Morgunblaðið - 25.05.1994, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.05.1994, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Burt með alla opinbera launung í NIÐURLAGI greinarkoms, sem Morgunblaðið var svo elskulegt að birta laugardaginn 14. maí sl. Um svefnró Hæstaréttar, gat ég um ádrepu, sem for- seti Hæstaréttar ís- lands mundi hafa sent útvarpsráði vegna þess að Fréttastofa RÚV hafði þann 19. febrúar dirfst að greina frá leynibréfi hans til Lögmannafé- lags íslands og fleiri aðila. Nú hefur mér borist ljósrit af þessari ádrepu og verð ég, því miður, að ætla (þar til annað þá sannaðist), að ljósritið sé ófalsað. En sé þessi sending ekki óprúttinn hrekkur, sýnist mér í verulegt óefni komið. Innihald þessarar ádrepu forseta Hæsta- réttar er slíkt, að vandséð er hvernig það yrði liðið í lýðræðis- ríki að forsvarsmaður æðsta dóm- Það er óhugsandi, að nein einkamálalöggjöf vemdi launung bréfs, sem augljóslega varðar gmndvallaratriði sam- félagsins, segir Þorgeir Þorgeirson, og ritað er í krafti mikilvægs emb- ættis. stigs í landinu beiti sér þannig við fréttamenn, sem ekkert hafa þó til saka unnið nema það eitt að greina satt og rétt frá embættis- verkum, sem varða allan almenn- ing í landinu. Vissulega má um það efast, að ríki þar sem bæði opinber frétta- stofa og félagsskapur lögmanna KRIPALUJÓGA í kripalujóga lærir þú: ★ Að losa um spennu. * Að upplifatilfinningar. ★ Aðslakavelá. Lærðu að þekkja líkama þinn. Byrjendanámskeið hefjast 31. maí og 8. júní. Kynning laugardaginn 4. júní kl. 13. Jógasfööin Heimsljós Skeifunni 19,2. hæí, simi 679181 milli ld. 17 og 19. ^mmM^mmmmm* telja sér skylt að varð- veita þvílíkt plagg sem trúnaðarmál vikum saman, geti með nein- um rétti kallast lýð- ræðisríki. Ég sé að Lög- mannafélagi íslands hefur verið sent afrit af ádrepu Hæstarétt- arforsetans strax 22. febrúar sl. og vil nú skora á stjórn félags- ins að lúra ekki lengur á plagginu heldur birta það opinberlega. Það er óhugsandi, að nein einkamálalöggjöf verndi launung bréfs, sem augljóslega varðar grundvall- aratriði samfélagsins, og ritað er í krafti mikilvægs opinbers emb- ættis. Réttarfarið í landi okkar má ekki lengur vera einkamál forseta Hæstaréttar íslands, né á það heldur að vera trúnaðarmál út- varpsráðs og stjórnar Lögmanna- félags íslands, þegar forseti Hæstaréttar hefur uppi tilburði til að hindra frásögn fréttamanna af tilskipunum, sem hann gefur út í nafni réttarins. En til þess að stjóm félagsins geti nú gengið úr skugga um það að hér sé verið að ræða um sama bréfið og félaginu var sent afrit af 22. febrúar sl. læt ég fylgja niðurlag þess. Þar segir Hrafn Bragason: „Það er þó erindi mitt við útvarpsráð að fá að vita hvort embættismenn megi almennt við því búast að sagt verði frá pers- ónulegum bréfum þeirTa til sam- starfsaðila á öldum ljósvakans. Því ef svo er, verða slík bréf auðvitað ekki rituð og ménn koma saman á leynifundum til að ráða ráðum sínum. Andi alræðisríkja mun svífa yfir vötnunum. Hér verður það ekki „Stóri bróðir“ sem fylgist með okkur heldur fréttastofa Út- varps.“ Sé afritið, sem mér var sent, ófalsað, hlýtur að þurfa að gera forseta Hæstaréttar íslands grein fyrir því, hver skylda fréttamanna í lýðræðisríki er. Og spyija hann þá kannski jafnframt, hver sé munurinn á því að stjóma með leynibréfum og hinu, sem hann virðist þó fínna alræðisfnykinn af: að stjóma með leynifundum? Þetta vil ég benda stjóm Lögmannafé- lagsins á, um leið og ég ítreka áskomn um það, að hún birti margnefnda ádrepu forseta Hæstaréttar íslands opinberlega í heild sinni. Þjóðin á heimtingu á því. Höfundur er ríthöfundur. Þorgeir Þorgeirson SAMSKIP AUGLYSiNG UM HLUTHAFAHIND Tilkynning um aðalfund Samskipa hf. Aðalfundur Samskipa hf. verður haldinn að Hvammi, Hótel Holiday Inn, Reykjavík, þriðjudaginn 31. maí 1994 kl. 14.00. Á aðalfundinum verður dagskrá í samræmi við 8. grein samþykkta félagsins, auk umfjöllunar um tillög- ur til breytinga á samþykktum. Reykjavík 20. maí 1994 Stjórn Samskipa hf. „Landgreifariiir“ fengu ókeypis kvóta SIÐFERÐISMEÐVITUND er breytileg og viðhorfin mörg, en þegar aurar eru annars vegar er heiðarleikanum hætt, endurskoðun sækir á hugann, frá- vika er leitað. Þegar nútíminn er borinn saman við fortíðina kemur í ljós að margt er til bóta, en annað gengur aftur, sem við héldum vera grafið. Sumt hefur aldrei breyst. Árangursrík innræting Álagning kaup- manna var „fyrir ,að rétta vöruna yfir búð- arborðið," skrifuðu og sögðu óvandaðir gegn betri vitund, kyntu undir illgirni og hatri, þeir vissu að meira þarf til að reka verslun. Á sama tíma skilgreindu reikningsbækur barna álagningu kaupmanna sem gróða, varla óviljandi. - í svona umhverfi áttu eðlileg viðskipti erfitt upp- dráttar, höft voru allsráðandi, þóttu sjálfsögð, flokksgæðingar blómstruðu, verslunarokur þreifst í skjóli hafta. - Nú bæta kaupmenn kjör fólksins með lágu vöruverði, biðraðir eru horfnar, einnig norpið í nepjunni við bankana! „Uppmælingaaðall" Þetta virðulega uppnefni var við lýði fram á síðasta áratug, en hvemig skyldi það hafa orðið til? Mikil þensla á vinnumarkaði og skortur á liðlegri sölumennsku olli miklu, uppmælingamennimir voru tregir til að hafa taxtana fyrir opnum tjöldum, pukrið vakti tor- tryggni. Samanburður var mjög erfiður, án upplýsinga var umræð- an út og suður, með eða móti. Verktakan bauð efasemdunum heim, uppmælingin var reiknings- vinna, nánast óskiljan- leg almenningi. Verðið þótti hátt og vinnan misjöfn, návígi of mik- ið. - Nú bjóða menn niður, taxtar eru að mestu fyrir bí, gjald- þrot vora fátíð, en era nú algeng. Verklegar framfarir vora hæg- fara og era það enn. „Landgreifar" Fram yfir 1960, var innflutningsleyfum skipt bróðurlega á milli heildsala og SÍS, „landgreifarnir" fengu kvóta. Ekkert var flutt inn frá Vesturveldunum nema gegn inn- flutnings- og gjaldeyrisleyfum. Leyfishafar þurftu ekki að óttast að sitja uppi með vöra, eftirspurn var mikil og algengt var að binda sölu á eftirsóttri vöra við kaup á illseljanlegri. Fólk leit á höftin sem náttúralögmál. Leyfi fyrir bílum, heimilistækjum o.fl. vora eftirsótt, söluverð gamla bílsins, þótt aumur væri, gerði oftast meira en að borga þann nýja. Ekki að undra þótt pólitíkusar og flokkar þeirra hafi viljað eiga ítök í nefndum og ráðum, sem úthlutuðu þessum lífs- ins gæðum. - Flokkarnir deildu ekki um fyrirkomulagið, aðeins um ítökin! Jeppaveisla Skömmu eftir stríð var flutt hingað til landsins talsvert magn af amerískum jeppum í þeim fróma tilgangi að þjóna landbúnaðinum. Við þegjum og látum hlutina viðgangast, seg- ir Arni Brynjólfsson, vegna þess að við eygj- um möguleikann á að komast seinna að kjöt- kötlunum. Þetta vora þarfatól sem vandasamt var að úthluta. Hæfastir til verks- ins vora auðvitað fulltrúar flokk- anna, sem annast höfðu slíkt áður af flokkslegu innsæi, en hver flokk- ur fékk sinn jeppaskammt. Mestur hlutinn mun hafa farið til „at- kvæða“ í sveitum, þótt nokkrir rötuðu á mölina, m.a. hlaut hnoss- ið iðnaðarmaður í Reykjavík og hver var skýringin? Þessi ágæti maður var bolsi og sagði heppni sína stafa af því að fulltrúi í úthlut- unarráðinu þekkti ekki nógu marga rauða í sveitum landsins, enda vora flokksmenn hans ekki miklir peningamenn. Þetta varð til þess að hann eignaðist þennan kostagrip. Jeppinn fékkst á búvéla- verði, sem var auðvitað lágt í aug- um mannsins á mölinni. Haftagleði Aldrei var höftunum mótmælt, engir útifundir, göngur með mót- mælaspjöld eða kosnir nýir menn, hvað olli þessu? Það er erfitt að skilja nú hvemig á þessu andvara- leysi stóð, fólk virtist álíta spilling- una sjálfsagða, við höfðum vanist ranglætinu. - Við vorum samsek, við kusum þetta yfir okkur, „lýð- ræðislega". Margir álíta að höftin Þarf að selja ný lög um framhaldsskóla? mikil. Margar þær breytingar sém vora gerðar 1974 vora þarf- ar. En 100 breytingar sem hver um sig er til góðs geta orðið til ills ef þær ganga allar yfir á sama tíma. Ef marg- ir kvillar hijá sama sjúkling þá borgar sig oftast að lækna fáa í einu. Sé reynt að skera hann upp við þeim öll- um í senn era mestar líkur á að hann nái sér aldrei, drepist jafnvel. Á síðustu 25 árum hefur framhaldsskóla- Atli Harðarson er hægt að laga en ekki með því að endur- taka mistökin frá 1974 og reyna að skera kerf- ið upp á ótal stöðum samtímis. Undanfarin ár hefur niðurskurður á fjár- framlögum til skólanna verið réttlættur með því að ríkið þurfi að spara. Ég vefengi ekki að ríkið þurfi að spara , en tel mig vita að það kosti verulega fjármuni að hrinda hugmyndum 18 manna nefndarinn- ar í framkvæmd. Verði Fyrri grein UNDANFARIN misseri hefur 18 manna nefnd á vegum menntamála- ráðherra unnið tillögur um róttækar breytingar á skólakerfínu. Nefndin skilaði áfangaskýrslu á útmánuðum og nú fyrir stuttu sendi hún frá sér framvarp til nýrra laga um fram- haldsskóla. Framvarp til nýrra grannskólalaga er væntanlegt. Hvað mun standa í grannskóla- framvarpinu veit ég ekki en þær breytingar sem era boðaðar á fram- haldsskólunum eru bæði margar og miklar. Skólanefndarmönnum er t.d. fækkað og reglum um skipun þeirra breytt þannig að ráðherra á að velja meirihluta þeirra án tilnefn- ingar. Valdsviði skólastjóra er breytt sem og reglum um ráðningu kennara. Það á að lengja skólaárið, fækka námsárum til stúdentsprófs, fækka stúdentsbrautum og fjölga öðrum brautum, breyta inntökuskil- yrðum, auka tengsl við atvinnulíf, taka upp samræmd próf o.fl. o.fl. Árið 1946 voru sett fræðslulög sem giltu lítt breytt til 1974. A þessu 28 ára tímabili efldust bama- og unglingaskólar mjög og þeim tókst nokkurn veginn að svara sí- breytilegu kalli tímans. Þokkaleg sátt var um skólana og fæstir sáu ástæður til verulegra breytinga á þeim. Samt vildu yfirvöld breyta og 1974 tóku ný grannskólalög gildi. Umskiptin voru mikil - of kerfið aukist mjög að vöxtum. Lengst af óx það og þroskaðist án þess að til væri nein heildarlöggjöf um framhaldsskóla. Slík löggjöf leit fýrst dagsins Ijós árið 1988. Segja má að lögin frá 1988 hafí fyrst og fremst staðfest þá þróun sem orðin var og fest kerfið í sessi. Nú 6 áram seinna eru menn orðnir nógu vanir því völundarhúsi sem framhalds- skólinn er til að geta ferðast um það nokkurn veginn áreynslulaust. Með þessu er ekki sagt að fram- haldsskólakerfið sé gallalaust. Það er ýmislegt að. T.d. stunda of fáir unglingar nám í verklegum greinum og tæknigreinum, of margir falla í fyrstu áföngum, það gengur of erf- iðlega að fá vel menntaða kennara til starfa og tengsl skólanna við atvinnulífið eru of lft.il. Allt þetta reynt að framkvæma þær af van- efnum er hætt við að sjúklingurinn verði skorinn upp en ekki saumaður saman aftur. Miklar og hraðar breytingar á jafn flóknu kerfí og skólakerfinu eru yfirleitt ekki til góðs og síst ef þær era framkvæmdar af vanefnum eða ef ekki er samkomulag um þær. Þar sem það er fyrirsjáanlegt að ríkið þurfi að spara á icomandi árum og lítið hefur verið gert til að tryggja sátt um væntanlegar breytingar þá líst mér satt að segja ekki á blikuna. Ýmsar af tillögum 18 manna nefndarinnar era skyn- samlegar og það er hægt að fram- kvæma þær eina og eina í senn án þess að umturna öllu kerfinu. Ef yfirvöld vilja bæta skólakerfið þá geta þau til dæmis beitt sér fyrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.