Morgunblaðið - 25.05.1994, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 25.05.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 37 Morgunblaðið/Kristinn TALSVERÐAR deilur risu þegar framkvæmdir í miðbæ Hafnarfjarðar hófust. á baugi í Hafnarfirði eins og um land allt. í bænum eru nú um 430 manns atvinnulausir og eru oddvitar listanna sammála um að eitthvað verði að gera í þeim málum. Ingvar Viktors- son segir að brýnt sé að leggja fé til Atvinnueflingar hf., en fyrirtækið ræður yfir áhættufjármagni og fé til nýsköpunar. Einnig væri bæjar- stjómin að stuðla að kaupum á 1.000 tonnum af rússafiski. Magnús Gunn- arsson segir að Sjálfstæðisflokkurinn vilji lækka álögur á fyrirtæki og reyna að skapa þeim sem best rekstr- arskilyrði. Magnús Jón Amason segir að vænlegast sé að reyna að fá meiri fisk til bæjarins, bærinn þurfi að gangast í að fá fisk á markaði og einnig að útvega meiri kvóta. Jó- hanna Engilbertsdóttir, oddviti B- listans, segir að byggja þurfi upp hafnarsvæðið og reyna að fá meiri fisk til bæjarins. Einnig vilji Fram- sókn setja á stofn atvinnuþróunarsjóð sem ynni að nýsköpun og reyndi að fá ný fyrirtæki í bæinn. Jóhanna og Bryndís benda einnig á ferðaþjónustu sem vænlegan vaxta- brodd og hlúa þurfi að uppbyggingu hans. Umdeildur miðbær Á síðasta ári hófst bygging rúm- lega 11.000 fermentra verslunar- og skrifstofuhúsnæðis í miðbæ Hafnar- fjarðar. Miklar deilur urðu vegna byggingarinnar og skrifuðu um 5.300 Hafnfirðingar undir mótmæli gegn framkvæmdunum. Var byggingin lækkuð í kjölfarið, en framkvæmdir hafnar og er stefnt að því að ljúka hluta byggingarinnar í byrjun nóvem- ber. Bryndís segir að mikið skipulags; slys hafí verið unnið í miðbænum, í stað þess að Hafnarfjörður hefði yfir- bragð notarlegs fiskibæjar væri nú komið óaðlaðandi stórhýsi í miðbæinn. Jóhanna Engilbertsdóttir segir að hún hefði viljað að efnt hefði verið til sam- keppni um miðbæinn, en fyrst byrjað sé að byggja þar, verði ekki aftur snúið. Ingvar Viktorsson er bjartsýnn á að það takist að fylla allt það versl- unar- og skrifstofurými sem skapast, en þegar er búið að úthluta stórum hluta þess húsnæðisins. Aðrir fram- bjóðendur eru ekki eins bjartsýnir og segja allir að þeir voni að það gangi að fá starfsemi í húsið, annað væri hörmuleg tilhugsun. Roman Herzog, sem kjörinn var forseti Þýskalands sl. mánudag, er sextugur að aldri, kristilegur demó- krati og kaldhæðinn íhaldsmaður, sem kemur þó stundum á óvart með „barnalega ftjálslyndum" skoðun- um svo notuð séu hans eigin orð. Svo oft hefur hann vakið furðu landa sinna sem stjómmálamaður og forseti hæstaréttar, að þeir eru alls ekki vissir um hvernig hann verði sem forseti landsins. Blaðamenn lýsa Herzog gjarna sem „óútreiknanlegum“ en víst er, að hann mun segja skoðun sína umbúðalaust eða að því marki, sem honum leyfist sem forseti. Það verð- ur hins vegar ekki auðvelt fyrir hann að taka við af Richard von Weizsácker, sem hefur verið vinsæl- asti stjórnmálamaður Þýskalands í 10 ár vegna baráttu sinnar gegn kynþáttahatri. Sjálfum varð Herzog næstum hált á þeim málum í ann- ars tilþrifalítilli kosningabaráttu þegar hann sagði í einu af mörgum viðtölum, að útlendingar, sem vildu ekki þýskan borgararétt, ættu að fara úr landi. Reitti frjálsa demókrata til reiði Frjálsir demókratar, samstarfs- flokkur kristilegra demókrata, urðu Ihaldsmaður með „barnslega frjálslyndar“ skoðanir kjörinn fyrsti forseti í sameinuðu Þýskalandi Næsti forseti Þýskalands HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, og Roman Herzog voru bros- mildir og bjartsýnir fyrir þriðju og síðustu umferðina í kjörmanna- samkundunni enda hefur Kohl líklega vitað, að samstarfsflokkur kristilegra demókrata í stjórn, frjálsir demókratar, myndu ekki skerast úr leik. ROMAN HERZOG æfír yfir þessum ummælum en vegna þess, að forsetinn er ekki kjör- inn í almennum kosningum, heldur af kjörmannasamkundu, gátu þeir ráðið því hvor yrði fyrir valinu, Herzog eða Johannes Rau, frambjóð- andi jafnaðarmanna. Urðu nokkrir til að hvetja til, að flokkurinn styddi Rau. Minnti þetta mál á misheppnað val Helmuts Kohls kanslara á fyrsta frambjóðandanum i forsetaembætt- ið, Steffen Heitmann, sem varð að hætta við allt saman vegna óvinsam- legra ummæla um útlendinga. Herzog kvaðst hins vegar hafa verið misskilinn og gagnrýnendur hans áttu ekki auðvelt með að útmála hann sem öfgafullan hægrimann vegna skoðana hans að mörgu öðru leyti. Frjálsir demókratar studdu hann því þegar á hólminn var komið og er það talið vera mikill sigur fyr- ir Helmut Kohl kanslara. í þriðju og síðustu umferðinni á mánudag fékk Herzog 696 atkvæði og Rau 605. Eftir aðra umferðina dró Hildegard Hamm-Brúcher, frambjóðandi fijálsra demókrata, framboð sitt til baka en áður höfðu helst úr lestinni Jens Reich, sem bauð sig fram fyrir Samfylkingu 90, flokk austur-þýskra lýðræðissinna og græningja, og Hans Hirzel, fram- bjóðandi Repúblikanaflokksins, öfgafullra hægrimanna. Þetta eru 10. forsetakosningarnar frá stofnun Sambandslýðveldisins 1949 og þær fyrstu í sameinuðu Þýskalandi. Forseti Þýskalands er ekki kjörinn í almennum kosningum eins og fyrr segir, heldur af 1.324 kjörmönnum og til fimm ára í senn. Þingkosning- ar eru hins vegar á fjögurra ára fresti og því geta þær aðstæður komið upp, að vilji meirihluta kjós- enda sé allur annar en hann var í þingkosningunum. Þannig er það nú því að samkvæmt skoðanakönnun- um vilja 75% kjósenda jafnaðar- manninn Johannes Rau sem forseta en aðeins 19% Roman Herzog. Af þessum sökum krefjast þess margir, að teknar verði upp beinar forseta- kosningar. Vill standa vörð um þá sátt, sem Þjóðverjar hafa samið við sjálfa sig eftir stríð, og segir Þýskaland eiga að gegna sínu hlutverki á al- þjóðavettvangi með óþvinguðum hætti Weizsácker og Herzog RICHARD von Weizsácker, forseti Þýskalands, ásamt Roman Herzog, sem tekur við embættinu 1. júlí nk. Með þeim eru eiginkon- ur þeirra, Marianne Weizsácker og Christiáne Herzog. Standa þau fyrir framan forsetabústaðinn, Schloss Bellevue. Ruglaði gagnrýnenduma í ríminu Herzog gat sér orð fyrir hörku 1982 þegar hann var innanríkisráð- herra Baden-Wúrttembergs en þá lagði hann til, að þeir, sem tækju þátt í setuverkföllum, yrðu látnir greiða kostnaðinn við lögregluað- gerðir þeirra vegna. Sem hæstarétt- ardómari kom hann síðan gagnrýn- endum sínum á óvart með því að úrskurða, að ekki væri hægt að banna mótmælaaðgerðir aðeins vegna þess, að ofbeldisfullur minni- hluti kynni að vilja að misnota þær. Herzog varð forseti hæstaréttar Þýskalands 1987 en hann lét það aldrei standa í vegi fyrir pólitískum yfirlýsingum um ýmis mál. Hann var til dæmis mjög óánægður með þá tilhneigingu þýsku stjórnmála- flokkanna að láta hæstarétt skera úr um viðkvæm mál eins og það hvort þýskir hermenn skuli taka þátt í friðargæslu á vegum Samein- uðu þjóðanna erlendis og 1992 sner- ist hann gegn stefnu sins flokks, kristilegra demókrata, í innflytj- endamálum og hvatti til, að útlend- ingum í landinu yrði gert auðveld- ara með að gerast þýskir ríkisborg- arar. Ekki var laust við, að Herzog væri skjálfraddaður þegar hann þakkaði fyrir sig að lokinni at- kvæðagreiðslu í kjörmannasam- kundunnf. Kvaðst hann mundu sem forseti standa vörð um það besta í fari Þjóðveija og ekki síst þá sátt, sem þeir hefðu samið við sjálfa sig eftir stríð. Sagði hann, að Þjóðveij- ar yrðu að gegna sínu hlutverki í alþjóðamálum með óþvinguðum hætti og án yfirgangs og lýsti sam- einingu Þýskalands sem krafta- verki. Sagði hann einnig, að Vestur- Þjóðveijar væru ríkari vegna þess, að Bandaríkjamenn hefðu hjálpað þeim eftir stríð en Austur-Þjóðveij- ar hefðu fengið yfir sig kerfi, sem hefði rænt þá arðinum af vinnunni. Nokkrir úr flokki jafnaðarmanna hafa gagnrýnt þau ummæli Herzogs, að hann vilji, að Þjóðveijar séu í sátt við sjálfa sig og telja, að það geti þýtt, að Þjóðveijar eigi að gleyma fortíðinni. Kvaðst Rudolf Scharping, leiðtogi Jafnaðarmanna- flokksins, vona, að Herzog yrði betri forseti en fyrsta ræða hans hefði gefið til kynna. Hörð viðbrögð Kohls Kohl brást hart við þessum um- mælum og sagði, að þau lýstu því einu, að jafnaðarmenn kynnu ekki að taka ósigri. Þá kallaði hann það hræsni þegar Scharping ýjaði að því með óbeinum hætti, að rétt væri að taka upp beinar forseta- kosningar í stað kjörmannasam- kundunnar. Sagði hann, að í stjóm- arskrá Þýskaiands eftir stríð hefði verið kveðið á um kjörmannasam- kundu beinlínis til að koma i veg fyrir mistökin í Weimar-Iýðveldinu þegar Paul von Hindenburg forseti skipaði Adolf Hitler kanslara 1933. Seharping réðst raunar einnig á frjálsa demókrata, .sem hann sagði hafa „selt sig“ kristilegum demókr- ötum en jafnaðarmenn horfa vonar- augum til samstarfs við fijálsa demókrata eftir þingkosningarnar 16. október í haust. Hann neitaði því hins vegar, að stjórnarmynd- unarkostir jafnaðarmanna hefðu þrengst vegna samstöðu stjórnar- flokkanna í forsetakjörinu. Herzog er sérfræðingur í alþjóða- rétti og talar móðurmálið með greinilegum, bæverskum hreim. Hann er mótmælendatrúar en ekki kaþólskur eins og flestir íbúar Bæj- aralands, kvæntur og á tvo upp- komna syni. Hann tekur við forseta- embættinu af Weizsácker 1. júlí næstkomandi. Forsetaembættið í Þýskalandi er að mestu valdalaust en kosningin nú skiptir þó verulegu máli í pólitík- inni því að á þessu ári eru samtals 19 kosningar í ýmsum fylkjum landsins og loks almennar þingkosn- ingar. Kohl kanslari hefur verið að draga á Rudolf Scharping í skoð- anakönnunum og því mun samstaða stjórnarflokkanna um Herzog verða til að styrkja hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.