „Singet dem
Herrn“ eftir Bach og mótettur eftir
Schutz, Bruckner, Messiaen og Po-
ulnec. Einnig verða fluttir sálmar
Hallgríms Péturssonar við gömul
sálmalög í útsetningu Jóns Nordals,
Atla Heimis Sveinssonar og Jóns
Hlöðvers Áskelssonar.
Aðgöngumiðar fást í miðasölu
Listahátíðar og verða einnig seldir
við innganginn.
Ný tímarit
H TÍMARITIÐ Gangleri, fyrra
hefti 68. árgangs er komið út. Gang-
leri flytur greinar um andleg og
heimspekileg mál. í vorhefti Gang-
lera eru eftirfarandi greinar; Alkem-
ía eðlis- og efnafræði hugarorkunnar
eftir Hartmann Bragason. Um list-
ina að lifa eftir J. Krishnamurti
sem spyr hvort lífið sé aðeins eftir-
sókn eftir frægð, mannvirðingum og
auði. Uppskrift alheimsins eftir Pál
J. Einarsson, sem fjallar um helstu
kenningar nútíma kjarneðlisfræði.
Hátæknihugleiðing eftir Birgi
Bjarnason, grein sem fjallar um
nýja tækni til slökunar, hugkyrrðar
og aukinna möguleika til náms. Sam-
vinna vísindamanna í rannsóknum
á öreindum, minnst á kenningar og
rannsóknir sem unnið er að í Kjarn-
eðlisfræðistofnun Evrópulandanna.
Óreiðukraftar í hversdagslífinu
eftir John R. van Eenwyk. í þess-
ari grein er reynt að tengja stærð-
fræði og sálarlíf manna. Lífshlaup
Giordano Bruno sem brenndur var
á báli árið 1600 fyrir kenningar sín-
ar.
Gangleri er 96 blaðsíður og kemur
út tvisvar á ári. Áskriftargjald er
1.450 krónur.
Kristján Jóhannsson
syngnr með Barnakór
Grensáskirkju á Italíu
BARNAKÓR Grensáskirkju
er á förum til Ítalíu í næstu
viku. Þar dvelur hann í boði
kórsins Coro Polifonico Far-
nesiana í borginni Piacenza.
Kórarnir halda þar tónleika
til styrktar krabbameins-
sjúkum 28. maí þar sem
Kristján Jóhannsson leggur
kórunum lið sitt. Krabba-
meinsfélag íslands styrkir
barnakórinn til fararinnar
Krisfján
Jóhannsson
ljúka sínu fjórða starfsári
og hefur Margrét J. Pálma-
dóttir stjórnað honum frá
upphafi. Undirbúningur ít-
alíuferðarinnar hefur staðið
lengi yfir og er nú lang-
þráðu markmiði náð.
Miðvikudaginn 25. maí
kl. 20.30 heldur kórinn tón-
leika í Seltjarnarneskirkju.
Þar verður fluttur hluti af
efnisskrá kórsins. Á henni
og verður verndari tónleikanna 28.
maí.
Barnakór Grensáskirkju er nú að
er kirkjutónlist, íslensk og erlend lög
af ýmsu tagi, þjóðlög, negrasálmar
og lög úr söngleikjum.
Nýjar bækur
H ÚT ERU komnar tvær nýjar
barnabækur. Sjáðu dýrin stækka
er bók fyrir unga dýravini, sem hér
geta fræðst um afkvæmi ýmissa
dýrategunda. Á hverri opnu er skífa
sem hægt er að snúa og á henni
má sjá hvernig ungar og smádýr
vaxa og taka breytingum á þroska-
ferlinum. Fjöldi ljósmynda er í bók-
inni og texti við hæfi tveggja til sex
ára bama.
Lína Langsokkur ætlar til sjós,
er önnur bókin um hina víðfrægu
söguhetju, Línu, sem Sigrún Árna-
dóttir hefur þýtt. Hér segir frá ýms-
um ævintýrum Línu, til dæmis því
þegar hún temur slöngu og handsam-
ar tígrisdýr og lendir í skipbroti á
eyðieyju ásamt Tomma og Onnu.
Útgefandi er Mál og menning.
Sjáðu dýrin stækka kostar 1190
krónur og Lína Langsokkur ætlar
til sjós kostar 1280 krónur.
KONURATHUGIÐ:
ÚTUT5KVÖLD
Fimmtudaginn 26. maí
HELENA
F A G R A
Gleraugna-
VERSLUNIN
í Mjódd
Fatasamsetning
Hárgreiðsla
Gleraugu
Sumartíska
Förðun
ess
HÚSIÐ OPNAR KL. 19.00
Verð með íaat kr. 1.600,-
Verð An matar kr. 800,-
Borðapantanir í síma 689-686
KRIPAUIJOGA
í kripalujóga lærir þú:
★ Aðlosaumspennu.
★ Að upplifa tilfinningar.
★ Áðslakavelá.
Lærðu að þekkja tíkama þinn.
Byrjendanámskeið hefjast 31. maí
og 8. júní.
Kynning laugardaginn 4. júní kl. 13.
Jógastöóin Heimsljós
Skeifunni 19,2. hæð, sími 679181 milli Id. 17 og 19.
Dragtir
Kjólar
Blússur
Pils
Odýr náttfatnaóur |
i 12, sími 44^33.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
SAMKÓR Selfoss ásamt stjórnandanum, Jóni Kristni Cortez,
á vortónleikunum í Selfosskirkju.
F agrir vortónar
Samkór Selfoss med tónleika
Selfossi - Samkór Selfoss hélt
sína árlegu vortónleika 12. maí í
Selfosskirkju, á fögru vorkvöldi.
Tónleikarnir voru haldnir undir
yfirskriftinni: Það var fyrir 50
árum. Þar var höfðað til 50 ára
afmælis lýðveldisins. Stjórnarndi
kórsins er Jón Kristinn Cortez og
undirleikari Þórlaug Bjamadóttir.
Á söngskránni voru 17 lög og
söngstjórinn kynnti söngskrána og
bað fólk að ímynda sér að það
væri komið á tónleika á Þingvöllum
fyrir 50 árum, lögin væru við það
miðuð.
Kórinn byrjaði á því að syngja
Þú nafnkunna landið og endaði á
Öxar við ána. Söngur kórsins var
hreinn og vel agaður en á það
reyndi verulega í sumum laganna.
Tónleikar kórsins eru einn af vor-
boðunum á Selfossi en lagavalið
féll vel að veðurblíðunni útifyrir
og þeim anda sem sumarkoman
ber með sér. Árangur vetrarstarfs-
ins blómstrar í vortónleikunum og
að þessu sinni, sem svo oft áður,
er árangur starfsins glæsilegur.
Kórinn er einn af eðalsteinum
menningarlífsins á Selfossi.