Morgunblaðið - 25.05.1994, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 25.05.1994, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNIIMGAR MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 53 THEÓDÓR GUÐMUNDSSON + Theódór Guð- mundsson var fæddur að Vatni í Haukadal í Dala- sýslu 2. nóvember 1904. Hann Iést á Hjúkrunarheimil- inu Sunnuhlíð Kópavogi 17. maí 1994. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Ika- boðsson bóndi og Hugborg Magnús- dóttir ljósmóðir. Theódór eignaðist átta systkini: Her- dís, f. 2.3. 1887, Halldóra Ólaf- ía, f. 24.9.1888, Pálmína Sigríð- ur, f. 26.3. 1890, Magnús Ika- boð, f. 20.12. 1895, Elín, f. 13.1. 1899, Guðrún, f. 15.10. 1901, Rannveig, f. 28.5. 1907, Re- bekka, f. 30.7. 1908. ÖIl eru systkinin hans Iátin nema Rann- veig, sem dvelst í Sunnuhlíð í Kópavogi. Útför Theódórs verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn 25. maí. ER ÉG frétti andlát Theódórs Guð- mundssonar leitaði liugurinn rösk 40 ár aftur í tímann. Þá var íbúa- fjöldi Reykjavíkur um 55 þúsund og færra í boði til dægrastyttingar en nú er - og ekkert sjónvarp. Veturinn 1951-52 leigði ég her- bergi og var í fæði að Grundarstíg 2. Ekki hafði ég dvalið þar lengi er augljóst varð að á laugardags- kvöldum safnaðist hópur manna saman til að tefla skák á vegum húsráðendanna, Ólafs Jóhannes- sonar kaupmanns og konu hans Guðrúnar Sigurðardóttur. Fiestir eða allir reyndust vera Breiðfirðing- ar og tengdust með einhveijum hætti Breiðfirðingafélaginu eða skákdeild þess. Mér, leigjandanum, leyfðist stundum að fylgjast með í stofunni er þessir áhugasömu skák- menn sátu yfir kappskákum sínum. Einn af dyggustu þátttakendum var Theódór Guðmundsson frá Skörð- um í Miðdölum. Frétti ég síðar að hann væri móðurbróðir eins af kunnustu skákmönnum landsins um Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð íallegir þær mundir, Guðmund- ar Pálmasonar, og hefði mjög örvað hann og stutt til dáða á þeim vettvangi. Varð það ekki til að draga úr áhuga mínum og virð- ingu fyrir Theódóri, en kynni okkar urðu nokkru meiri en ann- arra skákmanna, þar sem við snæddum stundum saman þarna á Grundarstígnum. Theódór reyndist vera Dalamaður að ætt og uppruna, hlédrægur en hlýr í viðmóti og ómannblend- inn. Hafði flutt að Skörðum í Miðd- ölum 1913 með foreldrum sínum. Óx þar upp og átti þar heima fram á fertugsaldur í baðstofu, sem nú stendur uppi í Þjóðminjasafninu. Árið 1927 hætti faðir hans búskap og Theódór tók við ásamt þremur öðrum systkinum. En þegar atvinna glæddist í Reykjavík í byijun stríðs- ins héldu öll systkinin suður. Hann stundaði þar fyrst daglaunavinnu, en réðst 1946 til Rafmagnsveitu Reykjavíkur, þar sem hann starfaði við innheimtu, álestur og skrifstofu- störf fram til eftirlaunaaldurs 1974. Eftir langar íjarvistir lágu leiðir okkar Theódórs saman að nýju árið 1988 er hann flutti í þjónustuíbúð á vegum Sunnuhlíðarsamtakanna á Kópavogsbraut la. Þá var vinnu- þrekið þrotið og heyrnin mjög skert, en viðmótið og hlýjan hin sama og við okkar fyrri kynni. Og við tókum til við skákina eins og forðum daga, en hann hafði alltaf gaman af að stunda hana í þröngum hópi. Nú hafði hann hins vegar eignast skáktölvu, sem hann sýndi mér og kynnti glaður í bragði töfraheima hennar. Glímunnar við skáktölvuna naut hann er heyrnardeyfðin varn- aði honum tjáskipta við annað fólk á efri árum og tölvan stytti honum stundir í einverunni. Eftir að Theódór flutti í þjónustu- íbúðina við Kópavogsbrautina naut hann í ríkum mæli alúðar og um- hyggju frænda síns Ólafs Pálma- sonar og konu hans Þóru Davíðs- dóttur, sem bjuggu í næsta ná- grenni við hann og voru hans stóð og stytta. Við lok leiðar eru Theódóri færð- ar alúðarþakkir fyrir góðu kynnin að fornu og nýju, alla vinsemd og mikið traust, sem hann ávallt sýndi mér í öllum okkar samskiptum. Aldraðri systur hans og öðrum ætt- mennum sendi ég samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Ásgeir Jóhannesson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN GÍSLADÓTTIR, Skipasundi 70, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. maí kl. 13.30. Inga B. Árnadóttir, Guðrún B. Árnadóttir, Ragnar Benediktsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÓLFUR FREYR GUÐJÓNSSON húsasmiður, Langholtsvegi 132, Reykjavik, lést í Borgarspítalanum 23. maí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 30. maí kl. 13.30. + THEÓDÓR GUÐMUNDSSON frá Skörðum í Miðdölum, sem andaðist 17. maí í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn 25. maí, kl. 1 5.00. Vandamenn. + Bróðir okkar og mágur, SIGBJÖRN ÞÓRÐARSON frá Einarsstöðum, Stöðvarfirði, Háaleitisbraut 107, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. maí, kl. 10.30. Magnús Þórðarson, Jakobfna Þ. Nardella, Borghildur Þórðardóttir, Halldór Hansen. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANN STEFÁNSSON, útvegsbóndi, Miðgörðum, Grenivík, verður jarðsunginn frá Grenivíkurkirkju fimmtudaginn 26. maí kl. 14. Gíslína Kristín Stefánsdóttir, Gfsli F. Jóhannsson, Borghildur Ásta ísaksdóttir, Margrét S. Jóhannsdóttir, Oddgeir ísaksson, Stefán Jóhannsson, Þórey Aðalsteinsdóttir, Nanna Kristfn Jóhannsdóttir, Birgir Már Birgisson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir og afi, LÁRUS M. K. GUÐMUNDSSON, Mávahlíð 16, Reykjavík, er lést 17. maí sl., verður jarðsunginn 27. maí kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Jónína Nieljohníusdóttir, Ólafur Lárusson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Guðmundur Lárusson, Anna Guðmundsdóttir, Ragnar Lárusson, Eygló Óskarsdóttir, Lára M. Lárusdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Sigríður Lárusdóttir, Þorsteinn Gunnlaugsson og barnabörn. salir og mjög g()ð þjónusta. Upplvsingar ísíma22322 FLUGLEIDIR HéTEL LVFTLEISIR | 2 Látið okkur annast erfidrykkj una. Fyrstaflokks þjónusta og veitingar. Rúmgóð og þœgileg salarkynni. Upplýsingar í síina 29900 E R FI DKVkkJI l{ Regína Erlingsdóttir, Sverrir Þórólfsson, Laufey Kristjónsdóttir, Guðrún Gyða Þórólfsdóttir, Loftur Bjarnason, Kristfn Erla Þórólfsdóttir, Gylfi Guðmundsson, Guðlaug Þórólfsdóttir, Sigfús Cassata, Auður Þórólfsdóttir, Ingi Steinn Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móöiLokkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SIGURSTEINSDÓTTIR frá Djúpadal, Rangárvallasýslu, Óðinsgötu 14, Reykjavík, andaðist á heimili sínu laugardaginn 21. maí. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 30. maí nk. kl. 15.00. Birgir Gunnarsson, Sigrún E. Gunnarsdóttir, Kristfn Ó. Gunnarsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Sigursteinn Gunnarsson, Ólafur Gunnarsson, Sigurjón Ragnarsson, Björgvin Guðmundsson, Kristín Sigurðardóttir, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. LEGSTEINAR H€LLUHRflUNI 14. HAFNARFIRÐI, SÍMI 91-652707 + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður og tengdasonar, BJÖRNS MATTHÍASSONAR, Grasarima 24, Reykjavik. Sérstakar þakkir til starfsfólks heima- hlynningar Krabbameinsfélagsins. Ragnheiður Gísladóttir, börn, foreldrar, systur og tengdaforeldrar. + Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, fósturmóður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa- langömmu, ÖNNU MARÍU EINARSDÓTTUR frá Hellissandi. Hans A. Clausen, Helena Clausen, Dagmar Clausen, Haukur Clausen, Herluf Clausen, Kristín Sigmarsdóttir, Guðmundur Clausen, Heiða Guðjónsdóttir, Friðrik Á. Clausen, Jóhanna Clausen, Trausti Gunnarsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.