Morgunblaðið - 25.05.1994, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Stjörnumáltíð er afsláttarmáltíð með t.d.
Big Mac, McGóðborgara eða McKjúkling
ásamt miðst. affrönskum og gosdrykk.
Barnagaman er McHamborgari með litlum
skammti affrönskum oggosdrykk í
spilaöskju með hættulausu vönduðu
leikfangi, nýtt í hverri viku.
...þjónar þér
Hard Racer öryggishjálmurinn hefur góða
loftun, stórir endurskinsfletir eru á hliðum,
framan og aftan. Hjálmurinn er með
stillanlegar reimar og hægt er að skipta um
höfuðpúða í honum.
Þú kaupir STJORNUMALTIÐ eða BARNAGAMAN
hjá McDonald’s og nýtur stórafsláttar á
viðurkenndum reiðhjólahjálmum hjá Olís.
Olís öryggishjálmur. Tilboðsverð kr. 1,590,-. En með
McDonald’s miða aðeins kr. 1.340,-. Þú sparar kr. 250,-.
Verndum þau, sem okkur þykir verulega vænt um.
Stjörnumáltíð/Barnagaman og kaupaukatilboð
qqqq McDonald’s og Olís eru afsláttur ofan á afslátt.
Leyfishafi McDonald 's
íslensktfýrirteeki
íslenskar landbúnaðarafurðir
i>cio oorgar sig nja uus
Það borgar sig hjá McÐónahi 't
Kaupaukatilboö. Gildir til l.júlí 1994. Ekki breytanlegt.
Alltaf góður matur
Alltaf góð kaup
SUÐURLANDSBRAUT 56
ÞÉR GOTT AÐ BORÐA Á
McDONALD’S
Weetob/x
r
WfrPtjrrvr WrfíotwP xfV&’WWfarjrr K49V&Wr .----1
TREFJARIKT
ORKURÍKT
FITUSNAUTT
HOLLT...
og gott með
mjólk, súrmjólk
AB mjólk
og jógúrt.
Einnig með sykri,
sultu og hunangi,
eða blandað
ferskum
og þurrkuðum
ávöxtum.
KOSNINGARNAR 28. MAÍ
Atvinnumálin
í öndvegi
„ATVINNULEYSI
er minnst í Kópavogi
af stóru sveitarfé-
lögunum,“ sagði
Gunnar Birgisson,
formaður bæjarráðs
Kópavogs, á opnum
framboðsfundi í Þing-
hólsskóla 16. maí sl.
Með þessum orðum
er hann sennilega að
vísa til þess að mikið
hafi verið gert í at-
vinnumálum í Kópa-
vogi á síðasta kjör-
tímabili. En er það
svo?
Staðreyndin er sú
að það hefur ekkert
verið gert í atvinnuskapandi verk-
efnum í Kópavogi. Ársreikningar
Kópavogskaupstaðar sýna svo
ekki verður um villst að framlag
bæjarins til atvinnumála hefur
ekki verið neitt. Á sama tíma hafa
bæjarfélög eins og Hafnarfjörður
og Akureyri farið af stað með
stórátök í málefnum atvinnu-
lausra.
A-listi jafnaðarmanna leggur
mikla áherslu á að Kópavogskaup-
staður komi til móts við atvinnu-
lausa, m.a. með því að aðstoða
fyrirtæki við vöruþróun og mark-
aðssetningu framleiðsluvara
sinna. Með því skapast fleiri var-
anleg atvinnutækifæri í bænum
og atvinnuleysi minnkar.
Jafnaðarmenn í Kópavogi
leggja einnig á það mikla áherslu
að nú þegar verði gripið til úrræða
fyrir atvinnulausa einstaklinga í
bænum. Það er alveg Ijóst að það
er ekkert kappsmál fyrir atvinnu-
lausa að búa í því bæjarfélagi þar
sem atvinnuleysi er mikið eða lít-
ið. Sú staðreynd er þeim lítil sálu-
hjálp. Bæjaryfirvöld þurfa að
koma nú þegar á fót miðstöð fyrir
atvinnulausa, þar sem áhersla er
lögð á að skapa þeim aðstæður til
að vinna að hugðarefnum sínum,
t.d. smíðum, saumum eða öðru
handverki. Þar verði atvinnulaus-
um jafnframt sköpuð aðstaða til
að leita sér að vinnu. Það er nefni-
lega staðreynd að margir atvinnu-
lausir einstaklingar hafa ekki efni
á að kaupa dagblöðin eða hringja
í fyrirtæki til að spyija fyrir um
vinnu, hvað þá að ferðast um og
fara í viðtöl. Þessir einstaklingar
eiga það inni hjá samfélaginu að
þeim sé hjálpað, ekki
á morgun eða næsta
dag, þessi aðstoð þarf
að skapast í dag. Á
það leggur A-listi
jafnaðarmanna í
Kópavogi áherslu.
Félagsmál unglinga
í ólestri
Félagsmál ungl-
inga hafa mikið verið
í umræðunni í Kópa-
vogi, ekki síst vegna
þess að einungis ein
félagsmiðstöð er
starfandi í bænum.
Sú félagsmiðstöð er
staðsett í Þinghóls-
skóla, í Vesturbæ Kópavogs, og
var komið á fót í tíð síðasta meiri-
hluta.
Bæjaryfirvöld í Kópa-
vogi þurfa nú þegar, að
mati Ingibjargar Hin-
riksdóttur, að koma
upp miðstöð fyrir at-
vinnulausa.
Það efast enginn um mikilvægi
þess að búa vel að unglingum í
Kópavogi. Mikilvægi félagsmið-
stöðva og útideildar sem forvarnar
gegn vímuefnanotkun og afbrot-
um unglinga er gríðarlegt. Þess
vegna leggja jafnaðarmenn
áherslu á að félagsmál unglinga
hafi forgang á komandi kjörtíma-
bili. Það þarf að endurvekja starf
útideildar, sem lögð var niður af
núverandi meirihluta, og koma á
fót félagsmiðstöðvum í öllum
grunnskólunum, sem hafa 6.-10.
bekk. Jafnframt þarf að koma á
fót félagsmiðstöð miðsvæðis í
bænum og er þá hús Krossins í
Auðbrekku, sem bærinn er nýbú-
inn að festa kaup á álitlegur kost-
ur.
Það þarf að tryggja það að for-
varnarstarf gegn vímuefnum og
afbrotum unglinga sé öflugt í
Kópavogi. Á það leggur A-Iisti
jafnaðarmanna í Kópavogi
áherslu.
Höfundur skipar 5. sætið á A-lista
í Kópavogi.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
Lausir tímar í maí og júní
Litgreining eitt kvöld.
Fatastíls- og framkomunámskeið tvö kvöld.
Fyrirlestrar fyrir vinnustaði og félagasamtök.
Tímapantanir teknar í _
síma 623160, umARMmm
milli kl. 16 og 18, T~————-———
, , ~ ° J Snyrtí- og tiskuhus/lmage Design Studio
mánud.- nmmtud. Vesturgötu 19. 101 Reykjautk, tei: 623160
v___________________________________
DANMÖRK
VIKULEGA
Norræna félagið býður ódýrar ferðir
til Billund á Jótlandi alla sunnudaga á
tímabilinu 5. júnítil 14. ágúst.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
Norræna félagsins í símum 91-10165
og 19670.