Morgunblaðið - 25.05.1994, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ1994 43
BORGAR- OG SVEITARSTJÓRI\1 ARKOSIMINGARIMAR 28. MAÍ
Kjósandi! Aðgættu
Hvernig er haegt að
halda saman hópi
manna með ólíkar lífs-
skoðanir? Er hægt að
setja traust sitt á að
þar vinni menn af ein-
hug og í bróðemi? Eru
menn tilbúnir að leggja
sitt fjöregg í hendur
slíks hóps?
Hver svari fyrir sig.
Ég er þeirrar skoðunar
að ekki sé á það hætt-
andi. Hagsmunir
manna eru ætíð háðir
þeim hópi, sem þeir eru
runnir úr; menn hafa
oftar en ekki í bak-
þankanum hvemig
gjörðir þeirra mælast fyrir í þeim
hóp sem að baki þeirra stendur.
Slíkt er mannlegt.
Skoðun mín á samsullinu á
vinstri vængnum er því þannig
grunduð, að ég álít að mannlegt
eðli þeirra, sem í einlægni vilja láta
þetta heppnast, verði viljanum
sterkari, þegar á skeiðið líður. Þetta
er ekki palladómur um þá einstakl-
inga sem fara fram til baráttunnar,
síður en svo. Margt er þar mætra
manna, sumir greindir og velmein-
andi. Það dugir mér samt ekki, því
að um er að ræða framtíð og giftu
Reykjavíkurborgar. Það er alkunna
að þegar hætta steðjar að fari, þá
sest skipstjóri ekki niður og gerist
milligöngumaður milli vélstjóra og
háseta í deilum þeirra. Samhugur
verður að ríkja en ekki langvarandi
orðræður til að jafna „áherslu-
punkta“ eins og það heitir hjá
vinstri bræðingnum.
Útþynntar klisjur úr fortíðinni
eru enn á borð bornar
en kjósendum er jafn-
framt talin trú um að
allt sé breytt, kommar
ekki til, maóistar fyrir-
finnist ekki, kerfiskrat-
ar bara á Alþingi; þeir
eru bara þar í að redda
mönnum um embætti;
frammarar eru ekki
lengur í hagsmuna-
gæslu fyrir sambands-
tengd frirtæki og að
Kvennalistinn er breið-
fylking en ekki stjórn-
málaflokkur með rætur
í rauðsokka-hugarleik-
fimi. Það er aldeilis
með eindæmum hversu
kjósendum er ætlað að kokgleypa
mikið í einu af bræðings-vísdómi.
Það mikla erfiði sem stjórnvöld
Meirihluti eins flokks
skilar borgarbúum
meiru, að mati Bjarna
Kjartanssonar, en
fjögurra ára „sátta-
þing“ vinstri flokka með
mismunandi áherslur og
stefnur.
hafa þurft að standa í til að gera
svörðinn aftur frjóan eftir vinstri
rányrkju væri fyrir gýg unnið ef til
valda kæmu menn með vinstri úr-
ræðin, sama grautinn í nýrri skál.
Kjósendur verða að hugsa sig vel
um, því að framtíð er í veði.
Sjálfstæðismenn hafa ætíð þurft
að fara fyrir til þess að gera mögu-
lega uppbyggingu að nýju. Það má
ekki vera refsivert að lagfæra og
búa í haginn, þó svo að stundlega
kreppi að í lífsgæðum.
Ef val á lista Alþýðuflokks, Al-
þýðubandalags, Framsóknarflokks-
ins og Kvennalistans er smjörþefur-
inn af þeim'~lýðræðislegu“ vinnu-
brögðum sem í heiðri verða höfð
við störf að hagsmunamálum Reyk-
víkinga, óar mér. Ingibjörg Sólrún
sagði í grein í Morgunblaðinu 6.
þ.m. að hún ætlaði að ráða ýmsum
hlutum, verða verkstjóri með um-
boði listans. Illt held ég að verði
fyrir Sigrúnu að lynda við slíkt.
Kratar verða ekki að heldur par
hrifnir. Einu mennirnir sem ég tel
una þessu verða kommarnir, því að
stefna Ingibjargar Sólrúnar hefur
ekki breyst svo ýkja mikið í raun,
síðan hún var þar á palli.
Kjósendur mega ekki gleyma því
sem gott hefur verið gert á þessu
kjörtímabili í Reykjavík, undir for-
ystu sjálfstæðismanna. Það er ekki
réttlátt að refsa þeim er vel gera
fyrir vammir vinstri manna í stjórn-
un landsmála. Sjálfstæðismenn eru
ætíð að hreinsa upp eftir vinstra
sukk. Kjósendur verða að skilja
þarna á milli.
Það er einungis eitt til varnar
hinum almenna launamanni. Stuðn-
ingur við Sjálfstæðisflokkinn og
grundvallarhugsjónir hans um
stéttasamvinnu.
Höfundur er forstöðumaður.
Bjarni
Kjaiítansson
Rómverjana burt?
FRAMBOÐ R-list-
ans til borgarstjórnar
ber frekar keim af
óánægju með störf
Sjálfstæðisflokksins en
af heilsteyptri stefnu.
Lýsandi dæmi um álíka
óánægju er að finna í
grínmyndinni „Life.of
Brian“, þar sem Monty
Python-gengið leikur
andspyrnuhóp í Júdeu
gegn Rómverjum sem
réðu þar eins og víðar.
Foringi hópsins leiðir
umræðu: „Rómverjar
hafa tekið allt sem við
eigum. Hvað hafa þeir
látið okkur fá í staðinn?" Einn svar-
ar: „Vatnsveituna!" Annar svarar:
„Heilbrigðiskerfið!“ Foringinn: „Já,
vatnsveitan og heilbrigðiskerfið er
það eina.“ Síðan heyrist: „Rósirn-
ar!“ „Já, það __ er nú
sjálfsagt." „Áveitur!
Lyf! Menntun! Og vín-
ið, já vínið er eitt af
því besta! Almenn-
ingsböð! Og nú er
óhætt að ganga um
göturnar!" Foringinn:
„Já, þeir halda reglu.
En fyrir utan vatns-
veituna, heilbrigðis-
kerfið, áveituna, lyfin,
menntunina, vínið og
löggæsluna, hvað hafa
þeir gert fyrir okkur?"
Löng þögn. Loks svar-
ar einn: „Þeir hafa
komið á friði.“ Foring-
inn gefst þá upp á þeim og segir:
„Æ, þegiði!"
Líkt er farið með þær gríðar-
miklu framfarir sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur staðið að í Reykja-
R-listinn reynir að fá
fólk til að gleyma því
sem áunnizt hefur, að
sögn Ivars Pálsson, en
sú stundarvíma gæti
reynst dýr.
vík sl. 12 ár, þar sem friður hefur
verið til starfa: R-listinn reynir að
fá fólk til þess að gleyma því sem
áunnist hefur, en sú stundarvíma
gæti reynst okkur dýr. Munið eftir
D-listanum á kjördegi!
Höfundur er viðskiptafræðingur
og rekur útflutningsfyrirtæki.
ívar Pálsson
Borgarstjóra- a
efniá
móti Kringlunni
í ÁGÚST verða sjö
ár liðin frá opnun versl-
unarmiðstöðvarinnar
Kringlunnar, en hún
markaði að mörgu leyti
tímamót í íslenskri
verslun. Kringlan er nú
orðin ómissandi hluti
af borgarlífinu og
þangað koma um sjötíu
þúsund manns í hverri
viku. Verslunarmið-
stöðin er ekki síður vin-
sæl meðal íbúa ná-
grannasveitarfé-
laganna og lands-
byggðarinnar. Þannig
hefur hún aukið hlut
Reykjavíkur í heildar-
verslun landsins og skapað fjölmörg
störf. Nú vinna á milli 6-700 manns
í Kringlunni og eru þá ekki talin
þau störf sem hún skapar óbeint
fyrir Reykvíkinga.
Kringlan skapar atvinnu
Áður en Kringlan var opnuð leit
út fyrir að vægi Reykjavíkur í heild-
arverslun landsins myndi minnka,
enda voru uppi áform um byggingu
stórra verslunarmiðstöðva í ná-
grannasveitarfélögunum. Með
byggingu Kringlunnar tók Reykja-
vík hins vegar afgerandi forystu í
íslenskri verslun, sem seint verður
ógnað. Stærri hluti heildarverslunar
landsmanna á sér nú stað í Reykja-
vík en nokkru sinni fyrr. Með dugn-
aði og atorkusemi hafa reykvískir
verslunarmenn þannig skapað
ijölda starfa í borginni. Reykvíking-
ar hafa einnig verið svo heppnir að
meirihluti sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn hefur stutt þessa uppbygg-
ingu. Þá hefur borgarstjórn einnig
stutt við bakið á verslunum í Mið-
bænum og Við Laugaveginn með
ýmsum ráðum. Þannig hefur ekki
verið hikað við að veita athafna-
mönnum og frumkvöðlum svigrúm
til athafna. Þeim hjálpað að renna
fleiri stoðum undir atvinnulíf borg-
arinnar.
„Hrapalleg mistök“
Ekki voru þó allir á þeirri skoðun
að leyfa ætti byggingu Kringlunn-
ar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóraefni R-listans, barðist
með kjafti og klóm gegn bygging-
unni og skipulagi nýja miðbæjarins.
Þegar rætt var um þetta skipulag
í borgarstjórn 1983 lét hún m.a.
bóka eftirfarandi: „Kvennafram-
boðið getur ekki samþykkt þá til-
lögu að skipulagi nýs miðbæjar sem
hér liggur fyrir, enda
teljum við að hér séu
á ferðinni hrapalleg
mistök í skipulagsmál-
um, sem geti haft ófyr-
irsjáanlegar afleiðing-
ar í för með sér. Viljum
við sérstaklega nefna
stórmarkað í því sam-
bandi.“ Árið 1984
samþykkti borgar-
stjórn að leyfa bygg-
ingu Kringlunnar. Þá
sagði Ingibjörg Sólrún
í ræðu í borgarstjórn:
„Ég held að öllum
borgarfulltrúum sé
ljóst að við höfum í
Kvennaframboðinu
lagst eindregið gegn því að stór-
markaður yrði reistur í nýjum
miðbæ ... nú er komið að því að
gera það allt saman að raunveru-
leika og úthlúta Hagkaupum lóðinni
og við munum að sjálfsögðu mót-
mæla því.“
Seinheppin baráttukona
Ingibjörg Sólrún hefði ekki getað
verið óheppnari með baráttumál.
Kringlan blómstraði frá opnunar-
degi og er nú orðin ómissandi hluti
Reykvíkingar geta
þakkað fyrir, segir -
Kjartan Magnússon,
að Ingibjörg Sólrún var
ekki borgarstjóri árið
1984 því aðþáhefði
Kringlan ekki risið og
skapað alla þá atvinnu
sem hún veitir nú.
af borgarlífmu. Reykvíkingar geta
þakkað fyrir að Ingibjörg Sólrún
var ekki borgarstjóri árið 1985, því
að þá hefði Kringlan ekki risið tívg
skapað alla þá atvinnu sem hún
veitir nú. Á næstu misserum og
árum reynir á að Reykjavíkurborg
veiti athafnafólki sem mest svigrúm
til atvinnusköpunar. Afstaða Ingi-
bjargar Sólrúnar til Kringlunnar og
fleiri atvinnumála sýna svo ekki
verður um villst að henni er ekki
treystandi fyrir framfaramálum
Reykvíkinga.
Höfundur er sagnfræðinemi.
Kjartan
Magnússon
iult Cllo RT érg. '91, svartur, ek. 46
n. Verö kr. 700.000. - Gófi kjör.
34 þ. km. Verð kr.
grænsans, ek.
Subaru Legacy 1800 station árg. '91,
sjólfsk., ek. 79 þ. km. Verö kr. 1.490.000.
Toyota Corolla 1300 station árg. '88, gull-
sans, ek. 115 þ. km. Verö kr. 490.000.
Peugeot 506 árg. ’87, hvítur, 7 manna, ek.
98 þ. km. Mjög góður bíll. Verð kr. 590.000.
- VANTAR ALLAR GERID BILA A SKRA
Chevrolet Blazer árg. '87, rauöur, sjálfsk.,
rafm. rúöur, ólfelgur. Verö kr. 1.050.000.
Flat Tempara órg. '91, blósans, ek. 47 þ.
km. Einn m/öllu. Verð kr. 790.000.
Mazda 626 1600 LX árg. ’87, grósans, ál-
felgur, ek. 93 þ. km. VerÖ kr. 530.000.
MMC Lancer station 4WD árg. '88, grá-
sans, topplúga. VerÖ kr. 630.000.
Nissan 100 NX árg. '92, rauður, t-toppur,
rafm. rúður, ek. 42 þ. km. Verð kr.
1.200.000.