Morgunblaðið - 25.05.1994, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ
62 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
VnSTrrnTrSTSTXSTTTTTR
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð.
Símar: 880900, 880901, 880902 og 880915.
Utankjörfundar atkvæöagreiðsla fer fram hjá sýslumanninum í Reykjavík,
Ármúlaskóla, alla daga kl. 10-12,14-18 og 20-22.
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur aö kosningum.
Aðstoö viö kjörskrárkærur.
Stuðningsfólk Sjálfstæðisfiokksins! Vinsamlega látið okkur vita um
alla kjósendur sem ekki verða heima á kjördag, 28. maí n.k.
Reyitjauík
€>
Sæktu um Maestro
í bankanum þínum
og sparisjóði!
DEBETKORT
__________^__
MEISTARIÁ SÍNU SVIÐI!
Maestro Maestro Maestro Maestro
Hcoietti B Sdotti Natuzjrf
Frábært úrval af nýjum sófasettum,
homsófum og stökum sófum
í leðri frá ítahu.
Litir í miklu úrvali.
Verð við allra hœfi.
® ValhnsfföjBi
raigiBÍÖslm , O O
ARMULA 8, SIMAR 812275, 685375
BRIDS
II m s j 6 n G u rt m . P á 11
Arnarson
Sagnhafi fær þægilegt
útspil gegn 6 gröndum —
hjarta upp í ÁD. Hann
gæti hæglega átt þrettán
slagi, en þetta er sveita-
keppni en ekki tvímenning-
ur, svo honum ber að
tryggja tólf í sem flestum
legum.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ 8642
V 6543
♦ Á3
♦ Á75
Vestur Austur
Suður
♦ ÁK
V ÁD2
♦ KD9754
♦ KD
Vestur Norður Austur Suður
_ - - 2 lauf
Pass 2 tíglar Pass 2 grönd
Pass 3 lauf Pass 3 tíglar
Pass 4 grönd Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Útspil: Hjartagosi.
Hvemig á suður að spila?
Suður á að einbeita sér
að slæmri tígullegu. Honum
nægir að fá fímm slagi á
tígul og ætti því að þola
4-1-legu í iitnum. En tígul-
ásinn er eina innkoman á
laufásinn, svo það virðist
vera nauðsynlegt að taka
þrjá slagi á lauf áður en tíg-
ullinn er prófaður. Og þá
er lega af þessu tagi ban-
væn:
Norður
♦ 8642
V 6543
Vestur ♦ Á3 ♦ Á75 Austur
♦ DIO ♦ G9753
4 G109 * K87
♦ 10862 llllll ♦ G
♦ G986 ♦ 10432
Suður
♦ ÁK
V ÁD2
♦ KD9754
♦ KD
Hafí sagnhafí hausað
laufið þegar vestur kemst
inn á tígultíu, fær vestur
slag á laufgosa.
Leiðin framhjá þessum
vanda er að taka fýrst KD
í laufi og dúkka svo strax
tígull! Tígulásinn er þá enn
í borði sem innkoma á nafna
sinn í laufi og tígulliturinn
er jafnframt frír.
IDAG
VELVAKANDI
svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Lýst eftir
Evróvision-
aðdáendum
VELVAKANDI fékk bréf
frá ísraelskum manni,
Yair Sapir, skrifað á góðri
íslensku, þar sem hann
m.a. er að leita eftir með-
limum í klúbb Evróvision-
aðdáenda. Þessi aðdá-
endaklúbbur heitir OGAE
og hefur um 600 meðlimi
í 16 löndum, en því miður
enga íslenska. Klúbbur
þessi gefur út fréttabréf
með ýmsum gagnlegum
upplýsingum fyrir aðdá-
endur söngvakeppninnar
og í síðasta bæklingi mátti
m.a. fínna allt um Dublin
og tilhögun keppninnar
þar.
Þeim sem vilja fá nán-
ari upplýsingar um OGAE,
aðdáendaklúbb Söngva-
keppni evrópskra söngva-
stöðva, er bent á eftirfar-
andi heimilisfang:
OGAE,
96, rue Gambetta,
F-45120 Chálette S/Loing
France.
Ég- vil heyra
næturtónlist
ANNA María Pétursdóttir
þakka Ástu Bjarnadóttur
fyrir að vekja athygli á
næturtónlist í dálkum Vel-
vakanda. Hún er henni
hjartanlega sammála.
Einnig segist hún, eins
og fjölmargir aðrir lands-
menn, sakna þáttarins
Kvöldsagna á Bylgjunni.
Alltof fá útskot
ÞESSA dagana má heyra
auglýsingar í útvarpi,
sjónvarpi og dagblöðum
þess efnis að fólk eigi að
ferðast um landið sitt.
Hvítasunnuhelgin er mikil
ferðahelgi og fólk flykkist
út úr bænum. Það er því
fyrir neðan allar hellur
hvað ferðaþjónusta hér á
landi fer seint af stað.
Þessa helgi, hvítasunnu-
helgina, er varla að fínna
nokkra ferðamannaþjón-
ustu og hreinlætisaðstaða
er engin. Má t.d. nefna
að á Búðum var hægt að
komast á salerni þó ekki
væri formlega opið. Því
var engin þjónusta þar og
salernin vægast sagt
óþrifaleg. Þess vegna fór
fólk út í hraunið til að
gera þarfír sínar og allir
ættu að'geta vitað hvað
það verður geðslegt með
tímanum.
Einnig þyrfti að huga
að því að bæta við útskot-
um á fleiri stöðum við
þjóðveginn þar sem hægt
er að stoppa til að teygja
úr sér. Þessi útskot eru
alltof fá og of langt á
milli þeirra.
DG
Tapað/fundið
Gleraugu fundust
SJÓNGLERAUGU í blárri
og gylltri umgjörð fundúst
í Elliðaárdal fyrir nokkr-
um dögum. Eigandi má
hafa samband í síma
76729.
Hjól tapaðist
APPELSÍNUGULT og
fjólublátt 18“
Jazz/Voltage reiðhjól með
verksmiðjunúmerinu JI-
12003987, tapaðist frá
Sílakvísl 14 fyrir röskum
mánuði. Hafí einhver orðið
var við hjólið er hann vin-
samlega beðinn að láta
vita í síma 671098.
Hjól tapaðist
GULT Murrey-fjallahjól
hvarf frá sundlaug Öldu-
selsskóla í Breiðholti sl.
fímmtudag. Hafí einhver
orðið var við hjólið er hann
vinsamlega beðinn að láta
vita í síma 79470. Foreldr-
ar í hverfinu eru beðnir
að líta eftir hjólaeign fjöl-
skyldunnar.
Týnt reiðhjól
RAUTT Fchwinn-íjalla-
hjól hvarf frá Bárugötu
aðfaranótt sl. sunnudags.
Hafí einhver orðið var við
hjólið er hann vinsamlega
beðinn að láta vita í síma
21019 eða 12206 Sigrún.
Gæludýr
Kettlingar
ÞRÍR fallegir kettlingar
óska eftir nýju og góðu
heimili. Upplýsingar í
síma 73990.
Kettlingar
TVÆR móðurlausar,
kassavanar sjö vikna læð-
ur fást gefins á gott heim-
ili. Upplýsingar í síma
28747.
Kettlingar
TVEIR undurfagrir
þriggja mánaða kassavan-
ir kettlingar fást gefíns.
Upplýsingar gefur Elísa-
bet í síma 20834.
Víkveríi skrifar...
*
Iveðurblíðu undanfarinna daga
hefur landið skartað sínu feg-
ursta. Auðvitað fóru fjölmargir í
ferðalög eins og jafnan gerist um
hvítasunnuna. Þessi fyrsta stór-
ferðahelgi sumarsins virðist hafa
gengið stóráfallalaust fyrir sig og
er það vel. Reykjavík skartaði sínu
fegursta um hvítasunnuhelgina og
nutu fjölmargir Reykvíkingar úti-
vistar í borginni, án þess að leggja
land undir fót. Það er skemmtilegt
að sjá hversu vel hefur tekist til
með ýmsar endurbætur á gamla
miðbæ Reykjavíkur. Kolaportið
virðist hafa komið sér vel fyrir á
nýja staðnum í Tollhúsinu. Víkverji
var í hópi fjölmargra sem rak nefíð
inn í nýja Kolaportið á annan í
hvítasunnu. Sölubásamir eru fjöl-
margir, og sennilega hafa einhver
þúsund manna lagt leið sín þangað
um helgina. Það sem kom Víkverja
einna mest á óvart, þegar hann
gekk um Kolaportið, var að sjá allt
það samsafn af skrani, glingri,
gömlum fötum og hálfgerðu drasli,
sem þar hafði tekist að safna sam-
an, með það að markmiði að selja.
Raunar sá Víkverji ekki svo mikil
viðskipti fara fram, þá stund sem
hann staldraði við. Flestir virtust
vera komnir til þess að skoða það
sem á boðstólunum var, án þess að
ætla að ráðast í stórinnkaup. En
miðað við allt það flæmi sem lagt
er undir sölubása í nýju húsakynn-
unum, sýnist Víkverja sem Kola-
portið sé tvímælalaust orðið stærsta
skranvöruverslun landsins.
XXX
Hafnarbakki Reykjavíkurhafnar
hefur tekið stórkostlegum
umskiptum til hins betra og er nú
hið skemmtilegasta útivistar- og
leiksvæði. Börnin kunna óspart að
meta þau leiktæki sem sett hafa
verið upp fyrir þau. Frágangur allur
er afar smekklegur og snyrti-
mennskan beinlínis skín af svæðinu.
Hér hafa átt sér mikil umskipti til
hins betra og enginn vafi á því að
þetta svæði á eftir að verða vin-
sælt meðal Reykvíkinga og gesta
þeirra, einkum þegar jafn vel viðrar
og gerði nú um helgina.
XXX
á hefur ekki síður tekist vel til
með frágang og endurbætur
við Ingólfstorg, sem virðist ætla að
taka við af Lækjartorgi sem mið-
stöð í gamla miðbænum. Þar var
mikið líf og fjör, þegar Víkveiji og
samferðafólk hans gengu þar um
síðdegis á mánudag. Fjölmennur
kór ungmenna söng kirkjutónlist
að hætti kristinna Suðurríkjamanna
Bandaríkjanna og fjölmargir áheyr-
endur slógu taktinn og klöppuðu
söngfólkinu lof í lófa. Raunar fékk
Víkverji ekki betur séð en nokkrir
hermenn Hjálpræðishersins væru
svo ánægðir með söngatriðin að
þeir væru farnir að stíga nokkur
létt dansspor á t'orginu, í takt við
tónlistina!