Morgunblaðið - 25.05.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 25
LISTIR
Gestalistamenn í leik
MÁLARINN Simone Stoll frá Þýskalandi, og innsetningarmaður-
inn Hevre Nahon frá Frakklandi.
MYNPUST
Portið
Málverk/innsetning
HERVE NAHON - SIMONE STOLL
Opið daglega milli 14-18 til 29.
maí. Aðgangur ókeypis
PORTIÐ í Hafnarfírði býður þessa
dagana upp á kynningu á tveim lista-
mönnum, sem dvalið hafa í gestaíbúð
Reykjavíkurborgar undanfarna mán-
uði, málaranum Simone Stoll frá
Þýskalandi, og innsetningarmannin-
um Hevre Nahon frá Frakklandi.
Bæði lifa og starfa í London og til-
heyra listamannahóp er nefnir sig
„Pullit“, og hafa unnið saman og
hvort í sínu horni undanfarin þijú ár.
Sá er hér ritar vissi ekkert af þess-
ari gestaíbúð, sem mun vera í List-
húsinu við Engjateig, en gott er til
þess að vita að Reykjavíkurborg hug-
ar loks að þessum þætti listmiðlunar.
Framkvæmdin í Portinu er dálítið
hijúf og hrá og má það vera sýn
útlendinganna á íslenzkum veruleika
og þannig séð hefur hún vissa þýð-
ingu fyrir okkur.
Innan um innsetningu, þar sem
ljósmyndir eru settar á nýlegar báru-
járnsplötur og fyrirferðarmikill ískl-
umpur er að smábráðna á miðju
gólfi, sér í dýrindis sjónvarp! I báðum
sýningarsölunum eru hljómtæki af
dýrustu gerð er endurvarpa mismun-
andi tónlist, annars vegar klassískri
en hins vegar úr samtímanum. Þetta
getur svo aftur vísað til andstæðn-
anna í þjóðfélaginu, sem bein og
óbein tilvísun ásamt mörgu öðru sem
einkennir yfirborðslegt og rótlaust
þjóðfélag er gengur illa að jarð-
tengja þjóðarsálina. Eins og fram
kemur hjá svo mörgum myndlistar-
mönnum er heimsækja Island, láta
listamennirnir hrífast af hinni sér-
kennilegu og síkvikulu birtu og harða
myrkri sem einkennir norðurslóðir,
og telja sýn sína aðra en íslenzkra
myndlistarmanna. Þeir veiti henni
síður athygli vegna þess að þessar
staðreyndir eru allt um kring, en
útlendingar upplifi þetta í fyrsta sinn.
Þetta er að mörgu leyti rétt í ljósi
þeirrar myndlistar, sem vafalífið hef-
ur verið haldið að þeim meðan á
dvölinni stóð, en í sumum tilvikum
þó alrangt, því margur íslenzkur
myndlistarmaðurinn gengur beinlínis
fyrir birtugjafanum í list sinni með-
vitað sem ómeðvitað.
Á sýningunni er ekki alltof gott
að átta sig á því hvað er eftir hvern,
því myndverkin eru ekki merkt og
því síður fylgir sýningarskrá og hafa
gerendurnir þar látið fallerast af
þeim „ágæta“ íslenzka sið löggilts
nýlistafólks, að höfða einungis til
örfárra innvígðra, sem þakka svo
aftur almættinu fyrir að vera ekki
eins og allir hinir!
En þó er klárt að málverkin eru
eftir Simone Stoll og eru þau af hijúf-
ara taginu og ekki sá ég, sem rann-
saka þó mikið íslenzka birtu, mikla
og djúpa innlifun í það flókna nátt-
úruferli. Þá eru ljósmyndir Hevre
Nahon mest eintóna skuggamyndir
þar sem greina má ýmislegt þekkjan-
legt og kenni ég ei heldur djúpa lifun
í íslenzkt myrkur.
Sýningin er sem brotabrot,
sundurlausra og einhæfra áhrifa af
landinu og rétt er að raunveruleg
úrvinnsla tekur lengri tíma eins og
listamönnunum er báðum ljóst. Verð-
ur að óska gestunum mikillar giftu
í þeirri úrvinnslu, og hún virðist í
raun hafin svo sem fram kemur á
sjónvarpsskerminum, sem frá mínum
bæjardyrum séð verður að telja það
langsamlega athyglisverðasta á sýn-
ingunni.
Bragi Ásgeirsson
A
Islenska óperan
Erindi um
Niflunga-
hringiim
og Wagner
í TENGSLUM við Wagnerdaga í
Reykjavík mun Barry Millington
halda erindi um Richard Wagner og
Niflungahringinn í íslensku óper-
unni, fimmtudaginn 26. maí. Erindið
hefst klukkan 20.30.
Barry Millington er víðkunnur sér-
fræðingur í tónlist Richards Wagn-
ers, segir í fréttatilkynningu, og hef-
ur hann meðal annars skrifað ágæta
ævisögu tónskáldsins í ritröðinni
„Master Musicians“. Hann var einnig
ritstjóri hins mikla ritverks, The
Wagner Compendium, sem fjallar um
flesta helstu þætti í lífi og verkum
Richards Wagners. Barry Millington
hefur haldið fyrirlestra um Wagner
víða um heim en að þessu sinni verð-
ur áherslan lögð á Niflungahringinn
og með erindinu verða leikin tón-
dæmi upp úr verkinu. Erindið verður
flutt á ensku og er aðgangur ókeyp-
is og öllum heimill.
R-listinn fyrir íþróttir
Helena Ólafsdóttir knattspyrnukona,
Magnús Orri Schram knattspyrnumabur,
Ólafur Ari Jónsson knattspyrnuma&ur,
Geirlaug Geirlaugsdóttir frjálsíþróttakona,
Óskar Þorvaldsson knattspyrnuma&ur,
Bryndís Ernstdóttir frjálsíþróttakona,
Þórhallur Víkingsson knattspyrnuma&ur,
Torfi Magnússon þjálfari
körfuknattleikslandsli&sins,
Einar Kristjánsson frjálsíþróttama&ur,
Elsa Nielsen badmintonkona,
Árni Þór Hallgrímsson badmintonmaður,
Svanhildur Kristjánsdóttir frjálsíþróttakona,
jónína Olesen karatekona,
Sigurbjörg Haraldsdóttir knattspyrnukona,
Björn Einarsson knattspyrnuma&ur,
Pétur Þ. Óskarsson knattspyrnumaður,
Vilhjálmur Vilhjálmsson knattspyrnuma&ur,
Orri Hlö&versson knattspyrnumaður.